Alþýðublaðið - 09.11.1977, Side 2
alþýðu'
Miðvikudagur 9. nóvember 1977 Maoið
2
Gjafir til Krabba-
meinsfélagsins
Undanfarið hafa marg-
ar gjafir og mörg áheit
runnið til Krabbameins-
félags Islands. Má þar
nefna áheit frá fyrirtæki,
sem ekki kærir sig um að
láta nafns síns getið.
Upphæðin var 255.878
krónur, en fyrr á þessu
ári fékk Krabbameins-
félagið einnig áheit frá
þessu sama félagi að
upphæð 125.000 krónur.
Nemendur Húsmæöraskólans
aö Laugalandi i Eyjafiröi ’44-’45
gáfu minningargjöf um Huldu
Indriöadóttur frá Arnarholti i
Biskupstungum, aö fjárhæö
60.000 krónur.
Minningargjöf frá Valgeröi
Guðmundsdóttur að fjárhæö
20.000 krónur. Til minningar um
eiginmann Valgerðar, Hjálmar
Jóhannsson og dóttur hennar,
Guörúnu Hjálmarsdóttur.
Nemendur úr 4. bekk
Verzlunarskóla Islands '57,
minntust tveggja látinna skóla-
félaga i tilefni af 20 ára út-
skriftarafmæli, meö rúmlega
120.000 króna gjöf til Krabba-
meinsfélagsins.
Auk þeirra, sem upp hafa ver-
ið taldir hefur fjöldi annarra
gefið gjafir og áheit, bæöi litlar
og miklar upphæðir.
íslenzk ullaráklædi
vekja mikla
athygli erlendis
Fyrr á þessu ári hóf Ála-
foss h.f. framleiðslu og
sölu nýrrar tegundar ullar-
áklæða. Hefur þessi nýja
frámleiðsla vakið mikla
athygli erlendis nú þegar
og umsagnir verið mjög
lofsamlegar.
Nýlega birtist t.d. grein I tima-
ritinu „Textile Month” sem er
eitt virtasta rit, sem gefið er út
um vefnaðariðnaöinn, en þar var
sagt frá áklæöa- og gólfteppasýn-
ingu sem haldin var i London á
dögunum.
Þar var meðal annars fariö
mjög lofsamlega um islenzku
áklæðin, og þau talin meðal „þess
bezta” sem hafi veriö á sýning-
unni. — JSS
Ný hár-
skerastofa
opnuð
A fimmtudaginn var
opnaði Garöar Sigurgeirs-
son hárskerastofu að Hótel
Loftleiðum.
Garöar hefur starfað sem hár-
skeri i átta ár, þar af fjögur sið-
ustu árin i Osló hjá nýkrýndum
Evrópumeistara i hárskuröi,
Kaare A. Nielsen. Garðar lærði
hárskurð hjá Guðjóni Jónassyni
aö Veltusundi 1.
Guðjón hefur tekið þátt i all-
mörgum hárskurðarmótum og
unnið til verðlauna bæði hérlendis
og erlendis.
Hárskerastofa Garðars veröur
opin frá 9-6 virka daga.
—ATA
Stórgjöf til
H veragerð i sk i r k j u
Hinn 1. nóv. síðastliðinn,
afhenti Gísli Sigurbjörns-
son forstjóri elli- og hjúkr-
unarheimilisins Grundar,
Hveragerðiski rk j u kr.
2.200.000.00 að gjöf.
Stjórn Grundar gefur þessa
stórkostlegu gjöf úr stofnenda-
sjóði, til minningar um stofn-
endur, þá séra Sigurbjörn A.
Gislason, Flosa Sigurðsson,
Harald Sigurðsson, Július Arna-
son og Pál Jónsson, i tilefni af 55
ára afmæli Grundar, þ. 29. okt.
1977.
Fyrir hönd safnaðarins, færir
prestur og sóknarnefnd, forstjór-
anum og stjórn Grundar, alúðar-
þakkir fyrir höfðingjlega gjöf og
biður þeim og stofnuninni bless-
unar guðs. (Fréttatililkynning.)
Af nýjum bókum
Skákþjálfun
eftir Alexander Koblenz
Út er komin hjá Timaritinu
Skák, ný bók handa skákunn-
endum. Nefnist hún Skák-
þjálfun, og er eftir Sovéska
skákþjálfarann Alexander
Koblenz.
Nafn þessa manns er, útaf
fyrir sig, trygging fyrir góðri
vöru. Koblenz var persónulegur
trúnaðarvinur og þjálfari
Mjchail Tals, fyrrverandi
heunsmeistara, á meðan sá
siðarnefndi stóð i slagnum við
Botvinnik. Tal þakkaðí það ekki
sist afburðagóðum ráð-
leggingum A. Koblenz, að hann
náöi þvi takmarki sinu að verða
heimsmeistari.
Bókin er 144 bls. og skiptist i
16 kennslustundir, auk æfinga-
kafla sem fylgja hverri kennslu -
stund. Bókin er sérstaklega
skrifuð fyrir þá sem ætla sér af>
ná langt i skáklistinni, og má
þvi búast við að handagangur
veröi i öskjunni, um þaö bil sem
upplag bókarinnar þrýtur.
Islendingar eru frægir fyrir
að láta ekki góðar bækur franri
hjá sér fara, allra sist um skák,
og er ekki að efa, að allir þeir,
sem gaman hafa af töfrum
skáklistarinnar, tryggi sé:r
eintak i tima, áður en það er of
seint.
92% fallinna dóma varða
umferðarlagabrot
Samkvæmt skýrslu sem
prófessor Ármann
Snævarr hefur tekið
saman um dóma á Islandi
á árunum 1972-1974, þá
varðar yfirgnæfandi
meirihluti fallinna dóma
brot á umferðarlögum. Á
þessu árabili hafa fallið
alls 1972 dómar, þar af
hvorki meira né minna en
1826 fyrir umferðarlaga-
brot eða um 92%.
Þessar upplýsingar komu fram
i máli Sigurlaugar Bjarnadóttur,
alþm. þegar hún mælti i gær fyrir
frumvarpi um breytingar á um-
ferðarlögum en það flytur hún
ásamt Ellert B. Schram. Megin-
efni frumvarpsins er það að við
endurnýjun ökuskirteinis skuli
umsækjandi standast skriflegt
próf i umferðarlöggjöf. Þá er gert
ráð fyrir að taka upp „punkta-
kerfi” fyrir handhafa ökuleyfa.
Skal þá skráð hjá lögreglu-
stjóranum i Reykjavik brot sem
viðkomandi ökumaður fremur á
ökuferli sinum i hvaða lögsagnar-
umdæmi sem er og ef i ljós kemur
að sami maður er valdur að
itrekuðum umferðarlagabrotum
þá skal hann sviptur ökuleyfi um
lengri eða skemri tima.
Sigurlaug Bjarnadóttir minnti
á hinn geigvænlega slysafaraldur
sem gengiö hefur yfir að undan-
förnu t.d. það að nú þegar væru
banaslys i umferð á þessu ári
orðin 30 talsins. Sagði hún
nauðsynlegt að sporna viö fótum
varðandi versnandi umferðar-
menningu og kvað „sofandahátt,
glannaskap, ósvifni og frekju”
orsakir flestra óhappa i umferö-
inni.
Karvel Pálmason tók til máls
um frumvarpið og lýsti stuðningi
við það. Hann kvaðst hafa verið
samskonar frumvarpi andvigur i
fyrra, þar sem i þvi hefðu verið
tvö atriði sem nú væru fallin út.
Annað væri ákvæðið um lög-
leiðingu öryggisbelta sem Karvel
kvað skiptar skoðanir um hvort
væri leið til úrbóta og hitt væri
ákvæðið um sérstakan ökuskóla
fyrir landið sem átti að vera stað-
settur i Reykjavik. Hann tók
undir þau orð flm. að ökuleyfis-
svipting væri liklega árangurs-
rikasta aðferðin til að refsa fyrir
umferðarlagabrot.
Ný pólsk grafík ad
Kjarvalstödum
Laugardaginn 12.
nóv. kl. 15, verður opn-
uð að Kjarvalsstöðum
sýning á grafikmynd-
Transmission, eftir Wojciech
Kryzywobtocki.
um eftir 34 pólska
myndgerðarmenn.
Verkin á sýningunni
eru alls 130 talsins og
unnin með ýmiskonar
tækni, svo sem
ætingar, akvatintur,
mezzotintur, tréristur,
dúkristur, þurrnál og
gifsþrykk.
í tengslum við sýninguna
verður kynningar- og fræðslu-
dagskrá, sem hér segir:
Laugardaginn 12. nóv. kl. 15 —
Sýningin opnuð.
Þriðjudaginn 15. nóv. kl. 20.30.
Fyrirlestur: Ryzard Olreba.
Sunnudaginn 20. nóv. kl. 20. —
Pólsk nútlmatónlist.
Miðvikudaginn 23. nóv. kl.
20,30 — kvikmyndir um pólska
graflk.
Fimmtudaginn 24. nóv. kl. 21
— Um pólska vefjalist. —
Hrafnhildur Schram.
Mynd eftir Mariu JAS
Fyrir utan gluggann, eftir Flóinn um nótt, eftir Mariu Wasowsku.
Andrej Pietsch.