Alþýðublaðið - 24.11.1977, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 24. nóvember 1977
v
G
W
Ný gerd af pyls-
um á markaðinn
i nýútkomnu fréttabréfi
frá Kjötiðnaðarstöð Sam-
bandsins „Góðar fregnir"
er sagt frá nýrri gerð af
fitulitilli pylsu/ sem Kjöt-
iðnaðarstöðin hefur hafið
framleiðslu á. Pylsan er
framleidd úr kálfakjöti,
mögru nautakjöti og svína-
kjöti/ ásamt kartöflumjöli
og mildu kryddi. Fituinni-
hald hennar verður innan
viö 6%.
Er hér því komin pylsa
sem allir geta borðað án
þess að hugsa um of um
línurnar.
Pylsa þessi var kynnt á Iðn-
kynningunni i Laugardalshöll og
fékk mjög góðar undirtektir
sýningargesta, enda hefur marg-
ur veigrað sér viö pylsuáti vegna
þess hversu fitandi hún hefur ver-
ið talin. En með tilkomu þessarar
nýju fitulitlu pylsu ætti öllum aö
vera óhætt. Pylsur þessar munu
nefnast Léttpylsur, og koma þær
i verzlanir á næstu dögum.
—KIE
Hljjódupptökumistök sjónvarps
Magnús Torfi
vill láta
rannsaka málið
— Jón Ármann sló upptöku-
mönnunum við!
I umræðum um kosn-
ingalöggjöfina og kjör-
dæmamálin á þingi fyrr í
nóvember upplýsti Jón
Skaftason að hann hefði
beðið starfsmenn sjón-
varpsins um að útvega
sér útskrift á viðræðum
forystumanna stjórn-
málaflokkanna í sjón-
varpssal í september s.l./
þar sem þeir meðal ann-
ars voru spurðir áiits á
hugmyndum um breyt-
ingar á kosningalöggjöf-
inni og fleiru því tengdu.
Þegar til átti að taka
reyndist hljóðupptaka á
þættinum hafa farið úr
böndum og var útskriftin
með öllum óskiljanleg og
ónothæf.
Magnús Torfi Ólafsson gerði
þetta atvik aðumtalsefni á þingi
I gær, þegar kjördæmamálið og
kosningalögin voru enn til um-
ræöu, og sagði að þetta atvik
gæfi fyllilega tilefni til rann-
sóknar á orsökum þess til að
fyrirbyggja að slikt kæmi fyrir
aftur hjá sjónvarpinu. Beindi
hann þvi til menntamálaráð-
herra að dómbærir menn utan
stofnunarinnar könnuðu hvern-
ig þetta mætti gerast, hvort hér
væri um aö kenna mannlegum
mistökum, gölluðum tækjakosti
eöa öðru. Eftir að könnun þessi
hefði verið gerð, ætti ráðherr-
ann siðan að kynna þingheimi
niðurstöður hennar.
Jón Skaftason tók til máls á
eftir Magnúsi Torfa og greindi
frá þvi að hann hefði þrátt fyrir
allt náð i afrit af samtalsþætti
foringjanna, þvi eftir að málið
heföi komið til umræðu um dag-
inn, hafi Jón Armann Héðins-
son, þingbróðir hans i Reykja-
neskjördæmi, látið sig vita að
hann hefði afrit af þessum sögu-
fræga samtalsþætti undir hönd-
um. Mun Jón Armann hafa tekið
þáttinn upp á segulband og las
Jón Skaftason nokkrar tilvitn-
anir úr ummælum stjórnmála-
foringjanna máli sinu til stað-
festingar. Þar með var málinu
bjargaö!
Ungur maður
eftir pilluát!
Unnið er að rannsókn á
dauðsfalli sem átti sér
stað á mánudagskvöld í
húsi einu við Bergstaða-
stræti.
Lögreglan var kvödd að
húsinu um klukkan 20.
þegar lögreglumenn
komu á staðinn fundust
tveir menn liggjandi á
gólfi hússins. Var annar,
27 ára gamall/ látinn, en
hinn meðvitundarlaus.
Auk mannana tveggja
voru 11 aðrir í húsinu, all-
ir undir áhrifum lyfja
og/eða áfengis.
Við rannsókn kom i ljós að
maðurinn sem lézt hafði inn-
byrgt mikið magn örvandi og
róandi lyfja. Likt er talið að
hann og kunningi hans sem
fannst meðvitundarlaus hafi
farið i eins konar pillukappát,
sem getur vart endað öðru visi
en með skelfinu.
Lyfjunum höfðu 3 af þeim 14
sem i húsinu voru stolið úr ibúö i
Hafnarfirði. Til allrar hamingju
tókst að dæla lyfjunum upp úr
þeim sem meðvitundarlaus var.
Haukur Bjarnason, rannsókn-
arlögreglumaður, sagði i viðtali
við blaðið að hér hefði ekki verið
um óvenjumikið magn að ræða,
svo sem ætla mætti, heldur að-
eins „venjulegan heimilis-
skammt”. Haukur sagði að ekki
væri unnt aö segja meö fullkom-
inni vissu til um hver væri dán-
arorsök mannsins þar eð niður-
stöður krufningar lægju ekki
fyrir. Haukur kvað ljóst um
hvaða lyf hefði verið að ræða, en
vildi þó ekki nefna þau.
ATA/KIE
Fuglafræðingur og þingmaður í TTrjúpustríöi”:
Lagt til að veiðitíma
rjúpunnar verði breytt
Jónas Árnason (AB) hef-
ur lagt til að lögum um
fuglaveiði og fuglafriðun
verði breytt á þann veg, að
„rjúpnaskyttum verði upp-
álagt að hafa hemil á sér
einum mánuði lengur en
hingað til, rjúpnaveiðar
hef jist ekki fyrr en 15. nóv-
ember, en standi svo til 22.
janúar í staðinn fyrir 22.
desember, eins og kveðið
er á um í núgildandi lög-
um", eins og segir í grein-
argerð.
Þingmaðurinn segir I greinar-
gerðinni, að svo virðist sem von-
laust sé að fá rjúpuna friðaða fyr-
ir fullt og allt þar sem Finnur
Guðmundsson, fuglafræðingur,
vilji ekki heyra á það minnst. Þvf
spyrji margir sem svo: „ Er
rjúpan orðin einkafugl Finns
Guðmundssonar? ”
Alitur þingmaðurinn að með
þvi að færa veiðitimann dýpra inn
I skammdegið, að þá styttist sá
timi sem skotljóst yrði og af þvi
hlytist nokkur friðun.
Samhljóða frumvarp var flutt i
fyrra, en hlaut ekki fullnaðaraf-
greiðslu. Þá mælti Búnaðarfélag
Islands með samþykkt þess, en
Finnur Guðmundsson lagðis gegn
þvi.
„Flutningsmaður leyfir sér að
endurflytja þetta frumvarp
hvað sem Finnur Guðmundsson
segir”, segir i lok greinargerðar
með frv.
Helgarskákmót TR
Taflfélag Reykjavíkur
gengst fyrir helgarskák-
Fræðslufund-
ur Fugla-
verndunar-
félagsins
Þriðji fræðslufundur Fugla-
verndarfélags Islands verður i
Norræna Húsinu miðvikudag-
inn 30. nóvember 1977 kl. 8.30.
Tómas Tómasson ,'r.akara-
meistari synir og skýrir lit-
skuggamyndir frá svæðinu frá
Þjórsá austurum til og með
öræfasveit. Þar eru myndir
frá öllum árstimum, myndir
teknar i kringum Mýrdalsjök-
ul, af Kötlu svæðinu, Lakagig-
um og öræfajökli.
Tomas hefur i áratugi sér-
hæft sig i landslagsmyndum
og sýndi fyrir nokkrum árum
og voru myndir hans frábær-
ar.
öllum heimill aðgangur
meðan húsrúm leyfir.
Stjórnin
móti um næstu helgi.
Tefldar veröa sjö umferðir
eftir Monradkerfi og er
umhugsunartími ein
klukkustund á skák. Mótiö
hefst á föstudaginn klukk-
an 20 og verða þá tefldar
tvær umferðir. Á laugar-
daginn hefst keppnin
klukkan 13 og verða tef Idar
þrjár umferðir. Tvær síð-
ustu umferðir mótsins
verða síðan tefldar á
sunnudag og hefst keppnin
þá klukkan 14.
Góð verðlaun eru i boði. Fyrstu
verölaun eru 40 þúsund krónur,
en yeitt eru fimm aöalverðlaun I
mótinu, þau lægstu 8 þúsund
krónur. Einnig verða veitt tvenn
verðlaun þeim konum, sem bezt-
um árangri ná, svo og þrenn
verðlaun fyrir 14 ára og yngri.
Skráning i mótið er hafin og er
öllum heimil þátttaka meðan hús-
rúm leyfir, en keppnin fer fram i
skákheimilinu að Grensásvegi 46.
Hitaveita nær til
75-80% þjódarinnar
árin 1980-1985!
Á árunum 1980-1985
munu um 75-80% þjóðar-
innar búa við hitaveitu, sé
tekið mið af fyrirliggjandi
áætlunum um þessi mál.
Allt frá því að olíuverð á
heimsmarkaði tók að
hækka árið 1973 hefur mik-
il áherzla verið lögð á að
auka nýtingu þessa inn-
lenda orkugjafa, þar eð
oliuverðhækkunin skipti
sköpum um hagkvæmni
slikra fyrirtækja.
i árslok 1977 munu um
60% þjóðarinnar búa í hús-
um sem hituð eru með
vatni frá hitaveitum.
Arið 1973 var áætluð brúttó-
orkuframleiðsla hitaveitna i
landinu samtals 3100 glgawatt-
stundir sem svaraði til rúmlega
23% af heildarorkunotkun i land-
inu. Arið 1976 var framleiðslan
3400 gigawattstundir og svaraöi
það til tæplega 29% af heildar-
orkunotkun I landinu.
Arið 1973 fluttu tslendingar inn
gas- og brennsluoliu samtals
463394 tonn, sem svaraöi til 5578
gigawattstunda og var það um
42% af heildarorkunotkun. Arið
1976 voru flutt inn 389933 tonn af
gas- og brennsluolium sem svar-
aði til 4685 gigawattstunda sem
var um 40% af heildarorkunotk-
un.
ES
Dagvistar-
málafundur
ad Hallveigar-
stöðum í dag
Dagvistarsamtökin
voru stofnuð 26. nóv-
ember 1976. Markmið
þeirra er að berjast
fyrir fjölgun dagvistar-
stofnana hér á landi. Að
undanförnu hefur virkt
starf samtakanna legið
niðri að mestu, en hefst
nú aftur af krafti.
Fyrsta verkefnið er
hverfafundur að Hall-
veigarstöðum fimmtu-
daginn 24. nóvember kl.
20.30, og er hann fyrst og
fremst ætlaður ibúurn i
vesturbæ.
Þar verða Dagvistar-
samtökin kynnt og siöan verða
umræður um ástand dag-
vistarmála i þeim borgar-
hluta.
Dagvistarsamtökin munu
siðar beita sér fyrir slikum
fundi i öllum hverfum borgar-
innar.
Dagvistarsamtökin eru opin
öllum þeim er vilja leggja
baráttumáli þeirra lið og get-
ur fólk hvar sem er á landinu
haft samband viö þau i gegn
um Laufey Tryggvadóttur,
Hringbraut 47, Reykjavik,
simi 28186.