Alþýðublaðið - 24.11.1977, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 24.11.1977, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 24. nóvember 1977 alþýöu' blaðíd tJtgefandi: Alþýbuflokkurinn. ( Rekstur: Reykjaprent h.f. Ritstjóri og ábyrgöarmaður: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Einar Sigurös- s°n. Aösetur ritstjórnar er I Siðumúla 11, slmi 81866. Kvöldsfmi fréttavaktar: 81976. Auslýsingadeild, Aiþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 —slmi 14906. Askriftar-og kvartanaslmi: 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverö 1500 krónur á mánuöi og 80 krónur I lausasölu. Pyngja verkamannsins segir sannleikann Þegar rætt er um verð- bólguna og orsakir henn- ar komast hagspakir menn og atvinnurekendur oftast að þeirri niður- stöðu, að launahækkanir séu helzti verðbólguhvat- inn. Að þeirra dómi er það launafólkið í landinu, sem öllu stefnir í voða. Að undanförnu hefur Alþýðublaðið birt fréttir um samanburð á launa- hækkunum síðustu tíu ár- in og hækkunum á ýms- um nauðsynjavarningi og öðrum vörum. Þar kemur meðal annars í Ijós, að á síðustu tíu árum hækkaði kaup verkafólks í al- mennri fiskvinnu um 956 prósent. Þetta eru háar tölur. En tölurnar verða ennþá hærri, þegar kann- að er hve mikið neyzlu- vörurnar hafa hækkað. Þannig hefur til dæmis eitt kílógramm af f iski til neytenda hækkað um 1200 til 1600 prósent á sama tíma. Kjöt og mjólkuraf urðir hafa á síðustu tíu árum hækkað um 1300 prósent, áfengi hefur hækkað um 1000 prósent og síma- kostnaður Reykvíkinga um 1309 prósent. Árið 1967 kostaði eitt kílógramm af smjöri 108 krónur, en kostar nú 1342 krónur. Hækkunin nemur 1140%. Sama ár kostaði mjólkur- lítrinn 8 krónur og 70 aura, en kostar nú 92 krónur. Hækkunin er 958 prósent, eða nærfellt hin sama og nemur launa- hækkun verkamanna í al- mennri fiskvinnu á sama tímabili. Fyrir tíu árum Fréttir hafa nú borizt af því, að skotglaðir menn hafi valdið mill- jóna tjóni með því að skemma rafmagnslínuna norður í land. Með nokkr- um skotum hafa þessir menn hækkað skatta samborgara sinna og kostaði eitt kílógramm af ýsuflökum 28 krónur, en kostar nú 420 krónur. valdið þeim verulegum erfiðleikum. Sé mynd- birting af afbrotamönn- um réttlætanleg, þá ættu öll blöðin að birta flenni- stórar myndir af þessum herrum. Skemmdarverk á eign- um hins opinbera eru Hækkunin nemur 1400 prósentum. Það kann að hljóma óþolandi. Minna má á milljóna tjón, sem ungl- ingar valda á ári hverju í Reykjavík með skemmd- um á götuljósum, um- ferðarmerkjum og öðrum opinberum eignum. Það er kannski mun alvar- legra, að borgararnir Skemmdarverk og andvaraleysi sérkennilega að tala um prósentu hækkanir, þegar þær eru komnar yfir eitt hundrað, því prósenta jafngildir hundraðshluta. Þegar farið er að tala um 1400 prósent hækkun á tíu árum, er það jafn af- káralegt og verðbólgu- þróunin á þessu tímabili. Þegar þessi samanburður er gerður, sem að f raman greinir, er vissulega mið- að við lægstu laun fyrir tíu árum. Hins vegar á jafnlaunastefna að hafa bætt úr. Hin mikla hækk- un nauðsynjavarnings hlýtur því að snerta mun stærri hóp nú, en hún hefði gert fyrir tíu árum. Það hefur stundum verið sagt, að hvað sem allri hagspeki liði, út- reikningum og efnahags- stefnum, þá yrði það alltaf pyngja verka- mannsins, sem segði sannast og réttast frá ástandi mála Það eru ekki launahækkanir, sem sök eiga á verðbólguþró- uninni, heldur gegndar- laus fjáraustur ríkis- valdsins í misjafnlega arðbærar framkvæmdir, þar sem ríkisvaldið hefur verið í farabroddi með yfirborganir og skapað óþolandi spennu á vinnu- markaðnum. virðast andvaralausir gag nvart þessum skemmdarverkum. Ann- aðhvort stendur þeim á sama, eða þeir hafa ekki kjark til að blanda sér i málin: vilja ekki flækjast inn í einhver leiðindamál, eins og það er stundum orðað. Þetta afskiptaleysi er sjúk- dómseinkenni, og er ekki síður nauðsynlegt að ráð- ast gegn því en skemmd- arvörgunum. — ÁG UR YMSUM ÁTTUM Útverðir lýðræðisins og lýðrædid Málgagn hjálpræöis þjóöar- innar, mogginn, birtir miöviku- daginn 23. nóvember athyglis- veröan leiöara. Þar segir, meö- al annars: „I tengslum viö prófkjör sjálfstæöismanna I Reykjavík var kjósendum gefinn kostur á aö svara spurningum um nokkra málaflokka, i þvi skyni aö kanna afstööu almennings til nokkurra mála. Ein þeirra spurninga, sem lagöar voru fram I þessarri skoöanakönnun var á þá leiö hvort kjósandinn værihlynntur þvl aö varnarliöiö tæki þátt I þjóövegagerö hér- lendis. Spurningu þessarri var ætlaö aö kanna afstööu almenn- ings til þeirra hugmynda, sem fram hafa komiö um aö taka beri leigugjald af bandariska vamarliöinu, vegna dvalar þess hér. Niöurstaöan varö sú, aö 7.254 svöruöu þessarri spurn- ingu játandi, 1. 510 neitandi. I forystugrein sl. laugardag itrekaöi Morgunblaöiö ein- dregna andstööu sina viö þær hugmyndiraö gera öryggismál- in aö féþúfu. Niöurstaöa þess- arar skoöanakönnunar veröur Morgunblaöinu ekki tilefni til aö breyta þessari skoöun. Þvert á mótimun þessi neikvæöa niöur- staöa gagnvart heiöri og hags- munum islensku þjóöarinnar veröa Morgunblaöinu hvatning til þess aö færa fram þær upp- lýsingar og rök, sem duga til þess aö sannfæra mikinn meiri- hluta þjóöarinnar um, aö þaö myndi leiöa til ófarnaöar og siö- feröilegrar upplausnar, ef þessi leiö hins skjótfengna gróöayröi valin.” Hvar eruö þér nú, útveröir lýöræöis á islandi? Ekki skulum viö hafa mörg orö um þá nýju stefnu mál- gagnsins aö berjast nú gegn yfirlýstum vilja meirihluta þátttakenda i starfi sjálfs hjálp- ræöisins. Hins vegar munum viö ekki betur en mogginn hafi sjálfurgjarna faliö málarekstur sinn, sem Iþessum efnum hefur einkum miöaö aö óbreyttu hernaöarsambandi milli islands og Bandarikjanna, bak viö þá skoöun sina, aö meirihluti þjóöarinnar væri fylgjandi þvi án breytinga. Annars berokkur aö fagna þvi og fagna þvi vel, aö blessaö Morgunblaöiö skuli nú hafa ákveöiö aö skera upp herör, gegn þeim öflum „ófarnaöar og siöferöilegrar upplausnar”, sem unnu sigur I prófkjöri sjálfs hjálpræöis þjóöarinnar, Sjálf- stæöisflokksins. SIS þá ráðalaust Og svo er þaö hinn helmingur fjérmálaaflsins á islandi. Timinn átti I gær, miöviku- dag, viötal viö einn af starfs- mönnum sjávarafuröardeildar SÍS, um skreiöarsölumál. Þar segir viökomandi fulltrúi Samvinnuhreyfingarinnar I fyrirsögn: „Máliö flóknara en svo aö hægt sé að leysa það meö mút- um — og smygl hefur ekki kom- iö til greina”. Þar meö er blessaö Sambandið algerlega varnarlaust, enda ekki von aö mennirnir geti kom- iö framleiöslu sinni á markaö, ef þeir eru algerlega sviptir möguleikum til aö beita þeim aöferöum er þeir hafa tamiö sér. Samræmdar Svó var þaö önnur fyrirsögn i Timanum, sama dag. Þar er frá þvi skýrt aö almannavarnir vilji nú kaupa fjarskiptatæki fyrir Kröflu og Kötlu. Þaö má vera lýöum ljóst, að ráöamenn eru orðnir langeygir eftir gosi i Kröflu, þessu sem sérfræðingarnir hafa spáð með reglulegu millibili undanfarna mánuði. Hins vegar þurfti snjalla menn á borð við starfsmenn almannavarna, til aö sjá þenn- an möguleika. Ef hægt verður aö koma á fjarskiptasambandi milli Kröflu pg Kötlu, er þó nokkur von aö Krafla geti nokk- uð lært, af spjallinu, þvi Katla hefur langa reynslu. Svo gætu þær stöllurnar lika samræmt aðgerðir sinar. —HV

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.