Alþýðublaðið - 24.11.1977, Page 6

Alþýðublaðið - 24.11.1977, Page 6
Fimmtudagur 24. nóvember 1977 6: Setja þarf lög um vernd gegn mis- notkun talva glæpsamleg athæfi. Skattyfir- völd telja sig eiga rétt á aö afla vitneskju um tekjur og eignir manna. Heilbrigöisyfirvöld krefjast heimildar til að fá aö vita um smitandi sjúkdóma. Og opinber þjóöunstufyrirtæki eins og útgefendur vegabréfa, raf- veitur, bankar, tryggingastofn- anir og lánveitendur munu fara fram á upplýsingar um okkur sem viðskiptamenn. Á mörgum öörum sviðum kunna hags- munir einstaklinga og sam- félagsins einnig að rekast á. Aöur en töivur og nútima samgöngutækni komu til skjal- anna leystust þessi vandamál af sjálfum sér, fyrir viöskipta- þarfir og aö lögum. Þegar sam- félagiö var einfalt fyrirbrigöi vissu allir hverjir væru liklegir til aö hafa vitneskju um aöra. Jafnvel i flóknara samfélagi eins og borgarlifi fyrir siöari heimsstyrjöldina vissu menn deili á þvi hversu persónulegar upplýsingar bárust manna i milli og skildu þaö fyrirbæri. Mönnum var yfirleitt kunnugt um hvaö læknirinn, lögfræö- ingurinn, skattstofan, bankinn og nábúinn vissu um þá. Mest af þvi var frá þeim sjálfum komiö. Ekki var liklegt að þeir lækju þvi i aöra og ef svo færi var hætt við aö það kæmist fljótlega upp, en i þvi tilfelli var venjulea hægt aö fá vernd að lögum. Allt hefur þetta breyst meö einni kynslóö. Nú er svo komiö aö stórtölvur stjórnvalda sveitarfélaga og rikis, heil- brigðisþjónustu, lögreglu, banka og annarra fjármála- stofnana, vátryggingarfélaga, upplýsingaskrifstofa og atvinnuveitenda geyma firn upplýsinga um fjölda fólks. Nú getur enginn verið öruggur um hver veit hvaö og i hvaöa til- gangi upplýsingar veröa not- aöar. Kynni tölvan, sem af- greiöir lyfseöilinn fyrir getnaöarvarnapilluna aö vera i sambandi viö tölvu er fæst viö kjörskrá, bankareikning, láns- reikning, bókasafnsútlán, fiug- og gistihúsapantanir, svo og skattstofu-, lögreglu- og öryggismálatölvu? Og ef svo kynni að vera, hver gæti þá safnað saman öllum upplýsingum um einstaka borgara og til hvers mætti nota þær? Vandamálið liggur mjög ljóst fyrir. Þaö hefur gjarnan veriö talið ógnvekjandi og satt aö segja hefur ekkert þessu likt gerst fram að þessu i lýöræöis- rikjum vesturlanda. En þaö er oröið áhyggjuefni margra að nú er fyrir hendi tækni, sem gerir þetta mögulegt og aö hún tekur framförum með hverjum mán- uöi sem liður, og að til skamms tima hefur vestræn löggjöf ekki einu sinni gert ráö fyrir vanda- málunum, sem tækni þessi skapar. Þaö kann aö vera of seint aö tryggja einkalif allra borgara, en þaö er enn ekki um seinan aö vernda þessar upplýsingar. Þess vegna hefur tölvuvernd orðið mikið atriði i mann- réttindalöggjöf. Vesturþýska fylkiö Hessen var fyrst til að setja tölvuverndarlög áriö 1970. Siöan kom annað fylki 1974. Sviþjóö var fyrst til aö koma stjórn á tölvuvernd áriö 1973. Bandarikin settu lög um einkalif 1974 og Vesturþýskaland 1976. Stjórnarfrumvörp liggja fyrir i Austurriki, Danmörku, Frakk- landi og Noregi. Opinberar til- lögur biöa afgreiöslu i Hollandi og á Spáni. Opinberar nefndir eru aö undirbúa tillögur i Finnlandi, Italiu og Bretlandi. Greinilegt er að rikisstjórnum ■ er ljóst hvaöa vandamál steöjar aö og að þær hyggjast takast á viö vandann. Evrópuráðið hefur verið leiöandi afl á þessu sviði, en þaö samþykkti ályktanir um tölvuvernd fyrir einstaklinga i september 1973 og fyrir almenn- ing ári siöar. Er nú veriö aö vinna aö alþjóðasamþykkt um tölvuvernd til að samræma lög- gjöf hinna ýmsu landa um það efni og tryggja að ekki gefist tækifæri fyrir óvandaöa aöila til aö fara kringum lögin. Efna- hags- og framfarastofnunin og Efnahagsbandalag Evrópu eru einnig aö hefja störf I þessum málum. Hverjar eru reglurnar, sem settar eru meö löggjöf um tölvu- vernd? óhjákvæmilega hljóta þær aö vera mjög mismunandi eftir þvi hvaöa land og opin- berar stofnanir eiga i hlut. En eftirfarandi er a.m.k. sameigin- legt með þeim: — Þegnarnir ættu aö vita hvaöa miöstöövar tölvuupplýsinga eru fyrir hendi og hvaða upplýsingar þær hafa aö geyma. — Lögin ættu að segja fyrir um hvernig slikra upplýsinga er aflaö, hversu lengi þær eru geymdar, hverjir hafa aðgang að þeim og I hvaöa til- gangi þær eru notaöar. — Séu upplýsingarnar rangar, ófullkomnar, óviðeigandi eöa úreltar ætti aö veita viökom- andi þegn tækifæri til að fá þær leiöréttar eða felldar niöur. — Einhver þyrfti aö bera laga- lega ábyrgö á aö tryggja aö reglum þessum sé hlýtt. Meginreglurnar eru nógu ein- faldar, en erfiðara er aö segja hvernig eigi að koma þeim viö I hinum ýmsu löndum. Enn erfiöara er aö segja um hvernig beri að beita þeim i tölvu- kerfum, sem ná til margra landa. En þetta er hægt meö þrýstingi frá þegnunum og sam- tökum þeirra, svo og velvilja stjórnvalda. Þetta er núverandi verkefni Evrópuráösins og aöildarrikja þess. Ef þeim tekst aö leysa vandann án tafar þurfum viö ekki aö hafa martröð út af tölvum annarra aöila og einka- lifs okkar sjálfra. En tækninni fleytir óöfluga fram og ekki er mikill timi til stefnu. PAUL SIEGHART Höfundur þessarar greinar er Paul Sieg- hart, mannréttinda- lögfræðingur, höfundur bókar um einkalif og tölvur, sem kom út i London 1976 og meðlimur tölvunefndar brezku rikisstjórnarinnar. Ekki eru nema sjö ár tii 1984. Það ár kunna að vera i notkun fjórum sinnum f leiri tölvur en nú eru til. Þær verða þá ódýrari, fyrirferðar- minni og hraðvirkari. Verða þær notaðar til að taka saman upplýsingar um einkalíf okkar, heilsufar og menntun, fjárhagsviðskipti, vinnu- afköst, innkaup, kynþátt, litarhátt, trúmál og stjórnmálaskoðanir? Geta notendur þeirra náð stjórntökum á okkur þannig að síminnkandi einkamálum okkar sé stofnað í enn meiri hættu? i fáum orðum sagt: mun Stóri Bróðir hafa okkuröll undir smá- sjá árið 1984? Eða verður tölvuvernd lögfest nógu snemma til að forða okkur? Þaö eru engar fréttir aö menn þarfnast bæði félagsskapar og einkalifs. Ef viö glötum öllu sambandi viö annaö fólk trén- umst viö upp og kunnum jafnvel aö tapa vitinu. En ekki þolum viö heldur fullkomiö félagslyndi meö þvi á stundum viljum viö vera látin I friöi ef viö eigum aö geta haldiö viti og sjálfstæöi. Viö gerum kröfu ti þess aö vera frjálsaö þvi aö velja hvenær viö viljum félagsskap og hvenær einveru. Sama gildir um persónulegar upplýsingar. Sumt má fréttast út um viöa veröld, en aöra hluti viljum viö vita i trúnaöi viö fáeina útvalda. Og fáein atriöi viljum viö helst dylja algjörlega með sjálfum okkur. I þeim til- fellum viijum viö einnig velja þá, sem öölast mega upplýs- ingar um okkur. En frelsiö er ekki algjört i þessu tilfelli frekar en öörum. Lögreglan krefst þess aö mega komast i leynilegar áætlanir um

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.