Alþýðublaðið - 11.12.1977, Side 1
alþýðu-
blaöið
SUNNUDAGUR 1 1. DESEMBER 1977
265 TBL. — 1977 — 58. ÁRG.
Hjördís Bergs raular baráttuljód Mynd: Atli Rúnar Halldórsson
AF
NÝJUM
BÓKUM
frá Erni og
Örlygi
Snjólaug Bragadóttir
Lokast inni i lyftu.
Bókin segir frá örlögum ungrar
Reykjavikurstúlku, sem lokast
inni i lyftu með ungum og mynd-
arlegum manni i stóru skrifstofu-
húsi i miðborginni. Fara leikar
svo, að hún ræðst með honum til
starfa við byggingu orkuvers inni
á miðhálendinu.
Þarna starfa saman fimm kon-
ur og tvö hundruð karlmenn. Fer
ekki hjá því, að i svo ein-
angruðum heimi fari mannlifið að
lúta sinum eigin lögmálum.
Þarna er misjafn sauður i mörgu
fé og margt skeður á miðhálend-
inu...
Gulleyjan og ’Róbinson
f jölskyldan.
Þetta eru tvær nýjar bækur i
bókaflokknum Sigildar sögur með
litmyndum. Gulleyjan er eftir
Rohert Louis Stevenson og Róbin-
sonfjölskyldan eftir Johan Wyss.
Þýðandi er Andrés Kristjánsson.
Nýju bækurnar eru rikulega
myndskreyttar, og prentaðar i
Júgóslaviu.
Leyndardómur Faraóanna
og Fah og eyðing Tróju
1 leit að horfnum heimi nefnist
nýr bókaflokkur sem ætlaður er
unglingum. t fyrrnefndu bókinni
er efninu skipt i þrennt. Fyrsti
hlutinn er sögulegt yfirlit um
fornmynjaleit, en annar hlutinn
nefnist Saga Nekhebus. Siðasti
hlutinn er sögulegt yfirlit eftir
valdaskeið faraóanna.
t bókinni Fall og eyðing Tróju
er uppbygging efnis hin sama og i'
fyrri bókinni. 1 fyrsta hluta er
sagt frá fornminjaleit
Schiemanns, i öðrum hlutanum
er sögð saga Agamemons og i
þeim þriðja hvernig öld Hómers
lýkur.
Bækurnar eru prentaðar á
Italiu.
Ólafur R. Einarsson
Einar Karl Haraldsson.
Gúttóslagurinn.
Út er komin bókin Gúttóslagur-
inn i samantekt þeirra Einars
Karls Haraldssonar og Ólafs R.
Einarssonar. A bókarkápu segir:
Það er árið 1932. Kreppan leggur
dauða þönd sina á atvinnulif um
land allt. t Reykjavik er fimmti
hver maður atvinnulaus. Það á að
lækka kaupið um þriðjung.Verka
menn úr öllum flokkum samein-
ast. Það slær i blóöugan bardaga.
Yfir 20 lögregluþjónar særast og
eru óvigir. Verkamennirnir hafa
Reykjavik á valdi sinu. Verka-
mannauppþot? Byltingartilraun?
1 bókinni er fjöldi ljósmynda og
teikninga frá árinu 1932 og
krepputimabilinu og gefa þær
henniaukið gildi. Meðal teikninga
eru skopmyndir úr speglinum
eftir Tryggva Magnússon.