Alþýðublaðið - 17.12.1977, Page 1
1
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER
270. TBL. — 1977 — 58. ÁRG.
*
Ritstjórn bladsins er
til húsa f Sídumúla 11
— Sími (91)81866
— Kvöldsími frétta-
vaktar (91)81976
Flugumferðarstjórar
f yfirvinnubanni
vegna vongoldinna vinnulauna uti um land
Félag flugumferðar-
stjóra hefur nú sett á
yfirvinnubann, vegna
þess að yfirvinna hefur
ekki verið greidd
félagsmönnum á Egils-
stöðum, Vestmanna-
eyjum og á Akureyri og
urðu þessar aðgerðir til
þess að kvöldflug tii
Akureyrar féll niður i
fyrrakvöld og horfur á
að eins myndi fara i
gærkvöldi.
lngvar Valdimarsson, for-
maður félags flugumferðar-
stjóra, sagði blaðinu i gær að
samkvæmt samningum við
flugumferðarstjórn og sam-
göngumálaráðuneyti, hefðu
flugumferðarstjórar átt rétt á
að fá yfirvinnu greidda á
sumartimabilinu, sem stendur
frá júni til oktoberloka. Fram-
kvæmdin hefði hins vegar orðið
sú að eingöngu flugumferðar-
stjórar i Reykjavik og á Kefla-
vikurflugvelli hefðu fengið þess-
ar greiðslur. A Akureyri, Egils-
stöðum og i Vestmannaeyjum,
hefðu þeir fengið greiddann,
fyrsta og siðasta mánuð tima-
bilsins, þ.e. júni og október, en
eftir stæði aö greiöa þá þrjá
mánuði, sem þarna eru i milli.
Bæru yfirvöld fyrir sig öðrum
skilningi á samningsákvæðum,
en flugumferöarstjórar, en ekki
kvað Ingvar þó hafa komið fram
kröfu um að menn endurgreiddu
þá tvo mánuði, sem þeir þó
hefðu fengið borgaða.
Ingvar Valdimarsson kvaðst
harma að þessar aðgerðir
kæmu óhjákvæmilega niður á
flugfélögunum, sem hér ættu
einskis að gjalda, en félagið
hefði ekki önnur úrræði, til að ná
Eram rétti sinum.
—AM
Þá fyrst er útilegumaðurinn kominn I sitt rétta umhverfi, þegar snjórínn þekur allt og hiti heldur
sig um eða undir frostmarki. (AB-mynd: HV)
Björgvin Guömundsson, við fyrri umræðu um
fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar:
Naudsyn að auka fjöl-
breytni í atvinnurekstri
borgarinnar
í gær fór fram fyrri
umræða i borgarstjórn
um f járhagsáætlun
Reykjavikurborgar fyr-
ir árið 1978 og að lokinni
greinargerð borgar-
stjóra tóku fulltrúar
minnihlutaflokkanna til
máls og talaði Björgvin
Guðmundsson af hálfu
Alþýðuflokksins.
Björgvin bentiá að heildartekj-
ur borgarsjóös næmu nú 14.4
milljörðum, sém væri 38,2%
hækkun frá fyrra ári og væri þar
stærsti liðurinn útsvör, eða 7.4
milljarðar, sem er 41^4% hækkun
frá fyrra ári. Þetta væri mikið
fjármagn, ef samþykkt yrði að
innheimta það. 10.8 miljarðar
væru ætlaðir i reksturskostnaö en
3.6miljaröarværu færði á eigna-
breytingar til framkvæmda.
Þarna fæddi um 37.8% hækkun á
rekstrargjöldunum, sem Björg-
vin kvað óhjákvæmilegt að skera
niöur og boöaöi tillögur sinar um
það við aöra umræðu, þegar
breytingartillögur yrðu lagðar
fram.
Við þessa umræöu gagnrýndi
Björgvin einkum fjögur atriði i
fjárhagsáætluninni. 1 fyrsta lagi
kvaö hann ekki nærri nóg fé ætlað
til atvinnuuppbyggingar i borg-
inni. Framkvæmdasjóöi væru aö-
eins ætlaöar 250 milljónir, sem
rétt nægðu til nauðsynlegasta
reksturs og viöhalds á togurum
Bæjarútgerðar og endurbóta á
Fiskiðjuverinu, en ekki minnst á
aö kaupa þyrfti nýja smærri tog-
ara, ef halda ætti atvinnuástandi
hjá borginni i sæmilegu horfi, en
þarhefði ástandið ekki verið gott.
Björgvin kvaöst og mundi bera
fram tillögur um aukna fjöl-
breytni i atvinnurekstri borgar-
innar og nefndi til byggingu
skipasmiðastöðvar i Reykjavik.
1 ööru lagi gagnrýndi Björgvin
aö ekkert væri ætlað til byggingar
leiguibúða, þótt áöur hefði veriö
gerð samþykkt um byggingu 100
leiguibúöa og væri illt til þess að
vita, þegar ástandið í húsnæðis-
málum fólks væri i hæsta máta
hágboriö.
Enn kom Björgvin að málefn-
um langlegusjúklinga á Borgar-
Framhald á bls. 10
Samband almennra lífeyrissjóda
Lýsir fyllstu
andstödu við
vinnubrögð rlk
isstjórnarinnar
Framkvæmdastjórn
Sambands almennra líf-
eyrissjóða — SAL —
hefur sent fjárhags og
viðskiptanefnd neðri
deildar Alþingis bréf,
þar sem mótmælt er
harðlega þeim áformum
ríkisstjórnarinnar að
skylda sérhvern
lifeyriss jóð til að ver ja á
ári hverju a.m.k. 40% af
ráðstöfunarfé sinu til
kaupa á verðtryggðum
skuldabréfum fjár-
festingarlánasjóða.
Svarar þetta hlutfall til
um6,8 milljarða króna á
næsta ári. Leggur fram-
kvæmdastjórnin sér-
átaka áherzlu á, að
frumvarp um þetta er
lagt fram á þingi án
nokkurs samráðs við lif-
eyrissjóðina eða aðila
vinnumarkaðarins.
Siðan segir i bréfi SAL
til þingmanna:
„Lifeyrissjóöir innan
Sambandsalmennra lifeyrissjóða
hafa fram að þessu staöið viö
skuldbindingar slnar um verö-
tryggð skuldabréfakaup af
Byggingarsjóði rikisins og munu
héreftirsem hingaö tilstanda við
gefin loforö þar um.
Hinir almennu lifeyrissjóðir
vorusettirá stofniársbyrjun 1970
samkvæmt ákvæðum I kjara-
samningum aðila vinnumark-
aðarins frá árinu 1969. Við það
verður ekki unað aö stjórnvöld
geti einhliða ráðskast meö fjár-
muni lifeyrissjóðanna og gripið
Framhald á bls. 10
„Allt að
springa”
— Hjá bæjarsímanum í gær
— Ég held að það sé allt aö
springa hjá okkur núna, sagði
sá sem fyrir svörum varð hjá
bilunardeild bæjarsimans i gær,
en siðustu tvo daga hefur verið
erfitt að ná sambandi milli
vissra hverfa I höfuöborginni.
Orsök þess er að mestu leiti
sú, að á fimmtudag bilaði
stjórnstrengur milli miðbæjar-
stöðvar bæjarsimans og Grens-
ásstöðvarinnar og var I gær
ennþá veriö að leita að þessari
bilun. Ofan á þetta bætist svo að
siðustu daga hefur veriö óvenju
mikiö álag á bæjarslmann.
Aö sögn viðmælanda blaðsins,
virðist sem ekki sé um hreint'
slit á strengnum að ræða, og
gerir það að sögn starfsmönn-
um Pósts og sima erfiöara fyrir
I leit að biluninni. Af þessum
siStum var i gær allsendis óvist
hvenær þessu ófremdarástandi i
simamálum linnti.