Alþýðublaðið - 17.12.1977, Blaðsíða 12
3 alþyöu- hlaöiö_ Útgefandi Alþýðuflokkurinn . i Alir'ADrvA/'iiD Ritstjórn Alþýðublaðsins er að Síðumúla 11, sfmi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er aö LAUOnKUAOUIv Hverfisgötu 10, sími 14906 — Askriftarslmi 14900. , ^ y DESEMBER 1977
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra f fjárkröggum:
Verður æfingastöðunum lokað
eftir áramót?
— Það er fyrirsjáanlegt
að við verðum að loka æf-
ingastöðinni hér að
Háaleitisbraut 13 vegna
fjárskorts# ef ekki verða
geröar sérstakar ráðstaf-
anir strax eftir áramótin —
sagði Friðfinnur ólafsson
formaður Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra á
fundi með blaðamönnum í
gær, en til þessa fundar
var boðað i tilefni af gjöf
sem félagið veitti móttöku
frá kvenfélaginu Hringn-
um.
Sagði Friðfinnur að hin mikla
verðbólga sem hér geisaði, gerði
félaginu erfitt að standa undir öll-
um þeim kostnaði sem starfsem-
inni fylgdi, en fastir tekjustofnar
félagsins eru næsta fáir. Það sem
fyrst og fremst hefur haldið starf-
seminni á floti undanfarin ár, eru
gjafir sem þvi hafa borizt og svo
simahappdrættið sem nú er ein-
mitt i fullum gangi. Það var upp-
haflegur tilgangur með sima-
happdrættinu að ágóði þess rynni
til uppbyggingar félagsins, en
vegna þröngs fjárhags hefur
reyndin orðið önnur og hafa þess-
ir peningar þvi nær ávallt runnið
beint i reksturinn. Nú er svo kom-
ið að tugi milljóna vantar til að
endar nái saman og er ijóst, að
simahappdrættið nægir engan
veginn til að brúa það mikla bil.
Svo sem fram kemur i upphafi
veitti Friðfinnur i gær móttöku
gjöf frá kvenfélaginu Hringnum.
Það var formaður Hringsins,
Ragnheiður Einarsdóttir sem
afhenti gjöfina, 2 milljónir króna
og lét hún þau orð falla að Hrings-
konum þætti vænt um, ef hægt
yrði að nota þessa peninga til
tækjakaupa eða til styrktar fötl-
uðum börnum.
Það kom fram i máli Friðfinns
Ólafssonar er hann tók við gjöf-
inni, að vegna fjárhagsstöðu fél-
agsins benti allt til þess, að stjórn
þess yrði þvi miður að „misnota”
þessa gjöf eins og reyndar flestar
gjafir sem til félagsins bærust, og
láta hana renna beint- i rekstur-
inn.
Þess skal að lokum getið, að
velunnarar Styrktafélags lam-
aðra og fatlaðra, geta lagt sitt af
mörkum til að afstýra þvi að fél-
agið neyðist til að loka æfinga-
stöðinni að Háaleitisbraut 13, með
þvi að kaupa happadrættismiða
félagsins, en dregið verður i
happadrættinu þann 23. des.
næstkomandi.
Fram-
kvæmdum
við
Hlemm
lýkur í aprífi
Framkvæmdum við
Hiemm rniðar mjög
vel áfram og er nú bú-
ið að steypa sökkla og
reisa uppistöður,
sagði Eirikur
Ásgeirsson forstjóri
Strætisvagna Reykja-
vikur er hann var
spurður um fram-
kvæmdir að Hlemmi,
en einsog kunnugt er,
er nú unnið að bygg-
ingu þjónustu- og
verzlunarhúss að
Hlemmi.
Aætlað var að ljúka verkinu
frá hendi verktakans þann 15.
marz næstkomandi, en vegna
undanfarandi verkfalla munu
framkvæmdir tefjast um
mánaðar tima, þannig að hús-
ið ætti að verða tilbúið um
miðjan april, og er þá bara
eftir að innrétta húsnæðið.
Auk biðskýlis verða þarna
verzlanir og allskyns þjón-
usta, og er vonazt til að starf-
semigetihafizt um mittnæsta
ár. —KIE
Dregið hefur verið i
Happdrætti Alþýðu-
flokksins og komu eft-
irfarandi númer upp.
Litasjónvarp: 7500,
1 9 3 6 5, 1 6 2 9 1 .
Utanlándsferð: 3211,
14380, 843.
Alþýðuflokkurinn
þakkar öllum sem
hafa tekið þátt i happ-
drættinu. > ______
FJOLBREYTTASTA
ÚRVAL ÁLEGGSTEGUNDA
- m.
;'/4' I' vSglÍéPj
rt. • Aíll&'
Æ
< 7 #.
> jfcJS*! ■ :•; ■.
l; 4-
-
/ -."•
mrnm.
■*’<•■ /. ; ■‘-V;,
- ■: /
Bjórpylsa • Bjórskinka • Búlgórsk spægipylsa • Briugupylsa • Hamborgarpylsa • Hangikjöt
Kindaka la • l ambaspa gipvlsa • Lambasteik • Lifrakæfa • Lyonpylsa • Madagasgar salami • Malakoff
Milanó salami •Mortadella • Paprikupylsa • Raftaskinka • Rúllupylsa • Servelatpylsa • Skinka
Spa“f*ipylsa • Skinkupylsa • Svínarullupylsa • Svínasleik • I epylsa • I'ungupylsa • Tungur • Veiðipylsa
KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS