Alþýðublaðið - 22.12.1977, Qupperneq 3
Fimmtudagur 22. desember 1977
Alþingiffrf til 23. janúar
Brádabirgdalög í vændum?
Stjórnarandsfadan fær ekkert ad vita
um ráðagerdir stjórnarinnar í atvinnu-
og efnahagsmálum
Síðasti fundur Alþingis
fyrir jólaleyfi þess var
settur í sameinuðu þingi af
forseta# Ásgeir Bjarna-
syni/ kl. 10 í gærmorgun.
Fyrsta mál á dagskrá var
samþykki til frestunar á
fundum Alþingis, ein um-
ræða, og framhald þriðju
umræðu um fjárlög, at-
kvæðagreiðsla.
Fyrstur í gærmogrun tók til
máls Lúövik Jósepsson og benti
hann á aö i þfcssu þinghléi hyggö-
ist rikisstjórin nota tækifæriö til
setningar bráðabirgöalaga, en
fordæmi sýndu að þessum aöilum
væri það tamt, þegar svipaö stæði
á sem nú. Lúövik varaöi viö að
búast mætti við stöövun hluta
fiskiskipaflotans upp úr áramót-
um, ef rikisstjórnin brygöi ekki á
einhver úrræði, sem þingmaður-
inn efaðist um aö hún kynni nein.
Gylfi Þ. Gislason undirstrikaði
þann vanda sem útvegur i landinu
ætti við aö glima, svo og aörar at-
vinnugreinar, iðnaöur og land-
búnaður. Gylfi sagöi aö hvort sem
gripið yröi til bráöabirgöalaga
eða ekki, vonaðist hann til að
rikisstjórnin léti ekki hjá liða aö
Fjárlögin samþykkt
stjórnarandsfæðinga
og Alberts Guðmundss.nær alla^ felldar
Fjárlög ársins 1978 voru
samþykkt á Alþingi kl. 14 f
gær, með4l samhljóða at-
kvæði. Áður höfðu farið
f ram umræður um að gera
hlé á þingstörfum og at-
kvæði voru greidd um
breytingartillögur, sem
flestar voru felldar.
Meðalþeirra breytingatillagna,
sem felldar voru, má nefna
þessar: Tillögu á þingskjali 225
frá Albert Guðmundssyni ofl. um
'aukið fé til heilbrigðismála i
Reykjavik. Kom til orðahnipp-
inga milli Alberts og heilbrigðis-
málaráðherra um þetta mál, en
ráðherra gagnrýndi hvernig væri
staðið að þessum málum á vegum
borgarinnar. Geta má þess aö hér
,var ætlað aukið fé til heilsu-
gæzlustöðva I Reykjavik, til
dæmis i Breiðholti, en þessi mál
voru löngum helzta kosninga-
skraut Sjálfstæðisflokknum i
bæjarstjórnarkosningum, þótt lit-
ið fari fyrir efndum. Var þessi til-
laga felld með 40 atkv. gegn 13 og
viðhaft nafnak.
Breytingartill. fjárveitingar-
nefndar á þingskjölum 233, 234, og
274 voru allar samþykktar, svo og
till. frá samvinnunefnd sam-
göngumála um flóabáta.
Nafnakall var um tillögu frá
— 1 þessu ræður hver og einn
hvað hann gerir og ég get ekki séð
að nauðsynlegt sé fyrir mig að
segja af mér, svaraði Björn Þór-
hallsson, formaður Landssam-
bands isl. verzlunarmanna, þegar
blaðið spurði hann hvort hann
hyggðist segja af sér sem
Loftleiðir
en ekki
Vegna fréttar I Alþýðublaðinu i
gær, um pilagrimaflug Flugleiða,
eins og það var oröaö, hafði Skúli
Guðjónsson formaður starfs-
mannafélags Loftleiða samband
viö blaöið. Hann lagði á það
áherzlu aö það væru ekki Flug-
leiðir sem sáu um þetta flug,
heldur Loftleiöir. Flugleiðir hefðu
ekki flugrekstrarleyfiog gætu þvi
ekki framkvæmt svona flutninga
né heldur flug af nokkru tagi.
Allir starfsmenn i umræddum
flutningum hefðu veriö starfs-
menn Loftleiöa.
Þetta leiöréttist hér með.
—hm
VQÍkswageneigandur
'Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hnrðir —Vélarlok —
Geymslulok á Wolkswagen f allflestúm litum. Skiptum á
einum degi meö dagsfyrirvara fyrir ákveðiö verö. Reyniö
viðskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
Magnúsi Kjartanssyni um lyftu i
Þjóðminjasafnshúsi, sem var
felld með 35 atkv. gegn 17 og um
tillögu frá sama um Orkusjóð,
sem felld var með 40 atkv. gegn
17. Þá voru nokkur orðaskipti um
aukningu i flokki þeirra sem
hljóta heiðurslaun listamanna frá
Alþingi, en fyrir lágu þrjár tillög-
ur fluttar ein af Albert
Guðmundssyni, önnur af Magnúsi
Kjartanssyni og þriðja af Ingvari
Gislasyni. Var tillaga Ingvars
samþykkt, með 54 atkv.
Björn Þórhallsson:
Ekki naud-
synlegt ad ég
segi af mér
— sem stjórnarformadur
Dagblaðsins
hafa fullt samráö við aðila vinnu-
markaðarins.
Karvel Pálmason gagnrýndi
harðlega að ekki skyldi hafa verið
haft samráð við þingmenn, áður
en þessi tillaga um frestun þings
var lögð fram og kvað það ein-
dæmi. Hefði það fyrst orðið aug-
ljóst á þessum morgni með hvaða
hætti og hve lengi þetta hlé á
þingstörfum stæði.
Geir Hallgrimsson viðurkenndi
að ekki hefði verið nægur að-
dragandi að gerð tillögunnar um
þinghléið, en kvað þingmenn hafa
nógu ljósa hugmynd um tilhögun
þessa vanalega hlés, og að hér
væri deilt um keisarans skegg. Þá
vék Geir að möguleikanum á að
bráðabirgðalög yrðu gefin út,
vegna ýmiss aðsteðjandi efna-
hagsvanda, og sagði að bráöa-
birgðalögum yrði beitt, ef brýna
nauðsyn bæri til. Hann kvað þing-
menn geta haft nóg fyrir stafni i
jólafrii sinu, þvi verðbógunefnd
starfaði þennan tima eftir sem
áður. Þá gagnrýndi hann þau
ummæli Lúðviks að flotinn væri i
þann veginn að stöðvast og spurði
hvort þetta ætti að skilja sem hót-
un frá útveginum.
Stefán Jónsson átaldi að þing-
menn tækju sér nú leyfi frá störf-
um og kvað þeim kringara að
sitja á sinum stað fyrir góð laun
og taka ekki lengra fri en aðrir
landsmenn gerðu, væri vandinn
svo stór, sem i veðri væri látið
vaka.
INNRETTINGAR
Lúövik Jósepsson tók aftur til
máls og taldi forsætisráðherra
ekki fylgjast vel með, þvi stórir
hópar útvegsaðila hefðu lýst yfir
róðrarstöövunum, ef ekki yröi
gengiö frá fiskverðákvörðunum
hið bráöasta. Hann sagði og að i
verðbólgunefnd hefði ekki né
mundi verða neitt gert og kvað
trúlegast að stjórnin gripi til
slikra bráðabirgðalaga, sem öllu
hleyptu i hnút, ef til vill laga um
að „fresta vandanum.”
Jón Árniann Héðinsson gerði
ástandið i sjávarútvegsmálum og
frystiiðnaði að umtalsefni og
kvað horfur þar mjög iskyggi-
legar. Stjórnin synjaði stjórnar-
andstöðunni um allar upplýsingar
og mætti sýnast að ekki væri þörf
á kröftum mikils hluta þingiiðsins
og hefði sér oft fundist sem þessi
vinnubrögð bentu til að stjórnar-
liðar ættu að sitja einir eftir á
þinginu, en litið væri þá orðið lýð-
ræöið og þingið einber afgreiðslu-
stofnun. Hann sagði ástandið hjá
aðilum útvegsins mjög viða á
þann hátt að ekkert fé fengist frá
lánastofnunum til endurnýjunar
og nauðsynlegustu varahluta, og
vaxtabyrðar þeim ofviða. Þeim
væri þvi um megn að greiða opin-
ber gjöld, rafmagn og ótal reikn-
inga sem hlæðust upp hjá þeim og
kvaðst geta neft til fjölmörg
fyrirtæki, sem hann ekki vildi þó
gera héri heyranda hljóði.
Mörg hefðu þegar stöðv-
ast, en önnur ættu uppboö yfir
höföi sér.
stjórnarformaður Dagbiaðsins
þegar hann færi i framboö fyrir
Sjálfstæöisflokkinn.
Eins og menn kann að reka
minni til, sagði Jónas Kristjáns-
son ritstjóri Dagblaðsins sig úr
Sjálfstæöisflokknum fyrir
aÚnokkru. Forsendur hans voru
þær, aö það samrýmdist ekki
stöðu hans sem ritstjóra „frjáls
og óháðs dagblaðs” að vera
flokksbundinn i ákveðnum stjórn-
málaflokki.
Þar sem framboð Bjöms Þór-
hallssonar til prófkjörs Sjálf-
stæðisflokksins i Reykjaneskjör-
dæmi, vildi Alþýðublaðið fá að
vita, hvort hann áliti þaö sam-
rýmast stöðu sinni sem stjdmar-
formaður „frjáls og óháös dag-
blaös” að fara I framboö fyrir
ákveðinn stjórnmálaflokk. Hvort
hann hyggðist þá ekki segja af
sér?
— Ég skrifa ekki i blaöið,
þannig að min stjórnmálastarf-
semi er öldungis óháð blaðinu, —
eins og raunar öllu öðm sem ég
starfa við, sagöi Björn og var á
honum að skilja að hann hefði
ekki hugsað sér afsögn.
—hm
Höfum fengið sendingu af hinum vinsæiu
lítskornu hurðum - Verð aðeins kr. 38.000.00
Takmarkaðar birgðir - Nú er tækifærið
Þeir sem lagt hafa inn pantanir eru beðnir að vitja þeirra
SatxburQ
ATH! TAKMARKAÐAR BIRGÐIR
INNRÉTTINGAR SKEIFAN 7
Símar 31113 - 83913