Alþýðublaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 11
^Þriöjudagur 10. janúar 1978 11 Biéta/lAtfcltúsin 321-89-36 Myndin The Deep er frumsýnd í London og borgum Evrópu um sessi jól Is anything worth theterrorof THE The Deep tslenzkur texti Spennandi ný amerisk stórmynd i litum og Cinema Scope. Leik- stjóri Peter Yates. Aðalhlutverk: Jaqueline Bisset, Nick Nolte, Robert Shaw. Sýnd kl. 5, 7.30 og 10 Bönnuð innan 12 ára Hækkað verð Sími 50249. , ~ Hnefi reiðinnar Definitivt sidste film med BRUCE LEE DKAGEMS KNIVTNÆVE (FISTOFFURV) Ný Karate mynd, með Bruce Lee i aðalhlutverki. Leikstjóri: Low Wei Aðalhlutverk: Bruce Lee, Nora Miao, Tien Fong. fSLENZKUR TEXTI Bönnuð börnum innan'16 ára. Sýnd ki 7 og 9. .... LEIKFfvI AG 2Í* REYKjAVlKUR 1 SAUMASTOFAN I kvöld. Uppselt Laugardag kl. 20.30. Fáar sýningar eftir. SKALD-RÓSA 6. sýn. miðvikud. Uppselt. Græn kort gilda. 7. sýn. föstud. Uppselt Hvít kort gilda. 8. sýn.sunnud. kl. 20.30 Gyllt kort gilda. SKJALDHAMRAR Fimmtudag kl. 20.30. Fáar sýningar eftir. Miðasala i Iðnó kl. 14-20.30. Ert þú félagi I Rauöa krossinum? Deildir félagsins i eru um land allt. '"W RAUÐI KRÓSS ISLANDS 32 1 15-44_ Silfurþotan. GENE WILDER JILL CLAYBURGH RICHARD PRYOR • "SILVER STREAK”, tSLENSKUR TEXTI Bráöskemmtileg og mjög spennandi ný bandarlsk kvikmynd um all sögulega járnbrautalestaferð. Bönnuð innan 14 ára Sýndkl. 5,7og9. Bláfuglinn. ÍSLENSKUR TEXTI Frumsýning á barna og fjö1sky1dumynd ársins. Ævintýramynd gerð I sameiningu af bandarikjamönnum og rússum með úrvals leikurum frá báðum löndunum. Sýndkl. 3. GAMLA BÍO *i Slmj 11475 Flóttinn til Nornafells TO Ný Walt Disneylcvikmynd, spennandi og bráðskemmtileg fyrir unga sem gamla. ISLENZKUR TEXTI Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9 Sama verð á öllum sýningum TONABÍÓ 32 3-11-82 Gaukshreiðrið (One flew over the Cuckoo's nest.) Gaukshreiðrið hlaut eftirfarandi Óskarsverðlaun: Besta mynd ársins 1976 Besti leikari: Jack Nicholson Besta leikkona: Louise Fletcher Besti leikstjóri: Milos Forman Besta kvikmyndahandrit: Lawrence Hauben og Bo Goldman Hækkað verð. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7,30 og 10. 3*2-21-40 Svartur sunnudagur Black Sunday Hrikalega spennandi litmynd um hryðjuverkamenn og starfsemi þeirra. Panavision Leikstjóri: John Frankenheimer. Aðalhlutverk: Robert Shaw, Bruce Dern, Marthe Keller. ISLENZKUR TEXTI Bönnuö innan 16 ára Sýnd kl. 5 og 9 Hækkað verð Þessi mynd hefur hvarvetna hlot- ib mikla aðsókn enda standa áhorfendur á öndinni af eftir- væntingu allan timann. Enn eitt snylldarverk Chaplins, sem ekki hefur sést s.l. 45 ár — sprenghlægileg og fjörug. Höfundur, leikstjóri og aðalleikari: CHARLEI CHAPLIN ÍSLENSKUR TEXTI Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. LAUGARA5 B I O ^ Sími 32075 Skriðbrautin Y0U ARE IN A RACE AGAINST TIME AND TERR0R. 0^5 A UNIVEBSAL PICTURE Ö?.Oj TECHNICOLOR " PANAVISION " Mjög spennandi ný bandarisk mynd um mann er gerir skemmdaverk i skemmtigörðum. Aðalhlutverk: George Segal, Richard Widmark, Timothy Bottoms og Henry Fonda. ISLENSKUR TEXTI. Sýnd kl. 5, 7,30 og 10 Bönnuð börnum innan 12 ára ÞJOÐLEIKHUSID TÝNDA TESKEIÐIN Miðvikudag kl. 20 HNOTUBRJÓTURINN Fimmtudag kl. 20. Laugardag kl. 20. STALIN ER EKKI HÉR Föstudag kl. 20. Litla sviðið: FRÖKEN MARGRÉT I kvöld kl. 20.30. Miðvikudag kl. 20.30. Miðasala kl. 13,15-20. Alvarlegt áfall Hvernig endurskoðun? Þykja má nokkurnveginn full- vist, að landsmenn hafi fylgzt með af lifandi áhuga á Kastljós- þættinum um málefni Lands- bankans á föstudagskvöldið var. Fullyrða má, að i vitund þjóðarinnar hafi þessi stofnun verið ein hin virtasta. Og það kemur eins og þruma úr heiðskiru lofti, að innan hennar geti hafa þrifizt óreiða árum saman — óreiða, sem veltur á milljónatugum, að sögn. Það er þvi ekki mót von, að al- menningur spyrji, hvernig ann- að eins og þetta geti gerzt. Raunar virtist ekki laust við, að nokkurrar furðu gætti yfir þessu hjá Jónasi Haralz, banka- stjóra, sem annars svaraði spurningum óvenju vifilengju- laust af háttsettum embættis- mannai að vera. Bankastjórinn upplýsti aö endurskoðun væri raunar þri- þætt, að þvi bezt varð skilið, innri endurskoðun bankamanna almenn endurskoöun fram- kvæmd af þar til kjörnu fólki og loks endurskoðun bankaeftir- litsins. Með hliðsjón af þessu virðist þvi eiga að vera fyrir það girt, að misferli geti þrifist og allra sizt að það geti staðið árum saman án þess að upp komist, þó við verðum að horfast i augu við þessa hörmulegu staðreynd. Næsta skref, i hugleiðingum um þessa furðu, hlýtur að vera að spyrja, hverskonar endur- skoðun þetta sé og hve mikið gildi hún hafi i reynd. Enda þótt endurskoðun sé sérgrein, sem krefur verulega þekkingu, ef menn eiga að fá löggildingu, er vitað, að manna á milli er um að ræða að minnsta kosti tvær tegundir endurskoðunar — hina al- mennu, tölulegu endurskoðun og gagnrýna (kritiska) endur- skoðun. Hin fyrrnefnda er mun al- gengari og langflest fyrirtæki þar á meðal stórfyrirtæki eins og mörg bæjarfélög og vitan- lega fleiri viðhafa hana ein- göngu. Til hinnar siðarnefndu mun varla gripið, nema sérstök ástæða þyki og þá gjarnan vegna einhverra grunsemda um að allt sé ekki með felldu. Þá eru — að eðlilegum hætti — kvaddir til kunnáttumenn i endurskoðun, enda trúlega ekki á annarra færi. Telja verður það nokkurn ljóð á ráði spyrjenda i áðurnefndum Kastljósþætti, að fá það ekki fullkomlega upplýst hverskonar endurskoðun hafi farið fram i bankanum — hin tölulega eða hin gagnrýna. Varla verður dregið i efa, að bankastjórinn hefði svarað þvi fúslega. Enda þótt hin tölulega endur- skoðun sé enganveginn þýð- ingarlaus, en hún mun vera i þvi fólgin að bera saman fylgiskjöl og færslur ásamt birgða- og sjóðatalningu, er hún svo bezt marktæk, að réttilega sé að staðið. Þvi má vitanlega bæta við, að þessir hlutir fara i gegn- um hendur nokkurra aðila, sem ætti að gefa verulega tryggingu, að minnsta kosti ef ekki er um samtök að ræða. Færsla milli starfa og deilda er einnig veruleg trygging fyrir þvi, að samtök um um misferli eigi ekki að geta myndast. |0ddur A. Sigurjónssor En hvort sem mönn’um likar betur eða verr, er það nú orðið lýðum ljóst, að stórkostlegt mis- ferli — og ekki séð fyrir endann á hversu stórbrotið er — hefur sloppið i gegn um greiparnar á endurskoðup bankans og ann- arra slikra aðila. Nú var það upplýst, að allt þetta fór að lögum og reglugerð- um, sem bankinn starfar eftir að þessu leyti. Sú fullyröing skal ekki dregin i efa. En þá kemur að þvi, hvað gera ber, til að stoppa upp i þau göt, sem misferlið hefur smogið um. Þess verður að vænta, eftir þessa bitru reynslu, að stjórn bankans beiti sér tafarlaust fyrir þvi að fá lögum og reglu- gerðum breytt á þann veg, að slikir hlutir endurtaki sig ekki. Það kom einnig i ljós, að mest litið er af löggiltum kunnáttu- mönnum i þjónustu bankans. Jafnframt var það upplýst að veruleg þurrð væri ekki á slik- um mönnum hér á landi, en i stað þess að þeir fengju störf að sérkunnáttu sinni, væru þeir við önnur, sem að visu jöðruðu við sérgreinina. Menn hljóta að spyrja : Hversvegan er þessi háttur á hafður? Þykir ráðamönnum ekki ástæða til að gera allt, sem ætla má að tryggi bezt hag viðskipta- manna bankanna og sæmd stofnananna sjálfra? Spyr sá, sem ekki veit, en vildi gjarnan vita. Sé hér talið að um verulegt fjárhagsatriði sé að ræða, má segja með fullum rétti, að vist væri full ástæða til að spyrja, hvort fé hefði ekki verið varið verr og þar sem siður skyldi. Loks væri einnig full ástæða til að spyrja, hvernig er um endurskoðendur, sem sjálft Alþingi kýs. Eru það yfirleitt kunnáttumenn? Ef svo er ekki, hversvegna? Vitað er, að gifurlegt fé fer um hendur allskonar fyrirtækja i landinu. Er ekki ástæða til að huga að þvi hve tryggilega er frá endurskoðun gengið yfirleitt á landi hér? Ef til vill er aldrei unnt að koma að fullu i veg fyrir misferli. Það hlýtur þó að vera siðferðileg skylda allra, sem með fé fara i stærri eða minni mæli, að gera allt, sem mögu- legt er, til að minnka hættu á ó- < reiöu og fjárdrætti. Enginn heiðarlegur maöur getur fyrtst við það að aöhald og eftirlit sé sem traustast með hans gerð- um. 1 þvi liggur engin ótimabær tortryggni. Við eigum að hag- nýta sérþekkinguna þar eins og i öðru. Landsbankamálið er alvarlegt áfall. Koma verður i veg fyrir að það geti ■ endurtekið sig i sem flestum fyrirtækjum. I HREINSK8LNK SAGT HíisUmJiF Grensásvegi 7 Sími 82655. «?! RUNTAL-0FNAR Birgir Þorvaldsson Simi 8-42-44 AuG^semVr! AUGLYSiNGASlMI BLADSINS ER 14906 Svefnbekkir á verksmiðjuverði SVEFNBEKKJA Höfðatúni 2 — Simi 15581 Reykjavik. 2- 50-50 Sendi- bíla- stödin h.f.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.