Alþýðublaðið - 10.01.1978, Qupperneq 12
alþýðu-
blaóió
rÚtgefarídi AlþýOuflokkurinn " " \
Ritsj^órn Aiþýóublaösins er að Sfðumúla 11, slmi 81866. Auglýsingadeild blaösins er aö'
Hvérffsgötu 10, slmi 14906 — Askriftarsimi 14900. , _
ÞRIÐJUDAGUR
10, JANÚAR 1978
Eigendur gjaldeyris í dönskum
bönkum
ekki búnir að bíta úr nálinni:
Gjaldeyris-
eftirlitid
krefst svara
— ákvörðun um málshöfðun
tekin þegar svör hafa borizt
Sem kunnugt er hefur
skattrannsóknarstjóri nú
sent til gjaldeyriseftirlits
Seðlabankans öll gögn
varðandi gjaldeyriseign
íslenzkra aðila á banka-
reikningum i Danmörku.
Hér ræddi alls um 81 reikning
i Finansbanken, auk innan við
lOreikninga frá öörum bönkum.
Siðustu upplýsingar um þessa
fjáreign komu frá Danmörku
um jól. Nam hæsti reikningur-
inn um 400 þús. dönskum krón-
um en sex eða sjö reikningar
voru að upphæð meira en 200
þús. danskar kr. Ekki var unnt
að fá gjaldeyriseftirliti gögnin i
hendur, fyrr en Alþingi sam-
þykkti sérstaka lagaheimild þar
um, sem gildi tók á gamlársdag
og voru gögnin send gjaldeyris-
eftirliti þann 4. sl. að sögn Garð-
ars Valdimarssonar, skattrann-
sóknarstjóra.
Alþýðublaðiö hafði tal af Sig-
uröi Jóhannessyni hjá gjaldeyr-
isef tirlití Seðlabankans og
spurði hvenær frétta yrði að
vænta frá embætti hans. Sigurð-
ur sagði að gögnin væru svo ný-
komin i hans hendur að enn væri
varla komið á umræðustig hvaö
gert yrði. Þó væri Ijóst aö nú
yrði eigendum þessara reikn-
inga skrifað og þeir beðnir að
gera grein fyrir tilurð og öðru
viðvíkjandi þessum peningum
og þeim ætlaöur nokkur timi til
svara. Þegar þau svo væru
fengin mætti búast við meiri
fréttum af málinu og þá hvort
málsóknir yrðu hafnar.
AM
Loðnuvelöln
Sex bátar fengu
af la fgærmorgun
Lítiö veiöiveöur var á
loönumiöunum í fyrra-
kvöld og fram eftir nóttu,
en í gærmorgun fengu sex
bátar slatta. Eru nú um
þaö bil 40 bátar aö veiðum.
Þeir bátar, sem tilkynntu um
afla i gærmorgun voru aö sögn
Andrésar Finnbogasonar hjá
loðnunefnd: Gisli Arni, 460 tonn,
Gullberg, 550 tonn, Jón Finnsson,
380 tonn, Huginn, 470 tonn,
Grindavik, 350 tonn og örninn, 530
tonn. „ . .. ..
Segja má aö veiðarnar séu
varla hafnar enn eftir áramótin
og enn er sá afli sem á land er
kominn varla umtalsverður sé
miðað við afkastagetu þess flota
sem á veiðum er.
Milljónatjón á
Höfrungi II
Vélbáturinn Höfrungur
II GK 27 strandaöi í inn-
siglingunni í Grindarvíkur-
höfn kl. 6 á laugardags-
morguninn. Báturinn var
rétt kominn út úr innsigl-
ingarrennunni þegar
stýrisútbúnaður bilaði og
beygði hart í bak. Stýrinu
varð ekki haggað og bátur-
inn tók strikið beint upp í
fjöru. Engan af 10 manna
áhöfn sakaði.
Höfrungur II. losnaði af strand-
staðnum samdægurs með hjálp
björgunarskipsins Goðans. Bát-
urinn var síðan dreginn til Njarö-
vikur og tekinn i slipp þar. Kom
þá i ljós að skemmdir höfðu orðið
allverulegar, sérstaklega á botn-
stykki undir vél, Skrúfan er einn-
ig stórskemmd, svo og botnstykki
fyrirasdikogdýptarmæli. Giskað
hefur verið á að skemmdirnar
nemi um 20 milljónum króna.
Eigendur bátsins fá að öllum
likindum heimild til að láta fara
fram bráðabirgðaviögerð á bátn-
um og siðan fullnaðarviðgerð
þegar vertið lýkur. Verður allt
kapp lagt á að hraða viðgerð sem
mest svo hann komst á veiðar á
ný.
ES
„Aumingjaskapur borgaryfir-
valda veldur miklum
hækkunum á húsnæðisverði”
— segir framkvæmdastjóri Breiðholts h.f.
„Það hef ur verið lítið um
verkefni hjá okkur og við
erum búnir að segja upp
miklu af starfsfólki okkar.
Ætli við höf um ekki um eitt
hundrað færri nú en verið
hefur, en ef steypustöðin,
þar sem tuttugu manns
vinna, er talin með, er
starfsfólk okkar um átta-
tíu í dag," sagði Sigurður
Jónsson, framkvæmda-
stjóri Breiðholts h.f., í við-
tali við Alþýðublaðið í gær.
„Það hefur ekki verið létt að
starfa I byggingariðnaðinum und-
anfarið,” sagði Sigurður enn-
fremur, ,,og ég held þetta fyrir-
tæki sé sist verr statt en önnur.
Hins vegar hlýtur þetta að skána
úr þessu. Við erum með lægsta
tilboðið i verkamannabústaðina
og þeir hljóta þvi að semja við
okkur um þá. Það verður verkefni
fyrir sjötiu til áttatiu bygginga-
menn, það er múrara, smiði og
verkamenn, i tvö ár eða svo. Til-
boð okkar hljóðar upp á sjö
hundruð milljónir, en þegar ailt
kemur til alls býst ég við að verk-
efnið verði upp á um þúsund
milljónir króna.
Auk þess er ýmislegt, sem við
erum aðspekúlera i, þannig að ég
býst við að við getum fljótlega
ráðið eitthvað af mannskap aft-
ur.”
Breiöholt h.f. verkefnalítið undanfarið:
Hefur fækkað fólki um
meir en helming
hljótum að fá verkamannabústaðina og þá skánar
þetta,segir Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri
„Það hefur veriö erfitt aö fá út- lega svo miklar aö ástæða væri til þegar tryggt sér húsnæöi, aö
hlutað byggingarlóöum undan- að ráðleggja þeim sem ekki hafa forða sér úr landi i nokkur ’ár.”
fariö. Lóðaskortur hefur veriö til-
finnanlegur, sem stafar, aö
minni hyggju, hreinlega af aum-
ingjaskap borgaryfirvalda. Aö
visu ætla þeir aö fara aö úthluta
einhverju núna, en þaö veröa ekki
byggingarhæfar lóöir fyrr en eftir
eitt eöa tvö ár, sagði Siguröur
Jónsson, framkvæmdastjóri
Breiöholts h.f., i viötali viö Al-
þýðublaðiö i gær.
„Þetta er nokkuð alvarlegt
mál”, sagði Sigurður ennfremur,
„og alvarlegra en ég held fólk
geri sér almennt grein fyrir. Það
er nefnilega staðreynd, að verð á
ibúðarhúsnæði hér fylgir ekki
byggingarkostnaði, heldur fram-
boðinu, þvi er ég ekki i vafa um að
með vorinu verða stórar hækkan-
ir á íbúðaverði og húsaleigu
vegna þessarar slælegu fram-
göngu borgaryfirvalda. Hugsan-
Lætur af trúnaðar-
störfum að sinni
— vegna tengsla sinna við
rannsókn á misferli Hauks
BJÖRGÓLFUR Guömunds-
son, sem aö nokkru hefur tengst
rannsókn á meintu misferli
Hauks Heiöars, deildarstjóra á-
byrgöardeildar Landsbankans,
hefur nú sagt af sér öllum trún-
aöarstörfum á vegum Sjálf-
stæöisflokksins aö minnsta kosti
meöan rannsókn málsins stend-
ur yfir.
Björgólfur hefur verið for-
maöur Varðar og formaöur
kjörnefndar Sjálfstæðisflokks-
ins I Reykjavlk og munu vara-
formenn taka við störfum hans
á hvorum vettvangi fyrir sig.
Björgólfur hefur tengzt rann-
sókn á máli Hauks með þvi að
fyrirtæki sem Björgólfur veitir
forstöðu hafa þegiö sérstaka
fyrirgreiðslu deildarstjórans
Framhald á bls. 10