Alþýðublaðið - 11.01.1978, Side 10
AAiðvikudagur 11. janúar 1978
Vetrarönn hefst 16. janúar.
Nýir byrjenclaflokkar verða:
Spænska: kennari Steinar Árnason, hefst
mánudaginn 23. jan.
Franska: kennari Þór Tulenius hefst mið-
vikudaginn 18. jan.
Þýska: kennari Friða Sigurðsson hefst
mánudaginn 16. jan.
ítalska hefst í kvöld miðvikud. 11. jan.
Kennari Rigmor Hanson.
Innritun i Miðbæjarskóla kl. 19-21.
Námsflokkar Reykjavikur.
SÍNFÚNÍUHUÖMSVEIT ÍSLANDS
Tónleikar
i Háskólabiói fimmtudaginn 12. janúar kl.
20.30
Stjórnandi VLADIMIR ASHKENAZY
Einleikari JOSEPH KALICHSTEIN
Efnisskrá:
Bartok — Tvær myndir
Chopin — Pianókonsert nr. 2
Brahms — Sinfónia nr. 4
Aðgöngumiðar seldir i Bókabúð Lárusar
Blöndal, Skólavörðustig, Bókav. Sigfúsar
Eymundssonar, Austurstræti og við inn-
ganginn.
Auglýsing um
Bæjarþing í Kópavogi
Fyrst um sinn verða regluleg bæjarþing i
Kópavogi háð i salarkynnum tómstunda-
ráðs að Hamraborg 1, jarðhæð.
Gengið er inn i norðvesturhorni hússins.
Bæjarþingin verða haldin svo sem verið
hefur hvern virkan fimmtudag kl. 15.00.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Verkamannafélagið
Dagsbrún
Tillögur
uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs um
stjórn og aðra trúnaðarmenn félagsins
fyrir árið 1978 liggja frammi i skrifstofu
félagsins frá og með fimmtud. 12. janúar.
öðrum tillögum ber að skila i skrifstofu
Dagsbrúnar fyrir kl. 17 föstudaginn 13.
janúar 1978.
Kjörstjórn Dagsbrúnar
Pele 6
Skyndilega varð mér hugsað til
Dondinho, heima i Baurú, sem á
þessu andartaki myndi sitja við
útvarpstækið sitt og gæta þess að
missa ekki af neinu orði eða
hljóði. Hvernig leið honum? Var
hann kviðinn? Vitanlega var hann
kviðinn! En bað hann þess, að við
sem vorum staddir hérna á leik-
vanginum i Sviþjóð, værum ekki
eins kviðnir og hann?
Og móðir min? Ég vissi að hún
myndi sitja heima i stofunni,
ákveðin i að hlusta ekki á lýsing-
una á leiknum, jafnvel þótt ég
vissi að eftir leikinn myndi hún
ráðast á Dondinho og hella yfir
hann spurningum um hvernig ég
hefði það og hvernig mér hefði
gengið. Hún þurfti ekki að hlusta
á útvarpið til að heyra hvernig
leikurinn gengi. Hverju brazi-
lisku marki myndi verða fagnað
með fagnaðaröskri innan úr stof-
unni, — svo ekki sé talað um flug-
eldana yfir bænum, — en mörkum
andstæðinganna myndi mætt með
djúpu andvarpi sem myndi heyr-
ast um allt húsið.
(Þýtt. — hm.!
Svindlið burt 2
valda er þung, vegna þess
sinnuleysis sem þar hefur gætt
varðandi þessa þróun alla.
Flokksstjórn Alþýðuflokksins
leggur rika áherslu á það, að
það er söguleg reynsla fýrir þvi
með öðrum þjóðum, að ástand
eins og það sem hér hefur verið
að skapast styrkir öfgaöfl i
stjórnmálum. Sagan þekkir i
þeim efnum óhugnanleg dæmi.
Flokksstjórn Alþýðuflokksins
minnir á það forustuhlutverk
sem þingmenn Alþýöuflokksins
hafa á undanförnum misserum
haft, bæði með tillöguflutningi á
Alþingi og i umræðum um þessi
mál. Þarhefur þó i flestum efn-
um verið talað fyrir daufum
eyrum stjórnvalda.
Alþýðuflokkurinn mun i kosn-
ingum þeim, sem fram fara að
vori, leggja þunga áherslu á
umbótastarf á þessum vett-
vangi. Það er rökrétt framhald
af málflutningi flokksins á þvi
kjörtimabili, sem ni) er senn að
ljúka.
SVINDLIÐ BURT!
Efla ber 3
leggur áherzlu á, að fyrirtæki á
höfuðborgarsvæðinu sitji við
sama borð og fyrirtæki annars
staðar á landinu, aö þvi er
fjármagnsfyrirgreiðslur varöar.
Reykjavik fær hlutfallslega mun
minna úr hinum ýmsu sjóöum
rikisvaldsins, sem úthluta fé til
uppbyggingar atvinnulifsins.
Þetta er að áliti borgarstjóra lið-
ur i þeirri byggöarstefnu, sem
rekin hefur verið undanfarin ár.
I níunda og síðasta lið er
fjallað um Framkvæmda-
sjóð Reykjavíkurborgar
SjóðUr þessi á að efla alhliða at-
vinnulif I Reykjavík. Sjóöurinn á
m.a. taka timabundinn þátt I
stofnun og rekstri fyrirtækja I
borginni, að ábyrgjast lán til
fyrirtækja, sem hafa sérstaka
þýðingu fyrir atvinnulif i borg-
inni, að veita styrk til rannsókna
á nýjum atvinnutækifærum I
Reykjavik og að veita Bæjarút-
gerðinni nauösynlega fjármagns-
fyrirgreiðslu.
Borgarstjórn Reykjavikur mun
stuðla að eflingu sjóösins á næstu
árum, þannig að hann geti sem
bezt sinnt þvi hlutverki sem hon-
um er ætlað.
Munið
alþjóðlegt
hjálparstarf
Rauða
krossins.
RAUDI KROSS tSLANDS
Áburdarverksmiðjan
starfar án
tilskilinna leyfa
Aburöarverksmiðja rikisins I
Gufunesi hefur nú I fimm ár
starfaö án tilskilinna leyfa. Þetta
kemur fram I viðtali við Hrafn
Friðriksson, forstöðumann Heil-
brigðiseftirlits rikisins, sem birt-
ist I nýjasta tölublaði Vinnunnar.
Samkvæmt reglugerð um iðju-
mengun á áburðarverksmiðjan
aö fá starfsleyfi frá heilbrigöis-
og tryggingarmálaráöherra, þar
sem kveðið yröi á um mengunar-
varnir innandyra og utan. Leyfi
þetta hefur enn ekki verið veitt og
kemur þar helzt til að menn lita
alvarlegum augum þann reyk
sem leggur frá verksmiöjunni.
Nú mun hins vegar unnið að þvl
að ganga frá leyfisveitingu þess-
ari.
Þaö hefur lengi legiö ljóst fyrir
aö erfitt myndi \iera að koma við
mengunarvörnum í saltpéturs-
sýruverksmiðju þeirri, sem
er hluti af áburðaryerk-
smiðjunni. Verksmiðja þessi
er nokkuð gömul og ekki auðvelt
við þetta að eiga, nema hreinlega
aö byggja nýja verksmiöju. Þaö
hefur nú orðið ofaná og veröa
mengunarvarnasjónarmið þá
höfö að leiðarljósi. A þessari for-
sendu mun starfsleyfiö að öllum
likindum veitt.
Heilbrigöiseftirlitið hefur hing-
að til ekki gert neinar mælingar á
andrúmslofti I verksmiðjunni
sjálfri. Forráðamenn eftirlitsins
telja þó að nauðsyn sé aö gera
slikar mælingar og er það nú á
verkefnaskrá. 1 þvl sambandi er
sérstaklega bent á hættu sem
starfsmönnum verksmiöjunnar
kynni að stafa af notkun kisilgúrs,
sem er húðunarefni i verksmiðj-
unni. Kisilgúr getur innihaldið
kisilsýru sem er hættuleg lungum
manna. _es
Enginn hlaut
verdlaun í leik
ritasamkeppni
Alls bárust 29 leikrit
Sem kunnugt er efndi
Listahátið til leikritasam-
keppni um einþáttunga, í
tilefni af listahátið 1978, og
var áskilið að efni leiksins
skyldi tengjast Ijósmynd,
sem birt var í dagblöðum á
sínum tíma.
Dómnefnd I Leikritasamkeppni
Listahátiðar hefur nú lokið störf-
um. Samkeppninni bárust 29 leik-
rit, allt einþáttungar.
Niðurstaða dómnefndarinnar
varö sú, að þrátt fyrir að allmörg
þeirra leikrita sem bárust væru
kunnáttusamlega samin, þá væri
ekki tilefni til að veita neinu
þeirra verðlaun Listahátiðar.
í dómnefndinni áttu sæti:
Davið Oddsson, Briet Héðinsdótt-
ir, Erik Sönderholm, Hjörtur
Pálsson og Sigriöur Hagalin.
Höfundar eða fulltrúar þeirra
geta vitjað leikritanna til Guö-
rúnar S. Jónsdóttur, gjaldkera
Listahátiðar, á skrifstofu Nor-
ræna hússins (opið 9-16 dagl.) og
verða þau afhent samkvæmt upp-
gefnum dulnefnum.
MEngin tilviljunað
Landsbankamálið komst upp:
TTVorum að
kanna hvað við
værum að
greiða”
— segir Jón Hallsson, forstjóri
„Það er rangt að það
hafi einhver tilviljun ráðið
þvi að upp komst um mis-
ferli Hauks í Landsbank-
anum gegnum þetta fyrir-
tæki.
Þótt svo fyrirspurnin sem beint
var til bankans og sem svo átti
sinn þátt I þvi að upp komst um
þetta væri einfaldlega um erlend-
an kostnaö, en ekki um þessi efni
beint, var ekki um neina tilviljun
að ræða, þvi hjá okkur var verið
aö leita eftir þvi hvað verið væri
að greiöa og það var sú athugun
sem leiddi til málsins”, sagöi Jón
Hallsson, forstjóri Sindra-stáls, I
viðtali við Alþýðublaðið I gær.
„Við vitum að á lofti eru alls
konar kjaftasögur”, sagði Jón
ennfremur, „þar af flestar alger-
lega úr lausu lofti gripnar. Það er
til dæmis alger óhæfa aö athugun
þessi hafi farið af staö vegna
gruns um misferli innan Sindra.
Einnig hafa tölur þær, sem nefnd-
ar hafa verið hingað til, ekki átt
sér neina stoö, enda er rannsókn
rétt að byrja og viö vitum ekkert
um upphæðirnar sem um ræðir
enn.”
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir —Vélarlok —
Geymslulok á Wolkswagen I allfiestum litum. Skiptum á
einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið
viðskiptin.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.