Alþýðublaðið - 14.01.1978, Blaðsíða 1
Loðnuflotinn til veiða í dag:
„í trausti loforðs forsætisráðherra”
verður nú haldið til veiða að nýju, en þess jafnframt krafizt að verðákvarðanir verði endurskoðaðar
„ Við viðurkennum að
lög binda það hráefnis-
verð sem ákveðið hefur
verið, en við beinum
þvi eindregið til stétt-
arsambanda okkar að
þau leiti eftir þvi við
einstaka þingmenn og
þingflokka, að þeir
flytji á Alþingi tillögu,
þess efnis að væntan-
legt nýtt verð byggt á
nýjum grundvelli,
verði látið verka aftur
fyrir sig, yfir það verð-
timabil sem nú stendur
yfir”.
Svohljóðandi ályktun
samþykkti fundur
loðnusjómanna, sem
haldinn var siðdegis i
gær ! Nýja bió á
Akureyri. Fundinn
sóttu fimm hundruð
sjómenn af loðnuflot-
anum, sem þá lá enn
allur i höfn á Akureyri.
Fundurinn samþykkti
jafnframt að haldið
skyldi til veiða að nýju
eftir hádegi i dag, 14.
janúar, að undan-
gengnum hörðum mót-
mælum gegn loðnu-
verðinu.
Fundurinn samþykkti svo-
hljóöandi ályktun:
Fundur loönusjómanna, hald-
inn i Nýja-bió Akureyri, þann
13. janúar 1978, samþykkir eft-
irfarandi ályktun.
1. Fundurinn mótmælir harö-
lega þvi loðnuveröi sem auglýst
var tiunda janúar siöastliöinn,
sem allt of lágu og óviðunandi
fyrir sjómenn og Utvegsmenn.
Fram hefur komiö, aö odda-
maöur yfirnefndar hefur með
ákvöröun sinni afhent verk-
smiðjunum nær alla þá afurða-
veröshækkun, sem orðið hefur
frá siðustu vetrarvertið og að
auki lækkaö greiðslur til verð-
jöfnunarsjóös um eina krónu á
hvert kiió og fært verksmiðjun-
um þaö einnig.
Fundurinn mótmælir þvi að
verð á loðnu skyldi ekki ákveðið
fyrir áramót, eins og lög gera
ráð fyrir og flotinn þannig
ginntur af staö án þess að verð
lægi fyrir.
Fundurinn krefst þess að til-
skilin gögn liggi jafnan fyrir
þannig að hægt sé að taka
ákvörðun um verð á tilskildum
tima.
2. Núgildandi loðnuverði verði
sagt upp nú þegar i samráöi viö
fulltrúa seljenda i verðiagsráði.
3. Við næstu verðlagsákvörð-
un á loðnu verði aöeins þær
verksmiðjur sem vel eru ndcnar
ogá hagkvæman hátt, teknar til
grundvallar við verðútreikn-
inga. Sendir verði fuiltrúar sjó-
manna og útgerðarmanna til
nágrannalanda til að fá uppiýs-
ingar um hina ýmsu rekstrar-
þætti fiskimjöldverksmiðja i
viðkomandi löndum. Upplýsing-
ar þessar verði siöan hafðar til
hliðsjónar við ákvörðun á verði
á bræðslufiski.
4. Fundurinn, sem telur um
fimm hundruð manns, lýsir ein-
róma samþykki sinu vegna
leigu bræðsluskipsins Norglobal
og bendir á ótviræðan hag sem
sjómenn, svo og þjóðarheildin,
höfðu af leigu sama skips þau
skipti sem það hefur verið leigt
hingað til lands áður.
5. Fundurinn telur, eins og áð-
ur er sagt, að nýting i verk-
smiðjum hérlendis sé óeðlilega
léleg. Þetta hefur verið stutt
rökum og er ekki bara óhagstætt
sjómönnum, heldur þjóðinni
allri. í trausti loforðs forsætis-
ráðherra hefjum viö veiðar á
ný, en til að undirstrika þá gif-
urlegu óánægju, sem rikir með
loðnuverð, munum viö ekki
halda til veiða fyrr en eftir
hádegi þann 14. janúar 1978.
6. Hráefnisverð það er ákveð-
ið skal 15. febrúar næstkom-
andi, veröi miöaö viö eðlilega
nýtingu hráefnis hérlendis,
þannig að mjölnýting veröi met-
in 17% i stað 16% eins og nú er
og i öðru Iagi verði miðaö við
betri lýsisnýtingu.
Felum viö fulltrúum okkar i
verðlagsnefnd aö fylgja þessu
eftir.
Framhaldábls.4.
Tvö stjórnar-
framboð í
Dagsbrún
Á föstudaginn rann út
frestur tii að skila fram-
boðslistum til stjórnar-
kjörs í Verkamannafél-
aginu Dagsbrún og
komu fram tveir listar,
listi stjórnar og trúnað-
armannaráðs og listi
borinn fram af Sigurði
Jóni ólafssyni# verka-
manni í álverinu i
Straumsvík, ólafi
Vilbertssyni, Benedikt
Kristjánssyni og fleir-
um.
A fundi sem aðstandendur
siðartalda framboðslistans
efndu til með fréttamönnum I
gær kom fram, að ástæöa
framboðsins væri almenn
óánægja með forystumenn
Dagsbrúnar. Beittu þeir sér
litt fyrir lýðræði I Dagsbrún og
héldu t.d. fáa félagsfundi.
Nánar segir af blaðamanna-
fundinum eftir helgi, en ekki
tókst að ná sambandi við leið-
toga Dagsbrúnar I gær, til að
fá álit þeirra á ummælum
mótframbjóðendanna.
Flugfargjöld
hækka um 10%
— einnig dagblöðin og
sérleyfisfargjöld
Ríkisstjórnin hefur
lagt blessun sina yfir 3
beiðnir um hækkun
vöru/þjónustu, en sam-
kvæmt upplýsingum
sem Alþýðublaðið fékk á
Framhald á bls. 4.
GERT KLART FYRIR NÆSTA RALL
Þó svo rall-akstur sé tiltölulega
ung iþrótt hér á lslandi er hún
þegar orðin allvinsæl. Þeir, sem
stunda ralliö leggja sumir hverjir
bæði mikla vinnu og fjármuni i
bfla sina.
Síðasta rall var I lok september
og sfðan hafa margir keppend-
anna unnið að endurbótum á bif-
reiöunum. Einn þeirra er Garðar
Eyland, verkstæöisformaöur hjá
Sveini Björnssyni.
BIll hans, Saab 96 .rgerð 1971
hefur sannarlega tekið stakka-
skiptum siðustu mánuðina.
— Stærsta breytingin er vélin.
Ég er búinn aö „tjúna hana upp”
og borga hana út. Hún er núna
milli 110 og 120 hestöfl. Svo hef ég
skipt um sveifarás og knastás.
Sfðan er billinn allur styrktur,
sett i hann veltigrind, gormar og
fjaörir geröar stffari. Að lokum
breikkuðum við bilinn og settum
á hann breiöari felgur.
— En eiginlega er allt „orgin-
alt” i bílnum, allt framleitt af
Saab.
Hvað ertu búinn að vera lengi
aö þessu?
— Eg byrjaði á þessu um
mánaöarmótin október-nóvem-
ber . Hann ætti að verða klár fyrir
næsta rall, sem veröur þann 25.
febrúar.
Ætlaröu eingöngu aö nota bflinn
I rall-akstur?
— Já, eingöngu.
—ATA
Jafnréttisráð skammar yfirnefnd
Yfirnefnd um verð á
landbúnaðarafurðum
gengur út frá því sem al-
gildri reglu, aðvinna karla
á sveitabýlum sé verð-
meiri en vinna kvenna,
segir Jafnréttisráð í álykt-
un. Tilefnið er kæra f ram-
leiðslufuiltrúa sexmanna-
nefndarinnar svokölluðu
til ráðsins 7. des. sl. og ósk-
aði ráðið þá eftir upplýs-
ingum yfirnefndarinnar
um málið. Það svar barst
6. janúar.
1 ályktun Jafnréttisráðs segir
ennfremur, að samkvæmt upp-
lýsingum sem þaö hafi fengiö,
sem um sömu verkþætti aö ræða
hjá báöum kynjum, en mismun-
urinn einungis fólginn I tima-
fjölda þeirra við hvern verkþátt,
sem miöaö er við, þegar verö-
lagsgrundvöllur Iandbúnaðaraf-
Framhaldábls. 4.
Árið 1977:
Vöruskipta-
jöfnuður
óhagstæður
um 11
milljarða
króna
Aætlað er að vöru-
skiptajöfnuður Islend-
inga hafi á árinu 1977
verið óhagstæður um
sem svarar 11 milljörð-
um króna. Árið 1976 var
vöruskiptajöfnuðurinn,
umreiknaður til gengis
ársins 1977, óhagstæður
um sem svarar 5
milljörðum króna.
Vöruskiptahallinn árið 1977
er þvi um 120% meiri en á ár-
inu 1976. Þessar upplýsingar
er að finna I frétt Seölabanka
Islands um þróun greiðslu-
jafnaöar og gjaldeyrismála á
árinu.
I fréttinni kemur fram að
uppgjör þjónustujafnaðar sé
skemmra á veg komiöien þvi
hefur veriö spáö að hann verði
hagstæður um sem nemur 1
milljarði króna. Viðskipta-
jöfnuður ársins ætti þvl sam-
kvæmt framansögöu að vera
óhagstæöur um sem nemur 10
milljörðum króna. Það eru um
2.8% af vergri þjóðarfram-
leiöslu á móti 1.7% árið áður.
Bent er á að meginhluti
þessarar aukningar stendur i
sambandi við aukinn skipa-
innflutning.
ES