Alþýðublaðið - 14.01.1978, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 14.01.1978, Blaðsíða 5
5 SST Laugardagur 14. janúar 1978 Stjörnubió: THE DEEP, Bandarisk, gerð 1977, litit og Cinascope, stjórnandi: Peter Yates. The Deep er að mörgu lev-ti ó- venjuleg mynd og þá fyrst og fremst vegna þess að hún' er að miklu leýti tekin neðansjávar. Söguráðurinn og efni er þó með trernur heiðbundnum hætti, sem sagt góðu mennirnir á móti vondu mönnunum. Að sjálf- sögðu vinna góðu mennirnir þótt oft muni mjóu. Það verður að segja myndinni til hróss að hún er geysilega spennandi og óhætt er að mæla með henni sem vel gerðum þriller. Leikur er fyrir. ofan meðallag og tæknivinna er vel af hendi leyst. Það sem gerir The Deep kannski svona spenn- andi er fyrst og fremst að hún er tekin i umhverfi sem almenn- ingur er ekki vanur að hafa fyrir augunum, þ.e. neðansjávar, og er yfirfullt af vondum fiskum sem koma þegar maður á sist von á þeim i þessu fallegu um- hverfi og bita mann eða jafnvel éta! Það er vel hægt að hugsa sér skemmtilegri dauðdaga en að verða étinn af hákarli eða risaál. Stjórnandi The Deep er Peter Yates en hann er hvað best kunnur hérlendis yfir mynd sem ber nafnið Bullitt og er með Steve McQueen i aðalhlutverki. The Deep slær Bullitt alveg við enda er það eðlilegt að það sé um einhverja framför að ræða hjá stjórnanda. Nýjabíó: SILFURÞOTAN (Silver streak), Bandarisk gerð 1977, litir og breiðtjald, stjórn- andi: Arthur Hiller. Silfurþotan er sprenghlæileg gamanmynd fyrir fólk á öllum aldri. Það er kannski svolitill galli að textaþýðing skilar sév ekki alveg þar sem brandarar myndarinnar byggjast mikið á orðaleikjum, sem skila sér ekki alveg á islensku. Atburðarrás er hröð og manni leiðist aldrei þrátt fyrir að söguþráður sé með miklum ólikindum. Eg býst við að það mætti flokka Silfur- þotuna undir svokallaða fágaða slapstick comedy en hún er ekki verri fyrir það. Gene Wilder fer á kostum og aðrir leikarar skila sinum hlut- verkum ekki siður. Það er óhætt að mæla með Silfurþotunni þvi ÞRJAR GOÐAR hún er hreint frábær. Það verð- ur enginn svikinn sem fer i Nýja bió þessa dagana. Háskólabió: BLACK SUNDAY. Bandarisk, gerð 1977, litir Panavision, stjórnandi: John Frankenheimer. Þetta er pólitisk mynd. Það liggur við að hún sé áróðurs- mynd. Þetta verður skiljan- legra þegar það er haft i huga að allir aðstandendur myndarinn- ar eru gyðingar enda vekur myndin samúð með málstað þeirra. Söguþráðnrinn er i stuttu máli sá að Svarti Septem- ber, hryðjuverkasamtökin al- kunnu, ætla að fara að herja á Bandarikjamenn og ætla i fyrsta höggi að drepa á einu bretti 85000 kana. Þar sem júð- arnir eru svo svakalega klárir þá tekst að koma i veg fyrir þetta. En þa er ekki fyrr en eftir eitthvert almest spennandi lokaatriði sem ég man eftir i kvikmynd: Einnig fléttast inn i þetta eftirmeðferð striðsfanga úr Viet-Nam striðinu. Myndin er vel gerð og flestir leikarar-fara á kostum. Tæknibrellur eru einnig vel gerðar og það má geta þess að eitt myndskeiðið sem er aðeins 3 sekúndur á lengd var þrjár vikur i undir- búningi og kostaði 17.000 doll- ara. Það er atriðið þar sem Bruce Dern er að prófa nýju breiðtjalds „myndavélina” sina i gömlu og yfirgefnu flugskýli. Það kostaði 17.000 dollara að út- búa hausinn á verðinum og koma fyrir i honum 380 sprengi- hleðslum og blóðdropum við hverja. Þrátt fyrir áróður myndarinnar fyrir málstað Gyðinga verð ég að láta þá skoðun i ljós að hann virkaði ekki nógu sannfærandi á mig og ég hugsa að flestum vel upplýst- um Islendingum sé eins farið. Sem sagt pólitiskur og ofsa- spennandi þriller sem er vel þess virði að fara að sjá. GREIDENDUR vinsamlega veitið ef tirfarandi erindi athygli: Frestur til að skila launamiðum rennur út þann 19. ianúar. Það eru tilmæli embættisins til yðar, að þér ritið allar upplýsingar rétt og greinilega á miðana og vandið frágang þeirra. Með því stuðlið þér að hagkvæmni í opin- berum rekstri og firrið yður óþarfa tímaeyðslu. RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.