Alþýðublaðið - 14.01.1978, Page 7
Laugardag
ur 14.janúar 1978
7
Við Suðuriandsveginn/
rétt eftir að ekið er fram-
hjá Rauðhólunum á leið
frá Reykjavik er skilti sem
allir kannast við. Þar
stendur //Hjólkoppar til
sölu".
Skilti þetta hefur verið
þarna árum saman og tug-
þúsundir manna hafa bar-
ið það augum. Þeir eru
færri, sem þekkja sölu-
manninn eða hafa átt við-
skipti við hann. Alþýðu-
blaðsmenn röbbuðu lítil-
lega við Valdimar Sigurð
Norðdahl í vikunni.
Benz-koppur byrjunin.
Ég er búinn að standa í þessu i
ein tiu til fimmtán ár. Upphaflega
fann ég einn Bonz-kopp við veg-
inn, hann hafði dottið af einhverj-
um bilnum. Svo frétti einhver af
þvi, að ég ætti svona kopp og vildi
kaupa hann, þvi hann vantaði
kopp á bilinn sinn. Ég sá þá, að
þetta gat verið arðvænlegt og hef
safnað hjólkoppum og selt þá sið-
an.
Hvað áttu marga koppa
núna?
Ef ég vissi það. Það er ótrúleg-
ur fjöldi. Til dæmis á ég meira en
500kúpta Volkswagen-koppa. Það
gengur erfiðlega að selja þá
vegna þess að nú framleiða þeir
þá ekki lengur og kopparnir á
Volkswagen eru flatir núna.
Koppana finn ég við vegarkant-
ana, á graseyjunum við Miklu-
braut. Mitt svæði er aðallega
Miklabraut og Breiðholtið en ann-
ars fer ég viða um. Svo eru vinir
minir, þeir finna koppa og láta
mig fá. Þeir hjá vegagerðinni láta
mig t.d. oft fá koppa.
Siðastliðið sumar fór ég til
Akureyrar og Mývatns. Ég heim-
sótti afa minn, sem býr i Svarfað-
ardal. A þessari leið fundum við
33 koppa, þar af fimm i Hvalfirð-
inum. A bakaleiðinni var Vega-
gerðin nýbúin að láta hefla svo
við leituðum ekki einu sinni.
Það er mjög misjafnt hvað ég
finn marga koppa af sömu gerð-
inni. Fiat-kopparnir eru t.d. mjög
lausir á, detta af undir eins, einn-
ig Mazda-kopparnir. Ég á mikinn
fjölda af koppum af þessum gerð-
um.
Það er einnig mismunandi gott
i koppunum. Sumir ryðga eins og
skot og verða ljótir en i öðrum er
ekta ryðfritt stál i gegn með
þykkri krómhúð. Það eru beztu
kopparnir.
Frá 1200-6000 kr.
Hvernig gengur salan?
Hún gengur yfirleitt vel. Það
hefur þó litið selst undanfarið. Ég
hef sennilega selt meira en 10.000
koppa i allt. Sennilega miklu
meira þó.
Hvað kosta hjá þér kopparnir?
Það er mjög misjafnt. Sá dýr-
asti kostar 6000 krónur. Það er
koppur á Thunderbird. Svoleiðis
koppur kostar meira en 10.000
krónur i búð. Sá ódýrasti kostar
liklega um 1200 krónur en yfirleitt
eru þeir helmingi ódýrari hjá mér
en i búð. Og þeir eru eins og nýjir
hjá mér, ef ekki betri. Ég næ af
þeim ryðinu, ber á þá ryðvarnar-
efni, mála þá þar sem það á við og
bóna þar til þeir skina eins og nýir
væru.
Ég má til með að segja ykkur
eina sögu sem ég var að heyra.
Þið vitið hvar Hallærisplanið er?
Það var nýlegur Buick þar eitt
föstudagskvöldið. Menn aka þar
gjarnan eins og vitlausir menn.
Buickinn spólaði og spólaði og allt
i e'inu losnaði koppur af honum.
Koppurinn skauzt i búðarglugga
og braut hann og fór inn i búðina.
Bilstjórinn varð svo hræddur aö
hann ók i burtu á fullri ferð og lét
koppinn eiga sig.
I framhaldi af þessu þætti mér
vænt um ef búðareigandinn vildi
láta mig hafa koppinn, ef hann
hefur sjálfur ekkert við hann að
gera. Mið vantar einmitt svona
kopp.
Vladimir Hjólkoppsky.
Vinir minir kalla mig margir
Vladimir Hjólkoppsky. Það kem-
ur til af skiljanlegum ástæðum.
En ég er kallaður Valdi I
skemmtibransanum.
i skemmtibransanum?
Valdlmar meö ívo al glæstustu hjólkoppunum f safninu
>ð|k .;
ipSil í Hi
t - m 'iívím 4 --*> i l/
m mWm j mX
k fÆfcÉm? J $
Já, ég hef verið að fikta við að
syngja með hljómsveitum og þá
aðallega i Klúbbnum. Maður fikt-
ar við svo margt, t.d. að syngja,
að reykja vindla, og svo fiktar
maður við kvenfólk, svona eins og
gengur.
Svo kvöddum við Valda. Við
getum með sanni sagt, að það er
enginn svikinn af koppunum
hans. Er við komum inn i skemm-
una hans voru koppar i snyrtileg-
um röðum hreint úti um allt. Og
það er sannarlega satt, kopparnir
eru alveg eins og nýir. Vanti þig
hjólkopp, þá ættirðu að lita við
hjá honum Valdimar við Suður-
landsveginn, rétt þar sem Rauð-
hólunum sleppir. Athugaðu hvað
hann getur gert fyrir þig. ATA
MKÍiL
Þeir eru ófáir sem kannast við Vaida á hjóiinu sinu. Þetta er eitt
giæsilegasta hjólið i bænum. A þvi ferðast hann um f leit sinni að
hjólkoppum. AB-myndir: — GEK.