Alþýðublaðið - 19.01.1978, Side 1
FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR
Ritstjórn blaðsins er '
til húsa íSíðumúla 11
— Sími (91)81866
— Kvöldsími frétta-
vaktar (91)81976
Flugfreyjur
sömdu í gær
í gær voru undirritað-
ir kjarasamningar á
milli Flugfreyjufélags
íslands og Flugleiða, en
þá hafði samningafund-
ur staðið linnulaust i
einn sólarhring.
Samningar flugfreyja hafa
veriB lausir siöan 15. október s.l.
og voru alls haldnir 9 samninga-
fundir deiluaðila. Alþýöublaðinu
tókst ekki að fá upplýsingar um
efnisinnihald hins nýja kjara-
samnings, en flugfreyja ein úr
samninganefndinni sagöi að
kjarabæturnar samkvæmt hon-
um væru hliðstæöar og hjá mörg-
um öðrum hópum undanfarna
mánuði. 1 kvöld verður haldinn
fundur i Flugfreyjufélaginu, þar
sem samningar verða kynntir og
um þá greidd atkvæöi.
verkafólkinu
Fundur með
„Ég var hjá Einari Jónssyni aö móta í leir og
Ásgrimur kom heim til min einu sinni í viku til að
kenna mér að mála. Þeir tóku ekkert fyrir. öðl-
ingar báðir tveir."
Sigurjón ólafsson, myndhöggvari, lætur móðann
mása i opnu blaðsins í dag. (AB-mynd ATA)
„Nei ástandið hefur ekk-
ert færzt til betri vegar",
sagði Hallgrímur Péturs-
son, formaður verka-
mannafélagsins Hlífar í
Hafnarfirði, er Alþýðu-
blaðið innti hann eftir deil-
um verkalýðsfélaganna
þar á staðnum við forráða-
menn Bæjarútgerða r
Hafnarfjarðar • // Af-
kastaskráningin heldur
áfram, þrátt fyrir mót-
mæli okkar", sagði Hall-
grimur.
„Ég var að koma af
fundi með trúnaðarmönn-
um verkalýðsfélaganna
hjá bæjarútgerðinni. Við
ræddum málið í Ijósi þess
sem undan er gengið og
ákváðum að halda fund
með verkafólkinu". Fund-
ur þessi verður haldinn nú i
dag, fimmtudaginn 19.
janúar.
Á að kalla það „beztu lausnina” eða einokun?
Mega ekki selja fisk „fram
hjá” SH og Sambandinu
í fyrra reyndu fáein
frystihús innan SH að
selja frystan fisk fram
hjá sölukerfum sölu-
samtakanna stóru, Sölu-
miðstöðvar hraðfrysti-
húsanna og Sambands-
ins, ogtöldu sig fá meira
fyrir framleiðsluna á
þann hátt. Mun þetta
vera brot á reglum
a.m.k. Sölumiðstöðvar-
innar (SH) og voru við-
komandi aðilar neyddir
til þess að halda áfram
sölu eftir kerfi SH, að
þvi er AB hefur fregnað.
Sölufyrirkomulag
rækju (og hörpudisks)
er hins vegar þannig, að
tslenzka útflutningsmið-
stöðin er stærsti út-
flutningsaðili, með um
40% útflutnings, SH flyt-
ur út 25% og Sambandið
20% af rækju, en aðrir
m
*
aðilar afganginn.BIaðið
spurði Ingimund Kon-
ráðsson, framkvæmda-
stjóra íslenzku út-
flutningsmiðstöðvar-
innar um ástæðu fyrir
þvi að sölufyrirkomulag
á rækjunni og ,,hvitum
fiski’’ væri þannig óllkt.
— Það eru sjálfsagt ýmsar
ástæður fyrir því, en svo virðist
sem stóru sölusamtökin hafi ekki
sinnt rækjunni á neinn hátt. Hér
er ekki um aö ræöa mikiö magn,
12—1300 tonn á ári og rækjan fell-
ur ekki á neinn hátt undir þá ein-
okun sem gildir um sölu á „hvit-
um fiski”. Ég fullyröi að meö
þessufrjálsa fyrirkomulagi hefur
náðst að selja framleiðsluna fyrir
hagstæðara verð en ella. Það ætti
jafnvel að leyfa hliðstætt fyrir-
komulag meö sölu „hvita fisks-
ins”, en aðminnstakosti aö losa
eitthvaö böndin á fisksölunni.
Ekki svo að skilja að stóru sölu-
samtökin hafi ekkert gott látið
leiða af sér. Slikt væri fjarstæða
að segja, en mér finnst sjálfsagt
aðleyfa minni fyrirtækjum innan
samtakanna aö selja framleiöslu,
ef þau geta fengið hærra verð ut-
an þeirra sölukerfa. Það þarf að
opna þetta og koma samkeppn-
inni að.
— Þið hafiö þá reynt að fá þetta
f gegn?
— Já, en frystihúsunum hefur
verið meinað að frysta fyrir okk-
ur. Samt get ég nefnt sem dæmi,
að i mai — júni i fyrra gátum við
selt 60—70 tonn á 15—20% hærra
verði en stóru samtökin fengu, en
við gátum ekki notað tækifæriö.
Styrkur stóru sölusamtakanna er
margbrotið og stórt sölukerfi er-
lendis, sérstaklegá i Bandarikj-
unum og öruggir markaðir, en
þau veröa að fylgja verðlækkun-
um erlendis og standa þvi ekki
betur en það. Ég tel að i heildina
eigi að iosa um þessi bönd á fisk-
sölunni, en eins og málin standa
núna geta frystihúsin ekki selt
einn einasta pakka framhjá SH og
Sambandinu án þess aö fá á sig
pressu.
Við inntum Hallgrim eftir þvi
hvernig hugsanlega verði brugð-
izt við ef ekki veröur fariö að
kröfum verkalýðsfélaganna.
Hann sagði, að á trúnaðarmanna-
fundinum i gær hefðu ákveðnar
hugmyndir veriö ræddar, en vildi
ekki tjá sig frekar um þær. „Ef til
einhvers kemur viljum við ekki
hafa neinn fyrirvara á þvi”, sagði
hann.
Svo sem fram kom i frétt i blað-
inu i gær felldi starfsfólk i fisk-
iðjuveri BOH að taka upp svo-
kallað ákvæðisvinnufyrirkomu-
lag, eða „bónuskerfi”. Forráða-
menn fyrirtækisins hafa nú tekið
upp afkastaskráningu i frystihús-
inu, likt og þetta fyrirkomulag
væri þegar komiö á. Telja tals-
menn verkalýðsfélaganna i Firð-
inum að útkomuna úr þessari af-
kastaskráningu eigi að nota til
þess að reyna að telja fólkinu
hughvarf. Alita þeir skráningu
þessa brjóta i bága viö þær hefðir
sem skapazt hafa i sambandi við
upptöku „ákvæöisvinnufyrir-
komulagsins”. Slik skráning sé
ekki leyfð af verkalýðsfélögum
fyrr en „ákvæðisvinnan” hefur
veriö samþykkt af verkafólkinu.
—ES
Gamalt
fólk æ
oftar
fórnar-
lömb
sjá baksídu
Afkastaskráningin heldur áfram: