Alþýðublaðið - 19.01.1978, Side 4

Alþýðublaðið - 19.01.1978, Side 4
4 Fimmtudagur 19. janúar 1978 asr alþýöu- Otgefandi: Alþýðuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent h.f. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Éinar Sigurðs- son. Aðsetur ritstjórnar er i Siðurnúla 11, simi 81866. Kvöldsimi fréttavaktar: 81976. Auglýsingadeild, Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftar- og kvartanasimi: 14900. Prentun: Blaðaprent h.f. Askriftaverð 1500 krónur á mánuði og 80 krónur i lausasölu. ALÞINGI OG GAGNRÝNIN Þingmenn og aðrir stjórnmáiamenn hafa komið mikið við sögu síð- ustu mánuði í umfjöllun fjölmiðla um margvísleg málefni. Þeir hafa verið gagnrýndir harkalega, oft með réttu, en stundum hefur atlagan að þeim farið út fyrir öll skyn- samleg mörk. Oftar en ekki hafa dómsorð verið birt, án þess að málflutningur hafi farið fram. ,,Rök" sumra gagnrýnenda hafa verið linnulausar ádeilur, þar sem ekki hefur bólað átilraunum til jákvæðrar úrlausnar. Svo mjög hef- ur verið vegið að löggjaf- arsamkundu þjóðarinnar að jaðrar við tilraunir til að svipta hana trausti og virðingu. Á Alþingi sitja 60 menn, sem unnið hafa eið eða drengskaparheit að stjórnarskrá landsins. Þeir fara með umboð kjósenda, sem eiga þá kröfu á hendur þeim, að þeir séu vammlausir og heiðarlegir í starf i og geri sér grein fyrir þeirri ábyrgð, sem á þeim hvíl- ir. En rétt eins og öðrum mönnum eru þeim mis- lagðar hendur um margt, og þeir geta ekki vænzt þess að sitja á f riðarstóli. Sumir þeirra eru um- deildari en aðrir, og hafa gef ið til þess ærið tilefni. En fullyrða má, að helft- in af þingmönnum vinnur störf sín samkvæmt beztu samvizku, og vinnudagur margra þeirra er langur. — Áratuga gamlar hefðir móta störf þingmanna. Innan hins fastmótaða skipulags hefur þróazt kerfi, sem mest gagnrýni hefur beinzt að og nauð- synlegt er að breyta. Þetta er hið svonefnda samtrygg i nga kerf i flokkanna, sem á ekkert skylt við markmið þing- ræðis og lýðræðis. Þingmenn þurfa sjálfir að brjóta þetta kerfi nið- ur. Það er í huga þjóðar- innar gróðrarstía spill- ingar, fjársvika og sið- lausrar fyrirgreiðslu. Þá ber brýna nauðsyn til þess, að þingið í heild veiti einstökum þing- mönnum meira aðhald og að þeir verði látnir sæta ábyrgð fyrir alvarleg af- glöp og brot á algildum siðareglum. Hér hafa kjósendur einnig hlut- verki að gegna. Þeir eiga að nota atkvæði sín sem mælikvarða á það traust sem þeir bera til ein- stakra þingmanna. En þrátt f yrir nauðsyn- legar breytingar og um- bætur er út í hött, að af- greiða þingmenn sem misindismenn. Þeir, sem það gera, dæma þjóðina í heild. Þetta eru jú löglega kjörnir fulltrúar hennar. — Alþingismenn og aðrir stjórnmálamenn hafa ávallt sætt gagnrýni, sem er bæði sjálfsagt og eðli- legt í hita stjórnmálabar- áttunnar og i hinum venjulegu, hversdagslegu störfum. En þegar gagn- rýnin er komin út fyrir þau mörk, að þjóna þeim tilgangi að vera aðhald og óskir um betri störf, er talsverð hætta á ferðum. Þá verður gagnrýnin til aðeins gagnrýninnar vegna og til að vekja at- hygli á gagnrýnandanum. Á Alþingi hafa komið fram ýmsar tillögur um breytingar á störfum þess, sem allar horfa til bóta. Þingmenn þurfa að kosta kapps um, að þær nái fram að ganga. Al- þingi þarf að eiga frum- kvæði um breytingar í anda breyttra þjóðfélags- hátta. Það verður þó eftir sem áður að vera traust og valdamikil stofnun, óbifanlegur grundvöllur þess þjóðf élagskerf is, sem fslendingar kjósa að búa við. — AG. UR YMSUM ATTUM „Evribari spiks tú evribari in Æsland,” segja sölumenn á öðru glasi, sem sendir eru uppá Astralbar með enska umboðs- manninn, þegar þeir eru að reyna að koma honum i skilning um eöli þessa merkilega is- lenzka þjóðfélags á þeim tveim. dögum sem honum eru ætlaðir til að gera hjólbarðasamninginn fyrir næsta ár. Umboðsmaður- inn verður auðvitað aiveg hissa: „Rili.?” og deplar augunum, en hefur kennski meiri áhuga á lauslátu stúlkunni, sem honum var lofaö i kaupbæti, ef heppnin yröi með. Hvernig Iftur stéttaskipting á íslandi út En auðvitað er stéttaskipting á Islandi. Sú stéttaskipting er afar litil og siðlát stéttaskipting, og það ber ekki næstum þvi eins mikið á henni og i útlandinu, þar sem RR-Silverghost og Lambourgini og hvitur pipu- hattur i aftursætinu sýna ber- lega að enginn almúgi er á ferð. íslenzki aðallinn lætur nægja aö kaupa þaösem til boða stendur i hógbæru úrvali Vökuls og Sam- bandsins, og Ræsis þeir staf- firugri. Útlenzki aöallinn fylkir sér i prósessiu með kriubrjóst á sinum hátiðisstundum, með lúðraflokk og hersveit i fylking- aroddinum, en hér lætur sjálfur forsetinn nægja tveggja-þriggja ára Packard og umferðarlög- regluþjón á skellinöðru, þegar mest er um dýrðir. Ættarsam- félagið Sú islenzka hógláta stétta- skipting hefur einhvern veginn . orðið til af sjálfri sér, alveg há- vaðalaust, i mesta lagi að kaup- mannaleg skynsemd og útsjón- arsemi hafi átt hlut að máli. Til dæmis er það alveg einstakt ef islenzkur embættismaður, sem nokkuð á undir sér, á ekki bróð- ur i öðru embætti jafn góðu, eða að minnsta kosti systur, sem er giftsllkum manni. Já, og sannið til að náfrændi hans, sem ráö- herrann gerði að hægri hönd sinni, lofaðist stúlku i háskóla- námi, sem er dóttir manns, sem ýmsu getur komiö til leiöar, ef viö hann er talað á skynsamleg- an og kurteisan hátt. Við lóðaút- hlutunina var það lika nákvæm- lega móðurbróðir aldavinar hans, fyrrum ráðuneytisstjór- inn, sem kom ýmsu til hagsæld- ar fyrir suma, og blessuð ekkju- frúin, eftir hann Natanson & Loftsson, fékk þvi ráðið að syn- inum greiddist leið inni próf- kjörið, nýkomnum úr laganámi, enda mörgum hnútum kunnug, frá þvi hún hélt rausnarheimilið á fyrri árum. Og hvernig sem syninum vegnar i prófkjörinu er eitt vist: — hann mun ekki kvænast sambandslausri konu, þegar fram liða stundir. Auövit- að mun enginn segja honum fyr- ir verkum i þeim málum, hann finnur sjálfur hvað til slns friðar heyrir, flókin og gömul venzla, vina, ætta og hagsmunatengsl islenzks aðals rofna ekki. Utan- aðkomandi þekkja þau fáir, hringirnir eru margir og mislit- ir, skerast skárast og snertast, með þrihyrningum og undar- lega löguðum trapisum. Þetta er flókin flatarmálsfræði, — en hún er! Hinn fslenzki aðall er! Die organizierte Verfremdung „Evribari spiks tú ervribari in Æsland,” segir sölumaðurinn þeim enska aftur, og hann veit það sjálfur, þvi forstjórinn hef- ur oft boðið honum vindil, og tekið með honum viskiglas á páskunum og siðasta vinnudag fyrir gamla árið, þótt allir viti að hann á tvo bræður i stjórnar- ráðinu og eigi hlut I Natanson & Loftsson. Lögfræðingurinn i prófkjörinu, sonur forstjórans er lika alltaf „kammó strákur” og talar við hann um bila, þegar hann kemur að finna pabba sinn. Auðvitað þekkir sölumað- urinn þetta fólk ekki mikiö, langt frá þvi. En hann segir enska umboðsmanninum þaö satt að á Islandi tala allir við alla, — og hvar I skollanum er þá stéttaskiptingin? — AM ★

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.