Alþýðublaðið - 25.01.1978, Qupperneq 4
4
Miðvikudagur 25.
janúar 1978.
(Jtgefandi: Alþýöuflokkurinn.
Kekstur: Reykjapretit h.f. Ritstjdri og ábyrgðarmaður: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Einar Sigurðs-
son. Aðsetur ritstjörnar er f Siðumúla 11, sfmi 81866. Kvöldslmi fréttavaktar: 81976. Auglýsingadeild,
Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Áskriftar- og kvartanasimi: 14900. Prentun: Blaðaprent h.f.
Askriftaverð 1500krónur á mánuði og 80 krónur i lausasölu.
STJÓRNMÁL OG
SKÍÐAFERÐIR
í gjörningahríð
pólitískra leiðaraskrifa
er stundum gott að leiða
hugann frá síbylju þrefs
og orðaskaks, og huga að
ýmsu, sem ekki er síður
mikilvægt en kapphlaup
um áhrif og völd. —
Alþýðublaðið hefur
nokkrum sinnum rætt um
skíðaíþróttina og gildi
hennar sem almennings-
íþrótt.
Fáar íþróttagreinar
njóta nú eins mikillar
hylli hér á landi og skíða-
íþróttin. Iðkendum hefur
fjölgað gifurlega síðustu
árin, eða eftir að farið
var að skipuleggja skíða-
svæði og reisa skíðalyft-
ur. Helzti kosturinn við
þessa íþróttagrein er, að
hún er f jölskyIduíþrótt,
iþrótt, sem nánast allir
geta stundað.
Nú er svo komið, að um
hverju helgi halda þús-
undir (slendinga til f jalla
og renna sér á skíðum til
heilsubótar og ánægju.
Skíðamönnum hefur
f jölgað svo síðustu tvö til
þrjú árin að öll helztu
skíðasvæði landsins eru
að verða of lítil. Við lyft-
ur myndast miklar bið-
raðir, og verulegur hluti
dagsins fer i það að bíða.
— Þessari þróun
þyrftu ráðamenn borga
og bæja að gefa gaum.
Það er fvímælalaust góð
fjárfesting að bæta að-
stöðu til skíðaiðkana hér
á landi. Þessi íþrótt, eins,
og aðrar íþróttagreinar,
er andlega og líkamlega
heilsubætandi, og til þess
fallin að draga úr sjúkra-
húsakostnaði, auka
mönnum starfsþrek og
lengja starfsævi.
Mörg íþróttafélög hafa
af miklum vanefnum
unnið mikið brautryðj-
endastarf með því að
vekja áhuga almennings
á skíðaíþróttinni. Fæst
þeirra hafa hins vegar
fjárhagslegt bolmagn til
að skapa þá aðstöðu, sem
nú er krafizt. Ríki og
sveitarfélög þurfa að
veita meiri fjármunum
til skipulags og frágangs
skíðasvæða, og ætti ríkinu
að vera það vorkunnar-
laust, slíkar sem tekjur
þesseru af sölu skíðabún-
aðar.
En þegar talað er um
skíðaíþróttina sem
almenningsíþrótt er ekki
öll sagan sögð. Staðreynd
er, að sæmileg efni þarf
til þess að kaupa nauð-
synlegan búnað og stunda
skíðaferðir. Það er því
ekki á allra færi að búa
sjálfa sig og fjölskyldu
sina út á skíði.
Ríkið leggur verulega
tolla á skíðabúnað og hef-
ur þannig mismunað
iþróttagreinum, því
margar eru þær, sem
enga tolla þurfa að greiða
af áhöldum og tækjum.
Áður hefur verið bent á
miklar tolltekjur ríkisins
af skíðabúnaði og hve lít-
inn hluta þeirra tekna
ríkið hefur aftur látið
renna til íþróttarinnar.
Með því að lækka tolla
af skíðabúnaði vinnst
tvennt . Stuðlað er að
aukinni þátttöku í íþrótt,
sem er skemmtileg og
holl, og komið er í veg
f yrir að þetta verði íþrótt
hinna efnameiri. Þeir
stjórnmálamenn á
Alþingi, sem íþrótt þessa
stunda, og þeir eru
allmargir, ættu nú að
berjast fyrir niðurfell-
ingu eða verulegri lækkun
tolla af skíðabúnaði.
Margt vitlausara hafa
þeir gert. —ÁG
UR YMSUM ÁTTUM
Hann skyldi þó aldrei hafa lent í
Brjótid Ólaf!
Islenzka landsliðið i hand-
knattleik, sem mun bráðlega
gera garðinn frægan í Dan-
mörku (ef ekki kemur til vondur
matur, óhagstæðir dómarar,
mótvindur eða einstök fúl-
mennska andstæðinganna) hef-
ur staðið i ströngu undanfarið.
Val á leikmönnum hefur að
sjálfsögðu verið nokkuð um-
deilt. Menn hafa jafnvel verið
harðorðir um nokkra leikmenn
en slikar um ræður hafa jafnan
farið fram I heimahúsum, blöð-
in hafa varið varlega i sakirnar.
t fyrirsögn á iþróttasiðu Þjóð-
viljans i gær virðist samt brjót-
ast upp á yfirborðið megn
óánægja. Eftir fyrirsögninni að
dæma virðist ráðið hafa verið að
brjóta Ólaf, og sjá, ísland vann.
Höfundar þeirra menningar-
dálka dagblaðanna sem fræða
alþýðuna um athafnir riks og
frægs fólks i útlandinu, eru si-
felltaðfæra út kviarnar. Fréttir
þeirra fjalla ekki ætið um fólk af
þessum heimi, blaðamannirnir
fylgja hinum frægu út fyrir gröf
og dauða.
t menningardálki Visis,
„fólk”, er i gær rætt um Lisu
Mariu, dóttur rokkkóngsins
sáluga, Elvis Presleys, og fyrr-
verandi eiginkonu hans,
Priscillu, sem virðist vera i
miðilssambandi við hinn látna
mann sinn.
Greinin endar á eftirfarandi:
' ,,..en Priscilla segir, að dóttir
nedra?
hennar og Presley hafi tekið lát
föður sins sér mjög nærri”.
Hvað eru menn að tala um
himnarikissælu eftir dauðann,
fyrst Presley tekur láti sinu svo
illa? Hann skyldi þó aldrei hafa
lent i neðra?
Island Refstad í gærkvöldi:
lafur brotinn
Island sigraði
tslenska landsliðið I handknatt-
leik sem nú er á leiðinni tfl Dan-
merkur á HM lék i gærkvöldi
gegn 1. deildarliðinu Refstad og
lauk leiknum með sigri Islenskiai
liðsins sem skoraði 22 mörk gegn
18. Staðan I leikhléi var 12:9 Is-
landi i vil. ölafur Einarsson úr
Vikingi varð fyrir þvi öhappi að
handarbrotna og er útséö um
þátttökuhans i HM. Jön Karlsson
var einnig meiddur en hann verð-
ur þö með i HM.
t>að verður aö teljast til tiðinda
að Viggó Sigurðsson var þrivegis
rekinn af leikvelli og I siöasta
skiptið var hann útilokaður frá
leiknum.
Leikurinnvar jafnframanaf en
er Iiða tók á hann fór Islenska lið-
iöaösiga hægt og bltandifram úr
og tókst að sigra eins og áður er
sagt 22:18.
Telja veröur þetta nokkuð góða
útkomu hjá liðinu þegar tillit ér
tekiö til þess að slakari leikmenn
liðsins f engu mikið að spila. Leik-
ið var á steingólfi og voru is-
lensku leikmennirnir hræddir við
meiðsli og annað þess háttar.
1 norska liöinu Refstad eru fjór-
ir landsliðsmena.
Þorbergur Aðalsteinsson var
markhæstur hjá Islandi. Hann
skoraði fimm mörk. Gunnar
Einarsson skoraðifjögur og aðrir
minna. Upplýsingar þessar feng-
um við frá Gunnlaugi Hjálmars-
syni i gærkvöldi. SK.