Alþýðublaðið - 28.01.1978, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 28.01.1978, Blaðsíða 2
V Laugardagur 28. janúar 1978. Keflavík: Frambjódendur í prófkjöri Alþýduflokksins vegna bæjarstjómarkosninganna Alþýðuf lokkurinn í Keflavík heldur prófkjör um skipan 6 efstu sæta á lista flokksins til næstu bæjarstjórnarkosninga í Keflavík. Prófkjörið fer fram i dag, laugardag 28. janúar og á morgun sunnudaginn 29. janúar. Atkvæðisrétt í próf- kjörinu hafa allir Kefl- víkingar 18 ára og eldri, sem ekki eru flokks- bundnir í öðum stj órn- málaf lokkum. Frambjóðendur í próf- kjörinu eru 11 talsins. Þeir eru: Gottskálk ólafsson, Guðfinnur Sigurvinsson, Guðrún ólafsdóttir, Gunnólfur Árnason, Jón Ólafur Jónsson, Karl Steinar Guðnason, ólafur Björnsson, Sigurður Árnason, Svava Hildur Ásgeirsdóttir, Sæmundur Pétursson og Þórhallur Guðjónsson. Gottskálk ólafssoner fæddur 4.12. 1942 i Miðneshreppi. Hann lauk námi i húsasmiði áriö 1962 og vann viö þá iðn til ársins 1965 er hann réöist sem starfsmaöur tollgæzlunnar á Keflavikurflug- velli. Gottskálk er kvæntur Guö- laugu Jóninu Sigtryggsdóttur og búa þau aö Háteigi 12, Keflavik. Guöfinnur Sigurvinsson er fæddur 6.7.1936. Hann lauk prófi frá Samvinnuskólanum aö Bifröst árið 1955. Guðfinnur veitir nú forstööu Tollvöru- geymslu Suöurnesja. Hann er kvæntur Gislinu Jóhannesdóttur og eiga þau 5 börn, Guöfinnur býr aö Háaleiti 13 i Keflavik. Guörún ólafsdóttir er fædd 3. febrúar áriö 1932 á Isafirði. Hún lauk gagnfræöaprófi frá Isafiröi, 1949. Guðrún starfaöi i mörg ár i frystihúsi, en frá árinu 1973 hef- ur hún verið formaður verka- kvennafélags Keflavikur og Njarðvikur. Guðrún er gift Magnúsi Jóhannessyni, skipasmiö og eiga þau fjögur börn. Guörún ólafsdóttir er búsett aö Greniteig 8, Keflavik. Gunnólfur Arnason er fæddur 18. júni áriö 1950. Hann lauk námi i pipulögnum frá Iðnskól- anum. Gunnólfur er kvæntur Fanneyju Bjarnadóttur og eiga þau tvo syni. Gunnólfur er búsettur aö Háteig 6, Keflavik. Jón Óiafur Jónssoner fæddur á ísafirði 5. des. áriö 1940. Hann lauk prófi frá gagn- fræöaskóla Isafjarðar og er nústarfsmaður i Frihöfninni á Kef la vikurf lugvelli. Jón Ólafurer kvæntur Sigur- björgu Gunnarsdóttur og eiga þau hjónin þrjú börn. Karl Steinar Guönason er fæddur 27.5. 1939. Hann lauk gagnfræðaprófi ár- ið 1956 og kennarprófi frá Kennaraskóla tslands áriö 1960. Karl Steinar er nú formaður Verkalýös- og sjómannafélags Keflavikur og nágrennis og fulltrúi Alþýöuflokksins i bæjar- stjórn Keflavikur. Karl er kvæntur Þórdisi Þormóðsdóttur og eiga þau fjögur börn. ólafur Björnsson, er fæddur að Hnjúki iDalasýslu hinn 22. 4. 1924. Hann er nú framkvæmda- stjóri Baldurs h.f., sem hann stofnaði ásamt tveim fyrr- verandi skipsfélögum sinum. Ólafur er fulltrúi Alþýðuflokks- ins i bæjarstjórn Keflavikur og i bæjarráöi. Hann er kvæntur Hrefnu ólafsdóttur. Siguröur Arnason er fæddur i Reykjavik 24. nóvember árið 1924. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Alþýöuskólanum að Eiðum áriö 1968 og 2 stigs prófi frá Vélskóla Islands árið 1972. Þaö sama ár fluttist hann til Keflavikur. Sigurður vinnur nú hjá Flug- leiðum h.f. á Keflavikur flug- velli. Svava Hildur Asgeirsdóttir er fædd i Keflavik 29.8 1956. Hún er gift Jóhanni Magna Jóhanns- syni og eiga þau eitt barn. Sæmundur Pétursson er fæddur 16. ágúst 1945. Hann lauk prófi i rafvirkjun hjá Rafveitu Keflavikur áriö 1971. Starfaöi siðan hjá Rafiðn h.f. i Keflavik til ársins 1973, en gerðist þá slökkviliðsmaður. Þórhaliur Guöjónsson, er fæddur 16.7. 1931 Hann lauk gagnfræðaprófi frá Reykholtsskóla árið 1949, sveinsprófi i skipasmiðaiön 1953 og siðar námi i húsasmiði. Þórhallur hefur starfað við eigin fyrirtæki frá 1965. Hann er kvæntur Steinunni Þórleifsdóttur og eiga þau tvo syni. Jón Ólafur Karl Ritningin á 1600 tungumálum Nýja Testamennti Odds Gottskálkssonar frá 1540 númer 23 í tímaröð 1600 bóka Hinn árlegi Biblíudagur er á sunnudaginn, 29. janúar. Þennan dag notar kirkjan til að vekja sér- staka athygli á Biblíunni og á starfi Biblíufélaganna hér á landi og erlendis. Tílgangur Bibliufélaganna er sá einn, að gera Heilaga ritningu aðgengilega öllum mönnum, á máli, sem þeir geta auðveldlega skilið og fyrir verð, sem þeir ráða við. A siðasta ári var framlag Islands til Sameinuðu Bibliu- félaganna um ein milljón króna, og fór það fé til að greiða fyrir dreifingu Ritningarinnar i Eþiópiu, þar sem islenzkir kristniboðar hafa starfað til skamms tima. Á þessu ári hefur Hið islenzka bibliufélag gefið fyrirheit um 7500 dollara framlag til starfsins þar. Þeirri upphæð parf að safna meðal islenzkra söfnuða. I lok ársins 1976 hafði Ritningin verið þýdd og gefin út i prent- uðum bókum á 1603 tungumálum. Nýja Testamenti Odds Gott- skálkssonar frá 1540 kemur númer 23 i timaröð þessara 1603 tungumála. A siðasta ári var Ritningunni dreift á tslandi i 7700 eintökum, þ.e. Bibliur, Nýja Testamentið og einstök rit Ritningarinnar, og eru þá meðtaldar þær bækur, sem Gideonfélagið dreifði meðal 12 ára skólabarna. Samkvæmt yfirliti Sameinuðu Bibliufélaganna var Ritningunni dreift i 331 milljón eintaka um heim allan árið 1976. Mjög hefur farið i vöxt að sérprenta úrvals- kafla Ritningarinnar i hand- hægum og þægilegum útgáfum. A vegum Hins islenzka Bibliu- félags hefur um árabil verið unnið að undirbúningi nýrrar útgáfu islenzku Bibliunnar, og siðustu árin i samvinnu og sam- ráði við sérfróða starfsmenn Sameinuðu Bibliufélaganna. 1 fyrra unnu á vegum Bibliufélags- ins 5 af mönnum guðfræðideildar Háskóla Islands við að undirbúa texta Ritningarinnar fyrir nýja setningu og prentun. Setningin frá 1914 þarfnast endurnýjunar og þarf Bibliufélagið stuðning margra til að geta lokið þvi verki. A Bibliudaginn á sunnudag pré- dikar forseti Bibliufélagsins, herra Sigurbjörn Einarsson, biskup, i Dómkirkjunni i Reykjavik i tilefni Bibliudagsins og 50 ára afmælis Slysavarnar- félagsins. Siðdegis þann sama dag verður ársfundur Bibliufélagsins. Stjórn félagsins skipa 9 menn, en Her- mann Þorsteinsson hefur verið ólaunaður framkvæmdastjóri frá 1967. Arið 1977: Vinnustödvanir fleiri en oftast áður Fjöldi vinnstöövana á árinu 190.000. Til samanburöar má 1977 var mun meiri en á undan- nefna að á árinu 1976 voru vinnu- förnum árum. Fjöldi þátttakenda stöðvunardagar nær 310.000. Þess var einnig meiri en jafnan áöur. er vert að geta i þessu sambandi 292 vinnustöðvanir voru á árinu að áhrif yfirvinnubanns ASl fé- og i þeim tóku þátt um 48.000 laga á siðasta ári komu 'ekki á manns. neinn hátt fram tölulega. Hins vegar hafa vinnustöðvun- Upplýsingar þessar eru fengn- ardagar oft verið fleiri en á liðnu ar úr fréttabréfi Kjararannsókn- ári, en þá voru þeir tæplega arnefndar. ES Aðstoðargjaldkeri óskum eftir að ráða aðstoðargjaldkera að1 Fjármáladeild vorri, nú þegar. Innifalið i starfinu er innheimta lögboð- inna trygginga og almenn skrifstofustörf. Verslunar- eða samvinnuskólamenntun æskileg en starfsreynslu er krafist. Frekari upplýsingar gefnar á skrifstofu vorri að Ármúla 3. Samvinnutryggingar — Starfsmannahald — Tilboð óskast i eftirtaldar bifreiðar, er verða til sýnis þriðjudaginn 31. jan. 1978 kl. 13-16 i porti bak við skrifstofu vora, að Borgartúni 7: Ford Cortina fólksbifr. árg ’74 Ford Econoline sendiferðabifr árg ’74 Land Rover diesel árg ’73 UAZ 452 torfærubifr árg ’73 Willys Commando Torfærubifr árg ’72 Ford Club Wagon fólksbifr árg ’72 Land Rover benzin árg '12 Volkswagen 1300 fólksbifr árg '12 Land Rover benzin árg '12 FordTransitsendif.bifr. árg '12 FordEscortsendif.bifr. árg '12 FordTorinostationfólksbifr árg ’71 Volkswagen 1200 fólksbifr árg ’71 Skoda 110L fólksbifreið árg ’71 Land Rover benzin árg ’7l Chevrolet sendiferðabifr. árg ’7l Land Rover benzin árg ’70 Land Rover diesel árg ’70 Ford Cortina fólksbifreið árg ’68 Volvo Laplander torf.bifr. árg ’67 Volvo Laplander torf.bifr árg ’65 lil sýnis hjá simstöðinni Húsavik: Evenrude snjósleði árg. ’74 Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 17.00 að viðstöddum bjóðendum. Réttur áskilinn að hafna tilboðum, sem ekki teljast viðun- andi. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.