Alþýðublaðið - 28.01.1978, Page 3
Laugardagur 28. janúar 1978.
3
GreinareerdTorfusamtakanna um Hallærisplanid:
Yfirbygging dýr fram-
kvæmd og áhættusöm
Torf usamtökin hafa
sent frá sér ítarlega
greinargerð um Hallæris-
planiö/ en þar áætla borg-
aryfirvöld að ráðast í
miklar niðurrifs- og
byggingarframkvæmdir
til þess að „færa líf í mið-
bæinn". Tillaga yfirvalda
gerir ráð fyrir að um 5000
fm húsnæði sé rifið, hús-
næði sem nú er að lang-
mestu leyti í notkun. I
staðinn skal koma eftir-
talið:
1. 5000 fm atvinnuhúsnæði.
2. 6000 fm ibúðarhúsnæði
(samsvarar 80 litlum ibúðum).
3 Stóreflis 2ja hæða bygging
yfir allt Hallærisplanið og vest-
asta hluta Austurstrætis. Undir
þeirri byggingu skal útbúa
geymslu fyrir um 140 bila.
Um fyrsta liðinn segja Torfu-
samtökin að engar likur séu á
þvi að nýtt atvinnuhúsnæöi af
sömu stærð og hið fyrra auki á
fjölbreytni i atvinnurekstri, eða
hafi afgerandi áhrif á aukingu
,,lifs”á staðnum.
Varðandi húsnæðishugmynd-
irnar, þá segja samtökin að erf-
itt hljóti að vera að láta þær
koma heim og saman við bygg-
ingarsamþykkt Reykjavikur, en
skv. henni skal fylgja hverri i-
búð tiltekið svæði fyrir börn
(leiksvæði) utan húss. Sam-
svarandi ákvæði munu einnig
vera i reglugerð félagsmála-
ráðuneytisins um gerð skipu-
lags áætlana. Auk þessa, virðist
svo sem hluti ibúðanna snúi i
norður, en samkvæmt bygging-
arsamþykkt eru slikar ibúðir
bannaðar. Ef hins vegar er ætl-
un yfirvalda að láta þarna búa
aldraða, barnlaust fólk og ein-
hleypinga, þá stangast það á við
yfirlýsingar yfirvaldra sjálfra á
skipulagssýningunni á Kjar-
valsstöðum haustið 1976.
Vaktmaður með hund og
byssu?
Torfusamtökin telja siðasta
atriðið, yfirbyggingu Hallæris-
plansins, áhættusama og dýra
framkvæmd og verði ekki aftur
snúið ef illa takist til.
„Reynsla erlendis frá er ákaf-
lega viða sú, að ekki hefur tekist
að halda þeirri starfsemi sem
til stóð. Hér er ekki á ferðinni
neitt „Kúltúrhús” eins og stofn-
að er til viða erlendis enda trú-
lega ofviða ekki stærri borg en
Reykjavik að halda sliku gang-
andi af þeirri stærðargráðu sem
hér er fitjað upp á.
1 nágrannalöndum okkar er
verzlunartorgum sem þessu
lokað á ákveðnum tima og þá
’ tekur við vörzlu vaktmaður með
hund og byssu. Ekki væri gott,
ef endirinn yrði sá i henni
Reykjavik. Mjög vafasamt má
þvi telja, að þessi framkvæmd
sé til nokkurs góðs fyrir gamla
miðbæinn heldur öfugt”, segir
orðrétt i greinargerð Torfusam-
takanna.
Greinargerðinni lýkur siðan
með þessum orðum:
„Viðfangsefni það, sem hér er
verið að fást við er flóknara en
svo að til séu nokkrar „patent-
lausnir” á þvi, hvað gera skal,
ef ná á fram þvi markmiði að
heimta úr helju gamla miðbæ-
inn i Reykjavik.
Areiðanlega er þó eitt fyrsta
skrefið til björgunar það að
vinna að þvi að stöðva með öll-
um tiltækum ráðum, m.a. með
Frh. á 10. siðu
Útifundur á Hallærisplaninu
i dag kl. 2 veröur haldinn bar-
áttufundur á svonefndu Hallæris-
plani I miöborg Reykjavikur, en
þar veröur mótmælt áformum
borgaryfirvalda aö rifa niöur
gömul hús á svæöinu og leggja
svæöið undir steinsteypu- og gler-
höll. Aö fundinum standa fólk úr
framhaldsskólum borgarinnar
auk fulltrúa ibúasamtaka Vestur-
bæjar, Torfusamtakanna og ibúa-
samtaka Grjótaþorps. Gefiö hef-
ur veriö út dreifirit i 7000 eintök-
um og dreift um bæinn.
Gerið
Dagskrá fundarins er á þessa
leið:
1. Hornaflokkur leikur frá kl.
13.55.
2. Fundarstjórinn, Pétur
Gunnarsson rithöfundur, talar.
3. Avarp, Hjörleifur Stefánsson,
arkitekt.
4. Leikþáttur i flutningi leiklistar-
skólanema.
5". Avarp, Þorvaldur Friðriksson
háskólanemi.
6. Kór Menntaskólans við
Hamrahlið syngur.
7. Ávarp, Guðrún Helgadóttir
menntaskólanemi.
8. Hornablástur
9. Ávarp, ölafur Gislason, ibúi i
Vik.
10. Söngur, harmónikuleikur.
11. Ávarp, Þorgeir Þorgeirsson,
rithöfundur.
12. Spilverk þjóðanna syngur og
leikur.
13. Borin upp ályktun fundarins.
Ætlunin er aö samkoman standi
i rúman klukkutima og veröur
reynt að koma samkomunni inn i
hús ef veður leyfir ekki útifund.
Eru menn hvattir til að hlýða á
hádegisútvarpið i dag, ef tilkynn-
ing um breyttan fundarstað verö-
ur lesin.
Aðstandendur fundarins skors
siðan á borgarbúa að fjölmennf
og taka þátt i mótun eigin um
hverfis.
UTSOLU-
MARKAÐUR
Borgarspítalinn
Lausar stöður
Sumarafleysingar
Hjúkrunarfræðingar óskast til sumaraf-
leysinga.
Sjúkraliðar óskast til sumarafleysinga.
Vinsamlega hafið samband við skrif-
stofu forstöðukonu sem allra fyrst i sima
81200.
Geðdeild
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á
geðdeildir Borgarspitalans strax. Sjúkra-
liðar óskast i Arnarholt strax. Upplýsing-
ar veittar á skrifstofu forstöðukonu i sima
81200.
Reykjavik, 27. janúar 1978.
BORG ARSPí TALINN
ÚTBOÐ
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum
i að byggja þjónustuhús fyrir Varmaorku-
ver við Svartsengi. Húsið er 2 hæðir, 666
fermetrar að grunnfleti og að mestu leyti
reist úr forsteyptum einingum.
Verkinu skal lokið á þessu ári.
Útboðsgagna má vitja gegn 50 þús. króna
skilatryggingu. Frá og með miðvikudeg-
inum 1. febrúar á Skrifstofu Hitaveitu
Suðurnesja.
Utboð
Tilboð óskasT i smiði og einangrun lofts, i
húsi Listasafn íslands að Frikirkjuvegi 7.
Útboðsgögn verða afhent hjá Tækniþjón-
ustunni s.f. Ármúla 1.
Tilboð verða opnuð á sama stað mánudag-
inn 6. febrúar kl. 11.00.
VINNUFATABUÐIN
opnaði útsölumarkað í
Iðnoðarmannahúsinu
i morgun.
Mikið úrvol of:
Gallobuxum
Flauelsbuxum
Kuldaúlpum
Blússum
*
■
%
%
%
%
i í Iðnaðarmannahúsinu »
» »x ■■ • _ é i
við Hallveigarstíg
Vinnuskyrtum
Peysum
ósamt miklu úrvali af
ððrum fatnaði
Stórlœkkað verð — Aðeins í nokkra daga
VINNUFATABÚÐIN
í Iðnaðarmannahúsmu ........ á
*
*
*
*