Alþýðublaðið - 08.02.1978, Side 12

Alþýðublaðið - 08.02.1978, Side 12
alþýðu- i n FT.rr. (Jtgefandi Alþýðuflokkurinn Ritstjórn Alþýðublaðsnins er að Siöumúla IX, simi 81866. Augiýsingadeild blaðsins er að Hverfisgötu 1«, simi 14906 — Askriftarsimi 14900. MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1978 Norsku skipakaupin Islenzka matid hefur verið aðhald gegn óeðlilega háu kostnaðarverði — segir Jón Hafsteinsson, skipaverkfræðingur „Ég tet vafalaust aö mat það/ sem fram- kvæmt er á nýsmíðuðum skipum og matsnefnd Fiskveiðas jóðs fær í hendur, eigi að vera, og hafi verið, aðhald, sem veitt hafi verulega vörn gegn hugsanlegum bak- samningum milli skipa- smíðastöðva og skipa- kaupenda, líkt og rætt er um í sambandi við norsk- smíðuðu skipin," sagði Jón Hafsteinsson, skipa- verkfræðingur, en hann er sá maður, sem annast hefur hið sérfróða mat á nýsmiðuðum skipum, fyrir matsnefnd Fisk- veiðasjóðs. Jón benti á að hér með væri vitanlega ekki sagt að hann reiknaði verðmæti skips á sama hátt og skipasmlðastöðin geröi. Verð frá skipasmiöastöð væri að vonum breytilegt, eftir þvi i hvaða landi skipið væri smiðað, hver skipasmiðastöðin væri og fjölmargt fleira kæmi til Matið hér fer að sjálfsögðu fram óháð slikum atriðum, heldur er skipið metið, eins og þaö liggur fyrir. Þegar mat hefur farið fram, afhendir Jón það matsnefnd, sem trúnaðarmál, sem svo fær það Fiskveiðasjóöi til umfjöll- unar, en sem komiö hefur fram i fréttum hér i blaðinu, miðar Fiskveiðasjóður lán til skipa- kaupa ýmist við kostnaðarverð frá skipasmiðastöö eða mats- veröið og tekur þá mið af þeirri upphæðinni, sem lægri er. Sem nærri má geta er fram- kvæmd sliks mats mjög flókin og timafrek vinna. Sagði Jón að hver hlutur væri skrifaður upp, aflað upplýsinga um kostnað einstakra tækja og áætlaður kostnaður við niðursetningu þeirra. Fer matið fram i fjölda eininga og sagði Jón að það kynni að taka tvær vikur að meta eitt skip, ekki sizt ef gera þyrfti sér ferð út á land vegna matsins, sem oft væri. Mats- verðið i heild sagði Jón að væri ekki launungarmál, hvort sem það dæmdist lægra eða hærra en kostnaðarverðið, en sundurliðað væri það ekki. AM Heilbrigdisráðherra svarar fyrirspurn um hollustuhætti f síldar- og fiskimjölsverksmidjum: Hávaði, óþrif og óþefur í gær lagði heilbrigð- ismálaráðherra, Matthias Bjarnason fram greinargerð á Alþingi, vegna fyrir- spurnar frá Benedikt Gröndal úm hollustu- hætti i sildar- og fiski- mjölsverksmiðj um. Var fyrirspurn Benedikts i þrem liðum og voru þeir þessir: 1) Hafa verið gerðar fulinægj- andi rannsóknir á hoilustu- háttum i síldar- og fiski- mjölsverksmiöjum, svo sem hættum starfsliðs af hávaða, rykmyndun og varhugaverö- um efnasamböndum, almennum óþrifnaði og ólykt. 2. ) Hefur Heiibrigðisráðuneytið sett reglur um mengunar- mörk og önnur atriði sem þessar verksmiðjur verða að uppfylla til þess að fá starfs- leyfi? 3. ) Hafa allar þær verksmiöjur sem starfaö hafa siöustu ár og nú starfa m.a. að loðnu- bræðslu, uppfyllt þau skilyrði og fengið starfsleyfi með eðlilegum hætti? t svari ráðherra við fyrsta lið segir m.a.: Sveitarfélög annast heilbrigðiseftirlithvert fyrir sig og er framkvæmd eftirhtsins i höndum heilbrigðisnefndar við- komandi sveitarfélags. Yfirumsjón með starfi heilbrigöisnefnda er i höndum Heilbrigðiseftirlits rikisins. 1 tengslum við veitingu starfs- leyfa hafa starfsmenn Heilbrigðiseftirlits rikisins farið eftirlitsferðir i allar sildar- og fiskimjölsverksmiðjur landsins. Hefur viö mat á aðstæðum öll- um verið eftir þvi litið að að- stæöur og aðbúnaöur á vinnu- stað m.t.t. hollustuhátta upp- fyllti skilyrðilaga ogreglugerða um þessi efni. Þar sem mis- brestir hafa komið I ljós hafa kröfur um úrbætur verið settar fram og i einstaka tilfellum hafa skilyröi um bætta vinnuað- stöðu verið sett fyrir veitingu starfsleyfis. Fullt samráð hefur verið milli Heilbrigðiseftirlits rikisins og heilbrigðisnefnda um þessi atriði. Ennfremur hafa heiibrigðisnefndir sveitarféiaga fylgst með aöbúnaði og hollustuháttum í sildar- og fiskimjölsverksmiðjum lands- ins. Mengunarmörk í s vari ráöherra við öðrum lið fyrirspurnarinnar þar sem spurt er um mengunarmörk, segir svo: Samkvæmt ákvæðum reglu- geröar nr. 164/1972 eiga allar sildar- og fiskimjölsverksmiðj- ur að sækja um starfsleyfi til Heilbrigðiseftirlits rikisins. Sótti félag Fiskimjölsframleið- enda sameiginlega um leyfi fyr- ir allar verksmiðjur innan sinna vébanda, þegar i ágúst 1972. Viö afgreiöslu þeirra voru fyrst og fremst gerðar kröfur um varnir gegn reyk og ólykt einkum þar sem verksmiðjur voru staðsett- ar inni i byggð, en einnig um frágang frárennslis, aukið hreinlæti og bætta aðstöðu fyrir starfcfólk. Almennar reglur hafa ekki verið settar um mengunar- mörk, heldur hefur málefni hverrar verksmiðju verið metið sérstaklega m.t.t. aðstæðna. Mjög erfitt er ennfremur að setja menguriarmörk fyrir ólykt vegna skorts á nákvæmum og áreiöanlegum mæliaðferðum, og hafa yfirvöld á hinum Norð- urlöndunum ekki farið slíka leið, enn sem komið er að minnsta kosti. Við afgreiðslu fyrrnefndra umsókna á árunum 1972-74, var yfirleitt gerð krafa um að reistir yrðu reykháfar á þeim stöðum þar sem óþægindi vegna ólyktar þóttu mest og þar sem talið var að slik lausn mætti verða að gagni. Hvað frárennsli snerti var gerð krafa um að það væri leitt niður fyrir stórstraums- fjöruborð i samræmi viö 61. gr. Heilbrigðisreglugerðar fyrir ts- land nr. 45/1972. Akvæði starfsleyfa um háa reykháfa sættu verulegri gagn- rýni af hálfu ýmissa aðila, bæði vegna kostnaöar og eins vegna þess aö i ýmsum tilvikum var ekki víst að slik lausn kæmi að fullum notum. Ennfremur mátti benda á að slikar leiðir hefðu ekki verið valdar i nágranna- löndunum. Helstu mengunarvald- ar Við rotvörn loðnu eru notuð hættuleg efni (blanda af natriumnltrit og formalini), en framkvæmd rotvarnar er undir handleiðslu Rannsóknarstofn- unar fiskiðnaðarins. Svonefnd nitrosamin efnasambönd eru talin geta myndast i fiskimjöli við eldþurrkun á rotvörðu hráefni, en þessi efni eru talin geta valdið krabbameini. Að hve miklu leyti þessi efni koma fyrir í útblæstri frá verksmiðj- unum eða i andrúmslofti á vinnustöðum þeirra er ekki vit- að, enda hafa rannsóknir ekki verið gerðar á þessu sviði hér á landi eða i nágrannalöndunum svo kunnugt sé. Að ööru leyti er ekki kunnugt um að hættuleg efni eða eitur- efni séu fyrir hendi i umhverfi starfsmanna i þeim mæli að um heilsufarshættu geti verið að ræða. Þegar á heiidina er litið verð- ur að telja hávaða, óþrif og óþef vera meginvandamál vinnu- umhverfis fiskimjölsverksmiðj- anna. Verður að telja vinnu i ýmsum þeim fiskimjölsverk- smiðjum sem nú eru starfrækt- ar I landinu með óþrifalegri vinnu sem um getur. Verulegar endurbætur hafa þó orðið á þessu sviði I nokkrum verk- smiðjum á undanförnum árum, en óliklegt er að innan veggja þessara fyrirtækja skapist við- unandi vinnuumhverfi fyrr en gagnger endurnýjun hefur átt sér stað hjá megin þorra verksmiðjanna. Um skráningu og tilkynningu atvinnusjúkdóma fer eftir reglugerð nr. 24/1956, eneins og vitað er hefur tilkynningar- og skráningarskyldu samkvæmt henni verið slælega framfylgt og liggja ekki fyrir neinar skýrslur um tiðni atvinnusjúk- dóma i sildar- og fiskimjöls- verksmiðjum. Á grundvelli þessa sendi Heilbrigðiseftirlit rikisins frá sér I mai 1976 ýtarlega skýrslu um mengunarmál fiskimjöls- verksmiðja. Greinargerö þessi var unnin á grundvelli ýtarlegr- ar upplýsingaöflunar um þróun þessarra mála i nágrannalönd- unum þar sem aðstæður eru sa m bæ ri le ga r , einkum Darimörku og Noregi. Er i skýrslu þessarri bent á þær tæknilegu leiðir til eyðingar á lykt sem helst eru taldar koma til greina og reynsla hefur f eng- ist fyrir, ásamt öörum ráðstöf- unum til mengunarvarna, innan dyra verksmiðjanna og utan. Eru niðurstöður stofnunarinnar þær aðtil eyðingar ólyktar komi eftirtaldar leiðir helst til álita. 1. Tekin verði upp þvottur út- blásturslofts i svonefndum efnahreinsiturnum af viður- kenndri gerð. 2. Tekin verði upp brennsla út- blásturlofts með svonefndri Hetland aöferð. 3. Breytt verði um framleiðslu- hætti og tekin upp gufuþurrk- un samfara brennslu lyktar- efna undir gufukötlum eða eyðingu þeirra i efnahreinsi- turnum. Tveim fyrstnefndu aðgerðun- um mætti koma við i verksmiðj- unum eins og þær eru i dag, samfara nauðsynlegum lagfær- ingum á loftræstikerfi o.s.frv. Siðastnefnda aðferðin felur i sér gagngera endurnýjun verk- smiðjanna og krefst þvi mikils fjármagns. Hún gefur hins veg- ar möguleika á aukinni Frh. á 10. síðu

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.