Alþýðublaðið - 10.02.1978, Blaðsíða 2
Föstudagur 10. febrúar 1978 sssr
2________________________
Alþýduflokkurinn á Akureyri:
Frambjódendur í próf
kjör vegna bæjar-
stjórnarkosninga
Prófkjör Alþýðu-
flokksins, vegna bæjar-
stjórna rkosninga á
Akureyri fer fram laug-
ardaginn 11. og sunnu-
daginn 12. febrúar.
Kjörstaður verður að
Gránufélagsgötu 4
(JMJ-húsið) og kjör-
fundur verður frá klukk-
an 14-19 báða dagana.
Hér á eftir fer stutt
kynning á frambjóðend-
um til prófkjörsins, en
þeir eru 7 talsins og
keppa um 4 efstu sætin á
lista flokksins til bæjar-
stjórnarkosninganna.
Bárður Halldórssoner fæddur á
tsafirði 17. ágúst 1946. Hann er
stúdent frá M.A., hefur lokið prófi
í latinu og almennum málvisind-
um frá University of Minnesota.
Liárður hefur kennt latinu, is-
lenzku og sögu. Bárður hefur lagt
stund á kennslu við M.A. og auk
þess veitt forstöðu namsflokkum
Akureyrar. Hann var ritstjóri Al-
þýðumannsins á Akureyri 1972-
1974 og siðan aftur 1976.
Bárður er kvæntur Álfhildi
Pálsdóttur og eiga þau tvö börn.
Freyr ófeigsson, er fæddur á
Norðfirði i Arneshreppi, Stranda-
sýslu, 6. júli 1937. Hann er stúdent
frá M.A. og lauk siðan embættis-
prófi i lögfræði frá Háskóla Is-
lands árið 1965. Strax að prófi
loknu réðist hann sem dómara-
fulltrúi við bæjarfógetaembættið
Freyr ófeigsson, héraðsdómari
Pétur Torfason. verkfræðingur
á Akureyri og var skipaður hér-
aðsdómari á Akureyri og Eyja-
fjarðarsýslu árið 1972.
Freyr hefur verið fulltrúi Al-
þýðuflokksins i bæjarstjórn á
Akureyri frá árinu 1974.
Hann er kvæntur Arnheiði
Jónsdóttur og eiga þau 8 börn.
Ingvar G. Ingvarsson er fæddur
á Isafirði 15. október 1948. Hann
stundaði sjómennsku framan af
en hóf siðan búskap. Hann fluttist
til Akureyrar árið 1970 og hóf nám
i rafsuðu og lauk sveinsprófi i
þeirri grein. Eftir að námi lauk
hefur hann lagt stund á verzlun-
arstörf og er einn eigandi Ibúðar-
innar hf.
Ingvar er kvæntur Valdisi
Gestsdóttur og eiga þau einn son.
Magnús Aðalbjörnsson er fædd-
ur á Akureyri 15. mai 1941.
Magnús gerðist kennari við G.A.
árið 1963. Hann hefur starfað
mikið að æskulýðsmálum, bæði
innan Gagnfræðaskólans og Þjóð-
kirkjunnar, en hann var sumar-
búðastjóri við Vestmannsvatn i
þrjú sumur.
Magnús er kvæntur Rögnu
Magnúsdóttur og eiga þau þrjú
börn.
Pétur Torfason er fæddur á
Akureyri 28. april 1946. Hann er
stúdent frá M.A. árið 1966 og út-
skrifaöist sem byggingaverk-
fræðingur frá háskóianum i Lundi
i Sviþjóð árið 1972.
Pétur hefur siHan i nóvember
1972 starfað hjá Verkfræðiskrif-
stofu Sigurðar Thoroddsen á
Akureyri og hefur m .a. unnið við
eftirlitsstörf með byggingafram-
kvæmdunum við Kröflu.
Pétur er kvæntur Fjólu Her-
mannsdóttur og eiga þau þrjú
börn.
Ingvar G. Ingvarsson, verzlunar-
maður
Sævar Frimannsson, starfsmað-
ur verkalýðsfélaganna
Sævar Frimannsson er fæddur
á Akureyri 2. febrúar 1942. Hann
lauk námi frá G.A. árið 1958 og
starfaði siðan sem sjómaður til
ársins 1966.
Hann lauk sföan námi i ketil- og
plötusmiði árið 1969 og siðan
námi i húsasmiði árið 1976. Hann
hefur siTian árið 1977 starfað hjá
Verkalýðsfélaginu Einingu.
Sævar er kvæntur Helgu Arna-
dóttur og eiga þau þrjú börn.
Þorvaldur Jónsson er fæddur
að Tjörnum i Saurbæjarhreppi i
Eyjafirði 3. ágúst 1926.
Hann lauk námi i bókbandi árið
1949. Siðan starfaði hann sem
skrifstofumaður hjá bæjarfógeta-
embættinu á Akureyri, en hefur
verið fulltrúi umdæmisstjóra
Pósts og sima á Akureyri frá ár-
inu 1955.
Þorvaldur var bæjarfulltrúi
fyrir Alþýðuflokkinn á Akureyri á
árunum 1966-1974.
Hann erkvæntur Rósu M. Sig-
urðardóttur.
Bárður Halldórsson, mennta-
skólakennari
Magnús Aðalbjörnsson, kennari
Þorvaldur Jónsson, fulltrúi.
AUGLÝSIÐ í ALÞÝÐUBLAÐINU
AUGLÝSINGASÍMINN ER 14906
—
Ályktanir
Framkvæmdastjórn
Verkamannasambands íslands:
Varar ríkisstjórn og
Alþingi vid ad rifta
kjarasamningunum
Framkvæmdastjórn
Verkamannasambands
islands varar ríkisstjórn
og Alþingi mjög alvar-
lega viö að rifta samn-
ingnum frá 22. júní.
Væri hins vegar kjaraatriðum
samninganna rift, áskilur
Verkamannasamband Islands
sér rétt til allra þeirra gagnað-
gerða sem þurfa þykir. Jafn-
framt heitir framkvæmda-
stjórnin á öll samtök launafólks
að standa vörð um kjaraatriði
samningsins.
Trúnaöarrád SFR:
Efnahagsaðgerðir
miðast við að kaup*
máttur haldist
Trúnaöarráðsfundur
SFR haldinn 7. febrúar
1978 mótmælir harðlega
þeim hugmyndum um
efnahagsráðstafanir/
sem kynntar hafa verið
og fela í sér riftun nýlega
gerðra kjarasamninga
opinberra starfsmanna
og annars launafólks.
stjórn og Alþingi að miöa að-
gerðir sinar við það aö kaup-
máttur launa skerðist ekki og að
samningar haldi fullu gildi.
A undanförnum árum og ára-
tugum hafa bráðabirgðaúrræði i
sifellu byggst á kjaraskeröing-
um, enda alltaf runnið út I sand-
inn. Þvi er timi til að horfast nú
loks i augu við höfuðorsök vand-
ans og leggja til atlögu við þaö
bruðl og skipulagsleysi i fjár-
festingarmálum sem viðgengist
hefur.
Trúnaðarráðið skorar á rikis-
Miðstjórn Málm- og
skipasmiðasambandsins:
Varar við ógildingu
kjarasamninga
Fundur miðstjórnar
Málm- og skipasmiða-
sambands Islands hald-
inn 6. febrúar 1978 álykt-
ar eftirfarandi vegna
umræðna um yfirvofandi
efnahagsaðgerðir:
Kjarasamningar verkalýðsfé-
laganna i júni voru gerðir til að
endurheimta kaupmátt vinnu-
launa, sem skertur hafði verið
stórlega á árunum 1974-1977.
Endurheimt kaupmáttar
launa vegna kjaraskerðinganna
1974-1977 er, samkvæmt kjara-
samningunum, dreift yfir
sextán mánaöa timabil og eru
tvær slðustu áfangahækkanir
launa ekki enn komnar til fram-
kvæmda.
Kaupmáttaraukning vinnu-
launa samkvæmt kjarasamn-
ingunum 1977 er sist meiri en
verðmæta aukning þjóðarfram-
leiðslu siöustu ára.
Núgildandi kjarasamningar
verkalýðsfélaganna eru þvi alls
ekki orsök efnahagsvandamála
atvinnuveganna.
Vegna stjórnlausrar verö-
bólgu siðustu árin eru ákvæði
kjarasamninganna um verð-
bætur launa grundvallaratriði
þeirra. Verðbótaákvæöið hefur
verndað kaupmátt launanna
eftir siðustu kjarasamninga
fyrir hömlulausum verðhækk-
unum almennra neysluvara og
stöðugs gengissigs siöustu mán-
uði. An verðbótaákvæðis kjara-
samninganna myndi kaupmátt-
argildi vinnulauna minnka stöð-
ugt af völdum verðhækkana.
Verðlækkanir lifsnauðsynja
almennings þurfa þvi að vera
fyrsta ráðstöfunin til að stöðva
og draga úr verðbólgu, eins og
verkalýðshreyfingin hefur gert
tillögur um i upphafi siöustu
samningagerða, þ.á.m. sölu-
skattslækkun.
Miðstjórn Málm- og
skipasmiðasambands Islands
varar stjórnvöld við að gera
ráðstafanir sem skerða kaup-
mátt launa eða verðbótaákvæöi
kjarasamninga verkalýðsfélag-
anna frá júni 1977. Verði slikar
ráðstafanir geröar jafngilda
þær riftun kjarasamninganna
og myndu óhjákvæmilega leiða
til alvarlegra kjaradeilna á
vinnumarkaðnum.
Stjórn
Félags járniðnaóarmanna:
Ógilding kjarasamn-
inga ieiðir til átaka á
vinnumarkadinum
Á fundi stjórnar Félags
járniðnaðarmanna 6.
febrúar 1978 var sam-
þykkt eftirfarandi álykt-
un i tilefni umræðna um
fyrirhugaðar efnahags-
aðgerðir:
Stjórn Félags járniönaðar-
manna varar rikisstjórn og
Alþingi við að gera ráðstafanir
sem skerða kaupmátt eða verö-
lagsbótaákvæði núgildandi
kjarasamninga. Verði slikar
ráðstafanir gerðar telur stjórn
Félags járniðnaðarmanna þær
jafngilda ógildingu siðustu
kjarasamninga, sem óhjá-
kvæmilega myndi leiöa til al-
varlegra kjaradeilna og átaka á
■ vinnumarkaðnum.