Alþýðublaðið - 10.02.1978, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 10.02.1978, Qupperneq 12
 aflþýói blaðið i- Útgefandi Alþýðuflokkurinn FOST U DAG U R Ritstjórn Alþýðublaösnins er að Siðumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er að Hverfisgötu 10, simi 14906 — Áskriftarsími 14900. J 0. FEBRUAR 1978 Haffrannsóknarstofnun leggur til m m Þorskafli íslendinga minnki um 55 þús. tonn frá síðasta ári — stofnar annarra nytjafiska vannýttir segir forstjóri Hafrannsóknarstofnunar í skýrslunni Blaðinu hefur borizt skýrsla Hafrannsóknastofnunar um ástand helztu nytjastofna á fs- landsmiðum og aflahorfur 1979. Fyrir þessari skýrslu, sem sjá- varútvegsráðherra hefur kallað „gráa”, sem andstæðu hinnar frægu „svörtu” skýrslu, ritar forstjóri Hafrannsóknastofnun- ar, Jón Jónsson, formála, sem birtur er hér á eftir, en þar kem- ur fram það aflamagn, sem stofnunin telur ráðiegt að veitt verði á þessu ári, án hættu á of- veiði. 1 skýrsiunni er að finna greinargerð um ástand hinna ýmsu fiskstofna, árgangaskip- an, sókn og horfur. Stofnunin gerir nú að tillögu sinni, að há- marksafli á þorski 1978 verði 270 þús. tonn, sem er 20 þús. tonnum meira, en meðalþorskveiði fs- lendinga a árunum 1967-76. Þorskaflinn á sl. ári fór hins vegar langt fram úr tillögum stofnunarinnar og var um 325 þús. tonn. Hins vegar leggur stofnunin til aukna veiði á fiest- um helztu nytjafiskum öðrum, ýsu, ufsa, karfa, skarkola, grá- lúöu, steinbit, sild og loðnu. Formáli Jóns Jónssonar, forstjóra Hafrannsóka- stofnunar: 1 tillögum um hinn nýja haf- réttarsáttmála, sem unnið hefur verið að á undanförnum árum, eru skýr ákvæði þess efnis, aö strandrlkið ákveði sjálft þann hámarksafla, sem leyfilegt sé að taka af hinum einstöku dýra- stofnum innan efnahagslögsögu þess. Strandrikinu er þar beinlinis lögð sú skylda á herðar, að tryggja á sem bestan hátt við- komu og hámarksnýtingu þess- ara stofna með viðeigandi frið- unaraögerðum, sem byggðar skuli á hinni bestu visindalegu þekkingu er þaö hefur yfir að ráða hverju sinni. Strandrikið skal einnig sjálft ákvarða hve mikinn hluta af heildarafla hinna einstöku teg- unda það telur sér fært að nýta. Þessi ákvæði, sem gengið hafa óbreytt i gegnum margar endurskoðanir á tillögunum, hafa grundvallarþýðingu fyrir stjórnun fiskveiða á tslands- miðum. Ein megin röksemd okkar á undanförnum áratugum fyrir stækkun fiskveiðilögsögunnar við Island var sú, að vegna þess hve algerlega viö erum háðir fiskveiðum, værum við færari um að stjórna þessum veiðum en útlendingar eða alþjóða- stofnanir. Reynslan á eftir að sýna hvernig okkur fer þetta úr hendi. Astand ýmissa nytjastofna á Islandsmiðum er nú með þeim hætti, að strangt aðhald er nauösynlegt með veiðunum. Við veröum þess vegna að gera okk- ur grein fyrir þvi, hve mikla veiði hinir ýmsu stofnar þola og haga sókn i samræmi við það. Skýrsla þessi um ástand nytjastofna á íslandsmiðum og veiðihorfur, er ekki sú fyrsta, sem stofnunin sendir frá sér um þessi mál, en það er ætlunin að úttekt sem þessi verði gerð reglulega um hver áramót og geti orðiö grundvöllur að nauð, synlegri stjórnun veiðanna á komandi ári. Það er þó ýmsum vandkvæðum bundið að gera slika úttekt á þessum tima árs, m.a. vegna þess að endanlegar aflaskýrslur vantar fyrir ýmsar tegundir siðustu mánuði ársins og verður þvi að áætla það sem á vantar. Skýrsla þessi er undirbúin af hinum einstöku sérfræðingum, Framhaid á bls. 10 Belgískur togari tekinn Vita- og varðskipið Ar- vakurtóká miðvikudaginn belgiskan togara Henriette 0 236 og flutti til hafnar sakir ólöglegra veiðarfæra togarans. Þá er verðskips- menn fóru um borð í togar- ann i því skini að kanna hvort veiðarfæri skipsins væru í samræmi við reglur, gengu þeir úr skugga um að möskvastærð neta tog- arans var ólögleg Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæzlunnar mun vera æði langt siðan erlendir togarar hafa verið teknir hér við land sakir ólöglegra veiða eða yeiöarfæra, siðast var um að ræöa Vestur- þýzkan togara er notaö hafði þétt- riöinn poka við veiðarnar. Þýzki togarinn var þá sviptur veiðileyfi, likur eru á að sá belgiski veröi eingöngu dæmdur i sektir fyrir ólögleg veiðarfæri. Landhelgisgæzlan kannar af og til veiöarfæri erlendra togara hér við land, siðast var farið um borð i belgiskan togara 3. janúar sl. Nú munu vera viö veiöar hér viö land þrir erlendir togarar, all- ir belgiskir, liggja tveir þeirra i höfn, annar sakir reglubrots sem fyrr segir, hinn vegna vélarbilun- ar. Færeyingar hættu veiöum hér við land i desember sl., höfðu þeir þá fyllt kvóta sinn. Samnings- timabili Vestur-Þjóðverja lauk 28. nóvember I haust. Beigiski togarinn Henriette 0 236 I höfn i Reykjavik, fyrsti erlendi tog- arinn sem gerist brotlegur við Islenzka fiskveiöilöggjöf um skeiö. Danski gjaldeyririnn Engra nafna ad vænta ad sinni Fyrir nokkrum dögum birti Alþýðublaðið frétt þess efnis, að von væri á f réttatilky nningu frá Seðlabankanum, vegna danska gjaldeyrisins, en Björn Tryggvason, að- stoðarbankastjóri, upplýsti að drög að slíkri tilkynn- ingu lægju fyrir og væri hennar að vænta bráðlega. Undirbúningur þessarar fréttatilkynningar átti rót að rekja til ádráttar sem dómsmála- ráöherra gaf á Alþingi, um að nauðsyn kynni að bera til að upp- lýsa helztu þætti þessa máls og ef til vill birta nöfn einhverra manna, þar sem kviksögur heföu myndast, þar sem vegið væri að ósekju að ýmsum mönnum. Biaöið hafði i gær samband við Svein Sveinsson hjá gjaldeyriseftirliti Seðla- bankans, þar sem ekki hefur enn bólað á þessari fréttatilkynn- ingu, en Sveinn hefur unnið að rannsókn þessa máls, ásamt Sig- uröi Jóhannessyni. Sveinn sagöi aö vegna anna i tilefni ráðstafana i efnahagsmálum, hefði dregizt að fréttatilkynning yrði lögð fram, en þeir punktar sem saman hefðu verið teknir, áttu að fara fyrir bankaráðið til umsagnar. Sveinn upplýsti þó að ekki væri von á birtingu neinna nafna að sinni, en kvaðst eiga von á að ein- hverjar upplýsingar um máliö yrðu sendar út, þegar um hægðist að nýju. aM Stjórn SFR: skerdingar- áformum A fundi i stjórn Starfsmanna- félags Reykjavikurborgar, sem haldinn var fimmtudaginn 9. febr. 1978., var gerð eftirfarandi ályktun: Fundur i stjórn Starfsmanna- félags Reykjavikurborgar varar stjórnvöld mjög alvarlega við þvi að rjúfa eða skerða gildandi kjarasamninga. Ráðstafanir i efnahagsmálum, sem fela i sér slika skerðingu, munu fyrst og fremst bitna á launafólki. Með hvers konar ógildingu á samning- um þeim, er gerðir voru árið 1977 við launastéttir af samtökum at- vinnurekenda, riki og sveitar- félögðum, er einnig grafiö undan trú launþega á þvi, að hægt sé að vinna að slikum samningum af fullum heilindum og i trausti þess Frh. á 10. siöu Fyrirsjáanleg lokun hjá Kirkjusandi 120-130 manns missa þá atvinnuna Allar likur benda til að á næstu dögum missi á milli 120 og 130 starfsmenn fiskverkun- arstöðvarinnar á Kirkjusandi atvinnu sina um lengri eða skemmri tlma. 1 samtali við blaöamann Alþýöublaðsins staðfestí framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Rikharð Jónsson, aö allt benti nú til að loka yröi fyrirtækinu vegna bágborinnar fjárhagsstöðu þess. Sagði Rik- harð að þeir hefðu ekki lengur bolmagn til að kaupa hráefni tii vinnslunnar og þvi hefðu togar- arnir þrir, sem að öllu jöfnu hafa lagt upp hjá húsinu, siglt með aflann til útlanda. Meðal þess fólks sem vinnur hjá Kirkjusandi eru 15 — 17 fast- ráðnar konur I fiskverkun. Kauptryggingarsamningi þess- ara kvenna hefur verið sagt lausum með venjulegúm _ viku fyrirvara. Eftir sem áður er ráðningarsamningur þeirra i fullu gildi, en uppsagnarfrestur á honum mun vera einn mánuð- ur á báða bóga. Engin trúnaðarkona Biaðamenn lögöu leið sina niöur á Kirkjusand i gær þeirra erinda aö hitta að máli trúnað- arkonu þeirra fiskverkunar- kvenna sem nú hafa misst kaup- tryggingarsamning sinn. Þegar á staðinn var komiö, kom hins vegar i ljós, aö þessar konur hafa enga trúnaðarkonu. Var blm. tjáö aö svo heföi verið frá þvi um siðustu jól, er þær sem þá gegndu þessum starfa sögðu honum iausum. Fljótlega eftir að þannig skipaðist komu verkakonurnar sér saman um að útnefna Brynju Öskarsdóttur trúnaöarkonu og var þessi út- nefning tilkynnt til Verka- kvennafélagsins Framsóknar, en félagið þarf að staðfesta út- nefninguna. Einhverra hluta vegna hefur þó veriö fátt um svör frá félaginu til þessa, þrátt fyrir að itrekað hafi veriö leitað eftir afgreiðslu á þessu máli. Það er vitanlega með öllu óþolandi fyrir þær konur sem þarna vinna að hafa engan trún- aðarmann og ekki sizt þegar atvinnuástandið er ekki trygg- ara en raun ber vitni. ,/Ekki af illum hvötum" Alþýöublaðiö leitaði til Þór- unnar Valdimarsdóttúr, formanns Verkakvennafélags- ins Framsóknar og spurði hana hverju þetta sætti. Sagöi Þórunn aö trúnaðarmenn á vinnustöð- um þyrfti að kjósa sérstakri kosningu og þvl miöur hefði ekki komist I verk að láta þá kosn- ingu fara fram ennþá. — Ég tek þaö fram að þessi dráttur er ekki sprottinn af illum hvötum, sagði Þórunn Valdimarsdóttir, formaöur Verkakvennafélags- ins Framsóknar, að lokum. —GEK

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.