Alþýðublaðið - 14.02.1978, Side 11

Alþýðublaðið - 14.02.1978, Side 11
Þriðjudag ur 14. febrúar 1978 11 JT1-89-36 Fyrsta ástarævintýrið Nea Vel leikin ný frönsk litkvikmynd. Leikstjóri: Nelly Kaplan. Aðalhlutverk: Samy Frey, Ann Zacharias, Heimz Bennent. ISLENZKUH TEXTI. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B I O Sími 32075 Jói og baunagrasið JtekandtheBW' Ný japönsk teiknimynd um sam- nefnt ævintýri, mjög góð og skemmtileg mynd fyrir alla fjöl- skylduna. Synd kl. 5 SEX express Mjög djörf bresk kvikmynd. Aðalhlutverk Heather Deeley og Derek Martin Sýnd kl. 7, 9 og 11. Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára. .EIKFf-IAC; 2(2 22 REYKIAVIKIJH 4*4* SKJALDHAMHAR 1 kvöld kl. 20,30. Laugardag kl. 20,30. Fáar sýningar eftir. SKALD-RÓSA Miðvikudag kl. 20,30. Föstudag. Uppselt. Sunnudag kl. 20,30. SAUMASTOFAN Fimmtudag kl. 20,30. Fáar sýningar eftir. Miðasala i Iðnó kl. 14-20,30. Sími 16620 Sími 50249, Karate meistarinn (The big boss) Með Bruce Lee Sýnd kl. 7 og 9 Síðasta sinn. ^1.1541 Siifurþotan. GENE WILDER JILL CLAYBURGH RICHARD PRYOR "SILVER STREAK »M».utw»>us-coi>!HOaw«ciu« mÉokattv - cufton jaucs m PATRICK McGOOHANm^o_ t«CVMlM»nlWITH>WI9CK»ninUH< V»8t>MS ISLÉNSKlfR”TEXTÍ’" ........................... Bráðskemmtileg og mjög spennandi ný bandarlsk kvikmynd um all sögulega járnbrautalestaferð. Bönnuð innan 14 ára Sýnd kl. 5, 7,10 og 9,15. TONABÍÓ ,55*3-11-82 Gaukshreiðrið (One flew over the Cuckoo's nest.) Gaukshreiðrið hlaut eftirfarandi Óskarsverðlaun: Besta mynd ársins 1976 Besti leikari: Jack Nicholson Besta leikkona: Louise Fletcher Besti leikstjóri: Milos Forman Besta kvikmyndahandrit: Lawrence Hauben og Bo Goldman Hækkað verð. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7,30 og 10. Q 19 OOO — salur^^— STRAKARNIR I KLIKUNNI (The Boys in the band) Afar sérstæð litmynd. Leikstjóri: William Friedkin Bönnuð innan 16 ára. Is 1 enskur texti. Sýnd kl. 3.20-5,45-8.30- og 10.55 salur SJÖ NÆTUR I JAPAN Sýnd kl. 3.05-5.05-7.05-9 salur JÁRNKROSSINN Bönnuð innan 16 ára Sýnd kl. 3-5.20-8 og 10.40 Siöustu sýningar. sölur BRÚÐUHEIMILIÐ Afbragðsvel gerð litmynd eftir leikriti Henrik Ibsens.. - Jane Fonda — Edward Fox Leikstjóri: Joseph Losey Sýnd kl. 3.10-5-7.10-9.05 Og 11.15 Ert þú félagi i Rauóa krossinum? j Dejldir félagsins ,M. . " eru um land allt. RAUÐI KRÖSS tSLANDS 3*2-21-40 Kjarnorkubíllinn The big bus Bandarisk litmynd tekin i Pana- vision, um fyrsta kjarnorkuknúna langferðabilinn. Mjög skemmti- leg mynd. Leikstjóri: JAMES FRAWLEY. ISLENZKUR TEXTI Sýnd kl. 5, 7 og 9. DL0R BY MOVIELAB An AMERICAN INTERNATIONAl Release Ormaflóðið Afar spennandi og hrollvékjandi ný bandarlsk litmynd, um heldur óhugnanlega nótt. Don Scardino Patricia Pearcy ISLENSKUR TEXTI Bönnuð innan 16 ára Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. GAMLA BIO Simi 11475 Lúðvik geggjaði konungur Bæjaralands MGM presents Visconti’s Viðfræg úrvalskvikmynd með llclmut Berger og Romy Schneider. ISLANZKUR TEXTI Sýnd kl. 5 og 9. Vinir minir birnirnir Sýnd kl. 7.15. “LWÓflLEIKHÚSIfl IV TÝNDA TESKEIÐIN fimmtudag kl. 20 Fáar sýningar eftir. ÖDIPÓS KONUNGUR Frumsýning föstudag kl. 20 2. sýning sunnudag kl. 20.30 Öskubuska laugardag kl. 15 STALIN ER EKKI HER Laugardag kl. 20 Litla sviðið: FRöKEN MARGRÉT fimmtudag kl. 20,30 Miðasala 13,15-20. Simi 1-1200 MStolið frá þeim, sem ekkert eiga”! Klækihögg! „Bjargráð” rikisstjórnar- innar i baráttunni gegn verð- bólgu og öðrum ófarnaði, sem hrjáð hefur landsins börn undanfarið, hefur nú séð dags- ins ljós! Þess var getið hér til, að litils yrðu virt þegar allt kæmi til alls — úrræði, sem verðbólgu- nefndin fræga hafði verið að bisa við i rúmlega eitt ár. Þetta hefur nú á sannast. Orræði rikisstjórnarinnar urðu sem sé ekki samstiga neinu af þvi, sem nefndin lagði til undir orðskrip- inu „valkostir”. (Það er annars undarlegt hvað þessi eymdar- lega rassbaga er orðin munn- töm i „hátfðlegu máli” (!) svo liklega megum við bráðlega eiga von á skrafi um hnöttótta kúlu eða ritskrifvél!). Það hefur um sinn verið ár- viss atburður, að gera þyrfti neyðarráðstafanir á þessu landi. Auðvitað eru slikar ráð- stafanir ekki óþekkt fyrirbæri víðar. En jafnaðarlega eru þær þó tengdar alvarlegum áföllum i efnahagslifinu. Hér horfir öðruvisi við, hvað hin ytri atvik varðar. Verðlag á útflutningsvörum okkar hefur ekki verið hagstæðara i annan tima, aflabrögð góð og önnur framleiðsla i hámarki. Hvers- vegna þarf að gera neyðarráð- stafanir við slikar aðstæður? Nú er það öllum vitanlegt, að til þess að búa sæmilega, að ekki sé nú talað urú vel, þarf tvennt. Annað, að búið gefi góðan arð, og hitt, að á honum sé haldið af manndómi og fyrir- hyggju. Hið fyrra er fyrir hendi. Það viðurkenna allir. Af þvi leiðir, að hið siðara hlýtur að vera i ólestri. Þar getur ekkert annað komist að. Þetta er beizkur kaleikur af að drekka og getur varla til annars leitt en að fólk, sem áður hefur stutt við bakið á núver- andi stjórnarflokkum, taki að draga réttar ályktanir af for- sendum, sem það hefur átt sinn þátt i að skapa. Gæti það orðið lexia, sem staðfestir hið forn- kveðna að svo skal ekki böl bæta, að biða annað meira? En svo snúist sé að úr- ræðunum, sem nú á að trompa fram með þingvaldi, verður þetta fyrir: Nú á að rifta nýgerðum kjara- samningum bæði við BSRB og ASl. Þar með er vinnufriði stefnt i fullkomna tvisýnu og reyndar ótrúlegt, að hann sé ekki að fullu rofinn. Kaupmáttur er stórskertur og þannig gengið á hlut fólks sem vissulega var ekki ofhaldið fyrir. Orðræður forsætisráðherra i framsögunni fyrir ákvörðunum rikisstjórnarinnar birtu vissu- lega nýja mynd af honum. Fram að þessu mun hann ekki hafa verið talinn um skör fram lúmskur. En framslátturinn um að hér væri verið að vernda kaupmáttinn með þvi að skerða vlsitölubæturnar um allt að helmingi til loka ársins, má kallast að bitið sé höfuðið af allri skömm. Það er vitanlega rétt, að hér ræddi ráðherrann um meðal- talskaupmátt fyrra árs! Þegar þess er gætt, að allan fyrri hluta ársins stóð kaupmáttur launa- tekna langt fyrir neðan lág- mark, mega allir sjá, að launa- bótin, sem fékkst i sólstöðu- samningunum og fólk býr nú við, skerðist ekki svo litið við að deilast með tveimur. Menn hljóta að spyrja: Við hverskonar fólk hélt ráðherr- ann, að hann væri að tala? En jafnvel þessi framsláttur verður enn aumkvunarverðari þó sannur kunni að vera i bili, þegar þess er gætt, að með gengislækkuninni hlýtur verð innfluttra vara að hækka gifur- lega. ;I fyrsta lagi vegna inn- kaupa. I öðru lagi vegna alls þess, sem hærra innkaupsverð hnoðar utan á sig i tollum,vöru- gjöldum og verzlunarálagningu. Það dæmi liggur auðvitað ekki fyrir enn, en þess mun þó skammt að biða. Hrottalegasta fyrirætlunin er auðvitað, að kippa óbeinum sköttum út úr visitölugrundvellinum, þó það sé ekki fyrirhugað fyrr en um næstu áramót. Þar með er lagður grunnur að stórkostlegustu fölsun á kaup- mætti launatekna, sem enn hefur um heyrst. Óg ekki nóg með það. Yrði þetta að lögum þýddi það, að launafólk væri þar með ofurselt geðþótta rikis- valdsins um kaup sitt og kjör. Hvað skyldi rikisstjórn af sama toga spunnin og nú er raun á, muna um, að nota óbeinu skatt- ana til að herða að þrælatökum á fólkinu. Við skulum fúslega játa, að núverandi vísitölugrundvöllur er alls ekki heilög kýr. Margt mætti þar eflaust laga og færa til betri vegar. En meðan við lifum i lýðfrjálsu landi er óhugs- andi, að slikt verði gert án fulls samráðs við launastéttirnar. Það er grundvöllur, sem ekki verður framhjá gengið. Vert er auðvitað að minna á, að enn hefur ekki reynt á hversu fylgispakir stjórnarliðar á þingi kunna að verða við frumhlaup rikisstjórnarinnar i þessu máli. Enda þótt allir sjái, að stjórnar- skútan sé ótrúlega „illa mennt”, sem niðurstöðurnar eru óljúgfróðast vitni um, mætti þess vænta, að þeir, sem telja sig að einhverju leyti — með réttu eða röngu — fulltrúa laun- þega, fái i sig nokkurn hroll við að þurfa að rétta upp hendur með slikum aðgerðum. Vissulega hefur sá leikur áður verið leikinn, að gera sýndar- ágreining og koma svo fram fyrir kjósendur með nýþvegnar hendur — einhverjum Pila- tusarþvotti — og sumum hefur dugað það, án þess að glata trausti. En komi til þessa, skyldi fólk þá athuga grand- gæfilega, hvort hugsanlegir „uppreisnarmenn” halda samt ekki áfram að hnýta sig i taglið á hinni ógæfulegu forystu! A sinum tima þótti það bros- leg þverstæða, þegar gamli Gröndal lét þessi orð falla: „Þá varð þjófnaður meður undar- legu móti, þvi stolið var frá þeim, sem ekkert áttu”! Núver- andi ríkisstjórn virðist hafa að marki og miði, að gera þessa þverstæðu að einkunnarorðum sinum. I „bjargráðum” hennar er fyrst og fremst niözt á þeim, sem minnst mega sin. Oddur A. Sigurjonssoi HREINSKILNI SAGT HilSlJB IbF Grensásvegi 7 Slmi 82655. Ri RUNTAL-OFNAR Birgir Þorvaldsson Sími 8-42-44 Au^cjSeruiar! AUGLYSiNGASlMI BLADSINS 14906 Svefnbekkir ó verksmiðjuverði SVEFNBEKKJA Höfðatúni 2 — Simi 15581 Reykjavik. 2- 50-50 Sendi- bíla- stödin h.f.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.