Alþýðublaðið - 07.03.1978, Page 4
Þriðjudagur 7. marz 1978.
ssar
alþýðu-
Otgefandi: Alþyðuflokkurinn.
Rekstur: Reykjaprent h.f. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Einar Sigurðs-
son. Aðsetur ritstjórnar er i Siðumúia 11, slmi 81866. Kvöldsími fréttavaktar: 81976. Auglýsingadeild,
Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 —simi 14906. Askriftar- og kvartanasimi: 14900. Prentun: Blaðaprent h.f.
Áskriftaverð 1500krónur á mánuði og 80krónur Ilausasölu.
Óþurftarskrif
ÞJódviljans
í baráttu launþega-
hreyfinganna gegn
kjaraskerðingarlögum
ríkisstjórnarinnar, hefur
tekist mjög merkileg og
ánægjuleg samvinna á
faglega og pólitíska svið-
inu. Samstaða hefur tek-
ist um að berjast gegn
kjaraskerðingu ríkis-
stjórnarinnar og samn-
ingsrofum. Launþegar
hafa krafist þess, að lög-
mætir samningar yrðu
virtir.
Fullyrða má, að allir ís-
lenzkir launþegar hafa
hina mestu skömm á á-
kvörðunum ríkisstjórnar-
innar og f ramkomu henn-
ar í garð launþegahreyf-
inganna. Hins vegar hafa
menn ekki verið sam-
mála um leiðir til að berj-
ast gegn ólögum stjórnar-
innar. Þetta olli því með-
al annars, að þátttaka í
tveggja daga vinnustöðv-
un var ekki eins mikil og
vonir stóðu til.
Linnulaus áróður ríkis-
valdsins og málgagna
þess hafði einnig mikið að
segja. Þar var sundrung-
araðferðinni beitt af öll-
um mætti. Og því miður
hefur Þjóðviljinn bitið á
agnið, efnt til óvinafagn-
aðar og vegið að þvi sam-
starfi, sem tekist hafði. i
leiðara blaðsins fyrir
helgi er farið orðum um
stuðning Alþýðuflokks og
Alþýðublaðs við verka-
lýðshreyf inguna, sem
ekki verða skilin á annan
veg en þann, að Þjóðvilj-
inn sé visvitandi að styðja
við bakið á þeim, er
sundra vilja verkalýðs-
öf lunum.
Þjóðviljinn gerir mikið
úr því, að ekki hafi allir
forystumenn Alþýðu-
flokksins verið sam-
máia um tveggja daga
vinnustöðvun og réttmæti
hennar. Það er ekki von,
að Þjóðviljinn átti sig á
því, að innan Alþýðu-
f lokksins hafa menn leyf i
til þess að láta í Ijós per-
sónulegar skoðanir sínar,
án þess að hljóta bágt
fyrir. Skoðanaskiptin
breyta nákvæmlega engu
um eindreginn stuðning
flokksins við launþega í
landinu.
Þjóöviljinn hefur ekki
gætt þess, að innan Al-
þýöubandalagsins voru
einnig skiptar skoðanir
um baráttuaðferðir gegn
ólögum ríkisstjórnarinn-
ar. Einn af varaþing-
mönnum Alþýðubanda-
lagsins og verkalýðsfor-
ingi var andsnúinn
tveggja daga vinnustöðv-
un. Einn helzti verkalýðs-
foringi bandalagsins á
Norðurlandi hvatti fólk
sitt til að vinna. Þetta vita
Þjóðviljamenn, en reyna
að beina augum alþjóðar
frá þessum staðreyndum.
Alþýðuf lokkurinn hef-
ur sparað sér stóru orðin í
þeim átökum, sem nú
eiga sér stað. Það vinnst
enginn sigur með bölvi og
ragni . Og leiðaraupp-
hlaup Þjóðviljans gegn
Alþýðuf lokknum vegur
að því veigamikla sam-
starfi, sem tekist hefur
innan verkalýðshreyf ing-
arinnar. Skrif blaðsins
flokkast ekki undir annað
en skemmdarstarfsemi,
og er vonandi, að um ein-
hver mistök hafi verið að
ræða.
Barátta launþega fyrir
auknum áhrifum og
bættum kjörum verður
ekki árangursrik með
Þjóðviljaupphlaupum. Sú
barátta skilar arði með
þrotlausri vinnu og óeig-
ingjarnri samstöðu. Sú
samstaða má ekki bregð-
ast, allra sízt nú. Leið
sátta og samninga verður
að reyna til þrautar. Rík-
isstjórnin hefur brotið
hrottalega á launþegum í
heild. Hún verður að bæta
fyrir brot sitt. Að öðrum
kosti verður samninga-
leiðin vandfundin.
—AG—
ÚR YMSUM ATTUM
Reykjavíkurbréf
4. marz
«r •* ' aotrltj þetta virðast kjóséndur orðnir
V 6glO 1 Sdlltíl svo leiðir á stjórnmálamönnum
lrnámmn þar ' 'an<*h að e'nn sjónvarps-
Knerunn gaKnrýnandi heldur því fram, að
Ýmsar fréttir, sem borizt hafa fólk vilji ekki sjá stjórnmála-
ákváðu að koma ekki í skólann á
þessum .hátíðsdögum" og láir
þeim enginn, þó þeir hafi .tekið
for.vstu" í verkfallsaÖKerðum eins
ok á stóð. Ekki missa þeir launin
v- .*i.„
Hid stéttlausa
þjóðfélag vort
1 Reykjavikurbréfi Morgun-
blaðsins, þessum vikulega
heilahristingi Matthiasar og
Styrmis, um siðustu helgi er að
finna eftirfarandi fróðleiks-
korn:
,,..En nú hafa Islendingar
sýnt, að þeir vilja ekki einungis
nota þetta lýðræði til að jafna
metin i okkar stéttlausa þjöð-
félagi, heldur einnig — og ekki
siður — til að vernda lög og rétt i
landi, sem á lengri sögu lýðrétt-
inda og jafnréttis en flest önnur
riki. /.../ Auk þess vita allir
tslendingar orðið, að stéttabar-
áttan, sem er einn helzti hvati
verðbólgu hér sem annars stað-
ar, er i raun og veru tilbúinn
forsenda fyrir átökum hér á
landi....”
Þá vitum við það. Það fer
fram stéttabarátta á tslandi
(sem eru hreint ekki nýjar frétt-
ir), en það sem meira er: þessi
stéttabarátta fer að sögn Mogg-
ans fram í stéttlausu þjóðfélagi
á tslandi!!? Já, margt er nú
skondið i kýrhausnum. Þá er
alveg augljóst mál, eftir merki-
lega niðurstöðu ritstjóranna um
að „stéttlaust þjóðfélag” riki i
landinu, að tæplega er rúm fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, „flokk allra
stétta”, lengur i pólitisku litröfi
á tslandi.
En alveg er ótrúlegt hve hratt
Moggaritstjórarnir geta látið
þróun þjóðfélagsins ganga fyrir
sig. Samkvæmt marxiskri te-
oriu tekur sósialiskt þjóðfélag
við af auðvaldsþjóðfélagi I þró-
uninni (i sósialísku þjóðfélagi
lifa leifar stétta og stéttabarátt-
an heldur áfram). Að loknu
timaskeiði sósialismans kemur
svo skeið hins stéttlausa þjóð-
félags — kommúnismans. Þar
hafa þeir nú plantað okkur
niður, félagarnir Matthias og
Styrmir. Þeir eru ekki lengi aö
þvi sem litið er blessaðir karl-
arnir!
„Með
lögum
skal ...”
„Fólk lætur ekki segja sér
fyrir verkum eins og það sé
fjárhundar eða sirkusdýr”, seg-
ir i Reykjavikurbréfi Moggans
um síðustu helgi. Eitt dæmi um
slikt er Albert Guðmundsson,
stórkaupmaður og 1. maður á
framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins við þingkosningar i
Reykjavik. Hann gefur reglum
um bann við hundahaldi i höfuð-
borginni langt nef og heldur
heimili fyrir fallegan hvutta,
hvað sem lög og reglur segja.
Annar frambjóðandi Sjálf-
stæðisflokksins hefur átt aura á
ólöglegum reikningum i kóngs-
ins Köben og gaf þannig lögum
þar að lútandi langt nef. Og svo
rifa skoðanabræður félaganna
tveggja i hár sitt og æpa „lög-
brot, lögbrot”, þegar verkafólk
reynir að verjast hörkulegum
árásum rikisvaldsins á löglega
og frjálsa kjarasamninga!
—ARH