Alþýðublaðið - 07.03.1978, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 07.03.1978, Qupperneq 5
Þriðjudagur 7. marz 1978. # 5 STEFNUMIÐ Menningararfurinn, bókmenntir, saga, eymd,. basl og hin eiiífa viðleitni til betra lífs við erf ið skil- yrði, mótar öðru fremur siðferðiskennd íslenzkrar þjóðar. Saga Jóns Sigurðssonar og bókmenntir Jón- asar Hallgrimssonar segja okkur að hér megi lifa góðu lífi, sé rétt á málum haldið. íslenzki verka- maðurinn, iðnrekandinn, sjómaðurinn, bóndinn, kaupmaðurinn, útvegsbóndinn og hinn opinberi starfsmaður trúa að svo sé, og bera því þjóðlífið uppi af eljusemi, fórnfýsi og dugnaði. Þessu fólki er það kappsmál að sanna að hér megi lifa góðu líf i, siðferðiskennd þess segir að svo megi verða. Auð- vitað greinir menn á um skiptingu þjóðarkökunnar en þrátt fyrir það er sá ásetningur f lestra sameig- inlegur að allt skuli gert til þess að kakan verði sem mest bæði að gæðum og magni því er það of ur eðli- legt að þessu fólki sárni þegar það aftur og aftur verður að taka hrakförum óstjórnar íslenzks efna- hagslífs, og það án þess að gefa viðhlítandi skýr- ingu á því hverju sé um að kenna. Hvers vegna fá menn á íslandi ekki að gera með sér viðskiptasamning, án þess að ríkisvaldið rifti honum i sífellu, hvers vegna er ríkið ei+t undanþeg- ið að standa við gerða viðskiptasamninga, sýna stjórnarherrarnir með því gott fordæmi? Hver er skaðvaldur íslenzks efnahagslífs þegar svo er komið að vaxtabyrði í undirstöðuatvinnuveg- unum er orðin jöfn ef ekki meiri en launakostnað- urinn sbr. ástandið í saltfiskiðnaði? Hvers vegna þarf alltaf að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur, skera niður laun hvort heldur er i rekstri fyrirtækja með afnámi verðbóta eða i þjóðarbú- skapnum með gengisfellingu? Það má gera breyt- ingar án þess að skerða laun í fyrirtækjum með rekstrar hagræðingu.aðhaldi og sparnaði. í þjóðar- búskapnum má einnig gera hið sama og það er hluti stjórnvalda að sjá svo um en hvers vegna er það lát- ið ógert? Hvers vegna dregst bankakerfið saman, með þeim af leiðingum að f rjálsu innlendu athaf na- lifi er hætt? Svarið er að vegna hagsmuna einnar stéttar er þessu svona farið. Tveir stærstu stjórnmálaf lokkar landsins eru sníkjujurtir sem nærast á þjóðinni og geta ekki lifaðán þeirra efnahagslegu skilyrða sem síðustu áratugi hafa staðið þjóðinni fyrir þrifum, dregið úr henni máttinn. Framsóknarf lokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn byggja tilvist sína á hags- munum heildsala, sem af græðgi keppa um fjár- magnið við þá sem f járfesta vilja í framtíðinni. Vandi okkar er sá að okkur skilst ekki að peningar eru miðill, auðæfin eru hugsun okkar og athafnir. Peningar gera hugsun að athöf n og athöfn að verð- mæti. Stjórn efnahagsmála síðustu ára hefur umfram allt annað miðað að því að hvetja fólk til þess að spara ekki peninga svo hægt væri að lána þá til uppbyggingar islenzks athafnalífs, miklu frem- ur sé það skynsamlegra að flytja sem mest inn af innlendri hugsun og athöfnum, heildsalarnir sem eiga f lokka auðhyggjunnar þurfa að leggja erlenda miðla inn á banka erlendis þeir miðlar eru sterkir vegna þess að bak við þá stendur þarlend hugsun og þarlend orka og athöfn. Alþjóð veit að þegar heildsalarnir brjóta siðareglur þá heitir það ekki lögbrot, nei þá er rokið til og reikningar stofnaðir sem nú á einum mánuði hafa borið um 30% vexti, meðan Islenzki skussinn fær 1.58% Lög sem sett eru til þess að vernda slíka hags- muni brjóta gegn siðferðiskennd þjóðarinnar. Mót- mæli íslenzks verkafólks í gær og fyrradag eru mótmæli gegn athöfnum sem einungis miða að því að á því sé brotið í þeim tilgangi að tryggja nær óbreytta efnahagsstefnu heildsalanna. SUJ styður heilshugar alla viðleitni í þá átt sem miðar að því að skapa þjóðinni traust og dugmikið ef nahagslíf. Slík mótmæli beinast því gegn heildsalavaldi Sjálf- stæðisf lokksins og Framsóknarflokksins til hags- bóta öllum þegnum, heildsölum sem öðrum. Bjarni S. Magnússon. Kvenréttinda mál á Spáni Konur eiga á hættu aö fá allt að 6 ára fangelsisvist fyrir hórdóms- brot, en slikt brot er léttvægt fundið ef karimaður á i hlut. Spænskir alþýðuflokksmenn fjölluðu sérstaklega um kvenrétt- indamál á 23. ársþingi sinu I Madrid fyrir skömmu. Þar var lögð áherzla á, að konur og karlar eigi að standa jafnrétthá gagn- vart lögunum, komið verði á virk- ari kynferðisfræðslu, getnaðar- varnarlyf verð ókeypis, fóstur- eyðingar verði löglegar og ókeyp- is, samfélagið veiti einstæðum mæðrum aðstoð og að vændi veröi afnumið. Flestar þessar kröfur láta liklega undarlega i eyrum Is- lendinga, en eins og kemur vel fram i þessari grein, er langt frá þvi, að konur hafi notið sjálf- sagðra mannréttinda i stjórnartið Frankos. Undanfarna fjóra áratugi hefur verið litið á konur sem réttminni aðila en karla á öllum sviðum þjóðlifsins, enda var löggjöfinni beinlinis beitt i þá átt að áhrif kvenna yrðu sem minnst. Eftir sigur Frankos i borgarastriðinu, var stórt skref stigið aftur á bak. Kvenréttindahreyfingin átti einn- ig mun erfiðar uppdráttar á Spáni en i mörgum Evrópurikjum. Fyrstu kvenfélögin voru kaþólsk og höfðu að markmiði ákveðnar lagabreytingar, án þess þó að reyna að greina og leysa vanda- mál kvenna i heild. Segja má, að um raunverulega hreyfingu sé ekki að ræða fyrr en um miðbik þessarar aldar. Á tima annars lýðveldisins 1931, fór hagur kvenna mjög batnandi, sérstaklega ef haföar eru i huga þær lagabreytingar, sem þá voru gerðar. Má nefna að um þetta leyti öðluðust konur ýmis lýðréttindi, sem nú eru talin sjálfsögð s.s. atkvæðisrétt. Þegar borgarastriðið hófst, var mönnum i verkalýðsforystunni ljóst, að konur yrðu að taka við mörgum þeim störfum, sem karl- menn á vigstöðvunum höfðu gengið úr. Hófst þá mikil áróöurs- herferð, sem konur i röðum lýð- veldissinna brugðust vel við. Tóku þær við störfum,sem fram að þvi höfðu verið álitin karla- störf. Um þetta leyti urðu til ýmis samtök kvenna sem fullyrða má, að orðið hefðu kveikja að spænskri kvenréttindahreyfingu, ef striðinu hefði lyktað á annan veg. „Konan á að vera heima og þegja.” Rikisstjórn Frankos lögleiddi þá vinnulöggjöf, sem verið hafði i gildi fyrir borgarastriðið og setti nýja löggjöf „til verndar fjöl- skyldunni”. Sem dæmi um efni þessara nýju laga má nefna eftir- farandi: Svo segir i lögunum, að „börn i fjölskyldum megi ekki vera það mörg, að konan neyðist til að leita sér vinnu utan heimilis.” I vinnulöggjöfinni segir, „að hlifa skuli konum við vinnu i verksmiðjum.” Tilskipun frá 17. feb. 1939: „giftar konur, sem lifa eðlilegu heimilislifi, hafa ekki rétt til að leita til atvinnumiðlara.” Nýja stjórnin hafði það ekki aðeins að markmiði aö frelsa alþýðukonuna undan verksmiðju- vinnu, heldurkom hún algerlega i veg fyrir, að konur með full starfsréttindi kæmust i toppstöð- ur hjá hinu opinbera s.s. i störf rikissaksóknara, dómara og fl. Fetað fram á við Það er sorgleg staðreynd, að það er fyrst og fremst þörfin fyrir aukið vinnuafl i iðnaði, sem er kveikja að lagabreytingu i frjáls- ræðisátt á siðasta áratug. Þannig segir i Iögum frá 1961, að „virða beri rétt kvenna til vinnu.” Frá upphafi siðasta áratugs hafa lög- in smám saman verið að þokast i frjálsræðisátt. Siöustu ákvæðin, sem sett voru á þingi I fyrra, hafa það að markmiði að tryggja jafn- rétti karla og kvenna til atvinnu og kveða á um, að ekki megi mis- muna konum i launum, „enda þótt litið sé á viss störf sem kvennastörf.” Nokkur dæmi um það félags- lega böl, sem óhjákvæmilega fyigir litlum lýðréttindum spænskra kvenna: 65% vændiskvenna koma frá barnmörgum fjölskyldum. 92% vændiskvenna hafa ekki barnaskólapróf. Af nemendum tækniháskóla eru aðeins 3% konur. Konur i spænskum háskólum eru helmingi færri en karlar. Hugsunarháttur sem vonandi heyrir sögunni til: „Þú veizt, að þegar þú ert gift, mátt þú aldrei risa gegn hon- um. Þegar hann reiðist, skaltu þegja. Þegar hann öskrar á þig, skaltu lúta höfði án þess að mæla orð af vörum. Þú skalt láta undan honum, svo framar- lega sem kristileg samvizka býður þér ekki annað.” Að elska eiginmann þinn jafn- gildir þvi að umbera hann. Konur eiga að sýna yfirmönn- um sýnum skilyrðislausa hlýðni og undirgefni og þannig á hlutverk konunnar jafnan að vera i lifinu, að sýna mannin- um undirgefni i hvivetna.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.