Alþýðublaðið - 07.03.1978, Page 8

Alþýðublaðið - 07.03.1978, Page 8
Þriðjudagur 7. marz 1978. 8 Ftokksstarfid Simi flokks- skrifstof- unnar í Reykjavik er 2-92-44 Seltjarnarnes Vegna væntanlegra bæjarstjórnarkosninga er Alþýöu- flokksfólk á Seltjarnarnesi vinsamlega beðið að hafa sam- band við skrifstofu félagsins i sima 25656 milli kl. 7 og 8 á kvöldin. Sauðárkrókur. Vegna bæjarstjórnarkosninga á Sauðárkróki hefur verið ákveðið að efna til prófkjörs um skipan 3ja efstu sæta á lista Alþýðufiokksins við bæjarstjórnarkosningarnar i vor. Kjörgengi til framboðs i prófkjöri hefur hver sá er full- nægir kjörgengisákvæði laga um kosningar til sveitar- stjórnar. Hverju framboði þurfa að fylgja meðmæli minnst 10 flokksféiaga. Framboð skulu berast eigi siðar en 10. marz til formanns kjörnefndar Friðriks Sigurðsson- ar Hólavegi 3, en hann veitir nánari upplýsingar ásamt formönnum félaganna. Alþýðuflokksfélag Sauðárkróks. Kvenfélag Alþýðuflokksins. Frestun á prófkjöri Af óviðráðanlegum ástæðum er prófkjöri sem vera átti um þessa helgi frestað um viku eöa til 11. og 12. marz. Alþýðuflokksfélag Siglufjarðar Breiðholtsbúar Félagungra jafnaðarmanna i Reykjavik efnir til almenns borgarafundar mánudaginn 7. marz kl. 20.30. Fundurinn verður haldinn að Seljabraut 54 i húsnæði Kjöts og fisks. Framsögumenn á fundinum verða: Eiður Guðnason og Vilmundur Gylfason. Framsögumenn flytja stuttar framsöguræður og siðan getur fundarfólk borið fram fyrirspurnir eða gert stuttar athugasemdir. FUJ Kópavogsbúar. Alþýðuflokksfélögin i Kópavogi hafa opið hús ÖII miðviku- dagskvöld, frá klukkan 20.30, að Hamraborg 1. Umræður um landsmál og bæjarmál. Mætið — verið virk — komið ykkar skoðunum á framfæri. Stjórnirnar Auglýsing um prófkjör Prófkjör um skipan 4 efstu sæta á lista Alþýðuflokksins til bæjarstjórnarkosninga á Akranesi 1978 fer fram laug- ardaginn 11. mars og sunnudaginn 12. mars. Atkvæðisrétt hafa allir búsettir Akurnesingar sem náð hafa 18 ára aldri þegar kosningar til bæjarstjórnar fara fram og ckki eru flokksbundnir i öðrum stjórnmálasam- tökum. Kjörstaður verður i Félagsheimilinu Röst að Vesturgötu 53. Kjörfundur verður frá kl. 14.00 til 19.00 báða dagana. Þeir sem óska að kjósa utankjörstaðar hafi samband við einhvern eftirtalinna timabilið frá föstudegi 24. febr. til föstudags 10 mars. Jóhannes Jónsson Garðabraut 8 s.: 1285 Svala ívarsdóttir Vogabraut 28 s.: 1828 önundur Jónsson Grenigrund 7 s.: 2268. Frambjóðendur eru: Guðmundur Vésteinsson i 2. sæti. Rikharður Jónsson i 1. og 2. sæti. Rannveig Edda Hálfdánardóttir i 3. sæti. Sigurjón Hannesson i 1., 2., 3., og 4. sæti. Skúli Þórðarson i 1., 2., og 3. sæti. Þorvaldur Þorvaldsson i 1. og 2. sæti. Niðurstöður prófkjörsins eru bindandi hljóti sá fram- bjóðandi, sem kjörin er 20 af hundraði af kjörfylgi Alþýöu- flokksins viö siðustu sambærilegar kosningar. Stjórn fulltrúaráös Alþýðuflokksfélaganna. Alþýöuflokksfélag Hafnarfjarðar. Heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 9. mars n.k. kl. 20.30 i Alþýöuhúsinu Hafnarfiröi. Dagskrá. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. önnur mál. Stjórnin. Dr. Margareta Mikkelsen yfir- læknir á rannsókn arstofunni ásamt einum aðstoðarmanna sinna, Evu Holbæk. Athyglisverðar rannsóknir dansks læknis: Er samband milli kemiskra efnasam- banda og mongólisma? Um 18 ára skeið hefur dr. Margaret Mikkelsen læknir i Danmörku rannsakað gallaða litninga, sem leiða til vangefni. Læknirinn hefur einkum beint athygli sinni að þeirri tegund fæðingargalla sem nefnist mongólismi. — Það er fyrirhugað að ég haldi bráðlega til Huston i Texas, segir læknirinn, sem nýverið fékk ríf- legan styrk til að fullnuma sig frekar i fræðunum. Þar hyggst hún verja nokkrum mánuðum til að prófa frekar þær kenningar, sem settar hafa verið fram um orsakir mongólisma, I samvinnu við bandariska visindamenn. Rannsóknir læknisins, sem nú vekja mikla athygli, eru einkum byggðar upp á þrem þáttum; þ.e. að finna erföaþættina, að gera sér grein fyrir hættu á arfgengni, og loks aö setja fram raunhæfar kenningar um fyrirby ggjandi að- gerðir. Mongólismi er ekki óalgengur og i Danmörku einni eru um 1500 mongólitabörn. theiminum öllum er talið að eitt af hverjum 7-800 börnum sem fæðast sé mongóliti. En h vað er mongólismi? Svarið i sem grófustu dráttum er, að hann stafar af galla i frumubygg- ingu, — annað hvort i eggfrumu eða sáðfrumu, svo einum litning verður ofaukið. Ytri orsakir. — Fyrirbyggjandi aðgerðir eru ótrúlega mikilvægar, segir dr. Margaret Mikkelsen, en rann- sóknir minar hafa aðallega beinzt að þvi, að finna ytri orsakir fyrir upphafinu. Enn er ekkert hægt að fullyrða, en ákveðnar rannsóknir styðja við bakið á kenningunni um að ytri aöstæður eigi sinn þátt i þvi að skapa grundvöll fyrir mongölisma. t Kaupmannahöfn varð þessi galli i frumubyggingu t.d. i 25% tilfella hjá karl- mönnum, á Fjóni i yfirgnæfandi meiri hluta hjá konum. Ófriskar konur, sem orðnar eru 35 ára þurfa nú orðið að gangast undir itarlega rannsókn. Karl- menn sem náð hafa 45 ára aldri, þurfa einnig að gangast undir ýt- arlegar rannsóknir. Slikar rann- sóknir á karlmönnum eru nýr þáttur i baráttunni við mongól- isma. Með þeirra hjálp hefur komið i ljós, að galli i frumu- byggingu er mun algengari hjá konum en körlum. Aöur var hald- ið að slikt gerðist aðeins hjá kon- um. Það reyndist ekki vera rétt, eins og komið hefur á daginn. Dýrar rannsóknir Læknavisindin hafa nú orðið yfir að ráða nýjum og fullkomn- um hjálpartækjum, en þó er aö- eins hægt að rannsaka þá aldurs- flokka sem hér hafa verið nefndir að framan. Ef rannsaka ætti allar vanfærar konur, myndi kostnað- urinn samsvara allri þeirri fjár- hæð, sem nú er varið til heil- brigðismála i Danmörku. Ef til viil liða ekki fleiri en 10-20 ár, þar til tækjakosturinn verður nógur til að hægt sé að framkvæma alls- herjar athugun. Þegar þar kem- ur verður vafalaust búið að lækka kostnaðinn verulega, auk þess sem aðrar og betri aðferðir hafa likast til verið dregnar fram i dagsljósið. En sem stendur rýkur kostnað- urinn upp úr öllu valdi, þar sem mikinn mannskap þarf til að framkvæma rannsóknirnar. — Ég minntist á ytri aðstæður áðan, sagði læknirinn að lokum, enmeðþeim á ég m.a. við öll nýju efnin, sem komið hafa á markað- inn á undanförnum árum og þau áhrif sem þau kunna að hafa á frumuskiptinguna — bein áhrif iðnvæðingarinnar. — Ftokksstarfto Sigluf jörður Prófkjör Alþýðuflokksfélags Siglufjarðar um skipan 6 efstu sæta á lista Alþýðuflokksins við bæjarstjórpgr- kosningarnar á Siglufirði 1978 fer fram laugardag 11. marz nk. kl. 14-18 og sunnudag 12. marz nk. kl. 14-18. Kjörstaður verður að Borgarkaffi. Atkvæðisrétt hafa allir ibúar Siglufjarðar, 18 ára og eldri, sem ekki eru flokks- bundnir i öðrum stjórnmálaflokkum. Frambjóðendur i prófkjöri eru: Jóhann G. Möller, Laugarvegi 25, i 1. og 3. sæti. Jón Dýrfjörð, Hliðarvegi 13, i 1., 2., 3., 4., 5., og 6. sæti. Viktor Þorkelsson, Eyrargötu 3, i 2., 3., og 4. sæti. Anton V. Jóhannsson, Hverfisgötu 9., i 3., 4., og 5. sæti. Arnar Ólafsson, Suðurgötu 59, i 3., 4., og 5. sæti. Björn Þór Haraldsson, Hafnargötu 24, i 4. og 5. sæti. Sigfús Steingrimsson, Fossvegi 17 i 5. og 6. sæti. Hörður Hannesson, Fossvegi 27, i 6. sæti. Niðurstöður prófkjörs eru bindandi. Hljóti kjörinn frambjóðandi 20% éða meira af kjörfylgi Alþýðuflokksins við siðustu sambærilegar kosningar. Kjósandi merkir með krossi við nafn þess frambjóðanda, sem hann velur i hvert sæti. Eigi má á sama kjörseðli kjósa sama mann, nema i eitt sæti, þótt hann bjóði sig fram til fleiri sæta. Eigi má kjósa aðra en þá, sem i framboði eru. Til þess að atkvæði sé gilt, ber að kjósa frambjóðendur i öll 6 sætin. Utankjörstaðaratkvæöagreiðsla fer fram dag- ana 25. febrúar — 10. marz, að báðum dögum meðtöldum. Þeir sem taka vilja þátt i utankjörstaðaratkvæðagreiðslu hafi samband við Þórarinn Vilbergsson, eða Sigurö Gunn- iaugsson. KJÖRSTJORN Ritstjórn Alþýðublaðsins er í Síðumúla 11 - Sími 81866 lliMÚM lll* Grensásvegi 7 Simi 32655. Ri RUNTAL-OFNAR Birgir Þorvaldsson Sími 8-42-44 Au.^'^seódar '. AUGLYSINGASlMI BLADSINS ER 14906 Svefnbekkir ó verksmiðjuverði SVEFNBEKKJA Höfðatúni 2 — Simi 15581 Reykjavik. 2- 50-50 Sendi- bíla- stödin h.f.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.