Alþýðublaðið - 07.03.1978, Side 12
alþýóu- blaðió Otgefandi Alþýðuflokkurinn bRlf) 11 1D A G LJ R Ritstjórp Alþýðublaðsnins er að Siðumúia 11, simi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er að PnlUJUunwun Hvsrfisgötu 10, simi 14906 — Askriftarsimi 14900. 7 1978 ■ *
I /
Átök á aðalfundi Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar:
„Adalfundurinn sviptur
ákvörðunarvaldi sínu”
— segir Ný hreyfing
Til nokkurra tiðinda dró á aðal-
fundi Starfsmannafélags Reykja-
vikurborgar i Tjarnarbúð s.l.
laugardag, og gengu nokkrir fél-
agar af fundi i mótmælaskyni.
Fyrir fundinum lágu nokkrar
ályktunartillögur frá Nýrrihreyf-
ingu, andstöðuliðinu sem bauð
fram gegn stjórn Þóhalls Hall-
dórssonar I St. Rv. nýlega, og
fleirum, alls 8 tillögur. Kváðu til-
lögurnar á um að aðalfundurinn
skoraði á stjórnina að beita sér
fyrir trúnaðarmannanámskeið-
um og námskeiðum i fundarsköp-
um, ræðumennsku, gerð kjara-
samninga og fleiru, aö nú verði
gerð gangskör að úrbótum í dag-
vistunarmálum og þrýst á
borgarstjórn um að fá meira f jár-
magn til að fjölga dagvistunar-
stofnunum i borginni, að aðal-
fundurinn mótmæli harðlega
kjaraskerðingunni, aö mótmælt
verði harðlega túlkun vinnumála-
fulltrúa Reykjavikurborgar á 35.
gr. reglugerðar um réttindi og
skyldur starfsmanna Reykjavik-
urborgar.aðaflaðverði framlaga
til útgáfustarfsemi á vegum
félagsins og ein tillagan gerði ráð
fyrir að stjórn og fulltrúaráð St.
Rv. beitti sér fyrir þvi að reglum
félagsins verði framfylgt þ.á m.
aðstöðu fulltrúa á vinnustöðum til
að fyigjast með starfemanna-
t.'tl. í starfsréglum fyrir fulltrúa-
ráðiff.
Aukþessvarskoraðá stjórnina
að gera viðeigandi ráðstafanir til
þess að félagaskrá sé unnin að
öllu leyti á vegum félagsins á
grundvelli upplýsinga sem launa-
skrifstofa Reykjavikurborgar
annars vegar og fulltrúar hins
vegar láta af hendi.
Öllu visað til stjórnar
A fundinum gerðistsiðan það,
að fram kom dagskrártillaga um
að visa öllum tillögunum 8 til
stjórnar félagsins og var hún
samþykkt með 32 atkvæðum gegn
24. Þórhallur Halldórsson, for-
maður St. Rv., greiddi atkvæði
með tillögunni, en nokkrir
stjórnarmeðlimir greiddu at-
kvæði gegn henni. 1 „opnu bréfi til
félaga i Starfsmannafélagi
Reykjavikurborgar”, sem Ný
hreyfing heíur látið frá sér fara
um aðalfundinn segir, að aðal-
fundur sé æðsta vald félagsins
samkvæmtlögum þess og lögum,
sem almennt séu i gildi i samtök-
um launafólks. Einu sinni á ári fái
félagar tækifæri til að ræða starf
stjórnar og fulltrúaráðs, flytja til-
lögur og nota atkvæðisrétt sinn
um málefni félagsins. Segir Ný
hreyfing að samþykkt tillögunnar
um að visa öllum tillögunum, til
stjórnar, „þýði i raun að aðal-
fundur sé sviptur ákvörðunar-
valdi sinu” og að þetta hafi verið
„gerræðisleg aðgerð til að svipta
félaga i Starfsmannafélaginu lög-
bundnum lýðréttindum — at-
kvæðis- og tillögurétti sinum” —
og hafi nokkrir félagar yfirgefið
fundinn i mótmælaskyni.
I lok opna bréfsins til félaga,
segir Ný hreyfing:
„t ljósi þessara atburða vakna
mikilvægar spurningar, sem hér
er varpað til félaga i St.Rv.:
— Viljum við lýðræðisleg
vinnubrögð i okkar félagi?
— A aðalfundur að halda gildi
sinu sem æðsta vald félagsins?
— Hvernig dettur félögum á
aðalfundi i hug að stjórn og full-
trúaráð geti fjallað um áskoranir
til sjálfs sin?
— SættafélagariSt.Rv. sig við
að fulltrúar okkar greiði atkvæði
gegn þvi að halda vinnustaða-
fundi um mikilvæg kjaramál eins
og gerðist á opnum fulltrúaráðs-
fundi mánudaginn 1. marz?
— Eru núverandi fulltrúar
starfi sinu vaxnir?
Siðustu spurningunni fá félagar
tækifæri tilað svara i kjöri til full-
trúaráðs, miðvikudaginn 16.
marz og fimmtudaginn 17. marz
n.k.
Ný hreyfing hvetur félaga i
St.Rv. til að ræða þessar spurn-
ingar og kjósa þá fulltrúa sem
þeir treysta fyrir málum sinum”,
segir að lokum i bréfi Nýrrar
hreyfingar.
—ARH
Erlendur Einarsson:
Hagur SÍS stórum verri
1977, en árid ádur
í nýútkomnum Sambands-
fréttum.segir á þá leið að i fyrsta
hefti þessa árs af Samvinnunni,
sem sent verður tii kaupenda
næstu daga, birtist viðtal við for-
stjóra Sambandsins, Erlend
Einarsson. Þar svarar hann
spurningum blaðsins um ýmis
atriði, sem varða stöðu og hag
Sambandsins og samvinnuhreyf-
ingarinnar á yf irstandandi
timum, og m.a. svarar hann
spurningu um rekstrarniðurstöðu
Sambandsins á s.l. ári sem hér
segir:
„Rekstrarniðurstaða Sam-
bandsins fyrir árið 1977 ligg-
ur ekki fyrir. Það er ljóst, að á
fyrra helmingi ársins var
rekstrarstaðan sæmilega hag-
stæð. En þetta breyttist mjög til
hins verra þegar liða tók á seinni
hluta ársins. Rekstrarkosnaður
hækkaði mjög mikið og miklu
meira en tekjur. Vissar rekstrar-
greinar hafa lent i miklum erfið-
leikum, eins og t.d. iðnaðurinn.
Það gefur auga leið, að þegar
helztu kostna&arliðir eins og laun
hækka á árinu um 70%, þá fari
ýmislegt úr skorðum. Rekstur
ársins 1977 hlýtur að stórversna
frá 1975, og það getur oltið á
ýmsu, hvort rekstrarniðurstaðan
verði ofan við strikið. Við þessar
aðstæður hlýtur að verða á yfir-
standandi ári dregið mjög úr
öllum framkvæmdum hjá Sam-
bandinu og samvinnufélögunum.
Reynt verður að skera niður
rekstrarkostnað af fremsta
magni til þess að forðast eða
minnka taprekstur.”
„Byggðaþróunaráætlun
Norður-Þingeyjarsýslu
...enn sem komid er
í frétt frá sýslunefnd
Noröur-Þingey jarsýslu
segir m.a. að í júní 1975
hafi af hálfu Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins
verið lögð Fram byggöar-
þróunaáætlun fyrir sýsl-
una.
Ekkert hefur enn ver-
ið gert til að hrinda í f ram-
kvæmd áætlun þessari.
Með áætluninni var þó
viðurkenndur af opinberri
hálfu sá mikli vandl sem
Norður-Þirtgeyingum er á
höndum.
Byggðin í Norður-Þingeyjar-
sýslu hefur um langt árabil átt i
vök að verjast. Bæði hefur strjál-
býli verið mikið og atvinnutæki
ekki nægilega mörg og stöðug,
svo að sýslan hefur orðið að berj-
ast við fólksfækkunarvanda.
Skömmu eftir útgáfu byggðar-
þróunaráætlunar 1975 fundust
auðug rækjumið i öxarfirði, en þá
brá svo við, f/ð allur sá vandi
Norður-Þingeyinga sem i áætlun-
inni er lýst, var gleymdur og
Sjávarútvegsráðuneytiö úthlutaði
veiðileyfi til skipa úr öðrum sýsl-
um.
Aðalfundur Sýslunefndar
Norður-Þingeyjarsýslu haldinn á
Kópaskeri hefur nú sent frá sér
stuðhingsyfirlýsingu, þar sem
lýst er yfir „fullum stuðningi við
kröfu ibúa við öxarfjörð um al-
gjöran forgang þeirra til nýting-
ar rækjumiða i firöinum og skor-
pappírsplagg
ar fundurinn á Sjávarútvegsráðu-
neytið að verða við eðlilegum og
sjálfsögðum kröfum þeirra til
sama ri'ttar og viðurkenndur hef-
ur verið alls staðar, þar sem
rækjuveiðai eru stundaðar inn-
anfjarðar viö landið.”
Prófkjör Sjálfstædismanna til
bæjarstjórnarkosninga
í Kópavogi:
Adeins einn
náðibindandi
kosningu
Lokið er nú talningu at-
kvæða í prófkjöri Sjálf
stæðismanna til bæjar
stjórnarkosninga í Kópa-
vogi á komandi vori. At-
kvæði greiddu alls 854, er
f lokkurinn hlaut við kosn-
ingar 1974 alls 1965 at-
kvæði.
Þau tiðindi gerðust, að ein-
ungis einn frambjóðandi hlaut
bindandi kosningu, Axel Jóns-
son, alþm. i 1. sæti listans með
243 atkv. en alls 503 atkv. i öll
sæti.
Þá vekur það athygli, að fyrr-
um samtakamaður, Guðni
Stefánsson, járnsmiður, hlaut
næstflest atkv. i fyrsta sæti, 198
en samtals 381 atkv.
Bragi Michaelsson, bæjarfull-
trúi, hlaut 264 atkv. í 3. sæti, en
samtals 402 atkv.
Fjórða sæti hlaut Grétar
Norðfjörð fulltrúi með 243 atkv.
og samtals 345 atkv.
Fimmta i röðinni varð Stein-
unn Sigurðardóttir með 259 at-
kvæði i það sæti og alls 329 atkv.
Sjötti I röðinni varð Stefnir
Helgason, kaupm. með samtals
298 atkvæði. Hann, ásamt Rich-
ard Björgvinssyni, hefur verið
einn af aðaltalsmönnum Sjálf-
stæðismanna i bæjarstjórn
Kópavogs undanfarið kjörtima-
bil. Richard tók hinsvegar ekki
þátt i prófkjörinu að þessu
sinni.
Prófkjör
flokksins í
Reykjavik
Er haft var samband við
skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík í
gærmorgun höfðu alls á ní-
unda þúsund kosið en kjör-
fundi mun hafa lokið kl.
2C.30 i gærkvöldi.
Alls kusu Sjálfstæðisflokkinn i
Reykjavik i siðustu bæjar og
sveitarstjórnarkosningum 1974
26973. Orslit prófkjörsins munu
hafa verið kunn eftir miðnætti i
nótt. Það var eindregin ósk sjálf-
stæðismanna að ná tölunni 10.000
atkvæði, en alls þurfti rúm 8000
til þess að prófkjörið gæti talizt
gilt, i gærmorgun var það sem
sagt á mörkunum.
Um helgina munu og hafa verið
prófkjör á vegum Sjálfstæðis-
flokksins á Akureyri, Seltjarnar-
nesi og i Kópavogi. Prófkjöri mun
hafa lokið á Akureyri kl. 20.00 i
gærkvöldi. Um miðjan dag i gær
höfðu hátt i 1100 greitt atkvæði en
Sjálfstæðisfl. hlaut i siðustu
bæjar- og sveitarstjórnarkosn-
ingum 2225 atkv. og 5 menn
kjörna. Úrslit prófkjörsins i
Kópavogi eru kunn.
J.A.
Úrslit í skoðanakönnun
Framsóknar á Akureyri:
Sigurdur Öli
og Tryggvi efstir
Úrslit eru nú kunn í
skoðanakönnun þeirri er
Framsóknarflokkurinn á
Akureyri efndi til í tilefni
bæjar- og sveitarstjórna-
kosninga i vor. Þeir 6
efstu í skoðanakönnun-
inni urðu þessir:
1. Sigurður óli Brynjólfsson
kennari er hlaut 348 atkv. i 1.
sæti en alls 658 atkv. eða 79%
greiddra atkvæða. 2. Tryggvi
Gislason skólameistari með 228
atkv. i 1.-2. sæti, alls 564
atkv. eða 68%. 3. Sigurður Jó-
hannesson með 320 atkv. i 1.-3.
sæti, alls 476 eða 57%. 4. Jó-
hannes Sigvaldason ráðunautur
með 250 atkv. i 1.-4. sæti, alls
370 eða 45%. 5. Ingimar Eydal
kennari með 294 atkv. i 1.-5.
sæti, alls 362 atkv. eða 44%. 6.
Og Pétur Pálmason verkfræð-
ingur með 336 atkv. i 6. sæti.
Alls kusu 830, skoðanakönn-
unin stóð yfir frá 3.-5. marz. 1
siðustu bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningum hlaut Fram-
sóknarflokkurinn samtals 1708
atkvæði og 3 menn kjörna af 11 i
bæjarstjórn. J.A.
FEensan fremur væg
„Inflúensan er fremur
væg og hefur verið að
stinga sér niður hér og þar,
en varla er hér um mikinn
faraldur að ræða," sagði
Heimir Bjarnason, að-
stoðarborgarlæknir, í við-
tali við blaðið í gær.
Heimir sagði að einkenni,
„flensunnar” væru þau sömu og
vant er, hiti, höfuðverkur, bein-
verkir og þess háttar. Hann kvað
litið hafa borið á vondum eftir-
köstum, og sagði að ekki hefði enn
fengizt skorið úr hvaða tegundar
þessi inflúensa nú er. Hefði að
visu tekizt að greina stofn I einu
eða tveimur tilfellum, en þar væri
um svo litið úrtak að ræða, aö
ekki yrði á þvi byggt. Heilsufar i
borginni kvað Heimir annars með
liku móti og vant er á þessum árs-
tima.