Alþýðublaðið - 22.03.1978, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 22.03.1978, Blaðsíða 8
8 AAiðvikudagur 22. marz 1973. ITexti: Jóhannes Ágústsson Frumvarp eitt liggur | nú fyrir Alþingi og nefn- ist það "Frumvarp til laga um þroskaþjálfa? Segja má að frumvarp þetta sé lagt fram i beinu framhaldi af sam- þykkt laga um Þroska- þjálfaskóla íslands á s.l. ári. Þótthér á landi hafi verið starfræktur skóli er sérmenntar þroska- þjálfa siðan 1958, er þetta i fyrsta sinn sem frumvarp er lagt fram á þingi um starfsgrein þessa. Það þótti því ekki úr vegi að kynna lesend- um blaðsins að nokkru starfsemi skóla þess er menntar þroskaþjálfa: og þá um leið i hverju undirbúningur sá er fóigin er þroskaþjálfar fá fyrir starf sitt. Hvað er þroskaþjálfi? Þar sem orðið þroskaþjálfi er tiltölulega nýtt i málinu er kannski ástæða til þess að gera dálitla grein fyrir hvað það inni- ber. Þroskaþjálfi mun fyrst hafa verið notað opinberlega þá er nafni þroskaþjálfaskólans var i reglugerð 1972 breyttú úr Gæzlu- systraskóli i Þroskaþjálfaskóli. t fyrstu munu þroskaþjálfar aðallega hafa fengizt við likam- lega aðhlynningu og hjúkrun vangefinna, og kallaðist starf þeirra þá starf gæzlusystra. Siðan hefur starfssvið þroskaþjálfa vikkað til muna og er nú við- fangsefni þeirra auk vandamála vangefinna, vandamál allra þroskaheftra yfirleitt. Þess fólks er vikur frá þvi eðlilega á ein- hvern hátt, andlega eða likam- lega. Þroskaþjálfar starfa þó fyrst og fremst meðal vangef- inna. Auk þess að sjá um alhliða velferð þroskaheftra þurfa þroskaþjálfar að einbeita sér að hverjum og einum og skipuleggja þjálfunaráætlun fyrir hvern ein- stakling. Slikar áætlanir geta spannað allt frá frumstæðustu at- höfnum, t.d. að kenna viðkom- andi að matast og halda sér hreinum og upp i það að undirbúa hann til að flytja á fjölskyldu- heimilieðaaðfara i störf á hinum almenna vinnumarkaði. Það er t.d. ennfremur í verkahring þroskaþjálfans að annast undir- búning þess að þroskaheftir ein- staklingar geti tileinkað sér bók- legt nám. Hvað hjúkrun þroskaheftra snertir sérstaklega má t.d. geta þess aö þroskaþjálfar eiga að geta gefið lyf samkvæmt fyrir- mælum læknis auk sprauta, pipa, bakstra, hann mælir blóðþrýst- ing, tekur púls, gætir að öndun o.fl. Þá skal þroskaþjálfi geta fylgzt með frávikum likamsstarf- semi sjúklings frá þvi sem eðli- legt getur talizt hvað varðar mat- arlyst, svefn, hægðir, þvaglát, uppgang og fleira i þeim dúr. Störf þroskaþjálfa eru oft á tið- um einnig verkstjórnarstörf, margir þroskaþjálfar veita for- stöðu deildum eða einingum þeirra stofriana er annast að- hlynningu þroskaheftra. Að lokinni þessari örstuttu kynningu á starfi þroskaþjálfa skulum við vikja að þvi þá er blaðamenn Alþýðublaðsins heim- sóttu Þroskaþjálfaskólann fimmtudaginn þann 16. þ.m. Nemendur undirbúa sýningu. Þá er blaðamenn heimsóttu skólann þarsem hanner til húsa i nágrenni Kópavogshælis, komust Að annast þá af þegni þjóðfélagsins sem vei á sig komnir bekkur dveljast nú viðsvegar á hinum ýmstu stofnunum fyrir þroskahefta við verklegt nám. Það kom þvi i hlut 2. bekkinga að undirbúa þátt Þroskaþjálfaskól- ans i sýningunni á Kjarvalsstöð- um. Undirbúningur sýningarinn- ar hefur tekið u.þ.b. einn mánuð. Skólinn skiptist i 3 bekki þ.e. einn bekk á hverju námsári en þroskaþjálfanámið er 3 ár. Nokk- urnveginn álika stór hluti náms- ins er bóklegt og verklegt nám. þeir brátt að þvi, að það er efst var á baugi meðal nemenda þá stundina^var undirbúningur þátt- töku þeirra isýningunni „Viljinn i verki”. En sýning þessi stendur nú sem hæst að Kjarvalsstöðum. Asamt Þroskaþjálfaskólanum taka þátt i henni Styrktarfélag vangefinna, en efnt er til sýn- ingarinnar f tilefni 20 ára afmælis þess, öll heimili vangefinna i landinu svo og Oskjuhliðarskóli og Landssamtökin Þroskahjálp. Nemendur, sem staddir voru á miðhæð skólahússins i annarri tveggja skólastofa skólans voru uppteknir við æfingu á brúðuleik- riti. Þeir ásamt kennara skól- ans i leikbrúðutækni Mariu Eiriksd,. tjáðu blaðamönnum að einn þáttur i sýningu þeirra að Kjarvalsstöðum myndi verða brúðuleiksýningar. En hugmynd- in er að kynna m.a. skólastarfið með leikbrúðum. Nemendur hafa bæði samið textann fyrir leik- brúðurnar og unnið að gerð þeirra i kennslustundum hjá Mariu. Ástæðan fyrir þvi að leikbrúðu- tækni er ein námsgreina við Þroskaþjálfaskólann er sú að meðleikbrúðum eru taldir auknir möguleikar á þvi fyrir þroska- þjálfa að ná til þroskaheftra. T.d. hvað varðar fræðslu. Með leikbrúðusýningum á Kjarvalsstöðum er einnig ætlun nemenda Þroskaþjálfaskólans að kynna starfssvið þroskaþjálfans, þá munu þeir og fjalla um mann- úðarsjónarmið o.fl. Bókasýning er og á vegum þeirra að Kjar- valsstöðum þ.e.þeir munu kynna námsbækur varðandi þroska- þjálfanám. Þá kynna þeir verk- efni sin i föndri og samfélags- fræði. Þeir er vinna að þessari sýningu erusvotil eingöngu nem- endur 2. bekkjar skólans. 1. og 3. ,,t húsnæði skólans var slðasta athvarf holdsveikra á íslandi.” Björg Einarsdóttir fulltrúi á skrifstofu skólans rekur fyrir blaða- mönnum sögu skólans og skólahússins. Þroskaþjálfanemar niðursokknir I starf sitt. Hér er unnið að samningu texta fyrir leikbrúður þær er koma skulu fram I brúðuleikhúsi skólans að Kjarvalsstöðum. Námsferðalag 3. bekkj- ar að námi loknu. Þegar blaðamenn komu til að hlýða á brúðuleik nemenda var einmitt verið að f jalla um skólann ogstarfsemihans i brUðuleikhús- inu. Þar kom m.a. fram að nem- endur læra dönsku, ensku, sið- fræði fyrir utan verklegt nám,en það fer fram sem fyrr segir á hin- um ýmsustofnunum er annast þá þroskaheftu s.s. endurhæfingar- deild og skóla fyrir þroskahefta. Inntökuskilyrði i Þroskaþjálfa- skólannerum.a. þau að nemandi skal vera oröinn fullra 18 ára, hafa lokið námi úr 2. bekk i sam- ræmdum framhaldsskóla (fjöl- brautaskóla) og hafa þá lagt stund á vissar námsgreinar. Þá er talið æskilegt að umsækjandi hafi hlotið nokkra starfereynslu. Þroskaþjálfun er þriggja vetra nám, skólinn starfar frá 1. september til 31. mai. Veturinn 1977-1978 munu 54 nemendur stunda nám við skólann, en á hverju hausti eru teknir inn 20 ný- ir. Einu sinni I mánuði fara nem- endur i leikhús. A svonefndum fwidurkvöldum vinna nemendur að gerð ýmissa hluta sem þeir siðan selja á basar höldnum fyrir hver jól. Agóðinn rennur i ferða- sjóð nemenda, en á hverju ári fer 3. bekkur i námsferðalag. Er þá oftast haldið erlendis og kynna sér þar nýorðnir þroskaþjálfar hinar ýmsu stofnanir fyrir þroskahefta. A siðasta ári var farið til Danmerkur en nú mun ætlunin að halda til Sviþjóðar. Síðasta athvarf holdsveikra. Næst gengum við á fund Bjarg- ar Einarsdóttur, fulltrúa á skrif- stofu skólans, og fræddi hún okk- ur m.a. um sögu skólahússins. Það var Kvenfélagið Hringurinn sem árið 1926 lét byggja húsið sem endurhæfingarhæli fyrir berklasjúka. En þar skyldu þeir dveljast fyrst um sinn eftir dvöl á berklahælum, áður en þeir hæfu störf Uti i þjóðfélaginu. Var þar um að ræöa starfsemi undanfara þeirrar er siðar hófst t.d. að Reykjalundi i Mosfellssveit. Þarna var rekinn búskapur, enda stendur húsið i útjaðri Kópavogs- jarðarinnar, eignar rikisins og fengust endurhæfingarsjúkling- arnir við landbúnaðarstörf. Rikið yfirtók starfsemi hælisins i kring- um 1940 og dvöldust þar siðan holdsveikir. Siðasti holdsveikis- sjúklingurinn yfirgaf hælið fyrir aðeins tveimur árum og er það eini eftirlifandi Islendingurinn haldinn sjúkdómi þessum. Gæzlusystraskóli tslands var siðan stofnaður 1958 og var frá upphafi i tengslum við Kópavogs- hælið og staðsettur þar. Forstöðu- maður Kópavogshælis var jafn- framt skólastjóri, gegndi Björn Gestsson þvi starfi allt til ársins 1977 er Bryndis Viglundsdóttir tók við starfanum, þá varð skólinn og sjálfstæð stofnun, enda heyrir hann siðan beint undir Heil- brigðis- og tryggingamálaráöu- neytið. Piltar stunda nú einnig þroskaþjálfanám I upphafi voru fremur fáir nem- endur er stunduðu nám við Gæzlusystraskólann og eingöngu ’konur. Nú hefur aftur á móti fjöldi nemenda aukizt, auk þess sem nokkrir piltar taka þátt i starfi skólans. Munu þeir er þangað hafa sótt ánægðir með dvöl sina þar, að sögn Bjargar fulltrúa. Það er heldur ekki von- um framar að nemum i þroska- þjálfun fjölgi þvi skortur mun á fólki með slika ,menntun. Þrir fastir starfsmenn eru við skólann þ.e. skólastjóri, verk- námskennari og siðan fulltrúi á skrifstofu. Við skólann starfa 17 stundakennarar i hinum ýmsu greinum. Haldnir eru vikulegir fyrirlestrar og þá til þess fengnir sérfræðingar hinna ýmsu sviða er varða þroskaþjálfanám. A vegum skólans er og efnt til nám- skeiða. S.l. haust var t.d. efnt til þriggja mánuða kvöldnámskeiðs i hagrænni handmennt. Til smfðanámskeiðs fyrir nemendur

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.