Alþýðublaðið - 11.04.1978, Side 1
ÞRIÐJUDAGUR 1 I. APRÍL
71. TBL. — 1978 — 59. ÁRG.
Ritstjórn bladsins er
til húsa í Sídumúla 11
— Sími (91)81866
— Kvöldsími frétta-
vaktar (91)81976
Ákærðir fyrir að misnota
starfsaðstöðu sína
— Opinbert mál höfðað gegn fyrrum bankastjórum
og skrifstofustjóra Alþýðubankans
Á þessum tímum þegar
flest það sem gamalt er
verður að víkja fyrir hinu
nýja er gaman að sjá for-
tiðina skjóta upp kollinum
á ný. Gamli söluturninn
sem flestir Reykvikingar
kannast við hefur nú verið
gerður upp og endurreistur
á því sem næst uppruna-
legum stað. Þessi
skemmtilega bygging mun
í framtíðinni þjóna nýju
hlutverki og eflaust með
sóma.
AB-mynd ATA
Rikissaksóknari höfð-
aði i gær opinbert mál á
hendur þeim Óskari K.
Hallgrimssyni og Jóni
Hallssyni, fyrrum
bankastjórum Alþýðu-
bankans, svo og Gisla
Jónssyni fyrrum skrif-
stofustjóra sama banka,
fyrir brot gegn almenn-
um hegningariögum.
Eru ofangreindir enn
fyrst og fremst ákærðir
fyrir að hafa misnotað
starfsstöðu sina i bank-
anum og þar með gerzt
brotlegir við 249. gr.
hegningarlaganna.
í fréttatilkynningu
sem embætti rikissak-
sóknara lét frá sér fara i
Endur-
reistur
gær varðandi þetta mál
kemur fram, að banka-
stjórunum er gefið að
sök, að hafa á árunum
1974 og 1975 hagað lán-
veitingum, vixlakaup-
um, yfirdráttarheimild-
um og ábyrgðarskuld-
bindingum i nafni bank-
ans á þann veg, að einatt
vantaði mikið á að næg-
ar tryggingar væru sett-
ar fyrir greiðslum með
þeim afleiðingum að
bankinn varð og verður
fyrir fjárhagslegu tjóni
sem skiptir tugum
milljóna króna.
Þá er þeim óskari
Hallgrimssyni og Gisla
Jónssyni gefið að sök
aðláta geyma innistæðu-
lausa tékka að upphæð
rúmlega 35 milljónir
króna, mánuðum saman
á árinul975 i bankanum,
lengst af sem reiðufé i
kassa. Er Jón Hallsson
talinn hafa látið þetta
viðgangast þó að hann
hafi hlotið að vita um
það.
Ennfremur er Jóni
Hallssyni og Gisla Jóns-
syni gefið að sök, að
hafa á árinu 1975 gefið út
fjö lda innistæðulausra
tékka samtals að fjár-
hæð rúmlega 3,3
milljónir króna til
einkaþarfa á reikninga
sina i bankanum, og séð
um að þeir væru inn-
leystir og geymdir i
bankanum i langan tima
án þess að reki væri
gerður að innheimtu
þeirra. —GEK
Sprengiframboð Sjálfstædismanna í Kópavogi
Er Jónas Haralz einn stuðn
ingsmanna nýja listans?
,, Nú er ákveðið, að efnt
verður til sérstakst f ram-
boðs í Kópavogi við bæj-
arst jórnarkosningar í
vor," sagði Guðni Stef-
ánsson, járnsmiðameist-
ari, sem kjörnefnd lista
Sjáifstæðisf lokksins,
færði niður i fimmta sæti
listans á dögunum, þótt
honum eftir niðurstöðum
próf kjörs bæri annað sæt-
ið.
„Viðbrögð fólks hér eru þann-
ig, að hjá þessu verður ekki
komizt”, sagði Guðni, en kvaðst
enn ekki geta gefið nánari upp-
lýsingar um hinn nýja lista.
Meðal stuðningsmanna er
Kjartan Jóhannsson, læknir og
flogið hefur fyrir að Jónas
Haralz sé einn þeirra, sem
styðji þetta framboö og kvaðst
Guðni að visu hafa heyrt þvi
gleygt, en vissi ekki á þvi sönn-
ur enn.
Guðni sagði sig af listanum,
eftir að niðurstöður kjörnefndar
voru birtar, en samkvæml próf-
kjörsreglum þurfti ákveðið at-
kvæðamagn að vera fyrir hendi,
til þess að prófkjör væri bind-
andi fyrir kjörnefnd og náði þvi
atkvæðamagni aðeins Axel
Jónsson, sem skipaður efsta
sæti Sjálfstæðisflokkslistans.
Við prófkjörið var aldur þeirra,
sem þátt máttu taka i þvi lágur,
yngstir 16 ára.
I stað Guðna i annað sætið var
skipaður Rikharður Björgvins-
son. Guðni Stefánsson hefur get-
iö sér orð fyrir starf sitt aö i-
þróttamálum i Kópavogi á und-
anförnum árum.