Alþýðublaðið - 11.04.1978, Side 4

Alþýðublaðið - 11.04.1978, Side 4
4 Þridjudagur 11. apríl 1978 jgUtm , alþýöu Ctgefandi: Alþý&uflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent h.f. Ritstjöri og ábyrgöarmaftur: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Einar Sigurös- son. Aösetur ritstjórnar er I Siðumúla 11, slmi 81866. Kvöldsimi fréttavaktar: 81976. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftar- og kvartanasimi: 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftaverð lSOOkrónur á mánuöi og 80 krónur i lausasölu. Þingmenn, embættis- menn og ýmsir aðrir Miklar umræður hafa orðið um hlunnindi em bættisma nna og bankastjóra, þingmenn, sem hafa launuð störf ut- an þings, nefndakónga og fleiri slíka. Athyglin hef- ur aðallega beinzt að þingmönnum og háttsett- um opinberum embættis- mönnum. Hlunnindi bankastjóra og ráðherra eru af því tagi, að þau ber að leggja niður þegar í stað. Má í þvi sambandi benda á tollaafslátt og lán vegna bílakaupa. Það er hreint siðlaust að þessir tekju- háu menn fái ivilnanir, sem jafngilda árslaunum verkamanns og jafnvel mei ra. Einnig þarf að hafa strangt eftirlit með risnu hóps opinberra embættis- manna, og koma í veg fyrir, að þeir gegni svo mörgum störfum að þeir geti engu einu þeirra sinnt ' sómasamlega. Þingmenn verða að hafa frumkvæði að því, að a11- ar aukagreiðslur til þeirra verði tilkynntar skattyf irvöldum. — Á sama hátt er full ástæða til að f ylgjast með búsetu þingmanna. Þing- menn utan Reykjavikur njóta margvislegra hlunninda. Þeir fá dag- peninga, ferðastyrki og f leira. Margir þeirra búa i Reykjavik verulegan hluta ársins og búseta þeirra utan Reykjavíkur ósjaldan til málamynda. Ekki væri úr vegi að gera nokkra úttekt á þessu bú- setu-fyrirbæri og kanna um leið greiðslur til ein- stakra þingmanna. En það, sem kannski er eftirtektarverðast i þeirri umræðu, er Alþýðu- bandalagsmenn hafa meðal annarra beitt sér fyrir, er að fylgjast með að hverjum þeir beina spjótum sinum. Þeir hafa einkum og nær eingöngu rætt um þingmenrr, sem eru 60, og fámennan hóp háttsettra embættis- manna. Öll bein laun þessara manna eru þó gefin upp, og þeir greiða væntanlega tekjuskatta samkvæmt því. Af margvíslegum ástæðumhefði Alþýðublað- inu þótt eðlilegt, að Alþýðubandalagið beindi spjótum sínum að þeim þjóðfélagshópi, sem er mjög fjölmennur, hefur hærri laun en þingmenn og embættismenn, en um leið aðstöðu til að skammta sér laun, risnu og skatta. Þessi hópur er margfalt stærri en hópur embættismanna og þing- manna, sem nýtur hlunn- inda og hef ur f leiri en eitt starf. Vegna gloppóttra skattalaga, siðlausrar fyrirgreiðslu og margvís- legrar aðstöðu hefur þessi hópur rakað að sér verðbólgugróða, án þess að greiða af honum veru- legan skatt. Aðstaða hans í þjóðfélaginu er svipuð aðalsmanna fyrr á öld- um. Leiguliðarnir eru þeir, sem greiða skatta af lágum- og miðlungstekj- um. Það væri verðugra verkefni fyrir Alþýðu- bandalagið að berjast gegn fríðindum þessa hóps i stað þess að halda uppi málþófi um kosn- ingabrellur, þar sem hin- ir illu andar eru komisar- ar Framkvæmdastofnun- ar. Þá er nauðsynlegt að hafa hugfast í umræðum um laun þingmanna, að þau eru í langflestum til- fellum ekki nema brot af launum fjölmenns hóps í þjóðfélaginu. Þingmenn verða að vera efnahags- lega sjálfstæðir. Mörgum hættum er boðið heim, ef þeir eru það ekki. Þeir verða hins vegar að fara eftir þeim lögum og regl- um, sem þeir setja öðr- um. —ÁG Rabb við forrádamenn DAS „Við eigum þessu fólki skuld að gjalda” Happdrætti dvala- heimilis aldraðra sjó- manna, sem við þekkj- um einkum undir gælu- nafninu DAS, hefur nú hafið 24. happdrættisár sitt. Vissulega er happ- drættið sú fjáröflun, sem hefur gert Sjó- mannadagsráði kleift, að standa undir þeim miklu framkvæmdum, sem þegar hafa verið gerðar. En sýnt er, að ráðamenn láta hvergi deigan siga. Bygging dvalar- heimilisins i Hafnar- firði er þegarkomin vel á veg og rúmar nú 84 vistmenn. Þar er einn- ig tekin til starfa dag- deild fyrir aldraða, ) sem er nýjung hér á i; landi. Þegar nýja DAS-hús- ið var sýnt blaðamönn- um siðastliðiiui föstu- dag, voru forráðamenn starfseminnar, Pétur Sigurðsson alþingis- maður og Baldvin Jónsson, f r a m - kvæmdastjóri, inntir eftir þvi, hvort frekari nýjungar væru á prjón- um i starfsemi DAS, heldur en dagdeildin nýja- Þeim kom saman um eftirfarandi: „Raunverulega gengur aldr- aða fólkið gegnum nokkur stig, sem þarf að sinna og vinna að úrbótum á. Dagdeildin er eitt af þeim og má kalla hið fyrsta. Henni er ætlað að sinna þörfum þeirra, sem vel eru rólfærir og hafa nokkra starfskrafta, sem annars nýtast ekki á almennum vinnumarkaði. Þar þarf að korha i viðbót heimilishjálp i mörgum tilfellum, sem fleytir fólkinu yfir þá erfiðleika að geta ekki ráðið fullkomlega við heimilishald hjálparlaust. Við litum svo á, að það skipti aldrað fólk afar miklu máli, að þurfa ekki að sundra heimilinu fyrr en um annað þrotnar. Hér þurfa sveitarfélögin vitanlega að taka sinn þátt I. • Næsta stig mætti svo vera, að aldraða fólkið gæti átt kost á hæfilega stórum ibúðum, þegar minna er orðið umleikis og i sambandi við það möguleikar á frekari þjónustu, til dæmis með heimsendingu matar, auk þess sem það ætti greiðan aðgang að hejlbrigðisþjónustu. Flutningur á ellideild og siðar sjúkradeild mega svo kallast lokaskrefin. Hér er mikið verk að vinna og verðugt verkefni fyrir alla, sem skilja og meta aðstöðuna og vilja leggja hönd á plóginn, til þess að greiða nokkuð af þeim skuldum sem við eigum þessu fólki að gjalda. Þar erekki verið að reiða fram neina ölmusu. Þá höfum við aðeins hafizt handa um tilraun, sem við bind- um nokkrar vonir við, en það er að koma á fót einskonar sumar- dvalarstarfsemi fyrir aldraða. Oft og viða hagar þannig til, að aldraðir eru á ýmsan hátt háðir aðstoð barna sinna og annarra ættingja. Nú getur ver- ið þörf fyrir þetta fólk, að bregðasér frá um stundarsakir, til dæmisfarai sumarleyfi. Þá kann að skipta máli, að a ldraða fólkið hafi að einhverju aö snúa sér i þjónustuefnum, og sömu- leiðis hina yngri, að geta hvarfl- aðfrá án þess að hafa áhyggjur. Það er einmitt þetta, sem við viljum koma til móts við. Stutt sumarleyfisdvöl getur lika sannarlega verið góð til- breyting fyrir aldraða fólkið, þó það séi sjálfu sér mestmegnis, eða algerlega sjálfbjarga. Reynslon verður auðvitað að sýna, hvað fært er og heppilegt að gera i þessu efni, til dæmis má benda á, að þess er ekki nægur kostur að hver og einn geti fengið einkasvefnrými. Jafnvel þótt fastir vistmenn hvörfluðu frá um stundarsakir, er ekki unnt að ráðstafa húsnæði þeirrahanda öðrum. En um allt þetta erum við fúsir til að ræða og freistað að ná samkomulagi um við sveitarfélögin, sem hlut eiga að máli, þó aldraða fólkið sé ekki handbendi þeirra beint. Engum er heldur skyldara, eða ætti að vera ljúfara en dval- arsveit, að liðka til fyrir öldruð- um ibúum sinum. Þar viljum við koma á móti”, luku þeir fé- lagar máli sinu. o.s. ítt víz i i&zí ,-iif ’.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.