Alþýðublaðið - 11.04.1978, Side 12
útgefandi Alþýðuflokkurinn KDirwimAri/P 7 7
Ritstjórn Alþýðublaðsins er að Síðumúla 11, sími 81866. Auglýsingadeild i /
blaðsins er að Hverf isgötu 10, sími 14906 — Áskriftarsími 14900. APRÍL 1978
Skuld ríkissjóðs
við Seðlabanka
jókst um 50%
frá áramótum
Rikisstjóður skuldar
nú Seðlabanka íslands
tæplega 22 milljarða
króna og hefur þá hækk-
að um 7 milljarða frá því
um áramót þegar Seðla-
bankinn átti um 15 mill-
jarða hjá rikissjóði. Auk
þessarar hækkunar er
rétt að geta þess að lán
sem Séðlabankinn tekur
erlendis og endurlánar
siðan rikissjóði, hafa
hækkað um sem svarar
2.7 milljörðum króna
vegna gengisuppfærslu
frá þvi um áramót.
tgreiðsluáætlun rikissjóðs fyrir
árið 1978 er gert ráð fyrir þvi að
lántökuþörf rikissjóðs hjá Seðla-
banka, vegna reksturs A-hluta
stofnanna, fyrstu 6 mánuði árs-
ins, sé 7 milljarðar. Þessi mælir
hefur þvi þegar verið fylltur nú
þegar 3 mánuðir eru liðnir af
timabilinu.
1 greiðsluáætlun A-hluta rikis-
sjóðs er gert ráð fyrir jöfnuði i
rikisf jármálum i árslok 1978.
Þetta kemur fram i fréttatilkynn-
ingu fjármálaráðuneytisins um
þessi mál. Þar segir einnig að
fjárþörfrikisins sé breytileg eft-
ir mánuðum þar sem tekjur inn-
heimtist yfirleitt siðar á árinu en
gjöld falla til. Fjárþörf rikissjóös
til að brúa slikt bil tekna og
gjalda hafi verið um 7 milljarðar
króna fyrstu 3 mánuði ársins,
sem sé rúmlega 630milljónkróna
hærri upphæð en gert var ráð fyr-
ir. 1 fréttinni segir að frávik þetta
megi fyrst og fremst rekja til
greiðslna Rikisábyrgöas jóðs
vegna skuldar RARIK við Lands-
virkjun og uppgjörs útflutnings-
uppbóta á landbúnaðarafurðir
vegna fyrri ára.
ES
Þeir voru margir góðborgararnir sem brugðu undir sig betri fætinum i bllðunni á sunnudaginn og fóru i
göngutúr 1 sólskininu. Þeir, sem ekki áttu gott með að leggja i langar göngur létu sér gjarnan nægja að
setjast út i dy ragættina og láta sólina baða sig. — Mynd:—ATA
8k*ll Pálsson i laxeldistöðinni aft Laxalóni — My nd — GEK
Skúli á Laxa
lóni fær 15
milljónir kr.
greiddar
— tjónid metid á 32 milljónir
Tekin hefur veriö á-
kvörðun um að greiða
Skúla Pálssyniá Laxalóni
15 milljónir króna í bætur,
vegna þess tjóns sem
hann varð fyrir er seiðum
í laxeldistöð hans var
fargað s.l. haust. Eins og
mönnum er í ferski minni
reis upp mikill ágreining-
ur milli Skúla annars
vegar og yfirvalda hins
vegar um heilbrigði seiða
i stöð Skúla að Laxalóni í
Mosfellssveit.
Greiðslan til Skúla Pálssonar
er til komin á grundvelli, fjár-
lagaheimildar, en i 6. gr. fjár-
laga er sérstakt ákvæðisem
heimilar ríkissjóði að bæta tjón
sem upp kunna að koma vegna
fisksjúkdóma. Ekki er greiðslan
til Skúla talin til bóta 1 þeim
skilningi að bótaskylda sé talin
var fyrir hendi, enda munu
dómstólar þurfa að skera úr um
slikt.
Landbúnaðarráðuneytið lét á
sinum tima meta tjónið sem
Skúli varð fyrir er seiðum i lax-
eldistöð hans var fargað og
samkvæmt þeirri könnun er
tjónið metið á 32 milljónir
króna. Þær bætur sem nú hefur
veriðákveðið að greiða hrökkva
þvi tæplega fyrir helmingi þess
tjóns.
Samkvæmt upplýsingum Al-
þýðublaðsins mun lögfræðingur
Skúla freista þess að fá þetta
mál tekið fyrir að nýju i þvi
skyni að fá bótaupphæðina
hækkaða. Hefur hann nýverið
ritað rikisstjórninni sérstakt
bréf þess efnis. —GEK
10 manna nefndin
Aðildarfélögin flýti athugun
á enn frekari aðgerðum
Adstodarfólk tannlækna
myndar stéttarfélag
„Nú má heita að menn
fyrir norðan, austan og
sunnan hafi gert upp hug
sinn um þátttöku i að-
gerðum okkar og aðeins
eftir að vita hvað veröur
hjá Vestfirðingum og á
Suðurnesjum, ” sagöi
Snorri Jónsson, þegar
blaðið átti tal af honum í
gær.
Snorri sagði að á fundi tiu-
mannanefndar i gærmorgun hefði
verið gerö sérstök samþykkt sem
hér fer á eftir:
„ 10 manna nefnd ASl kom sam-
an til fundar kl. 10 i morgun (þ.e.
gærmorgun) að ósk Karls Stein-
ars Guðnasonar, formanns
Verkalýðs og sjómannafélags
Keflavikur og nágrennis. Gerði
hano grein fyrirumræðum þeim,
sem fram hefðu farið á Suður-
nesjum og væntanlegri þátttöku
félagsins þar i aðgerðum Verka-
mannasambandsins. Að loknum
umræðum, var eftirfarandi sam-
þykkt gerð samhljóða:
10 manna nefnd ASl samþykkir
aö beina þvi til aðildarsamband-
anna, að þau flýti alhugun sinni á
frekari aðgerðum, er þegar hafa
verið ákveðnar.
Þann 8. s.l. var stofn-
að nýtt stéttarfélag, Fé-
lag aðstoðarfólks tann-
lækna, og voru stofnfé-
lagar á stofnfundi, sem
haldinn var i Snorrabúð
á annað hundrað.
Formaöur hins nýja félags var
kjörin Erla Ingólfsdóttir og sam-
kvæmt frásögn eins meðlims
hinnar nýkjörnu stjórnar, mun i
gær hafa verið sent bréf til Tann-
læknafélags Islands, þar sem far-
ið er fram á samningaviðræður
um kaup og kjör. Kjör þessarar
stéttar fólks munu hafa verið afar
ólik til þessa, bæði að þvi er varð-
ar kaup og starf, en viðfangsefni
hafa verið mis viðtæk á hinum
ýmsutannlækningastofum. Mikill
áhugi er meðal félaga á stéttarfé-
lagi sinu, og á undirbúningsfundi
þess fyrir nokkrum vikum skiptu
fundarmenn hundruðum og ein-
ingarhugurinn mikill.
AM