Alþýðublaðið - 14.04.1978, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 14.04.1978, Blaðsíða 5
iö Föstudagur 14. apríl 1978 5 ■ii bl Félag matvörukaupmanna 50 ára: Gagnrýna skipulagsyf irvöld fyrir stórmarkaðina — og telja að þeir muni fækka smærri kaupmönnum Um þessar mundir er Félag matvörukaup- manna 50 ára# en félagið er eitt af 18 sérgreinafé- lögum innan Kaup- mannasamtaka islands. Tómas Jónsson var f yrsti formaður félagsins, en lengst hefur Guðmundur Guðjónsson gengt for- mennsku þar eða í 20 ár# en hann sat í stjórn félags Matvörukaupmanna samfleytt í 25 ár. Lengst hefur setið í stjórn fé- lagsins Sigurliði Krist- jónsson# eða í 33 ár. Nú- verandi stjórn félagsins skipa Jónas Gunnarsson formaður, ólafur Björns- son varaformaður, Jón Þórarinsson ritari, Helgi Viktorsson, gjaldkeri og Ingibjörn Hafsteinsson meðstjórnandi. A fundi sem stjórn Félags matvörukaupmanna boðaði til með blaðamönnum i gær kom fram að félagið er upphaflega stofnað til að hamla gegn beinni sölu heildsala til neytenda. t máli formanns félagsins kom fram að þrátt fyrir að margt hafi verið gert á 50 ára ferli fé- lagsins til að koma i veg fyrir ofangreind viðskipti þá hefur ekki tekist með öllu að útiloka þau, þótt svo að mikið hafi úr þeim dregið. Formaðurinn tók það jafnframt fram að á 50 ára starfstima félagsins hafi sam- skipti heildsala og matvöru- kaupmanna batnað til muna. begar félag matvörukaup- manna var stofnað fyrir 50 ár- um voru stofnfélagar á annað hundrað talsins. Töluðu tals- menn matvörukaupmanna á fundinum í gær um að á þeim tima- hefði verið offjölgun i stéttinni, sem komist hefði i eðlilegt horf á kreppuárunum, en þá fækkaði matvörukaup- mönnum talsvert. Að sögn matvörukaupmanna er nú enn farið að bóla á off jölg- un i stéttinni og kenna þeir þar um m.a. skipulagsyfirvöldum i Reykjavik, sem leyft hafi stofn- un mikilla stórmarkaða viða um bæinn. Töldu fundarmenn að ef ekki yrði spyrnt við þessari þró- un ætti hún eftir að hafa i för með sér að all margir smærri kaupmenn leggi upp laupana. A fundi matvörukaupmanna barst talið nokkuð að frumvarpi rikisstjórnarinnar um verðlag, samkeppnishömlur og órétt- mæta viðskiptahætti. Voru kaupmennirnir i flestu óánægðir með frumvarpið, sem þeir töldu loðið og illa fram sett. Sögðu þeir að það sem sett væri fram i einni grein væri oftlega dregið til baka i þeirri næstu og bæri frumvarpið það greinilega með sér að vera samið af lögfræðing- um en ekki verzlunarmönnum/ Þó töldu þeir að ákveðin atriði; frumvarpsins væru til bóta. A fundinum gerðu kaupmenn- irnir að umtalsefni skrif fjöl- miðla um verzlunina i landinu. Töldu þeir að oft hefði andað köldu frá fjölmiðlum i þeirra garð, og alið á tortryggni neyt- enda i garð kaupmanna. — Við erum aðeins launþegar sem ráðum engu um okkar kjör, sagði Jónas Gunnarsson for- maður félagsins, — og hræddur er ég um að mörgum launa- manninum þætti timakaup okk- ar kaupmannanna stundum æði lágt. —GEK Ráðist inn í fbúð A miðvikudagskvöldið voru tveir menn fluttir á slysavarð- stofuna eftir að ráðist hafði verið inn i ibúð þar sem þeir dvöldu við Hrisateig. Arásarmennirnir voru fjórir að tölu, og siðdegis i gær hafði lögreglunni tekist að hafa hendur i hári tveggja árásar- mannanna, og stóðu vonir til að hinir tveir næðust fljótlega. Ann- ar þeirra sem fyrir árásinni varð hlaut beinbrot i andliti. Að sögn Njarðar Snæhólm rannsóknarlög- reglumanns hafa mennirnir tveir sem teknir voru fastir eftir árás- ina, báðir komið við sögu hjá lög- reglunni áður. —GEK Innbrot í fyrrinótt Nokkuð var um innbrot i höfuð- borginni ifyrrinótt. Brotist var inn i Arbæjarskólann en ekki er kunnugt um að neinu hafi verið stolið þar. Þá var brotist inn i verzlun við Bankastræti 8 og stol- ið 3 tölvuúrum. Ennfremur var brotin stór rúða i bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. Ekki hafði tekist að upplýsa þessi mál siðdegis i gær er blaðið hafði samband við rannsóknarlögregl- una. —GEK f tilefni 50 ára afmælis Menn* ingarsjóds og Menntamálaráðs: Hálfrar aldar starfsafmæli Menningarsjóds og Menntamála ráðs Um þessar mundir hafa Menningarsjóður og Menntamálaráð starfað um hálfrar aldar skeið. Menntamálaráð kom fyrst saman til fundar 1. júní 1928 og hef ur á þessu tima- bili haldið alls 1088 fundi, en það er sem kunnugt er starfandi stjórn sjóðsins. Menntamá laróð var kjörið í fyrsta sinn á Al- þingi vorið 1928 og skipuðu það eftirtaldir menn: Rágnar Asgeirsson, Ariii Rálsson. Sigurður Nordaþlngibjörg H. Bjarnason,Stefán Jóh. Stefánsson Frá upphafi var ráb fyrir þvi gert að Menningarsjóður hefði meðhöndum alla þá fyrirgreiðslu við menntir oglistir i landinusem opinberir aðilar önnuðust og ekki féll i verkahring skólastofnana og sérstakra rannsóknastofnana eða fjárveitinga frá Alþingi. Var starfsemi Menningarsjóðs þvi mjög margþætt lengi framan af, en sem kunnugt er hefur talsverð sérhæfing átt sér stað i þessum efnum á siðari árum. Má þannig segja að eftir taldar stofnanir hafi sprottið af Menningarsjóði: Listasafn Islands, Vísindasjóður, Rikisútgáfa Námsbókp, Lánasjóður Islenzkra náms- manna, Fræðslumyndasafn rikisins, — auk ýmissa opinberra styrktarsjóða og árlegra fjárveit- inga vegna starfa að listum og menntum i landinu. Þessi þróun á 'sér enn stað, og hafa miklar um- ræður verið að undan förnu um stofnun sérstaks Kvikmynda- sjóðs. Bókaútgáfa hefur löngum verið umfangsmesti þátturinn i starf- semi Menningarsjóðs og yfir- gnæfandi eftir að afskiptum sjóðsins af námslánum lauk. A vegum Bókadeildar Menningar- sjóðs og siðar Bókaútgáfu Menn- ingarsjóðs var á sinum tima kom- ið upp mjög fjölmennu félags- mannakerfi um allt land, og var hér um að ræða stærsta bókafor- lag landsins um árabil. Hefúr starfslið Menningarsjóðs jöfnum höndum unnið að Utgáfustarf- seminni og öðrum þáttum i störf- um stofnunarinnar. Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins gefur út Al- manak Islands i samvinnu við Háskóla íslands, Almanak Hins islenska þjóðvinafélags og ársrit- ið Andvara. Meðal annarra Ut- gáfuverkefna má nefna bóka- flokkana „Lönd og lýöir” og „Al- fræði Menningarsjóðs”. Enn má nefna að á siðustu árum hefur mikið verið unnið að útgáfu Is- lenzkrar orðabókar, en endur- skoðuð og aukin Utgáfa hennar er i undirbúningi, og væntanlegt er siðara bindi stórvirkisins Korta- sögu tslands eftir Harald Sigurðs- son bókavörð. Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur samstarf við ýmsar vis- inda- og rannsóknastofnanir um útgáfustörf. Má þar nefna Rann- sóknastofnun i bókmenntafræði við Háskóla tslands, Sagnfræði- stofnun Háskóla tslands og Stofn- un Arna Magnússonar á Islandi. A hverju ári veitir Menningar- sjóður margháttaða styrki til listafóiks og menningarstarfsemi i landinu. Nokkur siðustu ár hefur styrkjunum verið þannig háttað að veittir hafa verið eftir taldir styrkir: styrkur til kvikmyndagerðar, styrkur til tónverkaútgáfu, dvalarstyrkir listamanna, ferðastyrkir og styrkir til ýmissar menningarstarfsemi, — og loks hefur Menntamálaráði jafnan verið falið að úthluta „styrkjum til visinda- og fræði- manna”. Nú sitja þessir menn i Mennta- málaráði: Baldvin Tryggvason, varafor- maður. BjörnTh. Björnsson, Jón Sigurðsson ritari, Kristján Bene- diktsson, formaður Menntamála- ráðs, Matthias Jóhannesen Nú má taka með toll- frjálst inn í landið sem svarar 32 þús. — leyfilegt tollfrjálst áfengismagn einnig aukió Frá og með 12. april er ferða- mönnum, sem koma frá útlönd- um, heimilt að hafa með sér hingað til lands, án greiðslu að- flutningsgjalda, varning að andvirði allt að 32.000 krónur og er þá miðað við smásöluverð er- lendis. Hér er um allverulega hækkun að ræða, þvi fyrri reglu- gerð kvað á um að andvirði sliks varnings mætti einungis nema 14.000 krónum. Af þeim 32.000 krónum sem áður voru nefndar má andvirði annars varnings en fatnaðar ekki nema meiru en 16.000 krónum. Hvað varðar matvæli, þar með talið sælgæti, má ein- ungis hafa með sér inn i landið sem svarar 3.200 krónum í stað 1400 áður. Andvirði myndavéla segulbandstækja, sjónauka og útvarpstækja má nema 24.000 krónum, enda sé andvirði nýrra vara i heild ekki meira en 32.000 krónur. Svo sem kunnugt er, gilda sérstakar reglur um farmenn og flugliða, sem eru i förum milli landa. Menn i þessum stöðum, sem verið hafa 20 daga eöa skemur i ferð, mega nú hafa með sér til landsins tollfrjálsan varning að andvirði 7.000 króna eftir hverja ferð, i stað 3.000 áð- ur. Sé lengd ferðar á bilinu 21—40 dagar skal farmönnum og flugliðum heimilt að flytja með sér til landsins tollfrjálsan varning að andvirði 21.000 króna i staö 9.000 áður, en fyrir 32.000 kr. i stað 14.000 sé ferð lengri en 40 daga. Meira tollfrjálst vín Aukið hefur veriö það magn tollfrjáls áfengis', sem ferða- menn mega taka með sér inn i landið Nú er leyfilegt að taka með sér sem nemur 1 litra af sterku áfengi i stað 3/4 litra áð- ur. Engar breytingar eru frá eldri reglugerö um það magn áfengis og tóbaks sem áhafnir mega taka með sér tollfrjálst inn i landið. ES Bók um þjódgarda íslands, fólkvanga og friðlýst svæði i tilefni hálfrar aldar af- mælis Menningarsjóðs og Menntamálaráðs hefur ráðið samþykkt að efna til útgáfu bókar um þjóð- garða islands, fólkvanga og friðlýst svæði. Bókin verður eins konar hring- ferill um landiö og veröa einstak- ir menn fengnir til að rita um ákveðna staði. Bókin hefur verið hugsuð sem einskonar stofn, sem bæta megi við eftir þvi sem tilefni gefst. Ritstjóri hefur veriö valinn Gisli Jónsson menntaskólakenn- ari á Akureyri og útgafunefnd skipa eftirtaldir menn: Baldvin Tryggvason, Björn Th. Björns- son, Jónas Jónsson og Sigurður Þorarinsson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.