Alþýðublaðið - 19.05.1978, Side 4
Föstudagur 19. maí 1978
alþýðu
LlLeh
tJtgefandi: Alþýöuflokkurinn.
Rekstur: Reykjaprent h.f. Ritstjóri og ábyrgöarmaöur:
Árni Gunnarsson. Fréttastjóri: Einar Sigurösson. Aösetur
ritstjórnar er i Sföumúla IX, simi 8X866. Kvöldslmi frétta-
Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftaverö 2000 krónur á mán-
uöi og 100 krónur I lausasölu.
HAMSKIPTI
Það er með einkennilegri staðreyndum um
islenzkt samfélag, að sennilega má á það gizka
að Morgunblaðið sé keypt á nær fjórum af
hverjum fimm heimilum i landinu. Það er ó-
trúlega mikil útbreiðsla. Það er hins vegar
frjálst val kaupenda og þeirra helgur réttur.
En þetta er þeim mun einkennilegra þegar á
það er horft, hvernig Morgunblaðið hefur verið
að umhverfast nú fyrir kosningar. Flokksáróð-
ur Morgunblaðsins verður grimulausari með
hverjum deginum. Þegar hæfilega langt er
til kosninga eru fréttir á útsiðum blaðsins. Þeg-
ar nær kosningum dregur verður það stórfrétt
á baksiðu að Birgir ísleifur Gunnarsson sé
að fara að halda einhverja fundi i Reykja-
vik. Fréttir vikja, en gerfiviðtöl við
frambjóðendur verða æ plássfrekari.
Embættiskerfi borgarinnar er nýtt til fulln-
ustu. Þeir ganga frá áætlunum (eins og grænu
byltingunni forðum), þeir afhenda ibúðir. Þeir
birta broshýrar og hamingjurikar ljósmyndir
af frambjóðendum, embættismönnum. Njót-
endur félagslegrar þjónustu, sem þó eru ekki
að gera annað en neyta mannréttinda sem ættu
að teljast sjálfsögð með siðmenntuðum þjóð-
um, verða með óvæntum hætti þátttakendur á
kosningaljósmyndum Morgunblaðsins.
Morgunblaðið er stórt, blaðsiðurnar eru
margar og blaðið er útbreitt. Samt er það eins-
dæmi i lýðræðisrikjum að nærfellt fjögur heim-
ili af hverjum fimm greiði fullt verð fyrir póli-
tiskan áróður af heldur ódýrri tegund.
Vera má, að útbreiðsla Morgunblaðsins eigi
stóran þátt i langvarandi stjórn Sjálfstæðis-
flokksins á Reykjavikurborg. Morgunblaðið
hefur einnig að undanförnu búið til andstæðing
fyrir borgarstjórnarmeirihlutann og þessum
andstæðingum hampar blaðið stöðugt. Höfuð-
andstæðingurinn er Alþýðubandalagið, og satt
er það, léttvægur er hann. Það er einnig senni-
lega rétt mat hjá Morgunblaðinu að ef þvi tekst
að koma þvi inn hjá nógu mörgum að baráttan
standi milli Sjálfstæðisflokks og Alþýðubanda-
lags, þó gerir það róður Sjálfstæðisflokksins
léttari.
Morgunblaðið hefur verið að taka hamskipt-
um. Að auki hefur Morgunblaðið eina megin-
reglu fyrir borgarstjórnarkosningar. Á mið-
vikudag fyrir kosningar gerir Morgunblaðið
sina lokaútrás. Þá verður blaðið undirlagt með
vinalegum fjölskyldumyndum af hamingju-
sömum frambjóðendum, þá verður fréttum og
áróðri ruglað saman. Og hápunkti nær svo
stórsóknin á kjördag.
Reykvikingar hafa horft á þennan leik svo
lengi sem elztu menn muna. Blað allra lands-
manna tekur stigmagnandi hamskiptum sem
málgagn meirihluta borgarstjórnar. Svo
verður eins og blaðran springi á kjördag.
Daginn eftir kosningar taka þeir siðan sann-
gjörn viðtöl við oddvita allra lista um kosn-
ingaúrslitin.
Alþýðublaðið vill hvetja lesendur Morgun-
blaðsins til þess að fylgjast kirfilega með þess-
um kostulegu hamskiptum. Það er i sjálfu sér
ekki hægt að hafa mikið gagn af Morgunblað-
inu meðan það er i þessum ham. En það er
hægt að hafa nokkurt gaman af þvi. ,VG
Meindýraeydir sóttur heim
rotturf
urt skeið og i fyrri viku f'
brugðu blaðamenn Al-
þýðublaðsins sér á fund
hans, til þess að kynnast
i stórum dráttum hvern-
ig starfsemi þessi er
rekin.
Þegar viö komum inn Ur dyrun-
um, rekum við strax augun i
mann, sem er i óöaönn aö brytja
niöur franskbrauö, og i fyrstu
mætti ætla aö til stæöi aö fara aö
fóöra endurnar á tjörninni. En
þegar hann seilist eftir stórum
brúsa, vendilega merktum hinum
þrieina eiturkrossi og mynd af
hauskúpu, þarf ekki frekar vitn-
anna viö hvaö hér er 1 bigerö. Þaö
kemur enda á daginn, aö kassinn
meö franskbrauöinu á aö fara
rakleitt niöur i fjöru, þar sem
hann á aö veröa tálbeita fyrir
rottur, sem þar kynnu aö búa.
Við skyggnumst betur I kring
um okkur og komum auga á kort
af Reykjavik,alla vegaút stungið
meöprjónum, sem hafa mismun-
andi litanhaus. Sumir prjónanna
tákna að hér hafi menn rekizt á
rottu, aörir að þarna hafi verið
mýs á ferli. Blóðrauö kerti vekja
llka athygli okkar, þaö eru para-
fínstönglar, gegnsýröir rottueitri
og ætlaöir til aö hengja I ræsi og
brunna.
Breiðholtið rottulaust
enn
Við nánari athugun á kortinu
í lágreistu húsi við Þessi starfsemi er rekin
Vegamótastig i Reykja- undir stjórn Ásmundar
vik, er meindýraeyðir Reykdal, sem gegnt hef-
borgarinnar til húsa. ur þessu starfi um nokk-
Undir þessari eldavél, I húsi einu I gamla bænum bjó mús, sem þrátt
fyrir tvær tilraunir haföi ekki látiö glepjast, en náö aö éta agniö, —
ósködduö. En hér er ekki gefizt upp og enn er gildran spennt.
Markús skipstjóri opnar Sjóbúð:
Framleiðir m.a. nýja
tegund björgunartaekis
Sjóbúð Markúsar skip-
stjóra— islandi allt; þess-
ar áletranir má lesa á
skiltum utan á lágreistri
byggingu við Hvaleyrar-
braut 7, í Hafnarfirði.
Þarna er að finna vinnu-
stað Markúsar B. Þor-
geirssonar, en um leið er
þarna að finna merka
samantekt slysasögu is-
lands, aðallega sjóslysa-
sögu, í máli og myndum á
veggjum.
Markús útbýr og selur
margs kyns nytjahluti úr
næloni sleftóg fyrir bila,
öryggisnet fyrir menn sem
vinna á vinnupöllum utan á
og inni í byggingum
o.s.frv. Einnig net til að
varna því að slys geti hlot-
iztaf götum í góifi nýbygg-
inga. Þá framleiðir
Markús sérstæðar net-
mottur úr næloni til að
koma bilum úr sjálfheldu í
hálku. Að sögn hans voru
mottur þessar reyndar f
vetur og gáfu góða raun.
Síðast en ekki sízt hefur Markús
útbúið hlut sem hann nefnir
bjargmottu.Það er netbútur meö
flothringjum & og i mottuna er
fest löng nælonsnúra. Markús
taldi bjargmottuna hafa marga
kosti umfram venjulega bjarg-
hringi til að bjarga fólki úr sjó og
vatni. Til dæmis bærist netið ekki
nærri þvi eins hratt undan
straumi og bjarghringur og auk
þess væri betra að festa á þvi
hendur. Sagöi hann upplagt aö
hafa mottur af þessari gerö meö i
skemmtibátum og öörum bátum Markús kvaðst lengi hafa haft
,og hafa taugina i mottuna stöðugt áhuga á slysavarnamálum, enda
fastbundna viö bátinn, þannig að fjórum sinnum komizt I lifsháska
hún væri stööugt til taks.
Hugnanlegur vinnustaöur: myndir á veggjum, steroútvarp og kæli-
skápur.