Alþýðublaðið - 20.12.1978, Blaðsíða 5
AAiðvikudagur 20. desember 1978
5
SALARRANNSÓKNAFÉLAG ÍSLANDS 60 ÁRA
Þótt Sálarrannsóknafélagið
gerði ekki frá upphafi þá kröfu til
neins manns, sem kærir sig um að
gerast félagi þess eða kynna sér
skoðanir þess, að hann játi neinar
sérstakar kenningar, hvorki um
llf eftir dauðann né nokkuð annað,
þá verður ekki gengið framhjá
þeirri sannreynd, aö stofnendur
félagsins voru orönir sannfæröir
um að kenningin um llf að þessu
loknu væri byggð á sannleika,
áður en þeir stofnuöu það.
Það^rit sem vafalaust hafði
mest áhrif á skáldið Einar H.
Kvaran I þessu efni var áreiöan-
lega rit F.W.H. Myers Persónu-
leiki mannsins og framllf hans
eftir dauðann . Bókin kom út
tveim árum eftir lát höfundarins,
en hann lést 19.01. 1901.
Hún mun þvi hafa verið tiltölu-
lega nýútkomin, þegar Einar las
hana um 1903. Bók þessi hefur
hingað til veriö talin sfgilt
verk I sálrænum rannsókn-
um, þvl höfundur hennar
var einn af virtustu mennta-
mönnum Bretlands og hafði
hafið rannsóknir slnar þegar
áriö 1870. Hann var einn af
aðalforgöngumönnum þeirra
lærðu og virtu manna sem stofn-
uðu Brezka sálarrannsóknafélag-
ið 1882. Sökum þess álits sem
Myers naut á Bretlandi sem
hálæröur og stórgáfaður maður,
vakti þetta óvenjulega ritverk
hans mikla athygli. Sennilega
fyrir bein áhrif þessa ritverks
skrifar Einar H. Kvaran svo
grein I blaö sitt Noröurland um
ódauðleika sálarinnar og segir
þarfrá áðurnefndri bók. Arið 1915
flytur Einar svo fyrirlestur i
Reykjavik sem bar nafnið Sam-
band við framliðna menn. Og
hann lætur ekki við það sitja,
BO K, SEM VEK-
UR BJARTSÝNI
Á bókamarkaði í ár hefur
ein bók átt athygli mína og
áhuga fram yfir aðrar
bækur og það svo, að mér
þykir ástæða til að beina
athygli annarra að henni
einnig. Þetta er bók um
innhverfa ihugun og kenn-
ingar Maharishi Mahesh
yoga, eftir Englendinginn
Péter Russel.
1 Islenskum búningi Guörúnar
Andrésdóttur og Jóns Hannesson-
ar, sem þýddu bókina og Isafold-
ar, sem gefur hana út, hefur bók-
in hlotið hafniö Holl er hugarró.
Fáir treystast til þess á slðustu
streituhrjáöu timum aö mótmæla
fullyröingu um að hugarró sé holl
þó að mörgum þyki óþarfi aö
leggja við hana sérstaka rækt.
Félagi minn einn kom aö mér þar
sem ég stóö og fletti þessari bók
og sagði eitthvaö I þá átt um leið
og hann klappaði góðlátlega á
öxlina á mér, að hann gæti vel
fallist á hollustu þess að öölast
hugarró, en hins vegar gæfi hann
heldur lítið fyrir þær aðferöir aö
standa á haus til þess langtimum
saman og éta kál I hvert mál.
Hvort sem það var nú ætlun hans
eöa ekki, dró félagi minn þarna
saman i eina setningu meginstef
bókarinnar, sem ég var aö fletta.
Hugljómun öðlast enginn með
forskrifaðri hegðun, mataræði,
ögun eða þvingunum af neinu
tagi, hvorki likamlegum né and-
legum. Þvert á móti er þvl haldið
fram, að hugljómun sé orsök og
eini grundvöllur farsællar hegð-
unar. Bókin fjallar um einfalda
huglæga tækni, innhverfa ihugun
eöa Transcendental Meditation,
sem ætlaö er að koma til leiöar
auknum persónuþroska einstakl-
ingsins. 1 bókinni er að þvl er
viröist kollvarpað flestum viö-
teknum skoðunum jafnt I Vestur-
álfum sem Austurlöndum á þvi
hvernig unnt sé að öðlast fullan
vitundar og persónuþroska. Hér
er þvl haldið fram, aö ihugun sé
auðveld, engin nauðsyn sé aö
breyta lifsháttum sinum til að
njóta andlegra framfara, ekki sé
ástæða til að afneita þessa heims
gæðum, efnaleg velferö og andleg
fullnægja stangist ekki á, fhugun
sé undirstaða aukinnar athafna-
semi, aö iðkun Ihugunarinnar
leiði raunar til 200% llfs, 100%
efnalegs og 100% andlegs.
Miklar almennar umræður hafa
orðiö um innhverfa Ihugun frá þvl
að hún kom fram fyrir réttum 20
árum og tslendingar hafa ekki
fariö varhluta af þeim eftir aö
fariö var aö kenna tæknina hér-
lendis áriö 1974. Umræöurnar
hafa einkum snúist um hin hvil-
andi áhrif tækninnar og visinda-
legar mælingar á þeim. 1 bókinni
er hins vegar einnig lögö áhersla
á að sú hvfld, sem menn vissulega
hljóta við iðkun Ihugunarinnar sé
ekki markmiö I sjálfri sér, heldur
einungis hagnýt aukaverkun I
heildar þroskaferli, sem örfast
með einstaklingnum þegar hann
tekur aö iðka tæknina.
Þroskaferlið, sem örfað er við
iðkun innhverfrar ihugunar, leið-
ir til svo mikilla og skjótra fram-
fara hjá einstaklingnum, aö með
ólikindum má telja ef marka má
höfund bókarinnar, sem sjálfur er
iðkandi og kennari I tækninni.
Hann telur, að jafnvel þótt ein-
ungis lltill hluti samfélags iðkaði
tæknina reglulega, nægöi það til
að koma I kring ekki aðeins
breytingu til batnaðar á vitundar-
stigi ihugendanna sjálfra, heldur
ylli það stökkbreytingu á vitund
og starfhæfni samfélagsins alls.
Þessu til staöfestingar vitnar höf-
undur til mörg hundruð rann-
sókna, sem geröar hafi verið und-
anfarin átta ár viö þekktar vls-
inda og menntastofnanir viða um
heim, og núna nýlega einnig I ný-
stofnuðum háskóla I Svisslandi,
sem kenndur er við Maharishi,
„upphafsmann innhverfrar Ihug-
unar á okkar tfmum”,
Enn eitt óvenjulegt við efnistök
bókarinnar er hversu nútimaleg
þau eru, auöskilin og laus við þá
dulúð, sem venjulega loöir við
umræðu um andleg og þá sérstak-
lega austurlensk fræði. Þó að I
bókinni sé raunar vitnaö til fjöl-
margra spekinga og visinda-
manna genginna og núlifandi, er
það samt yfirlýst afstaða bæði
höfundar bókarinnar og upphafs-
manns innhverfrar Ihugunar að
setja ekki fram neinar kenningar
eða leiðbeiningar um daglegt llf
manna (Sem út af fyrir sig er
fagnaðarefni þvl aö úr nógu er aö
moða fyrir.) I bókinni er ein-
göngu leitast við aö varpa ljósi á
og skýra meö viðurkenndum að-
ferðum og nútimahugtökum eig-
inleika og eðli sjálfs hugsunarfer-
ilsins sem óháð er innihaldi hugs-
unarinnar og er eins hjá'öllum
mönnum. Þetta er jafnframt skýr
ing á þvl, að innhverf Ihugun og
kenningar um hana geta ekki meö
nokkru móti brotiö I bága viö
neina kenningu eða skoðun
stjórnmálalega, siðferöilega eöa
trúarlega, sem menn kunna að
hafa tileinkað sér á lifinu og til-
verunni og er þvi algjörlega óháö
menntun og menningararfi ihug-
andans. Þvert á móti er bent á að
iðkun innhverfrar Ihugunar muni
beint og óbeint leiöa til þess, að
sértæk menning mismunandi
samfélaga og hópa styrkist með
auknum skýrleik og styrk ein-
staklinganna innan heildarinnar
við iökun tækninnar.
Það er fengur aö þessari bók. Hún
varpar skýru ljósi á þaö einstaka
fyrirbæri I nútimanum, sem inn-
hverf ihugun er. Bókin opnar les-
andanum bjarta framtföarsýn
þar sem skapandi máttur manns-
hugans er nýttur aö fullu, ein-
staklingnum til gleöi og samfé-
laginu til góða.
Sigurþór Aðalsteinsson
arkitekt.
heldur stofnar félagsskap með fá-
mennum hópi manna um tilraun-
ir I þessu skyni.
Sögðu gagnrýnendur þeirra, að
aðalverkefniö væri hins vegar að
vekja upp djöfla og púka og eitt
dagblaðið i Reykjavlk kallað
þennan félagsskap „Drauga-
félagið”. Ýmsum gáfuðum mönn-
um blöskraöi þó þetta ofstæki og
sú vanþekking sem það sýndi, og
snérust til liðs við Einar H.
Kvaran. Langfremstur stuðn-
ingsmanna hans var þó prófessor
I guðfræði við Háskóla Islands,
Haraldur Nielsson, sem frægur
varð fyrir frábæra Islenzka þýð
ingu á Bibllunni, og þá ekki slður
fyrir hrlfandi préfikanir i
Frlkirkjunni, sem iöulega hafði
ekki nægilegt húsrými fyrir
áheyrendur hans. Þessir tveir
menn,sem öll þjóðin virti fyrir
gáfur, ritsnilld og ræðumennsku
urðu stofnendur Sálarrannsókna-
félags Islands þann 19. desember
1918.
Einar H. Kvaran var kosinn
fyrsti forseti félagsins og
Haraldur Nielsson, prófessor
varaforseti. Þessir snjöllu menn
og góðu vinir urðu áhrifamestu og
mikilhæfustu foringjar Sálar-
rannsóknafélagsins meðan þeir
lifðu hér á meöal okkar. Haraldur
lést 1928, en Einar 1938. Hann var
i senn forseti félagsins og ritstjóri
Morguns. sem félagið hóf út-
gáfu á 1920.
Það varö gæfa þess félags hve
margir ritfærir og snjallir menn
fluttu þar erindi og skrifuðu i
timaritið. Af þeim má nefna
ljóðskáldiö Jakob Jóh. Smára,
séra Kristin Danielsson, Indriöa
Einarsson, leikritaskáld, séra
Ragnar E. Kvaran, séra Jakob
Jónsson, dr. theol., Guðmund,
Sigurö Kvaran, lækni séra Svein
Vlking, aö ógleymdum séra Jóni
Auðuns, sem árum saman var
forseti félagsins og ritstjóri
Morguns.
Það hefur frá upphafi veriö til-
gangur félagsins annars vegar,
að ráöa um tlma miöla, erlenda
sem innlenda, og annað fólk með
eftirtektarverða sálræna hæfi-
leika og gera tilraunir með þvi, og
svo hins vegar, að kynna almenn-
inei niðurstöður af innlendum oe
erlendum rannsóknum á sálræn-
um fyrirbærum.Þettahefur verið
gert með mánaöarlegum erind-
um og útgáfustarfsemi.
Þótt leiö forystumanna
spiritismans á Islandi hafi verið
brött og torsótt á stundum, þá
hefur mikið áunnist. Island telst
nú til þeirra landa, þar sem
skoöanir hans njóta einna mestr-
ar viröingar meðal þjóða. Þaö eru
að sjálfsögðu ekki einungis áhrif
ritfærra manna, heldur fyrst og
fremst, aö tsland hefur iðulega
haft á að skipa ómetanlegum
miðlum. Þeir hafa með starfi
slnu getað sannfært fjölda
manna á persónulegan hátt
á sambandsfundum, bœði einka-
fundum og opinberum, þvl hér á
landi hafa einnig verið haldnir
opinberir skyggnilýsingafundir,
sem fyllt hafa stærstu samkomu-
hús landsins og hafa sannfært enn
fleiri.
Starfsamastur þessara miðla
hefur undanfarin fjörutlu ár veriö
Hafsteinn Björnsson, sem lést á
s.l. ári, og er hans þegar sárt
saknað. Hann vakti athygli langt
út fyrir landsteinana fyrir
óvenjulega hæfileika slna, og var
Ameriska sálarrannsóknarfélag-
ið byrjað rannsóknir á hæfileik-
um hans, sem þegar þóttu mjög
merkilegar, en ekki var lokiö.
þegar hann féll frá. En það ei
einmitt hið mikilvægasta, aC
hæfileikar góðra miöla séu
rannsakaðir á visindalegan hátt
af hlutlausum og velmenntuðum
sérfræðingum.
Alyktun Félags íslenskra
iðnrekenda
Hækkun vörugjalds ekki I þágu
iðnaöar
Félag islenskra iðnrekenda varar
við hugmyndum um innborg-
unargjald á húsgögn og innflutn-
ingsgjald á sælgæti.
Félag islenskra iðnrekenda vill
vekja athygli á eftirfarandi
staðreyndum:
1. Hækkun vörugjalds, sem nú er
til meðferðar á Alþingi, þ.e. úr
16% I 18%, kemur Islenskum
iðnaði ekki á nokkurn hátt til
góða. Hér er eingöngu um
tekjuöflun fyrir rikissjóð að
ræða til að mæta tekjutapi
vegna tollalækkana um
áramót.
2. Ekki hefur enn fengist upplýst
til hvaöa ráöstafana rikis-
stjórnin muni grlpa til fyrir
áramót ,til að vega upp á móti
þeirri skerðingu á
samkeppnisstöðu iðnaðarins,
sem felst i tollalækkunum um
áramót.
3. Iðnaðarráöherra hefur
upplýst, að nefnd embættis-
manna, sem skipuð var til að
gera tillögur um hvernig
tryggja eigi samkeppnisstöðu
iðnaðarins, hefur skilað áliti
fyrir nokkru. Ráðherra hefur
hins vegar hvorki greint frá
hverjar séu tillögur nefndar-
innar, né kynnt þær fyrir
Félagi Islenskra iðnrekenda.
4. Varðandi hugmyndir, er fram
hafa komiö um innborgunar-
gjald, t.d. á húsgögn, og
innflutningsgjald á sælgæti og
brauðvörur, vill stjórn Félags
íslenskra iðnrekenda vara
eindregiö við • aðgerðum sem
þessum og telur aö verið sé að
innleiða gamalt haftakerfi,
sem einungis leiði til lakari
llfsafkomu þegar fram I sækir.
Rétt er og aö benda á, að frum-
varp um innflutningsgjald á
sælgæti og brauðvörur var til-
meðferðar á siðasta Alþingi og
mæltu allir framleiðendur
sælgætis gegn samþykkt frum-
varpsins. Er þvl ljóst, aö ráö-
stöfun þessi striöir gegn hags-
munum þessara greina iðn-
aðarins.
5. Félag Islenskra iönrekenda
hefur lagt fram tillögur um
hækkun jöfnunargjalds til aö
vega upp á móti þeim mismun
sem er á starfsaðstööu iðnaðar
og sjávarútvegs. Upphaflega
gerðu tillögur iönrekenda ráö
fyrir, að jöfnunargjald yröi
hækkað um 6.1%. Meö
framkomnu frumvarpi um
gengistryggingu afuröalána
hafa forsendur breyst, þannig
að nú eru gerðar tillögur um
einungis 3.5% hækkun jöfn-
unargjalds I staö 6.1% áður.
Iðnrekendur hafa jafnframt
lagt fram itarlegar tillögur um
iönþróunaraögerðir og leggja
til að tekjum af jöfnunargjaldi
verði varið, til þeirra aögeröa.
Verzlunarráð tslands
hefur sent frá sér eftir-
farandi ályktun um
horfur i atvinnumálum á
árinu 1979:
Fundur stjórnar og
varastjórnar Verzlunarráðs
Islands mótmælir harðlega nýj-
um álögum stjórnvalda á at-
vinnullfið i landinu, sem felast i
stórhækkuöum sköttum samfara
minnkandi tekjum vegna hertra
verölagshafta. Verði boöaöar
skattaálögur staöfestar, telur
Verzlunarráð Islands, að at-
vinnuöryggi landsmanna sé^
stefnt I bráða hættu.
Sú skattheimta, sem nú er I bi-
gerð, er ógnvænleg. Reykjavikur-
borg ráðgerir aö hækka
fasteignaskatta og aðstöðugjöld
um 1400 milljónir króna. Viröast
nú með öllu horfnar áhyggjur af
framtið atvinnullfsins i borginni,
sem allir stjórnmálaflokkar
höfðu fyrir kosningar. Rikis-
valdiö boðar einnig 6000 milljónir
króna i aukna skatta á atvinnu-
vegina, bæði með hækkun tekju-
og eignarskatts og álagningu
nýrra skatta. Þó er ekki langt um
liöið, siðan stjórnvöld álitu, aö at-
vinnuvegirnir væru ófærir um að
greiða umsamið kaup.
íslenzk fyrirtæki nafa á und-
anförnum árum búið við afar
slæm starfsskilyrði vegna
ástandsins i efnahagsmálum.
Margvisleg höft eru enn við lýöi.
Verðbólga hefur með vaxandi
hraöa verið aö knésetja islenzkt
atvinnullf og möguleika þess á út-
vegun fjármagns. Kaupgjalds-
ákvarðanir hafa tiðum verið
óraunhæfar. Tekjustofnar fyrir-
tækja hafa fyrirvaralaust verið
skertir og verömyndunarhöftum
er nú beitt af vaxandi hörku.
Hagur atvinnuveganna hefur þvl
fariö versnandi og standa mörg
6. Nauðsynlegt er aö ítreka I
þessu sambandi, aö til þess að
hækkun jöfnunargjalds leiöi
ekki til neinna verðhækkana
þarf slikt frumvarp að
samþykkjast fyrir áramót.
Ósvaraö er enn með öllu hvaö
rikisstjórnin ætlar að gera til að
bæta islenskum iðnaði upp þá
skertu samkeppnisaðstööu, sem
tollalækkunin nú um áramót
hefur iför meðsér.
fyrirtæki og jafnvel heilar at-
vinnugreinar mjög tæpt um þess-
ar mundir. Þegar skattar eru
auknir I slíku árferði og án nokk-
urs tillits til greiðslugetu atvinnu-
veganna virðist ljóst, að atvinnur
rekstur i eigu einstaklinga og fé-
laga þeirra á skamma framtið
fyrir höndum. Ekki er lengur um
aö ræða skattlagningu tekna
heldur hreina upptöku eigna.
Verzlunarráð íslands hvetur
atvinnurekendur og- samtök
þeirra til að standa þétt saman og
hefja virka baráttu til varnar
framtlð Islenzkra fyrirtækja.
Atvinnurekendur geta ekki
lengur setið aðgerðarlausir og
horft á efnahagslif landsins lagt I
rúst. Framhjá þeirri staðreynd
verður ekki komizt, að atvinnu-
rekendur eiga nú um þaö að velja
að draga saman rekstur fyrir-
tækja sinna og fækka starfsfólki
eða hætta rekstri fyrirtækjanna
alveg. Verzlunarráðið lýsir þvi
allri ábyrgð á yfirvofandi stöðvun
fyrirtækja og atvinnuleysi á
hendur stjórnvöldum vegna
stefnu þeirra I verðlags- og
skattamálum.
Mæðras tyrksnefnd
Kópavogs vill vekja
athygli bæjarbúa á
að girónúmer
nefndarinnar er
66900-8. Nefndin
minnir á þörf sam-
hjálpar bæjarbúa og
eru gjafir undan-
þegnar skatti.
Munið girónúmer
Mæðrastyrks nef nd-
ar Kópavogs 66900-8.
Verslunarráð
íslandsmótmælir