Alþýðublaðið - 23.12.1978, Side 21

Alþýðublaðið - 23.12.1978, Side 21
Laugardagur 23. desember 1978 JÓLABLAÐ 21 Digranesprestakall: Aöfangadagur: Aftansöngur kl. 6. Jóladagur: HátlöarguBsþjónusta kl. 2. Annar jóladagur: Barna- guösþjónusta i safnaöarheimilinu viö Bjarnhólastígkl. 11. Séra Þor- bergur Kristjánsson. Dómkirkjan: Aöfangadagur: Kl. 2, þýsk jóla- guösþjónusta. Séra Þórir Stephensen. kl. 6, aftansöngur. Séra Hjalti Guömundsson. JÓladagur:Kl. 11, hátiöarguösþjónusta. Séra Þórir Stephensen. Kl. 2, hátiöarguös- þjónusta. Séra Hjalti Guömunds- son Annar jóladagur: Kl. 11, hátiöarguösþjónusta. Séra Hjalti Guömundsson. Kl. 2, hátiöar- guösþjónusta. Séra Þórir Stephensen. Kl. 5, dönsk messa. Séra Hreinn Hjartarson. Hafnarbúöum: Aöfangadag kl. 3:30, jólaguösþjónusta. Séra Þór- ir Stephensen. Gleðileg jól og farsælt nýár! Þökkum viðskiptin á liðna árinu. MJÓLKURBÚFLÓAMANNA Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna er frjáls og óháð félagssamtökum hraðfrystihúsaeigenda. Fyrirtækið er stofnað árið 1942 í þeim tilgangi að sjá um eftirfarandi fyrir félagsaðila: # Tilraunir með nýjungar i framleiðslu og sölu sjávarafurða # Markaðsleit # Innkaup nauðsynja SUNNUDAGSLEIÐARI List eða ekki list Fulltrúi Alþýðubandalags og Alþýðuflokks i stjórn Kjarvalsstaða hafa nú um nokkurt skeið deilt um það á hvem hátt haga skuli aðild lista- manna að stjórn hússins. Alþýðubandalagsfulltrúinn hefur viljað tryggja fulltrúum listamanna full réttindi i st jórninni meðan fulltrúi Alþýðuflokksins Sjöfn Sigurbjörnsdóttir hefur ekki talið að svo bæri að gera. Afstaða Alþýðuflokksins i þessu máli mótast hér sem endranær af þeirri stefnumörkun flokksins að sem flestir fái notið þess sem sam- félagið hefur upp á að bjóða. Reynslan hefur sannað að fulltrúar listamanna hafa verið ihaldssamir þegar til þeirra kasta hefur komið i þvi að ákveða hvað sé list og hvað ekki. Ugg- laust má segja að þeim gangi gott eitt til og vilji tryggja að einhverjar lágmarkskröfur séu settar um það hvað til sýningar sé talið hæft. Þrátt fyrir að nauðsyn beri til að gæta þess að staður sem Kjarvalsstaðir njóti virðingar þá má það ekki verða á þann hátt að starfsemi hússins verði helguð markaðskröfum list- boðenda. Hús sem Kjarvalsstaðir á auðvitað að örva fólktillistrænnar sköpunar og tjáningar ekki siður en að miðla list. Þvi miður virðist af- staða listamanna mótast af markaðslögmálum efnishyggjuþjóðfélagsins þar sem framboðinu skal stýrt, neytendur skulu fella sig að þeirri umgjörð sem listamenn ákveða. Það er von borgarfulltrúa Alþýðuflokksins að sú lausn sem endanlega fæst á deilunni við Alþýðubandalagið um Kjarvalsstaði fái tryggt að þar verði áfram hægt að njóta góðrar listar i samræmi við kröfur listamanna en jafnframt að þessi Listagarður Reykvikinga geti unnið gegn þeirri firringu og þvi tilgangsleysi sem svo viða mætir hinum almenna borgara efnis- hygg juþ jóðf élagsins. Hér áður þótti gilt á Islandi að alþýðulist væri góð list og vist er að litið hefði farið fyrir söguþjóðinni ef svo hefði ekki verið. Alþýðu- bandalagið ætti að vinna að þvi með Alþýðu- flokknum að örva fólk til listrænnar þátttöku þannig nýtist húsið á Klambratúninu ekki ein- ungis i þágu útvaldra i þjóðfélagi sem þarf að breyta heldur miklu fremur i þágu þeirra sem breytinganna þarfnast. —BPM

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.