Alþýðublaðið - 14.03.1981, Page 7
Laugardagur 14. mars 1981
7
íhaldið þingar í haust:
Landsfundur ákveðinn
29. okt. -1. nóv.
Á miðstjórnarfundi Sjálf-
stæðisflokksins i fyrradag var
ákvörðun tekin um að halda
landsfund flokksins i haust eða
dagana 29. okt — 1. nóvember.
Nokkur ágreiningur hefur
verið meðal sjálfstæðismanna
um fundartimann, en nú hefur
miðstjórnin tekið af skarið.
Var tillaga þess efnis, að
fundurinn yrði haldinn að
hausti samþykkt með 15 at-
kvæðum gegn 2 og endur-
speglast þar klofningurinn i
röðum sjálfstæðismanna um
stjórnaraðildina. Gunnar
Thoroddsen hefur látið hafa
■’það eftir sér, að eðlilegri
fundartimi væri að vori.
Ekki er ákvæði i lögum
flokksins um á hvaða tima árs
landsfundur skuli haldinn.
Það er hins vegar hefð að hann
hafi verið haldinn að vori og
hefur haustfundur ekki verið
haldinnsiðan árið 1969. Aðeins
tvisvar sinnum á siðustu
tveimur áratugum hefur
landsfundur verið haldinn að
hausti 1961 og 1969.
Litill vafi leikur á þvi, að
miðstjórnin hafi valið þann
kost að halda fundinn að
hausti vegna innbyrðis erfið-
leika i flokksstarfinu sem
rekja má til stjórnaraðildar
sjálfstæðisþingmanna. Vonast
leiðtogar ílokksins eftir þvi, að
stjórnmálaástandið verði
farið að skýrast og unnt verði
að ná breiðari samstöðu
meðal flokksmanna. Kjartan
Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri, segir i viðtali við Mbl i
fyrradag, að menn vonist til
þess, að ná megi samstöðu
innan flokksins fyrir lands-
fund að hausti.
Ölfusárbrú 3
þjóðfélagið ef þetta fólk verður
að yfirgefa byggðina: ég vildi.
gjarnan sjá það reiknað Ut hvað
það kostar.
Ef hinn kosturinn yrði valinn,
að viðhalda og styrkja þessar
smáhafnir, það fá jU allir svona
staðir á landinu stuðning til að
viðhalda höfnunum, þá kostar
það mikið fé. Það kostar mikið
fé að endurbyggja og halda við
tveimur höfnum. Þessi atriði
verða menn lika að hafa i huga.
Það er ekki nóg að einblina á
arðsemi brúarinnar einnar,
heldur verður að lita á þetta i
viðara samhengi. Það má lika
spyrja, hvað kosti að reisa ný
frystihds og skapa atvinnu fyrir
þetta fólk. öll þessi efnisatriði
eru ekki með i þeim arðsemisUt-
reikningum, sem Vegagerðin
gengur Ut frá.
Við þetta bætist svo félagslegi
þátturinn, það er ekki litils
virði, að menn fái að bUa þar
sem þeir eru fæddir og Uppaldir
og geti haft samskipti sin á milli
með eðlilegu vegasambandi.
Nú er gert ráð fyrir þvi i
skýrslu Harðar Blöndal, að
byggingarkostnaður þurfi að
lækka verulega til að brúar-
gerðin verði arðbær fjárfesting
og þá er talað um eina akrein i
þvi sambandi, finnst þér að
menn eigi að skoða þennan
möguleika?
Mér finnst sjálfsagt að skoða
það. En þá verða menn að hafa i
huga ekki bara flutningana
þarna á milli staðanna, heldur
lika flutning frá Selfossi um
brUna til Reykjavikur. Þannig
aðstæður geta skapast, eins og
verið hefur i vetur, að Þrengsla-
vegur verði notaður mikið
þegar ófærð er. Þetta þýðir
aukna umferð og þetta verða
menn að hugsa um lika. Ég tel
auðvitað að það sé miklu betri
lausn að byggja ódýra brU,
heldur en bita i sig mjög dýra
framkvæmd og gera siðan ekki
neit.t. Þ'H
Blaðburðarbörn óskast
á eftirtalda staði
STRAX: -
Borgartún
Hátún-Miötún-Samtún
Skúlagata-Hverfisgata
Skúlatún
Akrasel
Bláskógar
Brekkusel
Alþýðublaðið —
Helgarpósturinn.
að reiðhjól barna eru
best geymd inni að
vetrarlagi. yuMnmwi
FLOKKSSTARF
GOUGLEÐI - GOUGLEÐI
Hin áriega Góugleði kvenfélags Alþýðufiokks I Reykjavik
mun verða haidin mánudaginn 16. mars kl. 8.30 i Iðnó
uppi. Við munum skemmta okkur vel eins og vanalega og
borða góðan mat, og treystum þvi að konur fjölmenni og
taki með sér gesti.
Stjórnin.
Orðsending frá stjórn kjördæmisráðs Al-
þýðuflokksins i Reykjaneskjördæmi.
Fundinum scnt átti að verða 14. mars er frestað um
óákveðinn tima.
Stjórnin.
FLOKKSSTJÓRNARFUNDUR
FLOKKSSTJÓRNARFUNDUR VERÐUR HALDINN
LAUGARDAGINN 14. MARZ KL: 14:00 I IÐNÓ UPPI:
DAGSKRA: STJÓRNARSKRARMALIÐ
FRAMSÖGUMENN: BENEDIKT GRÖNDAL, GYLFI Þ.
GÍSLASON, JÓN BALDVIN HANNIBALSSON.
FORMAÐUR.
Augiýsing um styrki til leiklistarstarfsemi
1 fjárlögum fyrir árið 1981 eru ætlaðar 200.000 kr. til leik-
listarstarfsemi atvinnuleikhúsa, sem ekki hafa sér-
greinda fjárveitingu i fjárlögum.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki af fjárveit-
ingu þessari.
Umsóknum fylgi greinargerð um leikstarfsemi umsækj-
enda á siðastliðnu leikári og áætlun um starfsemi á næsta
leikári, en fyrst og frcmst mun ú thlutun miðuð við leikárið
1. september 1980—31. október 1981.
Reikningsyfirlit og kostnaðaráætlanir fylgi.
Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 10. april 1981.
Menntamálaráðuneytið, 10. mars 1981.
ii! BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STÖÐUR
RÆSTINGAMAÐUR óskast til starfa. Starfið er einkum
fólgið i vinnu með þar til gerðri ræstingavél.
Uppiýsingar gefur ræstingastjóri i sima 81200 (311) milli
kl. 1—2.
Reykjavík, 13. marz 1981.
BORGARSPtTALINN.
Styrkir til háskólanáms í Frakklandi
Franska scndiráðið i Reykjavik hefur tilkynnt að boðnir
séu fram nokkrir nýir styrkir handa tslendingum til há-
skólanáms í Frakklandi háskólaárið 1981—82.
Umsóknum um styrki þessa, ásamt staðfestum afritum
prófskirteina og meðmælum, skal komiö til menntamála-
ráðuneytisins, Ilverfisgötu 6,101 Reykjavlk, fyrir 12. apríl
n.k..
Umsóknareyöublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
12. mars 1981.
i§f ÚTBOÐ
Skíðamiðstöð
Tilboð óskast i að byggja timburskála sklðamiðstöð sem
sveitarfélögin á stór Reykjavikursvæðinu ætla að reisa I
Bláfjöllum. Kjallari með plötu er þegar steyptur en út-
boðið nær til þess að byggja timburskáia fullfrágenginn og
ganga frá kjaliaranum. Utboðsgögn eru afhent á skrif-
stofu vorri Frikirkjuvegi 3 Reykjavik gegn 3000 kr. skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 7. april
n.k. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUNREYKMVIKURBORGAR
Fnkirkjuvegi 3 — Simi 2S800
|jj ÚTBOÐ
Tilboð óskast i röntgen filmur og framköllunarefni fyrir
Borgarspitalann. tJtboðsgögn. eru afhent á skrifstofu
vorri Frikirkjuvegi 3 Reykjavik. Tilboðin verða opnuð á
sama stað miðvikudaginn 22. april kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirlcjuvtgi 3 — Simi 25800
Auglýsing
um lán og styrki til kvikmyndagerðar
Kvikmyndasjóður auglýsir eftir umsóknum um lán og
styrki til kvikmyndagerðar. Umsóknum fylgi kvikmynda-
handrit og/eða grcinargerð um verkefnið og lýsing á þvl,
áætlun um kostnað og fjármögnun, svo og timaáætlun.
Umsóknir sendist: Kvikmyndasjóði, Menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 4, Reykjavik.
Umsóknarfrestur er til 15. aprll 1981.
Reykjavik, 12. niars 1981
Stjórn Kvikmyndasjóðs.
Rafmagnsveitur
ríkisins
óska eítir að ráða ritara. Starfið er fólgið i
vélritun og almennum skrifstofustörfum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un, aldur og fyrri störf sendist starfs-
mannastjóra.
Kafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 118,
Revkjavik.
Tilboð óskast I uppsteypu og utanhússfrágang póst- og
simahúss, Suðurlandsbraut 28, Reykjavik. (Bygging D og
E, 2. útboðsáfangi).
Upplýsingar um verkefnið vcrða veittar á skrifstofu Um-
sýsludeildar, Landsimahúsinu við Austurvöll, þar sem út-
boðsgögn fást afhent gegn skilatryggingu, kr. 2.500.00
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 7. april 1981,
kl. 11 árdegis.
Póst- og símamálastofnunin
RÍKISSPÍTALARNIR
Lausar stöður
KÓPAVOGSHÆLI
FÓSTRA óskast á barnaheimili Kópa-
vogshælis. Upplýsingar gefur for-
stöðumaður barnaheimilisins i sima
44024,.
VÍFILSSTAÐASPÍTALI
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast frá 1.
april n.k. Einnig óskast
H JÚKRUNARFRÆÐINGAR til
sumarafleysinga. Barnaheimili á
staðnum. Upplýsingar gefur hjúkr-
unarframkvæmdastjóri i sima 42800.
MEINATÆKNIR óskast til afleysinga frá
april til 1. september n.k. Upplýsingar
gefur deildarmeinatæknir i sima 42800.
Reykjavik, 15. mars 1981
Skrifstofa rikisspitalanna
Eiriksgötu 5, simi 29000.