Alþýðublaðið - 14.03.1981, Page 8

Alþýðublaðið - 14.03.1981, Page 8
Bryndís Schram skrifar um ballett FULLKOMNUN, EN William J. Tavlor Sovésk ógn á norðurslóðum Laugardaginn 14. marz n.k., flytur bandariskur ofursti prófessor, William J. Taylor jr., fyrirlestur er nefnist Sovésk ógn á norfturslóðum, á vegum Varð- bergs og Samtaka um vestræna samvinnu, (SVS), i Snorrabæ og hefst fundurinn kl. 12.00. Taylor er prófessor i félagsvisindum við hinn kunna bandariska herskóla West Point og jafnframt forstöðu- maður öryggismálarannsókna við sömu stofnun. William J. Taylor er kunnur fyrirlesari á sviði öryggismála við fjölmarga háskóla og aðrar menntastofnanir i Bandarikjun- um og viðar. Hingað kemur hann frá Danmörku, þar sem hann flutti erindi um varnar- og öryggismál á norðurslóðum. Her- foringinn hefur nú nýverið m.a. unnið fyrir Ronald Reagan, Bandarikjaforseta og Þjóðar- öryggisráðið i Washington. William J. Taylor hlaut BS gráðu frá Maryland-háskóla og MA og doktorsnafnbót frá American University, auk þess hefur hann lagt stund á fram- haldsnám við bandariska haákól- ann i' Beirut (Libanon). Hann kennir nú utanrikis- og öryggis- mál við West Point. Hann er fél- agi i Utanrikismálaráði Banda- rikjanna og Alþjóðastofnun hern- aðarmála i Lundúnum. William J. Taylor hefur skrifað mikið að greinum og bókum um varnarmál Vesturlanda. Á þessu ári, 1981, koma þrjár bækur út eftir hann: „American National Security: Policy and progress (John Hopkins Universily Press), „Defense Manpower Planning: Issues for the Eighties (Perga- mum Press), „Toward Under- standing the Northen Theater: Scandinavian Defense Policy De- cision Making” (National De- fense University Press). Meðal helztu ra nnsóknarefna hans sið- ustu ár hafa verið „Low-Intensity Conflict” og Military Man- Power”. Ballet Russe, Sovéskur listdans i Þjóðleikhúsi Það er ekki að hverjum degi, sem ilmurinn af heimsmenning- unni berst inn um bæjardyrnar hjá okkur hér norður við Dumbshaf. En þegar svo ber við, þá fyllumst við andakt og lotningu gagnvart sköpunar- verkinu. Við gleymum bæði stund og stað, látum berast burt frá meðalhófinu i algleymi hrifningar og þakklætis til for- sjónarinnar. Allt i einu er borgin okkar oröin nafli alheimsins. Gestir okkar þessa viku, list- dansarar af hinum ýmsu þjóð- ernum Sovétrikjanna, sýndu okkur á ógleymanlegan hátt, að það er hægt að ná fullkomnun i listsköpuninni, að það er hægt að aga mannslikamann, þar til ekkert verður ómögulegt. Rússar byggja sina dans- mennt á aldagamalli hefð, þar sem aðeins hið bezta er nógu gott. Þeir byggja hana á þrot- lausri vinnu úrvalshópa, þar sem allt er látið vikja fyrir þessu eina — hinni hreinu linu kjarnanum i listsköpuninni. A þennan hátt hafa Rússar eign- azt ódauðlegar stjörnur, nöfn einsog Pavlova, Ulanova, Beri- sova. A þennan hátt munu þeir eignast nýjar Pavlovur, Ula- novur og Berisovur. En þeirra hlutskipti verður ekki að skapa sjálfum sér nafn, heldur aðeins að viðhalda minningu hinna gengnu. Allar munu þær keppa við Palovur fyrri tima. Og þaö er stjörnurnar i Þjóðleikhúsinu lika að gera. Eru þær betri eða verri en Ulanova? Hlutverkin eru þau sömu. Það kemur að- eins maður i manns stað. Undarleg er sú þversögn, að það land, sem kennir sig við byltinguna, skuli i rauninni vera ihaldssamast af öllum. Á meðan aðrar þjóðir reyna að feta sig fram á við, brjóta upp rikjandi hefð og brydda á nýjum túlk- unaraðferðum, virðast Rússar horfa til baka, halda fast i það liðna, þó svo að þeir hafi hvað eftir annað náð algerri full- komnun i túlkun. Það er engu likara en þeir óttist samtið sina. Rómantiskir ballettar Tsjai- kovskis, eins og Svanavatnið, Þyrnirós eða Hnetubrjóturinn, eru að visu draumfagrar barna- sögur, en engu aö siöur órafjarri raunveruleikanum. Þær eru tál- sýn sem hjálpa mönnum til að gleyma um stund, en fullnægja á engan hátt kröfum nútima- fólks. Ef ballett á að gera annað og meira en svala nautnaþorsta óseðjandi fagurkera, þá verður hann að skirskota til samtíðar sinnar, endurspegla rikjandi viðhorf. Eftir heimsókn Rúss- anna erum við engu nær um samtið þeirra eða þjóðfélags- vemleika. ösjálfrátt höllumst við að þeirri skoðun, að þessi glæsilega sýning i Þjóðleikhús- inu sé ef til vill eins konar Pótemkintjöld, blekking, tál- sýn. A meðan fisléttar dansmeyjar flögra um sviðið, reyni ég að lesa úr svip þeirra. Njóta þær liðandi stundar, dansa þær af gleði innri þörf, eða eru þetta kannski liðamótalausar brúður, mótaðar eftir forskrift sóvét- skipulagsins? Hvað eru þær að hugsa, á meðan þær stiga hið fullkomna arabesque? Þrá þær frelsið? Frelsi til að tala, skrifa, dansa að eigin geðþótta? ótal nöfn koma upp i huga mér — Askenasy, Rostropoviss, Nureev, Bukovski, Solzenizin... Hvenær bætast þessar I hópinn? Framhald á 6. siðu. LjddmlU Smorgatsjeva ásamt meðdansara. Tiit Harm f „Anton og Kledptftrn”. A ratsjAnni öðru hverju koma upp meðal þjóðarinnar krisur. Astandið verður skyndilega alvarlegra en það er venjulega og þjóðin rambará barmi glötunar. Þá fær þjóðin að sjá úr hvaða málmi leiðtogar hennar eru steyptir. Undir slikum kringumstæðum, þegar aðgerða er þörf, taka Is- lenskri stjórnmálamenn til hönd- unum og skrifa bréf, skipa nefndir, halda ræður, marka stefnu og hafa áhyggjur almennt. Allt frekar en aö gera eitthvað, eða hugsa. Sumir segja að þetta sé vegna þess, að islenskir stjórn- málamenn séu latir. Það er ekki rétt. Þeir eru hræddir. tslenskir stjórnmálamenn eru nefnilega með þeim ósköpum fæddir, allir sem einn, að þeir sjá aldrei færri hliðar á nokkru máli en tvær. Gott dæmi um það er yfirlýsing Steingrims Hermanns- sonar, sjávarútvegsráðherra þess efnis, að, að sönnu sé togara- flotinn of stór miðað við af- rakstursgetu fiskistofna. en hann sé hinsvegar of litill miðað viö þarfir byggðarlaganna um land allt. Þannig tala islenskir stjórn- málamenn almennt, þvi þeir sjá ætið tvær hliðar a.m.k. á hverju máli. Og þess vegna kúgast þeir af ótta, i hvert sinn, sem þeir sjá fram á aö aögeröa er þörf. Að visu er að finna misvitra stjórnmálamenn viðar en á Is- landi, en varla svo marga saman. Að vi'su skrifa stjórnmálamenn erlendis bréf, skipa nefndir, halda ræður, marka stefnu og þar fram eftir götunum, en það er jafnoft til aö fela það sem þeir eru raunverulega að gera eins og til að fela að þeir eru ekki að gera nokkurn skapaðan hlut. Nú um daginn skrifaði Brésnéf hinn einvaldi i Rússlandi og ný- lendum þess, t.d. bréf til nokk- urra ráðamanna i Vestur-Ev- rópu. Eitt þessara bréfa var stilað á Gunnar Thoroddsen, for- sætisráðherra Islands. Það er margt lfkt með Rússum og íslendingum. Með báðum þjóðum má finna mikla drykkju- menn. Með báðum þjóðum hefur þróast i sögunni, ótrúlegur út- lendingaótti jafnvel útlendinga hatur. Með báðum þjóðum fara stjórnmál þannig fram, að haföar eru kosningar til sýnis en raun- veruleg völd eru I höndum fárra manna. Báðar þjóðir eru miklar bókmenntaþjóðir og virða þess- vegan ritaö orð litils. Og siöast en ekki sist eru báðar þjóöimar undir stjórn öldunga. Þegar öldungurinn Brésnéf skrifar öldungnum Gunnari bréf, má vera ljóst af framansögðu að efni bréfsins þarf ekki að ihafa nokkurn hlut með textann aö gera. Reyndar þarf efni bréfsins ekkert að hafa að gera með það, sem Brésnéf ætlar sér að ná fram, með sendingu þess. Það má hinsvegar geta sér þess til, að þó bæði Gunnar og Leonid séu gamlir, fjalli bréfið ekki um „öldrunarvandamál”. Menn gera ráð fyrir þvi að i bréfinu biöji Léonid Gunnar að lita með velþóknun á afvopnunar- hjal Rússa og jafnvel að Léonid vilji að Gunnar ásamt öðrum þjóðarleiðtogum Evrópu, reyni að tala um fyrir Reagan, sem er öldungur númer þrjú i þessu máli, en hann er forseti Banda- rikjanna, eins og sumir hafa kannski heyrt. Léoníd hefur nefnilega heyrt það ofani Reagan, að Ronni (Reagan) ætli i hermennskuleik og vilji nú búa dáta sina nýjum vopnum. Léonid vill hinsvegar hafa frið i sinum soldátaleik, og finnst Ronni vera að skemma fyrir sér með tilburðunum. Þess vegna talar Léonid mjög um það, að heimsfriðnum stafi ógn af til- burðum Ronna, og það má til sanns vegar færa, að þegar ekki er hafður uppi mótþrói viö yfir- gangi, verður auðvitað ekki ófriður. Ef hinsvegar menn fara að sýna yfirgangi Rússa mót- spyrnu, veröur úr ófriöur, sem er stórhættulegur heimsfriðnum. Þetta sést best i Afghanistan, enda er sagt, að Brésnéf hafi skrifað bréf til skæruliða þar, og beðið þá aö hætta að slást við soldátana sina þvi þeir stofnuðu heimsfriðnum I hættu með þessum ósköpum. En hagspekingur nokkur benti Þagli á aðra hlið á málinu, og skyndilega leið Þagli eins og hann væri orðinn stjórnmálamaöur og farinn að sjá tvöfalt að minnsta kosti. Rússar eru ekki ýkja rikir. Þeir eru reyndar eitt fátækasta heims- veldi sögunnar. Þeir eyða nú þegar stórum hluta þjóðartekna sinna i herbúnað. Ef Bandarikja- menn fara út i kapphlaup við þá, yrðu þeir að eyða meiri hluta þjóðartekna sinna i það hlaup, sem þýddi að minna yrði eftir til skiptanna milli þegnanna, sem ekki búa þó rlkmannlega fyrir. Spekingurinn sagði Þagli, að til- burðirnir I Ronna væru ekki annað en sérlega raffinéruð að- ferð Bandarfkjamanna til að neyta efnahagslegs aflsmunar. Þeir hafa efni á að eyða fé i sol- dátabúnaö, en Rússar I raun og veru ekki. Þessvegna skrifar Brésnéf nú bréfin góðu. Hann fer fram á friö, en i raun og varu er hann aö reyna að forða gjald- þroti. — Þagall HEIMSFRIÐUR EÐA GJALDÞROT Punkturinn frumsýndur 1 gærkvöldi var kvikmyndin Punktur, punktur, komma strik, frumsýnd i Háskólabiói. Kvikmyndin byggir sem kunn- ugt er á metsölubókum Péturs ’Gunnarssonar annarri með sama heiti, hin ber nafnið. Ég um mig, frá mér til min. Þar er stráknum Andra fylgt frá unga aldri fram á unglingsárin, með öllum þeim til- brigðum sem fylgja þvi að upp- götva heiminn. Að myndinni unnu um 300 manns ef allt er talið og ef öllum er innanbrjósts eins og honum Pétri Jónssyni, sem leikur litla strákinn Andra, þá er ekki að efa að eftirvæntingin verður mikil þegar tjaldið verður dregið frá. Pétur sagðist vera spenntur, en gaf lftið út á það hvort hann ætti eftir að verða heimsfrægur kvik- myndaleikari. Háskólakórinn á Vestfjörðum Háskólakórinn mun heimsækja Vestfirði dagana 13—15 mars nk. og halda þrenna tónleika: Flateyri föstudagskvöld 13.03 kl. 21.00 ísafirði laugardag 14.0:. kl. 17.00 Bolungarvik sunnudag 15.03 kl. 17.00 Auk þess syngur Kórinn við messuá ísafirði á sunnudag. Þar prédikar einn kórfélaga stud. theol. Dalla Þórðardóttir. Háskólakórinn hefur ekki áður heimsótt Vestfirði, en fyrir réttu ári fór hann um Austurland og hlaut þar góðar viðtökur. Kórinn hefur einnig farið söng- • ferðir utanlands — til Skotlands 1976 og til Norðurlanda 1979. Kórinn hefur starfað óslitið frá 1973 og er nær eingöngu skipaður fólki, sem nemur við H.I. Lengst af hefur Rut Magnússon stjórnað ; og leiðbeint félögum hans. Háskólakórinn er blandaður kór og fyllti skarð, sem á sinum :■ tima varð þegar karlakórinn „Stúdentakórinn” hætti að starfa i uppúr 1970. Efnisskrá sú, semm kórinn hefur æft i vetur er að langmestu leyti Islensk, jafnframt þvi að vera óvenjuleg og lifleg. Hún s; samanstendur af stúdenta og gleðisöngvum, þjóðlögum, og ný- legum og glænýjum verkum, sem sum hafa ekki verið flutt opinber- lega fyrr en á tónleikum kórsins um sl. mánaðamót. Efnisskráin er einnig nokkuð sér- vestfirsk, þarsem hana prýða verk 5 vestfiskra höfunda, þeirra Jónasar Tómassonar eldra og yngra. Jakobs Hallgrimssonar Jóns Asgeirssonar — og siðast en ekki sizt Hjálmars H. Ragnarssonar, en hann er jafnframt söngstjóri Há- skólakórsins. BOLABÁS „Vinstrimenn báru sigur úr býtum”, sagði I Þjóðviljanum á fimmtudag, daginn eftir að kosiö hafði veriö i Háskólan- um. Sigur vinstrimanna var i þvi fólginn, að þeir misstu meirihlutann, sem þeir hafa haft þar i tiu ár. Við skulum vona að þeir vinni fleiri slika sigra fljótlega.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.