Alþýðublaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 14
14
Föstudagur 1. maí 1981 Alþýðublaðið
Verkamannasamband íslands
sendir meðlimum sinum og verkalýð öll-
um stéttarlegar heillaóskir i tilefni
1. MAÍ
BANDALAG STARFS-
MANNA RÍKIS OG BÆIA
sendir meðlimum sinum og öðrum laun-
þegum árnaðaróskir i tilefni
1. MAÍ
og hvetur til þátttöku i kröfugöngu og úti-
fundi launafólks.
Sendum norðfirskum verkalýð og öðru
vinnandi fólki til sjávar og sveita okkar
bestu heiilaóskir i tilefni
1. MAÍ
KAUPFELAGIÐ FRAM
Neskaupstað.
Sementsverksmiðja ríkisins
sendir öllum launþegum tiflands og sjávar árnaðaróskir i tilefni
1. maí
Sendum viðsldptavinum vorum og landsfólki öllu
bestu kveðjur 1 tilefni af hátlðisdegi verkalýðsins 1.
mai. ’
ÍSTAK
ISLENSKT VERKTAK HF.
Verkfræðingar Verktakar
söfnunarhringur, fjársterk
félagasamsteypa”. Samkvæmt
þvl bér að skilja ásakanir um að
Sambandið og kaupfélögin séu
„auðhringur” þannig, að þau
keppi að þvl markmiði að safna
saman hjá sér sem mestum fé-
gróða og að þeim hafi tekizt dável
ikeppninni að þvi marki. Eins og
vonandi hefur komið fram fyrr á
þessum blöðum, þá væri hér um
að ræða allverulegt fráhvarf frá
samvinnuhugsjóninni, ef satt
reyndist.
Þaö er vissulega rétt, að sam-
vinnumenn leitast jafnan við að
reka fyrirtæki sin þannig að þau
skili tekjuafgangi. Það er lika
rétt, að þeim hefur á liönum árum
oft og tíðum tekizt dável til —
jafnvel ágætlega — I þessum efn-
um. Það stafar meðal annars af
þvi, að samvinnuhreyfingin hefur
i heild verið lánsöm með starfs-
menn og til hennar hefur ráðizt
margtatorkusamtfólk, sem mjög
vel kunni til verka i fyrirtækja-
rekstri. Það skal lika siöur en svo
reynt að draga fjöður yfir það
hér, að i samvinnurekstrinum
hefur safnazt upp verulegt fjár-
magn. Slíkt er reyndar nauðsyn-
legt, þvi að í verzlunar- og at-
vinnurekstri, þarf alltaf aö binda
talsvert fé I húsnæði, áhöldum,
vélum og vörubirgðum. Með hag-
sýnni stjórn hefur tekizt að búa
svo um hnútana, að i samvinnu-
rekstrinum eru fyrir hendi fjár-
munir til að mæta talsverðum
hluta af þessari fjárbindingar-
þörf. Slíkter mjög mikilvægt, þvi
að ella þyrfti að fá þetta fé allt að
láni með tilheyrandi vaxtá-
greiðslum.
Sé með andúð á málin litið, má
vafalaust halda þvi fram, að hér
séu á ferðinni auðsöfnunarsjónar-
mið. En það sem hér skiptir þó
meginmáli er hitt, að gera veröur
greinarmun á gróðasöfnun gróð-
ans vegna annars vegar og upp-
söfnun eðlilegs rekstrarfjár-
magns hins vegar. Sambands-
kaupfélögin hafa I dag meir en 40
þúsund félagsmenn. Árleg um-
setning þeirra hleypur á tugum
miljaröa króna, enda er siður en
svo nokkuð óeðlilegt við þær
tölur, þegar haft er i huga, að þau
munu annast meiri eða minni
vöruútvegun fyrir a.m.k. tvo
þriðju hluta af öllum islenzkum
heimilum, auk allrar afurðasöl-
unnar og annarrar þjónustu sem
þau veita. Þetta er vissulega
viöamikið hlutverk, en þess ber
að gæta, að félögin hafa ekki orðið
sér Uti um það með neins konar
forréttindum, þvert á móti hefur
meginþorri islenzkra neytenda
sýnt það ljóslega áö þeir taka
samvinnuformiö fram yfir önnur
rekstrarsnið þegar til lengdar
lætur. Þetta stafar vafalaust, að
verulegum hluta af þvi, aö fólk
gerir sér ljósa kostiþess, að sam-
vinnufélög flytja ekki burt af
félagssvæöum sinum meö fjár-
magn sitt og atvinnutæki þar
sem kaupmenn aftur á móti geta
flutt sig og uppsafnaöan verzl-
unargróöa sinn til á milli lands-
hluta eftirþvi hvar gróðavonin er
mest. En hitt gefur auga leiö, að I
þessum viðamikla rekstri kaup-
félaganna er þörf fyrir fjárfest-
ingar, sem hljóta aö nema all-
verulegum upphæðum, þegar þær
eru lagöar saman. 1 samvinnu-
félögunum hefur verið lögð
áherzla á aö reyna að safna sem
stærstum hluta af þvi fé, sem þarf
að binda i rekstrinum, i formi
eigin fjármagns. Þetta hefur
gengið misjafnlega sums staðar
vel annars staðar miöur. En
hvergi hefur það gengið svo vel,
að fjármagn hafi safnazt upp um-
fram þarfir. Hvert einasta kaup-
félag myndi vafalaust telja sig
geta notað mun meira eigið fé, en
það hefur nú handa á milli. Þetta
stafar af þvi, að verði tekjuaf-
gangur umfram þarfir hjá sam-
vinnufélögum, þá er hann endur-
greiddur aftur til félagsmann-
anna.
Sömu söguna er að segja um
Sambandið og samstarfsfyrir-
tækin. Þar hafa skipzt á skin og
skúrir um afkomuna, tekjuaf-
gangur og rekstrarhalli. Þessi
fyrirtæki hafa lika getað safnað
að sér nokkru rekstrarf jármagni,
sem þau binda i fasteignum,
tækjum og vörubirgðum. En
ekkert þeirra, ef frá eru talin
tryggingafélögin og Samvinnu-
bankinn, hefur þó safnað að sér
svo miklu fjármagni, að þaö hafi
orðið óháð bankakerfinu um lána-
fyrirgreiðslu. Svo Sambandið sé
tekiö sem dæmi, þá hafa eignir
þess i fasteignum i Reykjavik og
á Akureri alltaf verið mjög hóf-
legar miðað við umsvif. Sam-
bandið hefur ekki safnað að sér
fjármagni til að leggja í iburðar-
miklar verzlunarhallir, heldur
þvert á móti, og það á ekki neinar
stórbyggingar i Reykjavik sem
það leigir út undir óskyldan
rekstur. Sambandið og sam-
starfsfyrirtækin byggja starf sitt
fyrst og siðast á þjónustusjónar-
miöum við almenning. Þaö þýðir,
aö verði fé afgangs i rekstrinum
hjá þeim fram yfir brýnustu
þarfir, þá er það endurgreitt til
viðskiptamanna þeirra, kaup-
félaganna, og siðan gengur það til
félagsmanna þeirra.
Það verður þannig heldur litið
úr auðsöfnunaráróðrinum, þegar
skoðað er niður i kjölinn. Það er
ljóst, að vilji andstæðingar hreyf-
ingarinnar halda þvi fram, að hún
stundi fjársöfnun umfram þarfir,
þá verður á móti að krefjast þess
að þeir sanni mál sitt með örugg-
um dæmum, sem hætt er við að
vefjist fyrir þeim.
Lýðræðið í sam-
vinnufélögunum
Fámennisstjórn, forstjóraveldi
— þetta eru orö sem hvað eftir
annað heyrast i áróðri and-
stæöinganna gegn samvinnu-
félögunum. Þau gefa ástæður til
að hyggja örlitið nánar að þvi,
hvernig hinni lýðræðislegu
stjórnun samvinnufélaganna er
hagað.
Æðsta valdiö i málefnum hvers
kaupfélags fyrig er i höndunn
aðalfundar þess, sem haldinn er
árlega. I smærri kaupfélögum
eiga allir félagsmenn sæti á aðal-
fundi. Stærri félögin eru hins
vegar flest deildaskipt, og eru þá
fyrst haldnir aðalfundir I hverri
deild, þar sem allir félagsmenn á
svæði viðkomandi deildar eiga
réttáfundarsetu. Deildafundirnir
kjósa siðan fulltrúa til setu á
aðalfundi kaupfélagsins. A aðal-
fundum deildanna eru að jafnaði
fluttar skýrslur um rekstur og
stöðu alls félagsins, á sama hátt
og á sjálfum aöalfundi þess, svo
að þar eiga allir félagsmenn
milliliðalausan aögang að upplýs-
ingum um hag félagsins hjá
stjórn og kaupfélagsstjóra. Á
aöalfundi eru skýrslur og reikn-
ingar siöan tekin til endanlegrar
afgreiöslu, og þar eru kosin stjórn
og endurskoðendur félagsins. Þar
eru einnig teknar ákvaröanir um
þau meiri háttar mál, sem fyrir
Vilhjálmur Þdr (1899—1972) stjórnaði umsvifamesta kaupfélagi lands-
ins, KEA, 1923—38. Fór fyrir Sambandinu á miklum breytingatimum.