Alþýðublaðið - 01.05.1981, Qupperneq 19
• • . « , , T
Alþýðublaðið Föstudagur 1. maí 1981
19
ver6a til þess aö auka veröbólgu-
hraöann, þá er meira en vafa-
samt aö samvinnufélögin eigi að
lita á þaö sem hlutverk sitt aö
taka þátt I þeim leik. 1 því sam-
bandi er lika og ekki siöur aö þvi
gætandi, aö veröbólgan stuðlar
meira en flest annaö aö aukinni
misskiptingu auösins i þjóðfélag-
inu. HUn veldur þvi að hinir efn-
aöri — fyrst og fremst þeir sem
eiga umtalsverðar fasteignir —
veröa stööugt rikari, og þaö á
kostnaö hinna, sem fátækari eru.
Þaö væri þvi þvert á öll stefnumiö
samvinnumanna aö veröa sliks
valdandi.
Á Vesturlöndum fylgja sam-
vinnufélögin yfirleitt þeirri stefnu
að greiöa starfsfólki sinu sömu
laun og almennt gerast á vinnu-
markaöinum. Svipaöri stefnu
hefur verið fylgt hér á landi, þ.e.
að reyna að greiða sanngjörn
laun á hverjum tima miðað viö
þaö vinnuálag og þá ábyrgð sem
fylgir hverju starfi, en þó nægi-
lega há tilþess aö samvinnufélög-
in þurfi ekki aö missa af hæfum
starfskröftum vegna of lágra
launa. En jafnframt þessu hafa
samvinnufélögin litiö á þaö sem
skyldu sina aö reyna eftir megni
að forðast allar þær aðgerðir á
vinnumarkaöinum, sem liklegar
væru tilaö auka veröbólguna. Hjá
þeim hefur lika veriö litið svo á,
aö þaö væri ekki eitt af
meginhlutverkum félaganna að
hafa forgöngu um lausn kjara-
mála á hinum almenna vinnu-
markaöi, enda starfar ekki nema
tiltölulega litill hluti af öllu vinn-
andi fólki landsins hjá samvinnu-
félögunum. Skiptir þar megin-
máli sií hlutverkaskipting á milli
verkaiyösfélaga og samvinnu-
félaga, sem fyrr er hér getið.
Verkaiyöshreyfingin hefur hina
beinu kaupgjaldsbaráttu með
höndum, en samvinnuhreyfingin
leitast viö aö vinna aö þvi með
margvislegum rekstri sinum og
þjónustu, aö mönnum veröi sem
mest Ur tekjum sinum. Af þessu
leiöir svo hitt, aö af hvorugum
samtökunum má ætlast til annars
og meira en þess, sem með
sanngirni má teljast réttmætt
eftir starfssviöi þeirra hvorra
fyrir sig.
Þess er einnig aö gæta, aö ýms-
ir samvinnumenn telja, aö verka-
lýöshreyfingin hafi alls ekki tekið
nægilegt tillit til sérstööu sam-
vinnuhreyfingarinnar viö gerö
kjarasamninga. Viöa i nágranna-
löndunum hafa verkalýðsfélögin
þann hátt á, aö þegar til verkfalla
kemur, þá eru þau ekki látin ná til
samvinnufélaga og fyrirtækja"
þeirra. Þetta er gert i ljósi þess,
aö samvinnufélögin eru fjölda-
fyrirtæki almennings, og þvi er
treyst aö þau greiði starfsfólki
sinu jafnan sömu laun og um er
samið annars staöar á vinnu-
markaöinum fyrir sambærileg
störf, án þess aö slikt þurfi að
knyja fram meö verkföllum.
Þennan hátt hefur verkalýös-
hreyfingin hér á landi ekki haft á.
Verkföll hafa jafnan veriö látin
ná til samvinnufyrirtækja ekki
siöur en einkafyrirtækja. Þannig
hefur KRON til dæmis oröiö aö
loka biiðum sinum i verkföllum
verzlunarmanna i Reykjavik, á
sama tima og kaupmenn hafa
getaö afgreitt i eigin verzlunum.
Verkalýöshreyfingin hefur
þannig ekki tekiö tillit til þeirrar
sérstööu samvinnuhreyfingar-
innar varðandi kjaramál sem aö
ofan var lýst.
Kaupfélögin og bændur
Þess gætiralltaf af og til i mál-
flutningi andstæðinganna, aö þeir
haldi þvi fram, aö kaupfélögin og
Sambandiö haldi bændum lands-
ins i járngreipum viöskiptafjötra.
Þá er þvi haldið fram, aö sam-
vinnufélögin skammti bændum
verö fyrir afuröir þeirra og út-
hluti þeim siöan vörum til
heimilisnota eftir eigin geöþótta,
og allt minni þetta kerfi helzt á
athæfi dönsku einokunarkaup-
mannanna fyrr á öldum.
Þessar ásakanir munu ekki sizt
vera til komnar vegna þess fyrir-
komulags aö félagsmenn séu i
reikningsviðskiptum viö félög sin,
sem enn er viöhaldiö hjá mörgum
kaupfélögum einkum þó þeim
sem annast afuröasölu. Þaö felur
isér, aö hver viöskiptamaöur hef-
ur sinn reikning i kaupfélaginu.
Þegar hann leggur afuröir sinar
inn hjá félaginu, t.d. haustdilka,
ulleöa sjavarafla, þá er andviröiö
fært sem inneign á viöskipta-
reikninginn. Þegar svo sami
maöur gerir innkaup sin i verzlun
kaupfélagsins, þá lætur hann
færa andviröiötilskuldar á reikn-
inginn. Vanti hann handbæra
peninga, tekur hann þá lit af
reikningnum, og þurfi hann aö
greiöa gjöld eöa skuldir af ein-
hverju tagi, þá getur hann einnig
beöiö kaupfélagiö aö greiöa þau
Ur reikningi sinum. Safnist hon-
um sparifé getur hann lagt þaö i
reikning i innlánsdeild félagsins,
og þurfi hann á lánafyrirgreiðslu
aö halda, leitar hann sömuleiöis
tilkaupfélagsins. Sé hann aö taka
lán, t.d. úr opinberum sjóöi til
jaröabóta eða vélakaupa, getur
hann lika beöiö kaupfélagiö aö
annast fyrir sig lántökuna og
i skinnaverksmiðjunni á Akureyri.
leggjaupphæöina siðan inn á viö-
skiptareikninginn. Þaö sem hér
er um aö ræöa er þvi i einföldu
máli, aö kaupfelögin taka aö sér
aö sjá um bankaþjónustufyrir fé-
lagsmenn sina. Þetta hlutverk
þeirra hefur lika veriö viöurkennt
á margvislegan hátt i verki af
hálfu hins opinbera á liðnum ár-
um svo aö fullkomlega er réttlæt-
anlegt að lita á kaupfelögin aö
þessu leyti sem hluta af banka-
kerfinu. A viöskiptareikningi i
kaupfélagi og venjulegum ávis-
anareikningi i banka er þannig i
reynd enginn eölismunur.
Það eru fyrst og fremst sögu-
legar ástæöur, sem liggja aö baki
þvi, að kaupfélögin hafa tekið að
sér þaö hlutverk aö veita félags-
mönnum sinum þessa bankaþjón-
ustu og orðiö öörum þræði
rékstrarlánafélög bænda, sem við
þau skipta. Þar til fyrir tiltölu-
lega fáum árum voru bankar og
útibú þeirra ekki nema i nokkrum
af stærstu kaupstööunum. Al-
menningur I sveitum landsins átti
þvi i reynd mjög ógreiðan aögang
aö bankakerfinu, hvort heldur
var til aö ávaxta þar sparifé eöa
"fá 'þarlán.
Kaupfélögin voru hins vegar
miklu viöar. Hlutverk þeirra
var jöfnum höndum vöruútvegun
og afuröasala fyrir sveitafólkið.
Kaupfélögin þurftu lika sjálf á
rekstrarfjármagni aö halda, og
þegar allt þetta fór saman, var
ekki nema eölilegt aö félags-
mennimir beittu þeim lika fyrir
sig á þessu sviöi og bankahlut-
verkiö lenti einnig hjá þeim. Allt
viöskiptalifiö var þá lika miklu
einfaldara i sniöum, en nú tiök-
ast, sem haföi i för meö sér, að
menn þurftu ekki jafnmikið á þvi
aö halda aö hafa peninga hand-
bæra frá degi til dags og slðar
hefur orðiö.
Þetta eru fyrst og fremst
ástæðurnar fyrir þvi, aö þaö hefur
á umliðnum árum komiö i hlut af-
urðasölukaupfélaganna sem fjár-
málastofnana aö sjá um þaö i all-
verulegum mæli að taka afuröa-
lán og rekstrarlán út á sauöfjár-
afuröir hjá bönkum landsins og
endurlána þau siöan til bænda. Af
hálfu ýmissa skammsýnna
manna hefur þetta af og til orðiö
tilefni jafnvel svæsinna árása á
félögin, og hefur þetta þá verið
lagt Ut á þann veg, aö þetta væri
dæmi um viöskiptafjötra kaupfé-
laganna á bændum: þeir fengju
jafnvel ekki aö taka hver i sinu
nafni rekstrarlán til búrekstrar
sins fyrir yfirgangi félaganna.
Hins vegar hefur jafnan komið i
ljós, þegar málin voru skoöuö
nánar, aö tilefni til þessara árása
hafa veriö ærið léttvæg. Kaupfé-
lögin fylgja þeim sið aö greiða
þessi lán beint inn I viöskipta-
reikninga viökomandi bænda, og
eins og áöur segir er enginn eölis-
munur á þeim og venjulegum
bankareikningum. Og þau hafa
gert meira en þetta, þvi aö til
viöbótar hafa þau veitt bændum
verulega lánafyrirgreiöslu aö
vori og sumri út á væntanleg
haustinnlegg þeirra. Þessi lán
hafa þau vitaskuld fjármagnaö
með þvi aÖ taka sjálf viðbótarlán
hjá bönkunum, en á hinn bóginn
er það viðurkennt af samvinnu-
mönnum, aö þessi fyrirgreiösla
sé orðin þaö þungur baggi á kaup-
felögunum og Sambandinu, að
fyrr eöa siöar hljóti aö koma aö
þvi aö hún veröi þeim ofviöa. En
aftur á móti er aö þvi að gæta, aö
rekstur landbúnaöarins, og þá sér
i lagi sauöfjárbúskaparins, hér á
landi er þess eölis, að hann hlýtur
aö þurfa á verulegri lánafyrir-
greiöslu aö halda frá þvi á vorin,
þegar rekstrarvörur eru keyptar,
og til næsta vetrar, þegar and-
viröi kjöts og annarra sláturaf-
uröa fer aö skila sér. Þjónusta
kaupfélaganna viö bændur á
þessu sviöi hefur reynzt þeim þaö
hagkvæm að óskir hafa ekki bor-
iztfrá þeim eða samtökum þeirra
um að henni yröi hætt, heldur
þvert á móti. Þaö hefur þótt
margfalt hagkvæmara og ódyr-
ara i' framkvæmd fyrir bændur aö
geta sótt rekstrarlán sin beint i
viökomandi kaupfelag, heldur en
Cræddur er
geymduteyrir
Með verðtryggingu
sparifjár hefur þetta
gamla orðtak fengið
fullt gildi á ný.
Nú býður Lands-
bankinn þér að ávaxta
sparifé á 6 mánaða
reikningum, verð-
tryggðum og með 1 %
ársvöxtum að auki.
Þannig tryggir æskan
sér framtíð og aldraðir
öryggi.
Sparifé, sem verð-
bólgan vinnur ekki á.
Leggið inn í Lands-
bankann og tryggið
spariféð gegn verðbólg-
unm.
LANDSBANKINN
Baiiki allni lamlsmanm