Alþýðublaðið - 11.06.1981, Side 7
Fimmtudagur 11. júní 1981
.7
ERLENÐ SYRPA
Flothótel
Þessi fimm hæða bygging er
kölluð stærsta flothótel I heimi.
Það var óvenjuleg sjón aö sjá það
sigla út úr höfninni i Hamborg
snemma einn morguninn. Þetta
er fyrsti oliuborpallur sinnar teg-
undar, sem er byggður sem skip,
með lendingarpalli fyrir þyrlur,
sem er settur nærri vistarverum
starfsmanna. Pallurinn sem heit-
ir Fulmar A verður i fyrstu send-
ur til starfa á oliusvæðunum á
Norðursjó. Á honum er einskonar
fjöörunarsystem, sem gerir það
að verkum, að starfsmenn munu
varla taka eftir hristingnum og
hávaðanum, sem venjulega fylg-
ir oliuborun á sjó. Um borð er
meira að segja kvennasnyrting,
sem er liklega fyrsta snyrtiher-
bergi þeirrar tegundar um borð i
oliuborpalli, en slikir vinnustaðir
hafa hingaðtil verið fráteknir fyr-
ir karlmenn.
Olía við Norður-Noreg?
Merki um oliulindir hafa fund-
ist á rannsóknarsvæðum undan
Norður-Noregi. Bæði Norsk
Hydro og rikisfyrirtækið Statoil
hafa tilkynnt um slika fundi á
þessu svæði.
Norsk Hydro tilraunaboranirn-
ar báru fyrst árangur, með ann-
arri holu sem boruð var, á
Tromsö svæðinu. Þar fundust
merki um oliu á 2000 metra dýpi.
Ekki er hægt að segja til um
hversu stórar þær lindir eru fyrr
en búið er að bora niöur á 5000
metra dýpi, samkvæmt áætlun,
en það mun verða I ágúst. Sér-
fræðingar eru vongóðir um að
þarna séu lindir undir, enda allar
aðstæður hagstæðar.
Fyrirtækið Statoil fann siðan
svipuð merki á stað ekki langt frá
borholu Hydro. Enn er ekki hægt
að sjá hvort þar er um að ræða
gas eða ollu, eöa hversu stórar
lindirnar eru.
Talsmenn fyrirtækjanna vilja
ekki vera óhóflega bjartsýnir, en
samt er það uppörvandi að finna
strax merki um lindir, þegar rétt
nýlega er byrjað að kanna svæð-
ið. Sérlega þegar haft er i huga að
á svipuðum svæðum sunnan 62.
breiddargráðu tók allt að 33 bor-
holur að finna lindirnar.
liipl |§
13iiÍo
14 skífa klukka og klukka án skífu
Þessi klukka er 100 ára gömul,
og eigandi hennar, sem er veit-
ingamaður i Bæjaralandi er ákaf-
lega hreykinn af henni. Það er
sagt að klukkan sé stærsta tima-
mælitæki sinnar tegundar i heim-
inum, Eigandinn, Anton Riétz
segir að klukkan vegi um 1400 klló
og hafi 14 skifur. Fjórar þeirra
sýna hvað timanum liður i Berlin,
Vin, MTinchen og Paris.
En þessi klukka Verður aidrei
jafn nákvæm og stærsta klukka
heims, sem verður tengd við sjón-
varpsturninn i Dusseldorf i' mars
1982. Sú klukka verður tengd við
atómisku klukkuna i Brunswick,
sem er talin nákvæmasta klukka i
heimi. Dusseldorf kiukkan verður
ekki með hringlaga skifu eins og
venjulegar klukkur, heldur mun
hún hafa skifu, svipaða og á hita-
mæli, nema hvaö heldur stærri.
Hún mun vérða um 120 metrar á
hæð, en turninn, sem hún verður
á, mun verða 225 metrar á hæð.
Fiðlusmíðar
Þessi maður heitir Hubert
Schnorr, og er fiðlusmiður. Hann
býr i Hamborg. Vinnustofa hans
er i þeim hluta miðborgarinnar,
þar sem strætin eru þröng og
húsið gömul. Ferðamenn koma
þangað ekki mikið, en frægir tón-
listarmenn og tónlistarunnendur
þekkja staðinn. Safnari frá
Bandarikjunum kom nýlega með
þrjár Stradivariusarfiðlur þang-
að til viðgerðar, en hver þeirra
kostar meira en 300.000 þýsk
mörk. Fiðlusmiðurinn Schnorr
hefur mest að gera á sumrin,
þegar konsertvertiðinni er lokið i
Evrópu. Þá gerir hann við fiölur,
viólur og selló. Kona hans, Al-
wera er einnig lærður fiðlu-
smiður, og þau eru liklega eina
parið i þessum bransa.
Fiskverð
8
1 fréttatilkynningu frá aðal-
fundi S.H. segir um þessi mál:
„Nýlega hefur orðið umtalsverð
hækkun á markaðsverði frystra
fiskafuröa I Bandarikjunum, en
þegar litið er til heildarfram-
leiöslu, þá nemur þessi hækkun
rétt rúmlega þeirri upphæð, sem
Verðjöfnunarsjóöur hafði skuld-
bundiö sig til að greiöa á fram-
leiðslu timabilsins 1. janúar til 31.
maiá ári. Þessi verðhækkun bæt-
irþvlekki afkomu frystihúsanna,
heldur losar hún Veröjöfnunar-
sjóð við greiðslur.
Nýafstaðin gengisbreyting nam
um 4%, hrekkur þvi ekki til aö
jafna það tap, sem frystingin hef-
ur búið við undanfarið.
NU er komin til framkvæmda
8% hækkun vinnulauna og nýtt
fiskverð á aö taka gildi frá 1. þ.m.
Það er ljóst, að frystingin getur
ekki tekið á sig hækkanir þessara
kostnaðarliða, nema að fá það
bætt I auknum tekjum með rétt
skráðu gengi.”
Með öðrum oröum: Sölumið-
stöðin Itrekar, aö fyrirtæki á
hennar snærum geti ekki tekið á
sig þá átta prósent fiskverðs-
hækkun nema þvi aðeins að geng-
iö verði „rétt skráð”, þ.e., að
gengið verði fellt. Alþýðublaöið
spurði Jón Orm Halldórsson, að-
stoöarmann forsætisráðherra um
þaö hvort gengið yrði fellt i kjöl-
far fiskverðshækkunar: „Gengið
er ekki alfarið miðað við f iskverð.
Þar er einnig tekið mið af öðrum
þáttum. Þessi leiðrétting á gengi
sem gerð var fyrir stuttu var
vegna iðnaðarins i landinu, en
gengi Islenzku krónunnar hefur
sem kunnugt er hækkað I saman-
burði við ýmsa Evrópugjald-
miðla. Þetta þurfti þvl að leið-
rétta. Gengið verður ekki fellt
vegna fiskverðsákvörðunarinn-
ar. ”
Þaö er þvi ljóst, að frystihúsun-
um verða ekki tryggðar meiri
tekjur með gengisfellingu. Þau
verða áfram rekin með halla, að
sögn forystumanna fiskvinnsl-
unnar. Ekkert liggur fyrir um
viðbrögð fiskkaupenda við þessu
ástandi. Þeir greiddu sem kunn-
ugt er atkvæði gegn hækkun fisk-
verðsins. Það má hins vegar bú-
ast við þvi að þeir geri allt sem i
þeirra valdi stendur til aö tryggja
rekstur fyrirtækjanna. Þeir hafa
gert það áður.
Reykingar
8
vinnustað. En fyrir menn i sum-
um störfum dregur það litið úr
hættunni að reykja eingöngu ut-
an vinnu. Hin samverkandi
áhrif minnka ekki nóg viö það.
Vissulega þarf einnig aö kapp-
kosta að draga sem mest úr allri
mengun á vinnustöðum, en slik-
ar aðgerðir hafa I sumum tilvik-
um lítið að segja, ef starfs-
mennirnir reykja.
Helstu heimildir:
1. Adverse Health Effects of
Smoking and the Occupational
Enviroment. NIOSH Current
Intelligence Bulletin 31. U.S.
Department of Health, Edu-
cation and WelfareNIOSH Pub.
No. 79-122, 1979.
2. Kotin P., Gaul L.A.
Smoking in the Workplace: A
Hazard Ignored. Am. Journal of
Public Health. June 1980, Vol.
70, No. 6,575—575.
3. - Selikoff I.J., Hammond
E.C. and Cheng J.: Asbestos
Exposure, Smoking and
Neoplasia. JAMA 1968, 204
106—112.
i byrjun september verður farin þriggja vikna ferð tii St.
Petersburg Florida.
Fararstjóri Arni G. Stefánsson.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Aiþýðuflokksins I sima
15020.
Tækniframfarir \ þriðja heiminum
Þaö verður sifellt nauðsynlegra
að auka fjölbreytni i landbúnaöi i
þriðja heiminum. Nú er það ekki
lengur eina mælistikan, hversu
margir traktorar eru, hve mikið
land lagt undir plóg, hversu mikl-
ar áveitur eru, eða hve mikið nýtt
land brotið til ræktar.
Sem dæmi má nefna nýjustu
aðferðir við meðferö og geymslu
fæðu. 1 löndum, sem flytja út pip-
ar, svo sem Indland, Indónesia,
Madagascar og Brazilia, eru sér-
fræöingar að hjálpa bændum að
koma upp aöstööu, sem gerir
þeim fært að flytja út grænan pip-
ar, ferskan, en ekki þurrkaðan.
Verð á grænum pipar er allt að tiu
sinnum hærra en á þurrkuðum
pipar.
Þá er nú unniö að svipuöu verk-
efni i Ghana, en þar er meginupp-
skera innfæddra bananar. Nú er
hægt að fá banana allan ársins
hring, til matreiðslu, en ekki að-
eins um uppskerutimann.
í Indlandi, þar sem þýskir sér-
fræðingar hafa unnið að aðstoð
við ræktun ávaxta og grænmetis,
hafa þeir i framhaldi af þvi fundiö
upp verkunaraöferð, sem vinnur
sterkt engifer úr úrgangi. Þessi
vara viröist ætla að seljast ótrú-
lega vel.
Þá hefur verið unnið mikið að
bambustæknimálum. Viða I hita-
beltinu er bambus eina bygging-
arefnið og einnig notaöur viö
vopnaframleiðslu og skipasmiö-
ar, fyrir nú utan notkun i matar-
gerð, en ktnverskir bambus
sprotar eru sælgæti. Hafa menn
hinsvegar heyrt rætt um
grammófónnálar úr bambus?
Einusinni voru þær framleidd-
ar I stórum stil, en stereóæöið
hefur gengið frá þeim markaði.
Þó flytja Japanir um 15 milljón
bambusstengur til Evrópurikja
og Bandarikjanna á ári hverju.
Bambus vex mjög hratt, i Sri
Lanka vex hann allt að 40 senti-
metFa á dag. Hann getur verið
mjög hentugt hráefni i ýmisskon-
ar smáiðnaði.
En hvað með bambusstein-
steypu? Þ.e.a.s. steinsteypa
styrkt með bambus i stað stáls.
Það hefur verið reynt og gefist
ágætlega. Þá eru bambusstengur
notaðar i pipulögnum. Og það er
auðvitað hægt að búa til papplr úr
þeim.
Laus staða
Staða kcnnara i eðlis- og efnafræði á framhaldsskólastigi
við Kvennaskólann i Reykjavik er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt iaunakerfi starfsmanna rikisins.
'Umsóknir ásamt itarlegum upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist skólastjóra fyrir 10. júli nk.
Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
10. júni 1981.
fj| ÚTBOÐ
Tilboð óskast i biiyggjuhlifar við Klepps-
bakka fyrir Reykjavikurhöfn.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri
að Frikirkjuvegi 3. Tilboðin verða opnuð á
sama stað þriðjudaginn 14. júli 1981 kl. 11
fh.
IþfNKÁUPASTOfNUN REYKTAVÍKU.RBORGÁR
Fnknk|uvegi 3 — Sim. 25300