Alþýðublaðið - 30.06.1981, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 30.06.1981, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 30. júní 1981. 5 lÚEiindum íonno.skipt Annað eldsneyti er flug- steinolío ). is konar tækni sem fyrir hendi er til þess að afla sér viðbótarorku i kuldaköstum. útsala eða niður- greiðsla á raforku til hitunar leysir engan vanda heldur aðeins flytur hann til. Viðfangsefnið er að gera rafhitunina fjárhagslega hagkvæma bæði fyrir notendur og raforkuiðnaðinn. Orkuverð eldri hitaveitnanna er nú með öllu öraunhæft og hefur letjandi áhrif á orkusparandi að- gerðir húseigenda. Það hefur i för með sér orkubruðl og aukinn þrýsting um stöðugt nýja vatns- öflun til veitnanna. Orkunotkun i íönaöi er annar meginþáttur i orkubúskap okkar. Á þvi sviði er verulega orku að vinna með bættri hönnun og stýr- ingu hvers kyns vélbúnaðar. Um allan heim einbeita menn sér nú að þvi að minnka þá orku, er nauðsynleg er til iðnaðarfram- leiðslu og jafnframt er leitað leiða til að nýta betur afgangsvarma, sem áður hefur verið leiddur brott með kælivatni eða lofti. Sem dæmi um þetta má nefna, að nýlega eru komnir á markað rafhreyflar með 10—15% betri raforkunýtingu en eldri gerðir og i hinum svonefnda „orkufreka” iðnaði hefur tekizt að lækka orku- þörfina pr. tonn af framleiðslu verulega jafnframt þvi, sem út- blástursvarmi hefur verið nýttur til húshitunar eða raforkufram- leiðslu. örtölvutæknin skapar nýja möguleika á nákvæmari stýringu og orkusparnaði. Ég hef áður minnst á oliunotk- un fiskim jölsverksmiðja, en orkunotkun islenzku verksmiðj- anna hefur verið með þvi mesta sem þekkist eða um 70 kg af oliu á hvert tonn hráefnis að meðaltali og er þá raforkunotkun verk- smiðjanna ekki talin. Vitað er hvernig lækka má oliu- notkunina i um 40 kg. af oliu pr. tonn af hráefni og er nú stefnt að þvi takmarki eins hratt og fjár- hagslega geta verksmiðjanna leyfir. Einhverntima kemur að þvi að breyta verður um orkugjafa við þurrkun fiskimjöls, en vegna lélegrar nýtingar hámarksafls- ins, sem til þurrkunar þarf er lik- legt að kol fremur en raforka komi i stað oliunnar. Frystiiðnaðurinn er mikilvæg- ur þáttur i atvinnulifi okkar og verulega stór raforkukaupandi. Athuganir i Færeyjum og i Noregi sýia að verulega er hægt að minnka orkuþörf frystihúsa með bættri stýringu véla, endurbótum á einangrun frystiklefa og fleiri atriðum. Jafnframt er hægt að endurvinna þann varma, sem leiddur er burt úr hráefninu við frystingu. bannig ætti frystihús, sem vinnur úr ca. 4000—5000 tonn- um á ári að geta gefið varma sem nægir til upphitunar á vinnslusöl- um frystihússins auk ca. 80 vel einangraðra ibúðarhúsa. 0 • ' í' f f : Mitterrand við skrifborö forsetans f Elyseehöll. VIÐTAL VIÐ JAQUES MEGIN VIÐFANGSEFNIÐ ER AÐ finna öllum ssar* atvinnu A nýjan leik Jacques Deiors, hinn nýi fjármálaráðherra i rikisstjórn jafnað- armanna i Frakklandi er 55 ára gamall. Hann gekk i Jafnaðar- mannaflokkinn árið 1974 og hefur á seinni árum verið einn af nán- ustu ráðgjöfum Mitterrands. Helztu markmið Mitterrand-stjórnar- innar i efnahagsmálum eru að binda endi á atvinnuleysið og auka hagvöxt. Margir veita þvi fyrir sér, hvaða ráðum franskir jafnaðar- menn munieinkum beita til þess að ná þessum markmiðum. Ýmsir hafa látið i ljós efasemdir um að stytting vinnuvikunnar, lækkun líf- eyrisaldurs og f jölgun opinberra starfsmanna verði tii annars, en að hækka verð á útflutningsvörum Frakka, og auka viðskiptahalla og verðbólgu. Ljóst er að franskir jafnaðarmenn hafna þröngum pen- ingamagnskenningum, sem nú einkenna mjög hagstjórn i Banda- rikjunum og á Bretlandseyjum. Frakkar voru seinir til þess aö upp- götva Keynesíska hagfræði. Franskir jafnaðarmenn viröast hins vegar nú vera eindregnir Keynesistar. Hér fer á eftir viðtal sem bandariska timaritið Newsweek átti við hinn nýja fjármálaráð- herra. „Vidtal um efnahagsstefnu nýju rikisstjórnarinnar i Frakklandi og samskipti franskra jafnaðarmanna við Reagan-stjórnina í Washington” SPURNING: 1 hverju er hinn „nýi sti'll” franskra jafnaðar manna einkum fólginn? SVAR: Við erum evrópskir sósialdemókratar. Við höfum aðlagað stefnu okkar raunveru- leikanum i frönsku þjóðfélagi á okkar timum. Sögulega séð hef- ur franskt þjóðfélag einkennzt af mjög öflugu rikiskerfi og óhóflegri sammiðjun valdsins. Þegar við tölum um sósialiska sjálfstjórn, þá meinum viö þjóð- félag þar sem valdinu er dreift og fjölbreytni rikir. SPURNING: Þið höföuð i kosningabaráttunni mjög á orði hugtök eins og: „Að lifa öðru visi”. Hvað þýðir það? SVAR: Hægri stjórnin i Frakklandi stefndi i áttina að þjóðfélagi „tveggja þjóða”. Annars vegar var minnihluti þjóðarinnar sem naut hárra launa og mikillar félagslegrar virðingar. Hins vegar var af- gangurinn af þjóðfélaginu: All- ur almenningur lék aðeins aukahlutverk og gat ekki gert miklar kröfur. Hvorki varðandi tekjur, atvinnuöryggi eða fé- lagsleg réttindi. Við gerum okk- ur grein fyrir þeim takmörkun- um sem erfitt efnahagsástand setur okkur. En við munum vinna gegn þessu tviskipta þjóð- félagi efnahagslegra og félags- legra forréttinda annars vegar og annarsflokks borgara hins vegar. „Að lifa öðru visi” merk- ir þá þjóðfélag, sem einstakl- ingarnir geta sagt um með góðri samvisku: „Ég hef minu já- kvæða hlutverki að gegna”. SPURNING: Gagnrýnendur halda þvi fram, að Frakkland hafi ekki efni á að borga reikn- inginn, sem útgjaldaáform ykk- ar kosta? SVAR: A þeim fáu vikum sem við höfum verið við völd, höfum viö gert þrenns konar ráðstaf- anir til þess að koma þjóöinni aftur til starfa. Fyrsta aðgerðin — hækkun lágmarkslauna og bótagreiðslna tryggingakerfis- ins —• var gerð i nafni félags- legrar samstöðu. Annað skrefið snerist um þaö að fjölga störf- um. Þriðja atriðið — lækkun vaxta á rekstrarlánum iðnaðar- ins — er hugsuð til þess að auð- velda iðnfyrirtækjum aö komast i gegn um stundarerfiðleika og til þess að hvetja þau til fjár- festingar á ný. Til samans leiða þessar aðgerðir til um það bil 1% örari vaxtar þjóðarfram- leiðslu en ella hefði orðiö. Við munum ekki setja franskt efna- hagslif úr skorðum. Við höfum tekið i arf hagkerfi, sem ekki ' var i jafnvægi. Viö stefnum aö þvi að koma þvi i jafnvægi á ný. SPURNING: Iðnrikin eiga nú Pierre Mauroy, forsætisráð- herra Frakklands. við efnahagserfiðleika aö etja og samdráttar gætir i heimsviö- skiptum. Setur þetta ykkur ekki stólinn fyrir dyrnar varðandi vöxt þjóöarframleiöslu? SVAR: A okkar timum má merkja einkum tvo hugmynda- fræðilega skóla, sem ráða af- stöðunni til þessarar spurning- ar. Fyrri skoðanahópurinn set- ur baráttuna gegn verðbólgunni iöndvegi. Ný störf verða ekki til fyrr en árangur hefur náöst i þeirri baráttu. Hinn skólinn, sem við erum aldir upp i, kennir að við verðum að berjast gegn verðbólgu og atvinnuleysi sam- timis. Enginn — og það á vissu- lega ekki viö um okkur jafnað- armenn — hugsar um þessi mál út frá hugmyndunum annað Jaques Delors: „Við erum and- vigir tviskiptu þjóðfélagi veli- auðugrar forréttindastéttar annars vegar og annarsflokks borgara hins vegar”. hvort — eða. Við viljum við- halda opnu og virku markaðs- kerfi og leggja fram okkar skerf til þess að stuðla að nýjum hag- vextii'hinu evrópska hagkerfi. SPURNING: Hafið þið orðið varir verulegs fjárflótta frá Frakklandi siðan þið komuð til valda? SVAR: Nei. Fyrst i stað gætti nokkurrar spákaupmennsku gegn frankanum. Annars vegar vegna hárra vaxta i Bandarikj- unum og hins vegar vegna þess aö kjör Mitterrands forseta kom viöskiptaheiminum i opna skjöldu. Við höfum siðan gert nauðsynlegar ráöstafanir til þess að binda endi á þessa spá- kaupmennsku. Hlutirnir eru ’<ndir stjórn. SPURNING: Munu hinir háu vextir i Bandarikjunum draga úr vilja Evrópumanna til þess að standa við skuldbindingar sinar um útgjöld til varnar- mála? SVAR: Mitterrand hefur þeg- ar fullvissað alla um aö Frakk- ar munu standa við allar skuld- bindingar sinar i varnarmálum. Enginn annar ieiðtogi i Evrópu hefur verið eins einbeittur og af- dráttarlaus i andstöðu gegn út- þensiustefnu Ráðstjórnarrikj- anna Tilhneiginga til hlutleysis gætir hins vegar i öðrum Evr- ópulöndum. Við verðum að gæta þess að samdráttur i efnahags- lifinu verði ekki til þess aö draga úr vilja og getu Evrópu- þjóða til árangursriks sam- starfs i varnarmálum. SPURNING3 Getur þú lýst fyrir okkur hversu umfangs- miklar þjóðnýtingaráætlanir ykkar eru og hversu hratt þær koma til framkvæmda? SVAR: Það er of snemmt að svara þvi. Nefna má að þrir þjóönýttir franskir bankar — Société Génerale, Banque Nat- ional de Paris og Le Credit Lyonnaise — eru meðal fimmtiu stærstu banka i heimi. Renault, sem er einn af allra stærstu bilaframleiðslusamsteypum heimsins er rikisrekið. Þarna eru okkar fyrirmyndir. SPURNING: Verður þessi stefna ykkar ekki til þess að drepa i dróma frumkvæöi ein- staklinga og vilja til samkeppni i þágu neytenda? SVAR: Alls ekki. Við stefnum alls ekki að rikisforræði eða rik- iseinokun. Það er leniniskt hug- tak. Viö visum þvi gersamlega á bug. Við erum einnig gegn alls herjar rikisreknu velferðarkerfi frá vöggu til grafar. Markmið okkar meö takmarkaðri þjóö- nýtingu er að leysa ákveðin iðn- rekstrarvandamál, ekki að binda þau i hnút. SPURNING: Hvað er fram- undan i samskiptum Frakka og Bandarikjamanna? SVAR: Mitterrand mun reyn- ast hreinkilinn en traustur bandamaður i skiptum sinum við ykkur. Bandarikjamenn kunna að vera dálitiö ruglaðir i riminu vegna þess sem gerzt hefur i Frakklandi. Þeim er hollt að hafa i huga að hér i landi hafa ekki orðið raunveruleg stjórnarskipti i 23 ár. Banda- rikjamenn eru vanir stjórnar- skiptum. Eftirað við höfum lagt dálitið að okkur til þess að skilja betur hver annan, þá er ég þess fullviss aö samstarfið mun ganga prýöilega. (JBH — endursagöi)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.