Alþýðublaðið - 30.09.1981, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 30. september 1981
3
-i IR-j
KLIPPfl in!
Skortur á hjúkrunar-
fræðingum hefur verið tilfinn-
anlegur siðustu mánuðina og
er ástandið mjög alvarlegt.
Vinnuálag á þeim hjúkrunar-
fræðingum, sem við störf eru,
er meira en góðu hófi gegnir.
Úrklippan er úr viðtölum
Morgunblaðsins við tvo
hjúkrunarfræðinga, sem lýsa
ástandinu.
„HELSTA orsökin fyrir
hjúkrunarfræðingaskortinum
eru lág laun en i öðru lagi er
það hið geysilega vinnuálag,
sem skapast meðal annars af
því að það eru allt of fáar
stöðuheimildir fyrir hjúkr-
unarfræðinga á flestum
sjúkrahúsunum,” saj$i Lilja
Os,karsdóttir hjúkrunar-
fræðingur.
Þar eð mikil vöntun er á
hjúkrunarfræðingum, þá eru
stöðurnar oft mannaðar af
hjúkrunarfræðingum, sem
taka á sig aukavaktir og geta
aukavaktirnar fariðuppi'hálf
mánaðarlaun hjá hjúkrunar-
fræðingi. Þegar svo er komið
hlýtur eitthvað að vera að
þessu kerfi.
Samfara vinnuálagi kemur
mikil ábyrgð, þvi hjúkrunar-
fræðingarsem eruá vaktbera
ábyrgð á velliðan sinna sjúk-
linga. Þeir verða að meta
hverju sinni liðan sjúklingsins
og hvenær á að kalla á lækni.
Hjúkrunarfræðingarnir geta
aldrei farið út af deildinni, en
það geta læknarnir aftur á
móti. Þeir geta til dæmis farið
heimtil sin og látið siðan kalla
á sig, ef m eð þarf eða þeir fara
inn á sina skrifstofu og leggja
sig. Það er lika spurning,
hvort að hjúkrunarfræðingar
eru ekki biínir að koma lækn-
um upp á að taka af þeim ýmis
störf, en hjúkrunarfræðingar
eiga alls ekki að vera neinir
handlangarar fyrir lækna
heldur eru þeir sjálfetæð stétt
sem ber ábyrgð á hjúkrunar-
meðferðinni samkvæmt lög-
um. ,
Fleiri atriði en lág laun og
vinnuálag valda þvi að vöntun
er á hjúkrunarfræðingum til
starfa. Vaktavinna er til
dæmis afar þreytandi til
lengdar. Það er slæmt fyrir
likamsstarfsemina að skipta
sifellt um svefntima auk þess
sem það samrýmis ekki reglu-
bundnu heimilislifi og fjöl-
skyldulífi eða bara venjuleg-
um samskiptum við annað
fólk að vinna vaktavinnu ár
eftir ár.
Vegna þessara atriða sem
ég hef nefnt hér og ýmissa
fleiri, þá er svo komið að til
dæmis giftar konur með börn
sjá litinn tilgang með þvi að
vinna sem hjúkrunar-
fræðingar og ég veit lika til
þess að ýmsir hafa farið Ut i
önnur störf, sem eru þá betur
launuð,” sagði Lilja Óskars-
dóttir að lokum.
„HELSTA orsökin fyrir
hjúkrunarskortinum eru lág
laun. Ef ég tek sjálfan mig
sem dæmi, þá hef ég oft orið
að vinna 60—80 yfirvinnutíma
á mánuði til að endar næðu
saman, enda er ég með stóra
fjölskyldu en börnin okkar eru
fjögur og kouan mín hefur
ekki unnið úti fyrr en i
sumar,” sagði Jóhann
Marinósson, svæfingarhjúkr-
unarfræðingur á Landakoti.
t öðru lagi þá er hér um gíf-
urlegt vinnuálag að ræða, auk
þess sem mikil ábyrgð fylgir
starfinu. Þegar vitað er af
þessu vinnuálagi, þá vill fólk
siður taka að sér þessi störf.
í þriðja lagi, þá tel ég að það
myndi laða hjúkrunarfólk
meira að starfinu ef kostur
væri á barnagæslu, en eins og
nú er, þá eru langir biðlistar á
flestum dagheimilum, sem
rekin eru af spítulunum.
I fjórða lagi þá tel ég að
hjúkrunarfræðingar séu i
auknum mæli að fara út i sér-
nám og þvi vanti almenna
h jú k r u n.a rf ræ ð in ga á
spitalana. Sókn i sérnám
skapast meðal annars af þvi,
að mi'nu áliti, að hjúkrunar-
fræðingar vilja losna við
vaktavinnuna, sem er afar
þreytandi til lengdar.
Styrking Bandarikjadollars
um þrjátiu prósent á einu ári i
samanburði við Evrópugjald-
miðla hefur skipt sköpum fyrir
islenskan þjóðarbúskap.
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, má þakka það mann-
inum i Hvita húsinu, að við-
skiptakjör Islenska þjóöar-
búsins hafa stórbatnað á yfir-
standandi ári. Svavar, Ragnar
og Hjörieifur mega þakka það,
ekki sjálfum sér, heldur læri-
sveini Friedmans I Hvita
húsinu, að verðbólguhraðinn á
íslandi hefur um skeið verið á
Fiskverð á erlendum
mörkuðum hefur hækkað veru-
lega i erlendri mynt.
Mestu máli skiptir þó, aö
dollarinn hefur hækkað i verði
um og yfir þrjátiu prósent
miðað við flesta þá gjaldmiðla
aðra, sem þýðingu hafa fyrir
okkur.
Fæstir gera sér til hlitar
grein fyrir þvi, að svo mikil
styrking dollarans jafnast á við
meiriháttar happdrættisvinning
fyrir islenskan þjóðarbúskap.
Rikisstjórn, sem fær jafn mik-
mörkuðum fer hækkandi, og
styrking dollarans færir okkur
án eigin tilverknaðar, stórbætt
viðskiptakjör, þá skuli fyrir-
tækjum i sjávarútvegi, fisk-
vinnslu, og almennum iðnaði
liggja við stöðvun vegna halla-
reksturs?
Er þetta ekki einmitt það,‘
sem sá ágæti þingskörungur,
Karl Kristjánsson, eitt sinn
kallaði „hallæri af manna-
völdum?”
Það tekur út yfir allan þjófa-
bálk, að hraðfrystiiðnaðurinn,
sem hagnast hefur á fiskverðs
RITSTlðRNARGREIN
Móðuharðindi af mannavöldum
niðurleið. Hins vegar bendir nú
flest til þess, að þessi óvænti
liðsauki kúrekans i Hvita húsinu
dugi þeim evró-kommunum i
stjórnarráðinu ekki mikið
lengur. Senn liður að þvi, að þeir
verði að fara að hjálpa sér sjálf-
ir.
Magnús H. Magnússon, fyrr-
verandi félagsmálaráðherra,
gerir þessar staðreyndir að
umtalsefni I athyglisverðri
grein i Alþýðublaðinu i dag.
Hann segir:
„Hækkun dollarans, ein út af
fyrir sig, hefur minnkað verð-
bólguhraða hér á landi um
fimmtán-átján prósent að mati
Þjóðhagsstofnunar. Verðbólgan
hefur á þessu ári minnkað úr
58%, eins og hún var að jafnaði
á s.l. ári, i 41,2% þann 1. ágúst,
eða um tæplega 17%. Mælt á
sama hátt var verðbólgan 41,7%
þegar rikisstjórnin tók við i
febrúar 1980 af minnihlutastjórn
Alþýðuflokksins.
öll, eða svo til öll, minnkun
verðbólgunnar, er þvi bein af-
leiðing af verðhækkun dollar-
ans.”
Magnús H. Magnússon hittir
naglann á höfuðið, þegar hann
bætir við:
,,Ef hækkun dollarans hefði
ekki komið til, þá væri verð-
bólga hér á landi ennþá nálægt
60%. Rikisstjórnin á þvi Reagan
Bandarikjaforseta meira að
þakka en hún vill vera láta.”
Menn mega ekki gleyma þvi,
þrátt fyrir linnulausan frétta-
flutning um uppdráttarsýki Is-
lensks atvinnulifs, að ytri kring-
umstæður hafa ekki i langan
tima verið jafn hagstæðar is-
lenskum þjóðarbúskap, og ein-
mitt á yfirstandandi ári.
Afli verðmætra fisktegunda
hefur aukist verulega.
Oliuverð á Rotterdam-
markaði hefur lækkað talsvert i
dollurum talið.
inn og óvæntan happdrættis-
vinning upp i hendurnar, hefur
þar með stórbætta aðstöðu til
þess aö ná verulegum árangri i
stjórn efnahagsmála. Um þetta
segir Magnús H. Magnússon:
„Mikill meirihluti fiskafurða
okkar er seldur i dollurum. Ekki
aðeins það, sem á Bandarikja-
markað fer, heldur einnig þær
afurðir, sem seldar eru til
Austur-Evrópu. Sama máli
gegnir um saltfiskinn, sem
fluttur er til Portúgals, Spánar
og annarra Miðjarðarhafs-
landa. Sömuleiðis skreiðin.
Allar eru þessar verðmætu út-
flutningsafurðir greiddar i
dollurum.
Innflutningur, annar en olíu-
vörur, er aftur á móti að mestu
greiddur i Evrópugjaldeyri og
japönskum jenum.
Verð á mestum hluta út-
flutnings okkar hefur þvi
hækkað um þau þrjátiu prósent,
sem dollarinn hefur hækkað
miðað við aðra gjaldmiðla, til
viðbótar við hækkun afurðanna i
dollurum. A sama tima stendur
verð á mestum hluta inn-
flutnings okkar I stað.
Þetta hefur orðið til þess, að
viðskiptakjörin, sem fóru snar-
versnandi allt árið 1979, og stóðu
i stað árið 1980, hafa fariö mjög
batnandi það sem af er árinu.
Þetta hefur leitt til þess, að
unnt hefur verið aö hækka fisk-
verð til útgerðar og sjómanna,
nokkurn veginn i takt við verö-
bólguna innanlands, án þess að
þvi fylgdi gengislækkun svo
nokkru nemi. Þetta hefur haft
afgerandi áhrif á verðbólgu-.
þróunina, til lækkunar, frá þvi
sem ella hefði orðið.
Hvernig má það vera, á sama
tima og öll ytri skilyrði eru með
hagstæöasta móti fyrir islensk-
an þjóðarbúskap, afli er i há-
marki, verðlag á erlendum
hækkunum erlendis, og stór-
grætt á hækkun doilarans, skuli
nú vera rekinn með halla sem
nemur 6—10% af veltu.
Það er til marks um óstjórn
Steingrims Hermannssonar i
sjávarútvegsmálum, að nú
vantar milljarða gkr. i verð-
jöfnunarsjóð fiskiðnaðarins, til
þess aö unnt sé að greiða það
fiskverð, sem um hefur verið
samið og ríkisstjórnin
hefur ábyrgst.
Þetta gerist á sama tima og
verð á útfluttum hraöfrystum
fiski er mun hærra en það hefur
nokkru sinni verið áður.
Ef allt væri með felldu i
islensku efnahagslifi ætti nú að
greiða stórfúlgur I verð-
jöfnunarsjóð,en ekki úrhonum.
Þaö er ofur auðvelt aö gera
sér i hugarlund, segir Magnús
H. Magnússon, hvernig ástandið
væri nú, ef afli væri ekki i há-
marki, ef fiskverð hefði ekki
hækkaö erlendis, og ef hækkun
dollarans heföi ekki komið til.
Svo að ekki sé nú talað um það,
hvernig ástandið væri, ef doll-
arinn lækkaði i sitt fyrra gengi,
miöað við aöra gjaldmiðla.
Það leiöir af sjálfu sér, segir
Magnús H. Magnússon, hvaö
sem allir kjarasamningar
segja, að kaupmáttur launa
minnkar og lifskjör þjóðarinnar
versna, ef þjóðarframleiöslan
dregst saman, afli minnkar og
viðskiptakjör versna svo um
munar. A sama hátt ætti aukin
þjóðarframleiðsla og stórbætt
viðskiptakjör, eins og nú er, að
leiða strax til vaxandi kaup-
máttar launa og betri kjara alls
almennings.
Meö efnahagsaðgeröum rikis-
stjórnarinnar um sl. áramót,
þegar kaupmáttur launa var
lækkaður á einu bretti um sjö
prósent, svipað og tiu mánaða
samningaþóf gaf af sér, var
ákveðið að hættaað taka mið af
Magnús H. Magnússon,
fyrrv. félagsmála-
ráðherra:
„Hækkun dollarans
um þrjátíu prósent í
samanburði við Evrópu-
gjaldmiðla hefur ein út
af fyrir sig minnkað
verðbólguhraða hér á
landi um 15—18 prósent
að mati Þjóðhagsstofn-
unar. Verðbólgan hefur
á þessu ári minnkað úr
58%, eins og hún var að
jafnaði á s.l. ári, i 41,2%
þann 1. ágúst eða um
tæplega 17%. Verð-
bólguhraðinn var 41,7%,
þegar ríkisstjórnin tók
við í febrúar 1980 af
minnihlutastjórn
Alþýðuf lokksins, mælt á
sama hátt. öll, eða svo
til öll minnkun verðbólg-
unnar er því bein af-
leiðing af verðhækkun
dollarans. Ef hækkun
dollarans hefði ekki
komið til, þá væri verð-
bólgan hér á landi ennþá
nálægt 60%."
viðskiptakjörum til lækkunar
eöa hækkunar verðbóta á laun.
Stefna núverandi rikis-
stjórnar i kjaramálum er þvi
þessi: Laun skulu lækka með
versnandi viðskiptakjörum. En
þegar viðskiptakjörin fara
batnandi, skulu þau ekki hækka
i samræmi við það.
Um það má segja, að vont er
þeirra ranglæti, en verra er
þeirra réttlæti. —jbh.
5. Landsfundur Sambands Alþýðuflokkskvenna:
Dagskrá tileinkuð hundrað ára
afmæli Jóhönnu Egilsdóttur
Benedikt Gröndal ræðir um Pólland og Evrópsk stjórnmál
Fimmti landsfundur
Sambands Alþýðuflokks-
kvenna verður haldinn
dagana 22.-23. október
næstkomandi að Hótel
Loftleiðum. Fundurinn
hefst kl. 20:00 fimmtu-
daginn 22. október og lýk-
ur með kvöldfagnaði í
Víkingasal á föstudags-
kvöld. Veislustjóri í þeim
fagnaði verður Emilía
Samúelsdóttir.
Sérstaka athygli vekur, aö i
tilefni hundrað ára afmælis Jó-
hönnu Egilsdóttur, sem verður
25. nóvember n.k., hefur stjórn
sambands Alþýðuflokkskvenna
ákveðið aðhefja þinghald sitt að
þessu sinni með þvi að flytja
samfellda dagskrá, sem verður
helguð störfum Jóhönnu Egils-
dóttur i þágu verkalýðshreyf-
ingarinnar, jafnréttisbarátt-
unnar og Alþýðuflokksins.
A seinasta ári kom út bók með
viðtölum Gylfa Gröndals, rit-
stjóra Samvinnunnar, við Jó-
hönnu Egilsdóttur. Sú bók vakti
mikla athygli og var ágætur
skerfur til sögu verkalýðshreyf-
ingarinnar og jafnréttisbarátt-
unnar, ekki hvaö sist á timabil-
inu milli heimsstyrjaldanna.
Jóhanna Egilsdóttir hefur með
ístörfum sinum áunnib sér virðu-
legan sess i sögu verkalýðs-
hreyfingarinnar. Ekki er að efa
að Alþýðuflokkskonur munu
gera þeirri sögu góð skil á
landsfundi sinum.
Sonardóttir Jóhönnu Egils-
dóttur, Jóhanna Sigurðardóttir,
alþm. mun einnig flytja erindi á
þinginu. Hún nefnir erindi sitt:
Launamál kvenna á vinnu-
markaðinumi A seinasta þingi
fékk Jóhanna samþykkta þings-
ályktunartillögu, en skv. henni
var félagsmálaráðherra faliö að
skila rækilegri úttekt á raun-
verulegum launamismun á
vinnumarkaðnum, m.a. eftir
kynferöi, þannig að þær upplýs-
ingar lægju fyrir við upphaf
samninga i haust.
Skv. blaðafregnum hefur
þeirri rannsókn miðað litiö
áfram. Væntanlega krefur
verkalýðshreyfingin félags-
málaráðherra um niðurstöður
þessarar úttektar, áöur en sest
veröur að samningsborði.
Annað, sem athygli vekur á
landsfundi Alþýðuflokkskvenna
er erindi, sem Benedikt
Gröndal, fyrrv. utanrikisráð-
herra mun flytja. Hann kallar
erindi sitt: Ástandiö i evrópsk-
um stjórnmálum með sérstöku
tilliti til Póllands. Benedikt er
helsti talsmaður Alþýðuflokks-
ins i utanrikismálum Hann býr
yfir yfirgripsmikilli þekkingu
um alþjóðleg stjórnmál. t Pól-
landi hefur það gerst, að valda-
kerfi kommúnismans er hrunið
til grunna. Hin erlenda lepp-
stjórn stendur frammi fyrir ein-
huga þjóð, og kröfum hennar
um rétt frjálsrar verkalýðs-
hreyfingar til starfa, um raun-
verulegt lýðræði og valddreif-
ingu, um að endir verði bundinn
á ritskoðun og grundvallar-
mannréttindi svo sem ritfrelski,
málfrelsi og samtakafrelsi,
verði virt I reynd.
Þessum landsfundi sambands
Alþýðuflokkskvenna lýkur með
samsæti föstudagskvöldið 23.
okt.
— jbh.