Alþýðublaðið - 30.09.1981, Side 6
6
Miðvikudagur 30. september 1981
Borgarmálaráð ræðir
kaup á strætisvögnum
og byggingu búningsklefa við
Laugard als I augar
A fundi borgarmálaráðs Al-
þýöuflokksins á mánudaginn
var voru aðallega rædd væntan-
ieg kaup borgarinnar á 20 nýj-
um strætisvögnum og einnig
bygging biiningsklefa fyrir
Laugardalslaugarnar. Birgir
Þorvaldsson, sem á sæti i s'tjórn
SVR gerði grein fyrir væntan-
legum kaupum á 20 strætis-
vögnum fyrir SVR, og spunnust
i því sambandi umræður um
kaup á vögnum sem nú eru að
koma á göturnar. Vagnstjórar
virðast sjálfir mjög ánægðir
með þá vagna. Aö visu þöttu
þeir nokkuð vélarvana i byrjun
en nú hefur verið bætt við þá
skolloftsblásara og er þá aflið i
lagi.
Eins og kunnugt er voru flest-
ir þeir vagnar sem nú eru á göt-
unni keyptir samkvæmt svo-
kölluðum norskum samningi,
þ.e. undirvagn og stjórnkerfi
eru frá Volvo verksmiðjunum,
en yfirbyggingin er gerð sam-
kvæmtnorskrihönnun og er hún
framleidd i Noregi en öll vinna
við samsetningu á yfirbyggingu
fer fram á íslandi. Með þessu
eru slegnar 2 flugur ieinu höggi,
komist var að mjög hagkvæmu
samkomulagi við Volvo verk-
smiðjurnar og auk þess unnu Is-
lenskir bifreiðasmiðir við yfir-
bygginguna hér heima.
Ikarus vagnarnir sem einnig
voru pantaðir koma nú i byrjun
október. SU skoðun kom fram I
ráðinu að hinir væntanlegu 20
nýju strætisvagnar ættu að
kaupast samkvæmt norska
samkomulaginu og vera af
Volvo gerð þviþað hefði sýnt sig
að vera mjöghagkvæmt,en þeir
kostuðu ca. 820 þús. komnir á
götuna.
Þá var rætt um byggingu bún-
ingsklefa við Laugardalslaug og
fyrirliggjandi tilboð i þá bygg-
ingu. Siguroddur Magnússon
gerði grein fyrir málinu og mun
kostnaður verða á bilinu 6 - 7
milljónir króna. I framhaldi af
þessu urðu umræður almennt
um útboð borgarinnar á verk-
um. Kom þar fram að viðsfjarri
væri að alltaf væri hagkvæmast
að taka lægsta tilboði, fyrir
borgina. Reynslan hefði sýnt að
verktaki gæti einfaldlega mis-
reiknað sig og gætu verktakar
orðið gjaldþrota ef borgin tæki
tilboði þeirra. Við það tefðist
verk mjög, leita þyrfti að öðrum
verktaka og heildarkostnaður
undirlokin orðinn mun hærri en
Jóhannes Guðmundsson framkvæmdastjóri Alþýðublaðsins hefur
oröið og til sitthvorrar handar honum sitja þeir, Guðlaugur Gauti
(t.v.) og Birgir Þorvaldsson (t.h.) og fylgjast grannt meb málflutn-
ingi Jóhannesar.
Menn I þungum þðnkum. Frá vinstri: EHas Kristjánsson, Sigur-
oddur Magnússon, Geir Gunnlaugsson og Snorri Guðmundsson
formaður SUJ. Ljósmyndir: Guðlaugur Tryggvi
Hluti borgarmálaráðsins: Fyrir enda borðsins situr Sjöfn Sigurbjörnsdóttir borgarfulltrúi og formaður borgarmálaráðs Alþýöu
flokksins.
lægsta tilboð sagði til um. M.a.
hefðu þessi mál verið ræddá ný-
loknu þingi Verktakasambands
Islands. t ráðinu var mjög uppi
sú skoðun að i öllum stærri
framkvæmdum borgarinnar
þyrfti að fara fram strangt for-
val á verktökum áður en tilend-
anlegrar tilboðsgerðar kæmi.
Þá þyrfti fyrst að auglýsa eftir
þe im, sem mögulega hefðu
áhuga á að bjóða i viss verk og
siðan yrði hreinlega athugað
hvaða verktakar væru i stakk
búnir til að framkvæma verkið.
Reynslan hefði nefnilega sýnt
að sumum verktökum þætti ekki
taka þviað bjóða i verk þar sem
fyrirfram lægi fyrir að lægsta
tilboði yrði skilyrðislaust tekið
og þannig fengju verktakar oft
verk, sem þeir geta ekki lokið
við.
Þá var einnig rætt um dag-
skrá Kjarvalsstaða i vetur og
um möguleg kaup borgarinnar
á Lifshlaupi Kjarvals. Þá kom
einnig fram i ráðinu að nú lægi
fyrir nefndarskipan um skipu-
lag Mjóddarinnar iBreiðholti og
að borgin hraðaði nú könnun á
leiguhúsnæðismálum.
G.T.K.
SKYTTURNAR
116. Hertoginn af Buckingham sagði d’Artagnan, að hann yrði að skipta um hesta
fjórum sinnum á leiðinni. — Ef þér skiljið eftir heimilisfang yðar f París á hverjum
stað, sagði hertoginn, verða þessir fjórir hestar sendir á eftir yður. Allir fjórir eru gæð-
ingar, og með fulium búnaði, svo ég vona að þér verðið ekki of stoltur tii aö þiggja þá
fyriryöar hönd og vina yðar.Þér getið þá notað hestana istriðigfgn okkur.
D’Artagnan þakkaði fyrir sig, hneigði sig fyrir hertoganum og flýtti sér til hafnarinn-
ar.
Skipið lá rétt undan Lundúnakastala, og d’Artagnan afhenti skipstjóranum bréfið.
Þeir léttu ankerum þá þegar oghéldu af stað. Nokkrir tugir skipa lágu við festar og biðu
fararleyfis, og d’Artagnan var viss um að hann hefði séð ókunnu frúna frá Meung um
borðí einu þeirra, konuna, sem aðaismaðurinn ókunni haföi kallaö Mylady.
Klukkan niu morguninn eftir voru þeir komnir til Saint Valery. D’Artagnan hélt þeg-
ar til veitingahússins, leitaði þar uppi eigandann, og sagöi við hann „Forward”. Eig-
andinn leiddi söðiaðan og velbúinn hest til d’Artagnan og visaðihonum veginn.
— Þegar þér komið til Neufchatel, skuluö þér fara á veitingahúsið „Gullhjörtinn”,
sagði veitingamaðurinn, og þar skuluð þér finna eigandann og nota sama lykilorð. Flýt-
ið yður!
D’Artagna fylgdi leiðbeiningum veitingamannsins og fékk óþreyttan hest i Neufchat-
el. Hann gaf upp heimilisfang sitt, sem höfuöstöövar varðliðasveitar Desessarts i Par-
is.
— 1 þorpinu Écouis skuluö þér finna veitingahúsiö „Skjaldarmerkið”, sagði veitinga-
maðurinn, og þar fáið þér óþreyttan hest.
D’Artagnan hafði riðið nærri 240 kilómetra á tólf timum, þegar hann kom til Parisar
og fann de Tréville.sem lét einsog ekkert hefði skeð.
eftir Alexandre Dumas eldri
117. Daginn eftir var allt á öðrum endanum í Paris vegna dansleiksins, sem borgar-
ráðið efndi til, til heiðurs kóngi og drottningu. Gestirnir streymdu að, allan liðlangan
daginnogum miðnætti dundu við húrrahróp og fagnaðarlæti fyrir utan ráðhúsið. Kóng-
urinn kom keyrandi i vagni, frá Louvre. Honum var visaö inn I herbergi, þar sem úrval
grimubúninga var að finna. Allir tóku eftir þvi, að kóngurinn leit út fyrir að vera þreytt
ur og áhyggjufullur. Hálftima seinna hljómuðu aftur fagnaðarlæti og húrrahróp.
Drottningin var á leiðinni.
Skömmu siðar gekk Anna af Austurriki i salinn, og allir tóku eftir þvi, að hún, eins og
kóngurinn virtist vera þreytt og áhyggjufull. Veggteppi lyftist ögn„ og andlit kardinál
ans birtist. Hann starði á drottninguna, og brosti hæðnislega. Drottningin var ekki mef
demantaháismeniö. Hún stóð kyrr, og heilsaði uppá ráögjafa kóngsins. Skyndilega birt
ist kóngurinn ásamt kardinálanum i einum dyrum salarins. Kardinálinn hvislaði ein
hverju að kóngi, sem fölnaði og varð undarlegur á svip.
Kóngurinn gekk beint af augum til drottningar, i gegn um þröngina, og sagði vit
hana, skjálfandi röddu:
— Frú, leyfist mér að spyrja, hversvegna þér hafið ekki demantahálsmenið. Þér vitit
að ég lagði mikla áherslu á að þér bæruð það I kvöid!
Drottningin ieit i kringum sig.og sá kardínáiann brosa.
— Ég þorði ekki að bera svo dýrmætt men, innanum svo margt fólk, svaraði drottn
ingin skjálfandi röddu.