Alþýðublaðið - 23.09.1981, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 23.09.1981, Blaðsíða 6
6 Miðvikudagur 23. september 1981 eftir Aiexandre Dumas eldri SKYTTURNAR írak milli tveggja elda Eftir árás israelska flughersins á kjarnorkuver íraka i Baghdad, i sumar, ræddi Patricia J. Sethi, fréttaritari Newsweek, við utanrikisráðherra íraks, Sadoon Hammadi. Viðtalið birtist 29. júni sl. — Hver eru viðbrögö Iraks við loftárás ísraelsmanna? „Athygli alls heimsins viljum við nú vekja á þýðingu og feikn árásar ísraelsmanna. Að loknum umræðum öryggisráðs- insum hana munu Arabalöndin fyrir tilstilli okkar ráða ráðum sinum um athæfi tsraels °8 gera sér grein fyrir, hvað I þvi felst, þvi að árásin verður auð- sjáanlega höfð til marks um árásarstefnu tsraels. Sennilega munu þau jafnframt ræða alla þætti landvarna. Þarmeð segi ég ekki, að gripið verði til vopna. Né segi égheldur, að svo' fari, þvi að hemaðarleg við- brögð verður að meta með tilliti til allsherjarstöðunnar.” — 1 siðustu viku krafðist trak refsiaðgeröa gegn tsrael. NU hefur rikisstjórn yöar fallist á ályktun um vitur, alþjóðlegt eft- irlit með nýtingu kjamorku i tsrael og „viðhlítandi bætur” handa trak. Hvers vegna snerist trak hugur? „Neitunarvald Bandarikj- anna meinar öryggisráðinu að beita tsrael refsiaðgerðum. Eins og mál stóðu, voru Banda- rikin staðráðin að fella ályktun hlutlausu landanna með neitun- arvaldi sinu. Hikisstjórn min sættir sig ekki við ályktun öryggisráðsins.” — Hvaða áhrif hefur sú ein- róma fordæming á Israel á samskipti Bandarikjanna og traks? „Stjómarerindrekstur á milli okkar og Bandarikjanna fer A flótta undan árás tsraelsmanna á kjarnorkuverin I trak. fyrir þvi, að tsrael eigi kjarn- orkusprengjur. Og það hefur þráfaldlega hafnað alþjóðlegum öryggisráðstöfunum vegna þess útbúnaðar sins. tsrael ógnar friði og öryggi.” — Þvi er haldið fram, að trak, eins auðugt og það er af oliu, þurfi ekki að beisla kjarn- orkuna til að afla sér annars orkugjafa. Hverju svarið þér þvi? „Það er villandi staðhæfing. Kunnar oliuiindir á landssvæði okkar munu satt að segja ganga til þurrðar innan 20 til 50 ára. Annars orkugjafa verðum við að leita. t friðsamlegri nyt- ingu kjarnorku fælist meira en beisiun annars orkugjafa. Af henni nytu góðs landbúnaður, iðnaður, heilsugæsla og fleiri svið. Samninginn gegn út- breiðshi kjarnorkuvopna hefur lrak undirritað, og útbúnaður okkar hefur verið undir eftirliti Alþjóðlegu kjarnorkustofnunar- innar. Áfram munum við vinna að framkvæmd áætlunar okkar um kjamorku, en með tilliti til árásar tsraelsmanna verða varúðarráöstafanir gerðar, eins og tækni leyfir. Við þykjumst hafa vissu fyrir þvi, að Frakkar muni halda áfram samstarfi sinu við trak. Og við munum leita eftir stuðningi frá löndum, sem geta og vilja vinna með okkur. Þeim rétti, er fullveldi veitir, afsölum við okkur ekki.” — I ræðu yðar i öryggisráð- inu sögðuð þér, að israelskar herflugvélar hefðu reynt að eyðileggja kjarnorkuver traks I september 1980. Hvers vegna var viðbúnaður þá ekki meiri að þessu sinni? „Vegna fyrri árása gerðum við ýmsar varúðarráðstafanir. En ég held, að úrslitum hafi ráðið sé margslungni Utbúnað- ur, sem tsraelsmenn hafa feng- ið frá Bandarikjunum, — eink- um til að hyljast radar-stöðv- um. Til að hindra, að aftur fari á sömu leið, þurfum við að gera ailar þær hemaðarlegu ráðstaf- anir, sem á er þörf. Við vitum, að hernaðarlega stöndum við Zioniska fyrirbærinu að baki. Þann mun vinnum við upp. Til þess höfum við vilja og getu.” — Hallar á trak i striðinu við tran? „Astandið i tran fer bersýni- lega versnandi. Af ráðnum hug leitum við áfram viðræðna um réttlátan frið. Ef íran virðir þá viðleitni að vettugi, heldur striðið áfram.” — Sækist trak enn eftir for- ystuhlutverki á meðal hlutlausu rikjanna? „Já. t hreyfingu hlutlausra rikja ætlum við að láta að okkur kveða. Næsta ráðstefna forystu- menna þeirra veröur haldin hjá okkur, eins og aðildarlöndin samþykktu i einu hljóði. Við teljum, að hreyfing þeirra gæti farið með stærra hlutverk i' al- þjóðamálum.” ’ — Endurskoðið þið samskipti ykkar við Ráðstjórnarrikin? „Við eigum góð samskipti við Ráðstjómarrikin, og ég vænti ekki breytinga á þeim góðu samskiptum. Við þetta höfuð- veldi eða hitt greinir okkur á um ýmislegt. Það er inntak sjálf- stæðrar stefnu i utanrikismál- um.” H.J. fram sem fyrr. Hann geldur þessbersýnilega, aðBandaríkin kunna að hafa haft afskipti af árás tsraelsmanna, og hins, að tsrael á jafnan vissan stuðning Bandarikjanna i öryggisráðinu. Umlangt skeiö héldu Bandarik- in, að þau gætu borið kápuna á báðum öxlum: Haldið vinfengi' Araba og stutt tsrael án afláts. Ef Bandaríkin miða að þvij verði þá eins og komið er. Ég tel það ekki heilbrigða stefnu.” — Ætlar trak að krefjast brottrekstrar tsraels úr Sam- einuðu þjóðunum á allsherjar- þingi þess? „trak áskilursérfullan rétttil aðgerða gegn tsrael á hvaða vettvangi sem er, að Sameinuðu þjóðunum meðtöldum. Vissu- lega litum við svo á, að zioniska fyrirbærið eigi ekki lengur að vera meðlimur i Sameinuðu þjóðunum. Um allar þær að- gerðir, sem til álita koma, mvn- um við ráðgast við önnur Arabalönd og öll vinveitt ríki. Zióniska fyrirbærið var tekið upp í Sameinuðu þjóðimar að settu skilyrði, sem það hefur aldrei uppfyllt, — og hefur siðan brotið stofnskrá þeirrar heims- stofnunar freklegar en noldcurt annað land. Góöar heimildir eru Sadoon Hammadi, utanrikisráðherra traks. 110. Planchet kastaði sér á þjófinn, aumingjann, og skellti honum þegar. Aðals- maðurinn dró sverðið og réðst að d’Artagnan, en þar hafði hann hitt ofjarl sinn fyrir. A þrem sekúndum fékk hann þrjú sár. — Þetta er fyrir Athos!, sagði d’Artagnan. Og þetta fyrir Porthos! Og þetta fyrir Aramis! Þegar d’Artagnan beygði sig yfir manninn, þar sem hann lá á jörðinni, til að leita i vösum hans, fékk hann sjáifur sverðsstungu f brjóstið. — Og þetta er þá fyrir sjálfan þig, sagði aðalsmaðurinn. — Og þá einn fyrir yður! sagði d’Artagnan og lagöi sverði sinu I maga hans. Þá leið yfir aðalsmanninn. D’Artagnan leitaði f vösum hans og fann vegabréfið. Það var gefið út inafnigreifans de Wardes. Þá heyrðihann þjón aðalsmannsins hrópaaf öllum mætti á hjálp. — Herra, sagði Planchet, hann heitir Lubin og hann heldur sér saman, meðan ég hef tak á honurn. En þegar ég sleppi, rékur hann upp öskur. Þeir bundu bæði aðalsmanninnog þjóninn, og kefluðu þá lika. Þeir héldu nú sem leið lá til húss hafnarfógetans og létu tilkynna komu greifnas de Wardes. D’Artagnan var visað inn. — Hafið þér vegabréf, undirritað af réttum yfirvöidum? spurði hafnarfógetinn. — Hér er það, sagðid’Artagnan, ég er einn dyggasti þjónn kardinálans. — Mér skilst, að þetta uppistand stafi af þvi að kardinálinn vill hindra þaö, aö ákveð- inn maður komist yfir sundið til Englands, sagði hafnarstjórinn. — Já, það mun vera maður að nafni d’Artagnan, sagði vinur okkar, og gaf hafnar- fógetanum nákvæma lýsingu á de Wardes. — Þér verðið aðstöðva þennan mann! 111. — Er hann einn á ferð, spurði hafnarfógetinn. — Nei, hann hefur með sér þjón, sem heitir Lúbin, sagði d’Artagnan. — Við munum leita eftir honum, og hans náð getur reitt sig á að hann veröur sendur aftur til baka til Parisar, um leið og við finnum hann. Hafnarfógetinn skrifaði undir vegabréfið og d’Artagnan og Planchet héldu aftur til skipsins. Fimm minútum seinna voru þeir komnir um borð. Það var rétt svo að þeir næðu skipinu. Þeir voru ekki fyrr komnir út úr höfninni, en að heyrðist fallbyssuskot frá hafnarvirkinu. Það var búið að loka höfninni. Skútan var komin nokkuð frá, þegar skotið kvað við, og nú fyrst var timi til að lita á sárið, sem d’Artagnan hafði fengið á brjóstið. Sárið var ekki mikið, en d’Artagnan var svo þreyttur að hann sofnaði um leið og hann settist niður. Klukkan hálf ellefu steig d’Artagnan siðan fæti i fyrsta sinn á enska jörð. — Við höfum náð hingað klakklaust, sagði hann. En það er enn spotti eftir. D’Artagnan hélt til London og frétti þar, að hertoginn var á veiðum, með kónginum, við Windsorkastala. D’Artagnan var svo sannfærandi og öruggur með sig, að einkaþjónn hertogans, Patrice, sem talaði frönsku reiprennandi, féllst á að fara með þeim til Windsor. Þaö tók þá um tuttugu minútur að finna hertogann, þar sem hann var á fálkaveiðum. — Hvaða nafn skal ég gefa upp, sagði þjónn hertogans. — Segið að ungi maðurinn, sem ætlaöi að ráðast á hann við krána „Samverjakon- una” vilji hitta hann, sagði d’Artagnan, og Patrice sló i hestinn, og fór á stökki til hertogans.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.