Alþýðublaðið - 07.11.1981, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 07.11.1981, Qupperneq 8
 Laugardagur 7. nóvember 1981 Sighvatur Björgvinsson um fjárlögin: Islendingar munu greiða 20 milljarða gkrónur ofan í erlenda neytendur landbúnaðarafurða - Erlend lán tekin til þess að greiða íslensku matvælin niður fyrir útlendinga Islendingar munu á næsta ári greiöa 200 millj. kr. (20 milljaröa gamalla kr.) meö is- lenskum landbúnaöarafuröum ofan i erlenda neytendur. Þetta kom fram i ræöu Sighvats Björgvinssonar um fjárlaga- frumvarp rikisstjórnarinnar á Alþingi I fyrradag. Þá kom þaö einnig fram I ræöu hans aö látiö er i veöri vaka I fjárlagafrum- varpinu aö þessi upphæö sé mun lægri eöa aöeins um 160 millj. kr. en ef frumvarpiö er lesiö i heild og auk þess tekiö miö af lánsfjáráæltun rikisstjórnarinn- ar kemur i ljós aö upphæöin er miklu hærri eöa 200 millj. kr. og er þaö miklu meira fé en heimilt er samkv. islenskum lögum aö leggja á skattgreiöendur i út- flutningsbætur meö landbúnaö- arafuröum. Þaö mesta, sem islensk lög leyfa aö tekiö sé úr rikissjóöi i niöurgreiöslur i útfluttum land- búnaöarafuröum, er 160 millj. kr. eöa sem svarar 10% af heild- arverömæti landbúnaöarfram- leiöslunnar, sagöi Sighvatur Björgvinsson i ræöu sinni. 1 fjárlagafrumvarpinu er ráö fyrir þvi gert aö skattborgarar greiöi þetta fé. En þaö er gert ráö fyrir aö þeir greiöi meira. A öörum staö I fjárlagafrumvarp- inu er ráö fyrir þvi gert aö rikis- sjóöur, Islenskir skattborgarar, taki aö sér aö greiöa vexti og af- borganir af erlendum lánum sem tekin voru i fyrra og hitteö- fyrra til viöbótar hæstu leyfileg- um útflutningsbótum úr rikis- sjóöi til þess aö greiöa meö landbúnaöarafuröum ofan i er- lenda neytendur og Fram- leiösluráö landbúnaöarins var skrifaö fyrir. Framleiösluráö landbúnaöarins er hins vegar ekki borgunarmaöur fyrir lán- inu og hefur reyndar aldrei ver- iö og þess vegna eru vöxtunum og afborgunum alls 20 millj. kr. kastaö á bak islenskra neyt- enda. Til viöbótar þeirri fjárhæö er gert ráö fyrir þvi I lánsfjár- áætlun aö aörar 20 milljónir (2 milljaröar gkr.) veröi teknar aö láni I erlendum gjaldeyri til viö- bótar útflutningsbótum I ár og Framleiösluráö landbúnaöarins einnig skrifaö fyrir þvi láni þótt þaö geti ekki einu sinni borgaö eina kr. af afborgunum og vöxt- um af þeim lánum I sama skyni sem þaö þegar hefur veriö skrif- aö fyrir. Þannig er veriö aö sniöganga Islensk lög um leyfilegt hámark sem leggja má á Islenzka skatt- gr. til aö borga niöur islenskt lambakjöt ofan i erlenda neyt- endur meö þvi aö taka erlent lán og skrifa fyrir þvi á pappirunum einhvern aöila út i bæ, svo sem Framleiösluráö landbúnaöar- ins, sem ekkert getur borgaö, en veita svo sérstaka fjárveitingu úr rikissjóöi fyrir vöxtum og af- borgunum þannig aö heildar- fjárhæöin sem greidd er af skattborgurum landsins meö is- lenskum matvælum ofan i er- lendar þjóöir veröur langtum hærri en Islensk lög heimila. //Þaö er lærdómsríkt fyrir það fátæka fólk á islandi/ sem hefur milli 5—600 þúsund gkrónur í mánaðartekjur og þarf að vinna nótt sem nýtan dag til þess eins að hafa í sig og á/ verður að neyta sér um allar skemmtanir og ýmsar algengustu þarfir/ að f jármálaráðherra Al- þýðubandalags skuli leyfa sér það að leggja á þetta fólk f járhagsbyrði langt umfram það sem íslensk lög leyfa, til þess að greiða niður þær matvörur ofan i Færey- inga/ Dani og Norð- merni/ sem fátæka fólk- ið á íslandi hefur vart efni á að neyta nema til hátíðarbrigða." Fjárhagsbyrði til aðgreiða ofan i útlendinga Þaö er lærdómsrikt fyrir þaö fátæka fólk á Islandi sem hefur milli 5-6 þús. gkr. I mánaöar tekjur og þarf aö vinna nótt sem dag til þess eins aö hafa I sig og á, veröur aö neyta sér um allar skemmtanir og ýmsar al- gengustu þarfir, aö fjármálaráö herra Alþýöubandalags skuli leyfa sér þaö aö leggja á þetta fólk fjárhagsbyröi langt um fram þaö sem islensk lög leyfa til þess aö greiöa niöur matvör- ur ofan I Færeyinga, Dani og Norömenn sem fátæka fólkiö á íslandi hefur vart efni á aö neyta nema til hátiöarbrigöa. Verst er þó, sagöi Sighvatur, þegar ráöherrann er i þessu skyni aö taka erlend lán til þess aö greiöa niöur Islensk matvæli I erlenda neytendur meöal ann- ars til þess aö geta sniögengiö lögin um þá hámarksbyröi sem leyfilegt sé aö leggja á bak is- lenskra skattborgara i þvi skyni. Ólafsvík Skólastjóra og kennara vantar við tónlist- arskólann i ólafsvik frá 1. jan. 1982. Umsóknum skal skilað til sveitarstjóra fyrir 15. nóv. n.k. Nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri i sima 93-6153. F.H. Skólanefndar Sveitarstjóri. aOKKSSTARFID Kópavogsbúar Aiþýöuflokksfélögin Kópavogi halda fund aö Harmaborg 7, annarri hæö mánudaginn 9. nóv. kl. 20.30. Fundarefni: 1. Sameiginleg prófkjör i Kópavogi? 2. Kosning i blaöstjórn Alþýöublaös Kópavogs. 3. Bæjarmál 4. önnur mál. Félagar kvattir til aö mæta Stjórnirnar Konur, Hafnarfirði Jólaföndurnámskeiö veröur haldið i Alþýöuhúsinu dagana 23., 25. og 27. nóv. kl. 20—23. Verð kr. 330.- með efni. Þátt- taka óskast tilkynnt fyrir 12. þ.m. Upplýsingar I sima 5 20 65 Asta og 5 13 91 Valgerður. Kvenfélag Alþýöuflokksfélags Hafnarfjaröar. Garðabær - Félagsvist Annaö spilakvöld vetrarins veröur i félagsheimilinu Goöatúni 2, mánudaginn 9. nóv. og hefst kl. 20.30 Sérstök kvöldverðlaun. Kjartan Jóhannsson formaöur Alþýöuflokksins mætir og ræöir stjórnmálaviðhorfið. — Fjölmenniö. Stjórn Alþýöuflokksfélags Garöabæjar. Hagnaður banka: Nokkur umræða hefur spunnist um starfsemi bankanna hér á landi, og m.a. verið lagðar fram fyrirspurnir á þingi um það mál. Orsökin fyrir þessari umræðu mun fyrst og fremst vera sú, að staða bankanna al- mennt batnaði til muna á síðasta ári, miðað við það sem gerðist árin á undan. Blaðamaður Alþýðu- blaðsins ræddi við Eirík Guðnason, deildarstjóra hjá Seðlabankanum, og ræddi við hann um tilurð þessa hagnaðar og það, hvernig hann er nýttur af bönkum. Viðtalið fer hér á eftir. „Fellst ekki á að hagnaður bankanna sé óeðlilegur” — rætt við Eirík Guðnason hagfræðing, hjá Seðlabankanum Sp.: Hverjar eru staöreyndir um gróöa banka siöastliöiö ár Sv.-.Hagnaöur bankanna varö meiri I fyrra en oftast áöur, og eiginfjáraukning varö nokkur. En, ef skoöaö er hvaö gerst hef- 'T yfir lengra timabil, 20 ár, þá kemur I ljós aö eigin fé bank- anna hefur rýrnaö. Eins og staöan er nú, hafa bankarnir ekki náö eigin fjár styrk, sem þeir höföu viö upphaf timabils- ins. Bankarnir eru þvi verr stæöir nú, en þá, og hafa reynd- ar ekki þaö eigi ö fjármagn, sem erlendar þjóöir telja, aö bönk- um beri aö hafa bak viö sig. Sp.: En hvernig er þessi gróöi, eöa þessi bætta staöa til- komin? Sy.: Þaö má segja aö þetta stafi af aukinni veltu, vegna aukinna innlána. Um árabil var þaö svo, aö innián minnkuöu, án þess aö kostnaöur bankanna, af ýmissi þjónustu lækkaöi. Nú hefur veltan aukist, og bank- arnir eru aö endurvinna þaö, sem þeir hafa misst. Seölabankinn fylgist meö þvi hver munurinn er á milli innláns- og útlánsvaxta og gerir breytingar á þeim mismun, eft- ir þvi sem þurfa þykir hverju sinni. Aliar breytingar upp á siökastiö hafa veriö i þá átt aö minnka þann mun. Bankarnir svara þvi meö þvi aö leitast viö aö færa útlán á þau form, sem hafa hærri vexti. Sp.: Er staöa bankanna mis- jöfn? Sv.: Hún er mjög misjöfn. Þaö er taisveröur munur á stööu bankanna hjá Seölabankanum, og refsivextir Seölabankans eru mjög háir. Þaö eru miklar sveiflur I innlánum bankanna, og þeir veröa aö dekka þær meö drjúgum innistæöum. Hver munur á lausafjárstööu þeirra er, hef ég ekki tölur um. Sp.: Hver eru áhrif taprekstr- ar atvinnufyrirtækja á rekstur bankanna? Sv.: Þaö er alltaf slæmt fyrir bankana ef hallarekstur er á fyrirtækjum sem skipta viö þá. Þá veröur bankinn aö fjár- magna þann halla, og getur þurft aö afskrifa skuldir fyrir- tækja, sem veröa gjaldþrota. Nú eru erfiöleikar hjá útflutn- ings- og samkeppnisatvinnu- vegunum, en ég átta mig ekki á, hvort einhver munur er þar á eftir bönkum. Þaö er auövitaö ljóst, aö bankar hafa viöskipti viö fyrirtæki i ákveönum starfs- greinum, þannig aö einn banki er meir i einhverri ákveöinni at- vinnugrein, en einhver annar, og þaö leiöir af sér, aö erfiöleik- ar i ákveöinni atvinnugrein hafa meiri áhrif á suma banka en aöra. En þaö er erfitt aö segja til um slikt i smáatriöum. Sp.: Nú er rætt um aö skila hagnaði bankanna aftur tii at- vinnuveganna. Er hagnaður bankanna af atvinnuvegunum tekinn? Sv.:Þannig viröast einhverjir lita á máliö. Þeir viröast skilja Þvier haldið fram, að hagnaður bankanna á siðasta ári hafi verið óeðlilega mikill og vilja sumir fá honum skilað til at- vinnuveganna. 1 viötaiinu hér með segir bankamaður, að hagnaður bankanna nú sé fjarri þvi óeðlilegur, og reyndar bönk- unum nauðsynlegur. þaö svo, aö hagnaöur bankanna stafi af þvi aö lánþegar hafi greitt of mikiö til bankanna. Þaö eru miklar ýkjur aö hagn- aöur bankanna sé óeölilega mikill. Eigiö fé þeirra þarf aö vera meira en þaö er, t.d. svo gjaldeyrisbankarnir geti sinnt þeirri þjónustu, sem þeir eiga aö gera. Þegar þeir eiga viö- skipti erlendis, er þaö fyrsta sem um er spurt, hver staöa þeirra sé. Svo hafa fæstir bankar rfkis- ábyrgö á innlánum sinum, þannig aö eigiö fé þeirra veröur aö vera I hlutfalli viö innlánin, ella gæti bankinn fariö á haus- inn, og eigendur tapaö öllu sinu fé. Sp.: Hefur útlánapólitik bank- anna breyst vegna aukinna inn- lána? Sv.: Já. Bankarnir voru bein- linis skyldaöir til þess, strax 1979, aö lengja lán, og geyma veröbótaþátt þeirra þannig aö fyrstu greiöslur yröu lágar en þær seinni háar. Seinna komu til verötryggö útlán, og þar var formiö svipaö fyrstu greiöslur lágar og seinni greiöslur háar, sem er ólikt þvi, sem áöur var þegar vixlar v.oru algengasta1 lánsformiö. Síöan var samiö um aö lengja lán til húsbyggjenda. - fJtlán hafa siöan færstyfir á verötryggö lán og skuldabréf til lengri tima.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.