Vísir - 25.01.1969, Blaðsíða 7
VMMl£a«®ö#!ékie*w 2S. jamrar WMKí.
Þaö er ekki laust við, að þessir verðir laganna líti út fyrir að
vera því fegnir, að hvítabjorninn skuli ekk; vera sprækari
en raun ber vitni.
Þegar Sæborgin kom inn með gestinn af norðurslóðuin biðu Húsvíkingar eftirvæntingarfuU
ir á bryggjunn. eftir at sjá hinn margumtalaöahvítabjörn.
Ekki er hægt að segja, að björninn sé beinlínis smáfríður,
enda er eins og útlit hans veki óttablandna virðingu við
staddra.
Það var bæjarstjórinn á Húsa
vík, Björn Friðfinnsson, sem
brá við skjótt, þegar hann frétti
af því, að Gpmseyingar væru
aflögufærir með dauða hvíta-
birni. Hann fór á bátnum Sæ-
borgu til eyjarinnar og taldi þar
út 30.000 krónur (hvort sem það
er eðlilegt markaðsverð eða
ekki) og tryggði þannig Hús-
víkingum bjamdýrsskrokkinn.
Ekki er afráðið hvar björninn
verður stoppaður upp, en hann
mun hafa verið hin tígulegasta
skepna í lifanda iifi og ætti því
að verða snotrasti safngripur.
Þegar Sæborgin kom síðan
aítur til Húsavíkur úr leiðangr-
inum með tvo birni l'yrir einn
innanborðs, þ. e. Biörn bæjar-
stjóra og hvítabjörninn, beið
múgur og margmenni á bryggj-
unni til að taka á móti þeim,
eins og vera ber, þegar góða
gesti ber að garði. Myndimar
hér á síöunni eru frá móttök-
unni.
Tj'ins og komið hefur á dag"
* J inn reyndist það mesta ó-
ráðsía og feigðarflan hjá ís-
birninum fræga að leggja leið
sína til Grímseyjar — þar sem
harðskeyttir eyjarskeggjar
höfðu hraðan á og lögðu hann
að velli.
Á hinn bóginn er þess að
gæta, að hvítabjörninn hefur
tryggt sér það, að minning hans
verði á loft haldið, og bað er
meira en margir aðrir hvítabirn-
ir hafa getað gert.
Eins og skýrt var frá í Vísi
í gær er skrokkurinn af bimin-
um nú kominn til Húsavíkur,
og í framtíöinni rná gera ráð
fyrir, að hann tróni í heiöurs-
sæti í náttúrugripasafninu, sem
verður hluti þeirrar menningar-
miðstöðvar, sem er að rísa á
Húsavík á vegum þeirra Þing-
eyinga.
Bjöminn er ekkert smáræðis ferlíki, og betra var að hafa hífigræjurnar í lagi, þegar verið var
að koma honum á land. í lifanda Kfi var harni þó fótfrár og Hðugur enda vart kominn af
Iéttasta skeiði.
Hvítabjörninn til Húsavíkur
í fylgd með bæjarstjóranum