Vísir - 25.01.1969, Qupperneq 9
9
VrSIR . Laugardagur 25. janúar 1969.
Þeir gera stærstu kröf-
urnar sem mest hafa
— segir Ragi.jr Guðleifsson i Keflavik
J£g veit að hér í Keflavík a.
m.k. hafa hásetar og vél-
stjórar fullan hug á því að
semja og ganga ef til vill eitt-
hvað til móts við útgerðar-
menn með því að slaka nokk
uð á kröfum, sagði Ragnar
Guðleifsson, formaður Verka-
lýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur í viðtali við Vísi
í gær. — Ég álít að hægt
hefði verið að semja við sjó-
menn, en yfirmenn á bátafíot
anum hafa sett stopp á samn-
ingana með þessum fjar-
stæðu kröfum sínum. — Það
er eins og þær stéttir, sem
bezt hafa það séu kröfuharð-
Fleiri og fleiri hjól atvinnulífsins hætta nú að snúa;St eftir
því sem verkfallið dregst á langinn. —-----------------
Þjóðin verður að leggjast á eitt
til að leysa vandann
segir Maron Björnsson i Sandgerði
jj^g hef verið á þessum tveim
ur sáttafundum sjó-
manna og útgerðarmanna en
það hefur bókstaflega ekkert
gerzt á þeim, sagði Maron
Bjömsson, formaður Verka-
lýðs- og sjómannaféiags Mið-
neshrepps í viðtali við Vísi í
gær. Samt finnst manni ein-
hvern veginn liggja í loftinu,
að samkomulag gæti náðst,
en lítill viiji vera hjá fulltrú-
um útgerðarmanna að leysa
verkfailið. Eftir að yfirmenn
komu inn í spilið hefur þetta
þó orðið miklu torleystara.
Ég trúi því þó ekki að þetta
fái að halda áfram svona. —
Ábyrgir aðilar hljóta að grípa
í taumana, og ég held, að há-
setar hafi fulia samúð þeirra,
sem hugsa málin.
Þetta er raunar ekki mál sjó-
manna einna eöa verkalýðs. Þég
ar atvinnuleysið og efnahags-
örðugleikamir eru orðnir slíkir
sem nú, verður öll þjóðin að
leggjast á eitt til að leysa vand-
ann. Gengisfellingin hefur ekki
hjálpaö upp á sakir, a. m. k.
er ekki að sjá að hún hafi hjálp
að þeim mikið, sem hún átti að
bjarga.
Atvinnuástandið hér í Sand-
gerði er orðið helldur slakt, þó
að það geti ekki talizt mjög al-
varlegt. Atvinnuleysisskráning
hófst í dag (föstudag) og það
eru eitthvað innan við 10 manns
sem láta skrá sig í dag. En
þetta ástand á eftir sið versna
með hverjum degi, sem verk-
fallið stendur. Um 40 verka-
menn hafa nú vinnu uppi á
Keflavíkurflugvelli af um 200
félagsmönnum, 12 menn vinna
í glerverksmiðjunni á staðnum,
1-2 hjá Húsum & innréttingum
og síðan hafa menn einhverja
tilfallandi vinnu hjá fiskverkun-
arstöðvunum, en sú vinna
dregst að sjálfsögðu saman eftir
því sem lengra líður á verkfall-
iö. Það bætir ekki úr skák, að
Útgerðarstöð Guðmundar Jóns-
sonar á í miklum erfiðleikum,
þó að Miðnes hf. hafi sæmilega
afkomu. Það munar mikið um
erfiðleika svona stórs atvinnu-
fyrirtækis.
í sambandi við kröfur sjó-
manna um frítt fæði um borö
sagði Maron, að hann teldi
kröfur sjómanna varla geta ver-
ið hógværari. Hann gerir lítið
úr þeirri hættu, að fæðiskostn-
aður myndi hækka verulega um
borö í skipunum, ef útgerðar-
menn þyrftu að greiöa hann
sjálfir. Útgerðarmönnum væri í
lófa lagið að verðlauna góða
og hagsýna kokka, sem gæti
fyllilega komið í stað aðhaldsins
sem kokkar hafa haft frá á-
höfnum skipanna. Fæðiskostn-
aöur er verulegur baggi fyrir
sjómenn a. m. k. meðan þeir
hefðu ekki nema kauptrygging-
una eöa lítiö fyrir ofan hana. —
Þeir greiða raunverulega tvö-
falt fæði. Annars vegar á heim-
ilum sínum og hins vegar um
borð. Þaö væri raunar venja
hjá flestum stéttum öðrum en
bátasjómönnum að fá frítt fæði,
þegar þeir 'dvelja fjarri heimil-
um sínum. Má þar t. d. benda
á togarasjómenn. Tveir bátar
róa nú frá Sandgerði, annar
frá Húsavík, en hinn er skráður
í Sandgerði, en það eru aöeins
eigendur um borð. Þessir tveir
bátar hafa aflaö sæmilega und-
anfarna daga og taldi Maron, aö
það hlyti að vekja örvandi á
samningsvilja beggja aðila.
astar. — Útgerðarmenn
a.m.k. hér munu hafa haft
hug á því að ganga eithvað
til móts við kröfur sjómanna
enda eru þær sanngjamar.
Samningar hefðu því eflaust-
tekizt eða væru langt komn-
ir, ef Farmanna- og fiski-
mannasambandið hefði ekki
komið inn í dæmið.
Það er ákaflega bagalegt á-
stand þegar vetrarvertíð stöðv-
ast, hélt Ragnar áfram. Við
megum sannarlega ekki við því
núna, hvorki þjóðin, sem heild,
né einstaklingarnir. Ragnar sagð
ist ekki vera trúaður á þá kenn-
ingu, að útgerðarmenn væru
ekki óðfúsir í að leysa verk-
fallið vegna erfiðleika, sem
stundum eru í útgerö í janúar.
— Þeir hafa það mikinn fasta-
kostnað í landi, sem ekki nýtist
nema þegar gert er út, og hafa
margir þegar ráðið mannskap
í fiskverkunarstöðvarnar.
Ragnar sagöi, að mikið mundi
bætast við á atvinnuleysisskrá
þessa dagana, þegar beitninga-
menn kæmu til að láta skrá sig.
Þó að þeir séu ráönir hjá bát-
unum til að beita fyrir þá línu,
eru þeir ekki taldir meðal á-
hafnarinnar og eru samkvæmt
því ekki í verkfalli. Þessir menn
og margir fleiri hefðu ekki kom-
ið til að láta skrá sig á venju-
legum tímum, þó að eitthvert
tímabundið atvinnuleysi væri.
Því gæfu atvinnuleysistölur
kannski ekki alveg rétta mynd
af ástandinu ef það er borið
saman við fyrri tíma.
Hann sagðist ekki álíta að
margir myndu bætast í hópinn á
næstunni eftir að þessir menn
hefðu látið skrá sig, en ef verk-
fallið stendur til langframa hefði
það aö sjálfsögðu lamandi áhrif.
Sú litla vinna, sem er I fiskverk
unarstöðvunum legðist niður og
verkefni þryti hjá ýmsum þjón-
ustufyrirtækjum, eins og t.d.
vélsmiðjum.
Hann sagði að allmikil vinna
væri á Keflavíkurflugvelli og
hefur hún ekki dregizt saman.
Allt orðið hálf-
gerður ríkisrekstur
segir Július Danielsson
Jjað hafa verið erfiðir tímar
áður á íslandi eins og á
árunum milli 1930 og ’40. En
þá gátu útgerðarmenn ekki
leitað til ríkisstjómarinnar til
að leysa úr erfiðleikum sínum
heldur varð hver að hjálpa sér
sjálfur. Nú er þetta allt orð-
ið hálfgerður ríkisrekstur,
sagði Júlíus Daníelsson for-
maður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Grindavíkur.
Jtgerðarmenn virðast ekki
vera neitt sérstaklega áfjáðir
í að semja og vilja ekki vera
að flýta sér. Þeir hafa næg
an tíma og ríkisstjómin hiálp
ar þeim ef illa fer. Ég er mfög
vantrúaður á að sjómanna-
verkfallið levsist í þessum
mánuði og jafnvel ekki fyrr
/ Grindavik
liðið á þann
er
en langt
næsta.
Hér I Grindavík er þegar allt
í dauðanum. 60 menn af um
140 í félaginu eru þegar komn-
ir á atvinnuleysisskrá, þrátt fyr-
ir góöa viðleitni tveggja frysti-
húsanna hérna til að halda uppi
vinnu. Mér virðast þessi hús
frekar halda uppi vinnunni .í
gustukaskyni við verkamenn
en af þörf fyrir aö þessi verk
veröi unnin, sem nú er unnið
að, þ. e. aö dytta aö húsunum,
sem þegar var búið að dytta aö
fyrir vertíðina. Þessi tvö hús
hafa haldið uppi vinnu t. d. í
sumar oft meir af áhuga en
getu. Ég vona að þessi hús verði
ekki látin gjalda þess, heldur
10. sfða.
Atvinnuástandið á Suðurnesjum þyngist nú með hverjum
deginum eins og víðast um landið og sérstaklega í útgerðar-
stöðvum. — Það var þungt hljóðið í verkalýðsforingjunum í
Keflavík, Sandgerði og Grindavík, þegar Vísir hafði samband
við þá í gær. Þeir voru allir frekar svartsýnir á, að sjómanna-
deilan leystist í bráð og tveir þeirra kenndu því um, að út-
gerðarmenn væru ekkert sérlega óðfúsir í að semja m.a. vegna
óbilgjarnra krafna yfirmanna á flotanum. Viðtölin birtast
hér á eftir, en áður hafa birzt viðtöl við útgerðarmenn, at-
vinnurekendur og sveitarstjórnarmenn á sömu stöðum.
Sá guli fær nú að vera í friði, því flotinn Iiggur bundinn í höfn.