Vísir - 10.02.1969, Side 1
Enn dregur úr mannfjöfgun
— notkun „pillunnar" segir æ meira til stn
febrúar 1969. - 34. tbl.
Notkun „pillunnar“ svokölluðu
hefur farið ört vaxandi undanfar-
in ár og er farin að segja til sín
á biöðum Hagstofunnar, sem sýna
allmiklu lægri tölur um mannfjöig-
un en undanfarin ár, og hefur þessi
tala farið lækkandi ár frá ári síöan
1955. Er fjölgunin aðeins um 2000
manns s.L ár, samkv. bráðabirgða-
tölum, en þó má reikna með að
endanlegar töiur verði nokkrum
hundruöum hærri. Samkvæmt þess
Myndirnar gefa hugmynd um hina gríðarlegu stærð þotunnar frá Boeing. — Flugfreyjumar (verða 26 í farþegaflugi) standa
inni í hreyfiishúsinu. — Hin myndin er af þotunni, þegar hún kom fyrst út úr flugvélarsmiðjunni.
Risak>otan Boeing reynd i fyrsta sinn i gær.
— LoftleiBir og oliufélögin undirbúa móttöku
hennar á Keflavikurflugvelli
■ Nýja risaþota Boeing-
verksmiðjanna, Boeing
747 eða „Jumbo“ eins og hún
er kölluð, var reynd í fyrsta
skipti I Washingtonríki á
vesturströnd Bandarfkjanna I
gær. Upphafið var ekki eins
glæsilegt og til hafði staðið.
Reynsluflugferðin stðð að-
eins í 77 mfnútur, en ætlun-
in var að ferðin stæði tvær
og hálfa klukkustund. Það
munu hafa verið einhverjir
tæknilegir örðugleikar, sem
ollu bví að flugferðin varð
ekki lengri. Það er nú orðið
ljóst, að það verða fleiri en
Boeing-verksmiðjumar sem
þurfa að huga að tæknilegum
erfiðleikum vegna þotunnar.
Þannig skapar afgreiðsla þot-
unnar ýmsa erfiðleika og þá
einnig hér á Keflavíkurflug-
velli, þegar hún fer að lenda
hér.
Loftleiðir, sem sjá um af-
greiðslu flugvéla á Keflavíkur-
flugvelli, hafa þegar hafið und-
irbúning að því að fá ýmis tæki
sem nauðsynleg verða við af-
greiðslu flugvélarinnar, að því
10. sfða.
um tölum voru íslendingar 3. des.
1968 201.975, en vom á sama tima
i fyrra tæp 200 þúsund.
Árið 1964 fjölgaði íslendingum
um 3318, árið 1965 um 3528, árið
1966 um 3185, 1967 för fjölgunin
niður í 2987 og eins og áður segir
er hún aðeins rúm 2000 sJ. ár,
þó að þar megi að öllum líkindum
bæta einhverju við, þar sem hér
er um bráðabirgðatölu að ræða.
THULE
stóðst
prófið
Thule-bjórinn hefur verið
gæðaprófaður í Bandaríkjunum,
og stóðst hann prófið með ágæt
iseinkunn. Er þetta gert með út
Qutning í huga. Þetta kemur
fram í viðtali við Biama Einars
son, bæjarstjóra á Akureyri,
sem birt er á 9. síðu í blaðinu í
dag. Bæjarstjórj telur einnig
auövelt að stækka Sana-verk-
smiðjumar, enda séu þær að
verulegu leyti gerðar fyrir meiri
framleiðslu en verið hefur.
Þá segir bæjarstjóri að Eyfirð-
ingar krefjist þess, að ameríska
álverksmiðjan, ef tíl kemur,
verði reist við Eyjafjörð.
Sjá viðtöl við Ákureyringa á
bls. 9.
✓/
//
íslandsklukkan
til Ameríku
— sýnd m. a. i New York og Chicago
Þjóðleikhúsið hyggur nú á leik-1 verið látið uppi um þessa leikför
fö' vestur um haf með íslands-! ennþá, þar sem cndanlega hefur
klukku Laxness, og mun það vera | ekki verið gengið frá ýmsum at-
f'vrsta leikför fsiendinga til Amer-1 riðum ferðarinnar, en sýningin er
rku. Verður leikritið væntanlega | allviðamikil til flutnings milU heims
sýnt í ýmsum borgum Bandaríkj-1 álfa. , jslandsklukkan" var sem
anna og Kanada, m. a. New York, i kunnugt er fmmsýnd s.l. vetur og
Chicago og Winnipeg. Ekkert hefur j sýnd áfram I vetur, en leikstjóri er
Baldvin Halldórsson.
Sjómannadeilan að leysast?
— sáttatillaga tiibúin
Vestmannaeyingar biða átekta til mibvikudags
Torfi Hjartarson, sáttasemj-
ari, mun í gær hafa unniö að
samningu sáttatillögu, er verði
lögð fyrir aðila í sjómannadeil-
unni. Fundur var frá níu í gær-
kvöldi og fram undir sexleytið
í morgun. Samkomulag náðist
ekki, og hefur annar fundur
ekki verið boðaður. Aðilar töldu
þó liklegt, að aðeins væri um
örstutt hié að ræða og yrði
kvatt til fundar þegar í stað.
Sáttasemjara er heimilt að
láta fara fram allsherjaratkvæöa
greiðslur í einstökum félögum,
jafnt sjómanna og útvegsmanna,
um sáttatillögur. í nótt mun
hann hafa kannað viðhorf full-
trúanna til meginatriða tillagn-
anna. Atkvæðagreiðslur gætu
því verið á næsta leiti. Ekki
hefur spurzt, út á hvað tillög-
umar ganga í smærri atriðum.
Bæjarráð Vestmannaeyjakaup
staðar beitti sér um helgina fyr-
ir athugun á því, hvort unnt
væri ð ná sérsamningum þar í
bæ, þar sem verkfaliið hefur
lamað allt athafnalíf. Magnús H.
Magnússon, bæjarstjóri, sagði i
morgun, að samkomulag hefði
ekki enn tekizt um það, og væri
málinu frestað til miðvikudags,
meðan kannaö væri. hvernig til
tækist á fundunum í Reykjavík.
Hennar bíður lömun, en lækn-
ar úti eygja möguleika
— Við höfum fengið aðvörun um,
að kostnaður við aö senda sjúka
til læknishjálpar í Bandaríkjunum
geti numið hundruðum þúsunda
, króna, sagði amma litlu stúlkunn-
ar, sem liggur á Barnaspítala
Hringsins og á þann vonarneista
einan, að komast þangað sem lækna
vislndin hafa skaraö lengst fram úr.
„Við höfum auðvitað ekki bol-
magn til þess ~o senda hana. Slíkt
geta ekki nema auðkýfingar, en okk
ur er ljóst, aö viö íslendingar höf-
um gefið milljónir króna til hjálpar
bágstöddu fólki erlendis, fólki, sem
við vitum engin deili á. Svo viö
erum vongóð um, að einhverjir fá-
ist til þess að leggja litla baminu
okkar lið.“
Þannig komst amma telpunnar
litlu, sem Vísir gat um á laugardag,
að oröi. Þær eru alnöfnur, heita báð
ar Vilhelmína Guðmundsdóttir en
Vilhelmína yngri, sem fæddist síð-
ústu jólanótt, hefur aldrei farið út
úr sjúkrahúsi, þessa tvo mánuði
ævi sinnar.
„Læknar kalla sjúkdóm hennar
Klofinn hrygg. Hún fæddist með op-
ið sár á bakinu. Það náði inn að
mænu,“ sagði Vilhelmína eldri í
samtali viö blaðamann Vísis.
„Strax á jóladagsmorgun var
gerð á henni skurðaðgerð og sár-
inu lokað. Þaö tókst giftusamlega
og við munum seint fá þakkað
lækninum, sem aðgerðina geröi,
eins og vert væri, Síðan lifðum við
lengi milli vonar og ótta, því hætta
var á, að vatn mundi renna til
höfuðs hennar og þá gæti mynd-
M-+ 10. síða.