Vísir - 10.02.1969, Qupperneq 3
VISIR . Mánudagur 10. rebrUar 1969.
3
ISLAND YFSR I 50 MINUTUR
—-en þá „sprakk blaðran" — Dönum tókst
að æsa hina ungu leikmenn Islands til
grófra aðgerða — tvéir út og fimm viti —
Danir úr 12:12 i 17:12 á 6 minútum
□ ísland hafði forystuna eftir fyrri hálfleikinn í
Helsingör-hallen, þegar ísland og Danmörk léku
sinn 9. landsleik í handknattleik. Fyrri hálfleikur
ísl. liðsins var mjög góður, íslendingarnir sóttu mun
meira, en danska liðið virtist tilbúið að mæta þeim
„óargadýrum“, sem hin „heiðarlega“ danska í-
þróttapressa hafði lýst daginn áður eftir leikinn
gegn Svíum. Voru Danir greinilega tilbúnir í slags-
mál og gengu mjög í skrokk á íslendingunum.
Hvað eftir annað var íslend-
ingum dæmt aukakast, ekki sizt
vegna brota Gert Andersens, fyr
irliðans. 1 seinni hálfleik héldu
Islendingar forystunni allt fram
til 50. mínútu, — 10 mínútur
voru til leiksloka þegar Danir
jafna 12:12 og á 6 mínútum kom
ast þeir yfir í 17:12 og vinna
leikinn 17:13. Jón Hjaltalín
Magnússon, sem haföi átt góðan
leik meiddis' í upphafi hálf-
leiksins og kom ekki inn fvrr
en undir lok leiksins, þrem leik
mönnum var vísaö af velli í
2 mín. fyrir tiltölulega léttvæg
brot, þeim Sigurbergi Sigsteins
syni Auðuni Óskarssyni og Ólafi
H. Jónssyni. Þá fékk liðið á
sig 5 vítaköst, — þaö var
greinilegt að Dönum tókst að
æsa og egna hina ungu leik-
menn út í leik, sem ekki var
þeim hollur.
Tilgangurinn helgaði meðalið
að þessu sinni, — það voru
Danir sem tókst að vekja upp
villidýrin og greinilega hafði þaö
verið tilgangurinn.
Langbezti maður íslenzka liðs
ins og maðurinn sem hundruð
þúsunda horfðu á í danska sjón-
varpinu beggja vegna Eyrar-
sunds, var Geir Hallsteinsson.
Hann skoraði 7 mörk og átti
stórkostlegan leik, hin mörkin
skoruðu þeir Ólafur H. Jónsson,
Sigurbergur Sigsteinsson og Jón
Hjaltalín, hver með 2 mörk. Þá
var Hjalti Einarsson mjög góð-
ur í markinu.
Sagði Rúnar Bjarnason, aöal-
fararstjóri liðsins í gær aö fsl.
liðið hefði vakið mikla hrifningu
fyrir leik sinn í fyrri hálfleik
meðal áhorfendanna í Helsingör,
en þeir voru aöeins 1800, enda
var leiknum sjónvarpað, eins og
fyrr segir. Voru fslendingarnir
í sókn a. m. k. 3/4 af hálf-
leiknum, en ótal sinnum voru
aukaköst dæmd á Danina.
Norsku dómaramir áttu afar
slæman dag eins og fjrr segir.
Graversen reyndist marka-
hæstur Dananna með 5 mörk,
öll úr vítaköstum, Per Svend-
sen skoraði 3 mörk og átti góð-
an leik og þá var Mortensen,
markvörður í essinu sínu í
marki Dananna.
Hilmar: — of stór sigur?
i&m
Það vorum viC sem áttum
að vinna"
„Við áttum alls ekki að tapa
þessum leik, — við áttum að
vinna,“ sagði Hilmar Björnsson,
landsþjálfarinn í handknattleik
í gærdag eftir leikinn í Helsingör
við Dani. „Mér finnst það ári
hart, að leika góða leiki, — en
verða svo að sjá einhverja tvo
svartklædda menn hafa það í
hendi sér hver vinnur,“ sagði
hann og átti við dómarana.
Hilmar sagði ennfremur: „Þess-
um leik tapaði liðið okkar aðeins
á „rútínu“-leysi. Þetta er ungt lið
og á eftir að læra margt og fá
mikla reynslu. T.d. þegar stendur
12:12 og 13:12 fyrir Dani, þá miss
um við tvo menn út af hvorr á eft-
ir öðrum og fáum á okkur víta-
köst, þetta þoldum við ekki“.
Hilmar kvað það greinilegt hvern
ig dönsk blöð gera f því að fá
dómarana upp á móti íslendingum,
kalla þá villidýr í mannsmynd og
sitthvað í þá áttina, — aðeins til
að dómararnir séu á varðbergi
gegn þessum „villidýrum".
„Þessi sigur var of stór fyrir
Danina, þeir áttu alls ekki að vinna
leikinn, strákarnir urðu of æstir
og „svekktir" f seinni hálfleik eftir
ágætan leik framan af i leiknum.
— Þið eruð vonandi bjartsýnir
þrátt fyrir allt? spurðum við Hilm-
ar.
„Já, blessaður vertu, það geturöu
bókaö. Þiö vitum að það er margt
sem þarf að laga, og við munum
vinna aö því að það verði gert“.
Um dómarara vild; Hilmar sem
fæst orð hafa, þeir hefðu verið
mjög lélegir, en dómararnir komu
frá Noregi og kvað hann þá hafa
verið algjöra „heimadómara", -
en slíkir menn eru líklega 4—5
marka virði fyrir heimaliðið.
Sigurður Einarsson sést hér skora af línu í landsleik íslands og Sviþjóöar
á föstudagskvöldið.
YIÐ BJOÐUM YÐUR
* Hagkvæmusfu greiðsluskilmála sem 'þekkjast
Lágt verð
Vandaðar vórur
Góða þjónustu
Uollir*
Simi-22900 Laugaveg26