Vísir - 27.02.1969, Síða 5
V í SIR . Fimmtudagur 27. febrúar 1969.
5
Kaffi frá ýmsum löndum
affídrykk ja er nokkuö, sem
ekki þarf aö kynna fyrir is-
lenzbum húsmæðrum, sem
drekka líklega meira kaffi en
stöilur þeirra alls staðar annars
staðar i heiminum, a.m.k. ef
miöað er við fólksfjölda.
Ean þaö er hægt aö laga og
framreiða kaffi á margan hátt,
og ætlum við að gefa ykkur
nokkur göð ráð um hvemig laga
skuK kaffi samkvæmt siöum
ýmissa þjóöa. Viö byrjum á
nokkrum ráöum sem nauðsyn-
legt er aö kunna, trl aö laga
gott káffi.
1. Notiö alltaf eins nýtt kaffi
og hægt er. Kaupið ekki mik
ið magn af kaffi i einu og
geymið aiitaf í loftþéttum
umbuöum.
2. Notið alltaf vel hreina kaffi-
könnu. Könnuna þarf aö þvo
oft með vatni og sápu eða
með heitu vatni, með örlitl-
um sóta í. Þetta vanraekja
íslenzkar húsmæður oft, en
kaffiskán innan á kaffikönn-
unni gefur kaffinu ramt og
vont bragö.
3. Búið ekki til of Ktiö kaffi i
einu, þá næst ekki hið rétta
kaffibragð. „Trekkið" kaffið
vel, þegar sjóðandi vatninu
er hellt i pokann. sem alltaf
þarf að vera hreinn.
4. Berið kaffið fram eins fijött
og haegt er. Bf þiö þurfið að
látíö það standa, hafið það þá
á asbestplötu á heitri hellu
og fjarlægið korginn á meðan
Hitið kaffi aldrei upp.
Og þá koma kaffiuppskrift-
írnar frá hinum ýmsu löndum.
Belgískt:
Mjúkur „marengs" er settur
i botninn á bollanum og siðan
er sterku, sjöðhei-tu kaffi hellt
yfir.
Franskt:
Sterku, heitu kaffi er bland-
að saman við sama niagn af
heitri mjölk um leið og hellt er
í bollana. Þetta kaffi kallast
,.Café au Lait.“
Havaiskt:
Þar sem við fáum ekki kókos
hnetur hér á landi, mælum við
með havaisku kaffi löguöu á
þennan hátt: Sjóöiö í potti kókos
mjöl, mjólk og sykur, síiö kþkos
mjöliö frá og belbð mjólkinni i
kaffibolíann og heitu kaffi yfir,
hlutföliin eiga að vera jöín.
Stráið kókosmjöM yfiB.
írskt:
Sætt, sterkt kaffi er biandað
saman viö írskt viskí (eftir
smekk) og borið fram með þeytt
um rjóma ofan á hverjum bolla.
Tyrkneskt:
Sykur og kaffi er soðið sam-
an í potti þrisvar sinnum og
boriö fram í örlítlum bollum.
(Þetta kaffi hefur ekki notið
mikilla vinsælda á Vesturiönd-
um, en sumum þykir það gott).
Ukranískt:
Sterkt kakó, sykur, kaffi og
mjólk er blandað saman og bor
ið fram i stórum bellum með
þeyttum rjöma.
V estur-ind verskt:
Mjólk, kaffi og púöursykur
er blandaö saman og hrært í
meö kanelstöng.
Og svo eru það nokkrar kaffi
tegundir, sem þékktar eru um
allan heim:
Cappuccino:
Sterkt kaffi lagað og hellt
saman við sama magn af heitri
mjólk. Kryddað með múskat
eða kanel.
Expresso:
Lagaö í sérstakri vél og bor-
ið fram í litlum bollum, gjarnan
með sykri og sítrónu, en aldrei
rjóma.
Caffé Borgia:
Kaffi og heitt súkkulaði bland
að saman í jöfnum hlutföllum,
borið frani með þeyttum rjóma
og rifnum appelsinuberki stráð
yfir.
Caffé Anisette Royal:
Stórir bollar fylltir af ex-
pressokaffi og /2 tsk. af ani-
sette líkjör sett í hvern bolla
ásamt þeyttum rjóma.
Café Diable:
Sterkt, svart kaffi kryddaö
með negul, kanel, sykri, sitrónu
berki og örlitlu koníaki.
TRICITY HEIMILÍSTÆKl
HÚSBVCCJEnDIIR
<H>
l'SLENZKUR
ÍÐNAÐUR
ALLT
TRÉVERK
Á EINUM
STAÐ
NV VERZLUN NÝ ViDHORF
Eldhúsinnréttingar, raf-
íæki, ísskápar, stájvask*
ari svefnherbergisskáp-
ar. fiarðviðarklæ'Jnmg-
ar, ínnf- og ótihurðír.
ÓÐINSTORG
HE
Skólavörðustíg 16, — simi 14275
GRENSÁSVEGI 22 - 24'
SlMAR: 30280 -32262
GÚMMÍSTIMPLAGERÐIN
SIGTÚNI 7 — SÍMI 20960
BÝR TIL STIMPLANA FYRIR YÐUR
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF STIMPILVÖRUM
Ódýrt — Tækifærisverö j
Eftirprentuð málverk meistaranna
Seljurn næstu daga mikið úrval at sérstaklega falleg-
um eftirprentunum í stæröunum 50x70 cm, á aðeins
595. - innrammaðar í furu-ramma. — Athugið að þetta
verö er sama og fyrir fyrri gengislækkunina. Um 700
mismurrmdi myndir um að velja. Höfum einnig myndir
á 65, 95, 195, 225, og 395 krónur. .
Komið meðan úrvali'ð er mest.
ÍNNRÖMMUN og EFTIRPRENTANIR
Laufásvegi 17 (við hliðina á Glæsí).